Fréttablaðið - 04.03.2002, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 4. mars 2002
FRÉTTABLAÐIÐ
11
Ný könnun Gallup um byggingu álvers í Reyðarfirði:
Meir en helmingur
vill álver
ÁLVER Ríflega 55 prósent íslend-
inga eru hlynntir byggingu álvers í
Reyðarfirði. Atvinnumöguleikar
og atvinnusköpun er það sem lang
flestir íslendingar sjá sem já-
kvæða þætti við byggingu álvers í
Reyðarfirði. Um sjötíu prósent
nefndu þessa þætti. Stuðnings-
menn Framsóknarflokksins eru ál-
verinu hliðhollastir. Þetta kemur
fram í nýrri könnun Gallups.
Stuðningsmenn Samfylkingarinn-
ar mældust með 2,7 á skalanum 1
til 5, þar sem fimm táknar „mjög
hlynntur". Verði það að teljast já-
kvæðari afstaða en búast hafi mátt
við miðað við þá andstöðu sem for-
ystumenn flokksins hafi sýnt mál-
inu, segir í skýrslu Gallup. Karlar
voru hlynntari byggingu álversins
en konur. Stuðningur var einnig
meiri á landsbyggðinni heldur en í
Reykjavík. Fjórðungur þeirra sem
tóku afstöðu voru andvígir bygg-
ingu álversins. Túttugu prósent
voru hvorki hlynntir né andvígir.
Átta prósent þeirra sem tóku af-
stöðu sáu ekkert jákvætt við bygg-
ingu álversins. Ellefu prósent sáu
ekkert neikvætt. ■
Dæmdur fyrir e-töflusmygl:
Refsilækkun fyrir að
ætla að henda e-töflum
dómsmál Héraðsdómur Reykja-
víkur hefur dæmt 27 ára karl-
mann, Bjarna Þór Finnbjarnar-
son, í þriggja ára fangelsi fyrir
innflutning á 2.779 e-töflum. Frá
refsivistinni dregst gæsluvarð-
hald hans frá 17. apríl á síðasta
ári. Við dómsuppkvaðningu var
Bjarna metið til refsilækkunar að
þegar komið var að honum með e-
töflurnar á salerni í Leifsstöð virt-
ist það vera ætlun hans að henda
efnunum.
Bjarni var handtekinn þegar
hann kom til landsins í apríl ásamt
tveimur samferðarmönnum sín-
um við komuna frá Frankfurt.
Mennirnir höfðu haldið til
Amsterdam og Bjarni keypt fíkni-
efnin þar. Bjarni hélt því fram að
annar samferðamaður hans hefði
fjármagnað ferðina og kaupin á
fíkniefnunum. Sá neitaði sök og
önnur vitni báru ekki um þátt
hans í innflutningnum. Var hann
því sýknaður af ákærunni. Þriðji
ferðafélaginn var ekki talinn
tengjast málinu. ■
Metro á Spáni:
Mest lesna
dagblaðið í
Barcelona
dagblöð Samkvæmt skoðunar-
könnun er Metro International
mest lesna fréttablaðið í
Barcelona sem dreift er ókeypis
þar í borg með 354.000 lesendur í
nóvember s.l. Aðeins átta mánuð-
ir er síðan blaðið hóf göngu sína
þar en í Barcelona er einnig gefið
út Metro Directe. Ljóst er að
hefðbundnu blöðin hafa verið
glíma við að halda í lesendur sína
en þeirra aðallesendur eru eldri
karlmenn. Metro hefur hins veg-
ar tekist að ná til sín yngri lesend-
um. ■
Utanríkisráðherra Svía hvetur Bandaríkin til að vinna með öðrum þjóðum:
Leika veraldarlöggur
erlent Utanríkisráð
herra Svía, Annt
Lindh, hefur hvat
Bandaríkin til að vinm
með öðrum löndum
alþjóðlegum málefn
um. Hún lagði áhersli
á, að ekkert eitt lanc
ætti að haga sér eim
og „veraldarlögregla"
Einnig sagði hún að ör
yggisráð Sameinuðu
þjóðanna yrði að heim
ila hvaða hernaðarað
gerð á írak sem er
Vissulega stafaði ógi
af írak. Hún væri þó ekki sam-
mála því að eðlileg afleiðing
þeirrar ógnar væri árás á landið.
Eftir að bandaríkjaforseti taldi
Baghdad sem einn af þeim stöð-
ANNA LINDH, ap/mynd
Sænski utanríkisráðherrann, til vinstri,
ásamt Goran Svilanovic, utanríkisráðherra
Júgóslavíu. Þau hittust á fundi í Stokkólmi
á fimmtudag.
um sem væri öxull
hins illa, hafa verið
uppi getgátur um, að
bandaríkjamenn
hyggist gera árás.
Lindh sagði í viðtali
við sænska útvarps-
stöð, að slíkar
ákvarðanir ættu að
vera í höndum örygg-
isráðsins. Ekki ein-
stakra landa sem
undir kringumstæð-
unum hegðuðu sér
líkt og „veraldarlögg-
ur“. Þótt Bandaríkin
hafi verið í náinni samvinnu við
evrópska bandamenn sína í bar-
áttunni gegn hryðjuverkum, er
enn uppi sami ágreiningur og var
fyrir ellefta september. ■
Ertu
JJJSÖ
ieyff?
Sumarbæklingur
LAX-Á er kominn!
Tryggðu þér
ókeypis eintak
í verslun okkar.
UtiVist
*«VíIÐI
Síðumúla 11 • 108 Reykjavík • S: 588-6500 • www.lax-a.is
4-
Oskaswirm. ein|!ar«Kinn ÖrytarÞu#
... vitt- BarurakJtlMitn
'vja««gwMta»#ln .
Tálsgs.'oj, "N,.
Nónu*)iimid#t«í \ t i.t»to»a1r| Ifvk ---
'''-#Sknú<«f#t.«mtkal#Rvfs, /\ \ \
Vrwtwgoní '. \ ^ H X
/ i TW - j QK0,is>R«rt( X X
•Un<i*kotök«l/" .J.\ /' / \ X \
—.; v-
ÞJÓNUSTA REYKJAVlKURBORGAR
Miðborg
\
iðn< Un9lm#«#fhv#d
■ iii u i iimi, ,ui Ra<*hu* -/
i'vknkieiió Rvk R»ykJ»'rtkMf“*inii»»k4U. H,< bjohu»iurril<)st<» t*n»'«í ,.
stotnun
\/
(ÉítHMorg
/v-\ \ ” >
/ A í / / / \ \
fJ*r\ \ \
^SKipul3U%vc>ö hy<jfliri«a%vid
)dmhv«rtitt* og (wknisviö
\Tv\\íX>J(
w \.. \ \ \ 0r
. 0i^ufé^o*g
v., "'.y X\ Rorg#nrtutMk]tf»tof»
'ý/ 'Wjfcétr*lð b». Hlommuf
gto*.v#l»ká«klnn / . ] ~T,-4
Au'»tuf*|*r. /|•-
0 BORÖARSKKIW0.FUN Ff LAOSAJÓNU4TA
0 QAUNNSKÓLAA fTK
• LEtKSKÖLAK MtNNIN<AAK»
LciPkSivwvAN STAKP36MÍ
$ OJLStUVfcUiK 0 STRATÓ BSi
Q «ÍLAST#BAHÚS UMHVrRHSMAI.
r NfAiliutrtU'...
inliullsskáli - vmnkoli
/ X \
No^borg
v /
\ V7
/ i
B*ki»tðða#iðyrkju
Hverti»b«»ki*tðð Miklaluni
Hverfafundur borgarstjóra
meö íbúum Miöborgarinnar
...fer i kvöld ki. 20:00 í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi WBBWI
Á fundinum ræöir borgarstjóri áherslur í starfi borgarinnar og helstu framkvæmdir á árinu 2002. Einnig
verður ný hverfskipting borgarinnar kynnt ásamt ýmsum hugmyndum um samráö íbúa og borgaryfirvalda.
Borga rstjóri