Fréttablaðið - 04.03.2002, Qupperneq 12
FRETTABLAÐIÐ
4. mars 2002 MANUDACUR
GARÐABÆR
www.gardabaer.is
Innritun í grunnskóla
Garðabæjar.
Til foreldra 6 ára barna og þeirra barna og
unglinga sem þurfa að flytjast á milli skóla
og/eða sækja um dvöl á tómstundaheimili
skólaárið 2002-2003.
Innritun 6 ára bama (fædd 1996) fer fram í
Flataskóla og Hofsstaðaskóla
dagana 4. - 7. mars, kl. 9:00 - 15:30.
Um skiptingu í skólahverfi er vísað
í bréf sem sent hefur verið heim til allra 6 ára
barna sem áttu lögheimili í Garðabæ
þann l.janúarsl.
Einnig fer fram innritun skólaskyldra barna
og unglinga sem em að flytja frá öðmm
bæjarfélögum. Áríðandi er að foreldrar innriti
böm sín á þessum tíma.
Sömu daga fer fram innritun þeirra barna sem
sækja um dvöl á tómstundaheimilum Flataskóla
og Hofsstaðaskóla næsta skólaár.
Á skrifstofum skólanna em eyðublöð fyrir slíka
umsókn. Eyðublöð em einnig
á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is.
Mikilvægt er að sótt verði sem fyrst um dvöl
á tómstundaheimilunum til að tryggja að hægt
verði að koma til móts við óskir um vistun.
í Flataskóla er innritað á skrifstofu skólans
í síma 565-8560 og þar eru veittar
nánari upplýsingar.
í Hofsstaðaskóla er innritað á skrifstofu skólans
í síma 565-7033 og þar em veittar
nánari upplýsingar.
í Garðaskóla fara nemendur sem eiga að fara í
7.,8.,9. oglO. bekk. Ekki þarf sérstaklega að
innrita nemendur sem flytjast úr 6. bekk
Flataskóla og Hofsstaðaskóla eða 7. bekk
Álftanesskóla. Nánari upplýsingar á skrifstofu
skólans í síma 565-8666.
• Kynningarfiindir Flataskóla og
Hofsstaðaskóla með foreldrum barna sem
eiga að heíja nám í l.bekk (fædd 1996)
verða í skólunum miðvikudaginn
22. maí nk. kl. 18:00.
• Foreldrum sem vilja innrita börn sín með
öðrum hætti en fram kemur hér að ofan er
bent á að hafa samband við gmnnskóla-
fulltrúa í síma 525-8500.
Sérstök athygli er vakin á því að umsóknarffestur
um heimild til að stunda nám í grunnskólum
annarra sveitarfélaga eða einkaskólum
er til 10. apríl ár hvert og skulu umsóknir berast
skólaskrifstofu á eyðublöðum sem þar fást.
Endurnýja þarf umsóknir fyrir nemendur,
sem nú em í slíkum skólum, sé þess óskað
að þeir verði þar áfram næsta skólaár.
Grunnskólafulltrúi
Fræðslu- og menningarsvið
Lærðu að klippa og hljóðsetja
mymlböndín þin i heimílistölvunni!
vei... góða töh/u?
Vlsslr þu að moð réttum búnaðl má breytn
PC-tÖlvunnl þitinl í fullkomlð mynd- og
hljóðvinnslu vor fyrlr myndbönd?
Okkar margreynda og sívinsæla námskúló I
myndbantíagerð hefst 12. tnars næskomandi.
Nanari upplýsingar og skráning hjá
Idntæknistofnun í síma 570 7100,
og á vefsíðu okkar www.ltl.ls ^
ísraelsher hefnir árása sem kostuðu 19 n
Gagnkvæmar hefndir kosta t
Matvörukeðjurnar stytta
opnunartíma:
Uppsagnir um
mánaðamót
atvinna Stóru matvörukeðjurnar,
Baugur og Kaupás, sögðu upp fólki
í hagræðingarskyni nú um mánaða-
mótin. Baugur hefur sagt upp sjö
starfsmönnum í Hagkaup í Smára-
lind. Til stendur að breyta vakta-
kerfi og stytta afgreiðslutímann.
Kaupás fækkaði stöðugildum um 14
- 15. Ástæða þeirra uppsagna er að
verið er að breyta KÁ búðum og 11-
11 búðum í Krónu búðir. Afgreiðslu-
tími Krónu búðanna er mun styttri
en í fyrri búðum. Minni þjónusta er
í búðunum og þarf því færra starfs-
fólk. ■
ófriður ísraelsher gerði í gær árásir
á bækistöðvar lögreglu og öryggis-
sveita Palestínustjórnar á Vestur-
bakkanum og Gazasvæðinu. Að
minnsta kosti fjórir Palestínumenn
lögreglumenn létu lífið. Árásirnar
voru sagðar í hefndarskyni vegna
tveggja árása Palestínumanna sem
urðu 19 ísraelsmönnum að bana fyrr
um daginn.
Palestínsk leyniskytta myrti tíu
ísraelsmenn snemma í gærmorgun
við eina af eftirlitsstöðvum ísraelska
hersins á Vesturbakkanum. Þrír
óbreyttir borgara létu lífið ásamt sjö
hermönnum.
Fáeinum klukkustundum áður
hafði Palestínumaður gert sjálfs-
morðsárás á fjölfarinni götu í Beit
Israel, hverfi strangtrúaðra gyðinga
í Jerúsalem. Níu manns létu þar lífið
auk sprengjumannsins. Sex börn lét-
ust í þessari árás og meira en þrjátíu
manns særðust. Meðal hinna látnu
voru 18 mánaða gömul stúlka og 12
ára bróðir hennar. Þá létu sjö mán-
aða barn og móðirþess lífið.
Átökin milli Israelsmanna og
Palestínumanna hafa eflst um allan
helming undanfarið. Fyrir helgina
gerði Israelsher árásir á flótta-
mannabúðir Palestínumanna í bæj-
unum Jenín og Balata á Vesturbakk-
anum. Tuttugu og fjórir Palestínu-
menn létust og hátt á annað hundrað
særðust.
Allt að 28% munur á
tekjuviðmiði afsláttar
Lífeyrisþegar á höfuðborgarsvæðinu eiga rétt á afslætti á fasteignagjöldum.
Alls staðar tekjutengt nema í Kópavogi. Miklu meiri munur á tekjuviðmiði
einstaklinga en hjóna á höfuðborgarsvæðinu.
KÓPAVOGUR
Þar er afsláttur ekki tekjutengdur.
fasteignir Einstaklingur í hópi elli- eða
örorkulífeyrisþega búsettur á Sel-
tjarnarnesi má vera með 28% hærri
tekjur en kollegi hans úr Hafnarfirðin-
um til að fá 100% niðurfellingu fast-
eignaskatts. Elli- eða örorkulífeyris-
þegi búsettur á Seltjarnarnesi með allt
að 108.000 krónur í mánaðatekjur fær
100% niðurfellingu á fasteignaskött-
um. Seltirningar hafa hæstu tekjuvið-
mið fyrir 100% niðurfellingu á fast-
eignaskatti á höfuðborgarsvæðinu sé
miðað við einstaklinga. í Hafnarfirði
fær einstaklingur 100% niðurfellingu
á fasteignasköttum og holræsagjöld-
um ef hann er með innan við 84.250 kr.
á mánuði, það eru lægstu tekjuviðmið-
in á höfuðborgarsvæðinu. Holræsa-
gjöld eru ekki innheimt á Seltjamar-
nesi þannig að í peningum talið þá fá
Hafnfirðingar meiri afslátt.
Mosfellingar hafa hæstu tekjuvið-
mið er kemur að 100% niðurfellingu á
fasteignasköttum og holræsagjöldum
hjóna. Þau mega vera með allt að
142.580 í laun á mánuði til að fá niður-
fellingu. Hafnfirsk hjón í þessum hópi
fá 100% niðurfellingu á fasteigna-
gjöldum ef þau eru með innan við
131.833 á mánuði. Munurinn þar er því
um 8%.
DÆMI 1.
Reykvískur lifeyrisþegi með milljón í árs-
laun.
100% niðurfelling á fasteignaskatti og
holræsagjöldum.
Ef hann er búsettur í íbúð að verðmæti
10 milljónir, þá greiðir hann 17.480 í stað
60.980 (fasteignagjöld.
í öllum sveitarfélögum á höfuð-
borgarsvæðinu nema Kópavogi er af-
sláttur á fasteignagjöldum til elli-og
örorkulífeyrisþega tekjutengdur. I
Kópavogi fá ellilífeyrisþegar fastan
afslátt af fasteignaskatti, 32.500, og
gildir þá einu hvaða tekjur þeir hafa.
Það kemur tekjuháum ellilífeyrisþeg-
um til góða en þýðir að tekjulágir
Kópavogsbúar í þessum hópi fá tölu-
vert minni afslátt en aðrir á höfuð-
DÆMI 2.
• Mosfellsk hjón úr hópi lífeyrisþega með
2,1 milljón kr í árslaun.
• 40% afsláttur á fasteignaskatti og hol-
ræsagjaldi.
■ Ef þau eru búsett I húsi að verðmæti 20
millj. kr., þá greiða þau 87.300 í stað
122.500 I fasteignagjöld.
borgarsvæðinu því þeir þurfa alltaf að
borga holræsagjöld. Afsláttur til ör-
orkulífeyrisþega í Kópavogi er hins
vegar tekjutengdur.
Ef öll sveitarfélögin sex eru tekin
inn í dæmið þá kemur í ljós að meðal-
tekjuviðmið til fullrar niðurfellingar á
fasteignaskatti og holræsagjöldum er
um 95.000 á mánuði fyrir einstakling.
Ef miðað er við hjón er viðmiðið að
meðaltali um 133.700
Afsláttur sveitarfélaga til lífeyris-
þegar fer stigminnkandi eftir því sem
tekjur aukast. Sá útreikningur er mis-
munandi á milli sveitarfélaga en al-
mennt fá hjón sem eru með um 2,5
milljón í árstekjur engan afslátt. Hjá
einstaklingum er þakið um 1,7 milljón-
ir króna í árstekjur. ■
Bandaríkin gera loftárásir í austanverðu Afganistan:
Hart barist þriðja daginn í röð
surmad. ap Bandaríkjamenn gerði
loftárásir í gær þriðja daginn í röð ;
fjöllin í austanverðu Afganistan
Talið er að liðsmenn al Kaída og tali
banahreyfingarinnar hafi verið ai
safna liði þarna í fjöllunum undan
farið. Fjölmargir hellar eru þar enn
þar sem þeir geta leynst.
Á laugardaginn hófst jafnfram
sókn bandarískra og afganskra her
manna á landi. Einn Bandaríkjamað
ur og þrír Afganir sem börðust mei
Bandaríkjunum féllu í bardögun
fyrsta dag landhernaðarins. Af
ganskur læknir sagði einnig ai
minnsta kosti sex Bandaríkjamem
hafa særst á laugardaginn.
Sprengjum var í gær varpað ú:
bandarískum flugvélum á fjallgarð
ana Shah-e-Kot og Kharwar. Þykk;
reykjarstróka lagði frá snævi þökt
um tindum fjallanna og titring mátti
greina í jörðu í margra kílómetra
fjarlægð.
Bandarískir embættismenn sögðu
að 1500 Afganir hafi tekið þátt í bar-
dögunum með Bandaríkjamönnum á
BÆKLINGAR SKOÐAÐIR
Afganir I austanverðu Afganistan skoða bæklinga sem Bandaríkjamenn vörpuðu úr flugvélum um
helgina. Á bæklingunum stendur: „Hættið andspyrnu ykkar. Hættið bardögum. Að öðrum kosti
eigið þið ykkur ekki viðreisnar von."
laugardaginn. Einnig hafi ástralskir
og kanadískir hermenn tekið þátt í
bardögunum ásamt bandarískum
hermönnum og sérsveitarmönnum. ■