Fréttablaðið - 06.03.2002, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 06.03.2002, Blaðsíða 12
12 FRETTABLAÐIÐ 6. mars 2002 MIÐVIKUDAGUR MIÐVIKUDAGUR 6. mars 2002 13 Skrauflistar 09tOS eftíflr IM /Æ'{r- 4/ MÁLARINNim Bcejarlind 2 • Kópavogí • Simi: 581 3500 yiðvöndumti| veislunnar Fermingartilboö i Dillgrafinn lax með sinnepssósu. Kókos- og chilimarineraðar rækjur á salatbeði. Grænmetisbaka með kotasælu. Tómatsalat með fetaosti og rauðlauk. Skötuselssalat með melónu. Heimabakaðar brauð- bollur. Kryddhjúpaðar kjúklinga- bringur á steiktu spínati. Gljáður hamborgarahryggur með heitri rauðvínssósu. , Q áœannKí. 1^00,' FermingartilboÖ 2 Grafinn lax með sinnepssósu. Blandaðir sjávarréttir í melónu (hörpuskel, skötuselur og rækja). Ofnbakaður kjúklingur með eplasalati. Roast beef með kart- öflusalati og remoulaði. Gljáður hamborgarahryggur með heitri sósu. Heitt innbakað lambalæri, kryddað með hvítlauk og sinnepi með tilheyrandi meðlæti. é mann kr. 2250,- Boröbúnaður er innifalinn i verðinu. VEISLUELDHUS HARÐAR Þórsgötu 17 ■ Sími 562 3495 Raf- geyma þjónusta VELALAIMD VÉLASALA * TÚRBÍNUR VARAHLUTIR • VIÐGERÐIR Vagnhöfði 21 • 110 Reykjavík Sími: 5774500 velaland@velaland.is Þungaskatti breytt yfir í olíugjaldskerfi: Skattabreytingar til að auka veg dísilbíla mencun Ríkisstjórnin hyggst breyta skattlagningu á dísilbíl- um til að auka innflutning á slík- um bílum til einkanota í stað bensínbíla. í því skyni er verið að vinna að því í fjármálaráðu- neytinu að breyta núverandi kerfi þungaskatts. Ætlunin er að breyta þungaskattinum að minnsta kosti að hluta yfir í olíu- gjaldskerfi. Það er talið auka hagkvæmni fyrir rekstur dísil- bíla. Þá er ætlunin að efla al- menningssamgöngur með því að afnema þungaskatt af almenn- ingsfarartækjum. Til að efla inn- flutning á sparneytnari bílum er ætlunin að gera breytingar á vörugjaldi. Þetta er hluti þeirra ráðstafa sem unnið er að í sam- ræmi við stefnumörkun ríkis- stjórnar til að geta staðið við skuldbindingar loftslagssamn- ings Sameinuðu þjóðanna og Kyoto-bókunarinnar. Umhverfis- ráðherra telur að þessar ráðstaf- anir muni ekki hafa í för með sér auknar álögur á landsmenn. Af öðrum tillögum sem unnið er að til að draga úr útstreymi gróðurhúsalofttegunda á að auka bindingu kolefnis með skógrækt og landgræðslu. Jafnframt á að gera tilraunir með orkugjafa eins og t.d. vetni sem getur komið í stað olíu. Þá verður leitað leiða til UMFERÐIN Ef að líkum lætur mun dísilbílum fjölga all verulega á næstu árum á götum borgarinnar vegna aðgerða stjórnvalda. að tryggja að fyrirtæki í áliðnaði geri fullnægjandi ráðstafanir til að halda útstreymi flúorefna frá framleiðslunni í lágmarki. Enn- fremur verður leitað leiða til að draga úr orkunotkun í fiskiskipa- flotanum. Það á m.a. að gera með aukinni fræðslu til skipstjórnar- og útgerðarmanna um orku- sparnað. Jafnframt á að stuðla að því að ný og endurnýjuð skip verði búin bestu fáanlegri tækni til að bæta orkunýtingu. Draga á úr urðun úrgangs og þá einkum lífrænna efna og minnka um leið útstreymi gróðurhúsaloftteg- unda. Þá er ætlunin að auka áherslur á rannsóknir, upplýs- ingagjöf til almennings og þróun- arstarf sem gæti stuðlað að aukn- um árangri í því að minnka loft- mengun af völdum gróðurhúsa- lofttegunda eins og kostur er. grh@frettabladid.is Raðauglýsingar Innan við 2% innflytjenda á Islandi eru flóttamenn Bjarney Friöriksdóttir, forstöðumaður Alþjóðahússins, segir að Island taki vel á móti þeim fáu flóttamönnum sem koma hingað. Vandinn væri allt annar á hinum Norðurlöndunum enda fjöldi flóttamanna mun meiri. í Svíþjóð hefði flóttafólk verið hýst í skipum. innflytiendur Ekki er rétt að bera aðstæður innflytjenda á ís- landi saman við aðstæður inn- flytjenda á hinum Norðurlönd- unum að sögn Bjarneyjar Frið- riksdóttur, framkvæmdastjóra Alþjóðahússins. Hún sagði að vandamál í tengslum við aukna kynþáttafordóma á Norðurlönd- unum væru tilkomin vegna þeir- ra félagslegu aðstæðna sem þeir byggju við. „Það eru ofboðslega stór mis- tök hjá okkur hérna á íslandi að vera alltaf að bera okkur saman við Norðurlöndin," sagði Bjarn- ey. „Aðstæður innflytjenda á ís- landi eru gjörólíkar aðstæðum innflytjenda í t.d. Danmörku og Noregi. Við tökum aðeins á móti brotabroti af flóttafólki miðað við hin Norðurlöndin. Innan við 2% innflytjenda á íslandi eru flóttamenn en víða á Norður- löndunum er þetta hlutfall um 60%.“ Bjarney sagði að í dag væru um 10 þúsund útlendingar bú- settir á íslandi og heildarfjöldi flóttamanna væru um 380. „Flóttamennirnir koma yfir- leitt hingað í boði ríkisstjórnar- innar. Á íslandi er bara einn hælisleitandi sem hefur verið viðurkenndur sem flóttamaður." Að sögn Bjarneyjar koma flestir innflytjendur til íslands til þess að vinna. Hún sagði að allt aðrar aðstæður væru á hin- um Norðurlöndunum. „Flóttafólk á Norðurlöndun- um er oft mjög lengi í flótta- mannabúðum. Það býr kannski svo mánuðum eða árum skiptir í einhvers konar lokuðum búðum. í Svíþjóð hefur flóttafólk t.d. verið hýst í skipum. Fólkið er í þessum búðum allan daginn og hefur ekkert við að vera. Það er ekki að vinna og er ekki í skóla. Það er algjörlega stop í lífinu. Fólk er kannski að flýja eitthvað ógnarástand í heimalandi sínu en það sem tekur við er kannski ekki fangelsun en innilokun. Þær aðstæður sem það býr við í sínu nýja heimalandi elur síðan af sér félagslega einangrun og andlega vanlíðan. Því finnst það kannski ekki vera velkomið í samfélagið." Bjarney sagði að forsendurn- ar fyrir því að fólk fengi að flyt- ja til íslands væru að það hefði ráðningarsamning frá fyrirtæki. Inflytjendurnir færu beint út í atvinnulífið og sköpuðu sér ein- hvern félagslegan grundvöll ólíkt því sem gerðist víða er- lendis. Hún sagði að aðstæður flóttafólks væru einnig allt aðr- ar hérlendis enda væru fáir flóttamenn hér miðað við t.d. á hinum Norðurlöndunum. „Það er mjög vel tekið á móti þeim fáu flóttamönnum sem er boðið af ríkisstjórninni. Mótuð hefur verið heildstæð dagskrá fyrir fólkið. Því er útveguð vinna og húsnæði og börnin fara í skóla. Til samanburðar er í Danmörku mikill fjöldi sómal- skra flóttamanna og 91% þeirra eru atvinnulausir. Þessar ólíku aðstæður milli íslands og hinna Norðurlandanna hafa mikil áhrif á innkomu fólks í samfélagið og velgengni þeirra." trausti@frettabladid.is ALÞJÓÐAHÚSIÐ Bjarney Friðriksdóttir, framkvæmda- stjóri AlþjóðahÚ5sins, sagði að í dag væru um 10 þúsund útlendingar búsettir á islandi og heildarfjöldi flóttamanna væru um 380. Kynþáttafordómar á Islandi: Miklar rang- hugmyndir uppi innflytjendur Miklar ranghug- myndir eru á meðal almennings á íslandi um fjölda innflytjenda á íslandi að sögn Bjarneyjar Frið- riksdóttur, framkvæmdastjóra Alþjóðahússins. Hún sagði að auk þess að sinna ýmiss konar þjón- ustu við útlendinga væri eitt af hlutverkum Alþjóðahússins að upplýsa fólk og sporna gegn kyn- þáttafordómum. Eins og komið hefur fram í Fréttablaðinu hefur viðhorf ís- lenskra ungmenna til nýbúa breyst mikið á síðustu árum. Könnunin Rannsóknar og grein- ingar frá árinu 2000 sýndi að um 32% nemenda í 9. og 10. bekk voru mjög eða frekar sammála því að á íslandi byggju of margir nýbúar. Bjarney sagði að Alþjóðahúsið stæði fyrir fordómafræðslu bæði fyrir fullorðna og börn. Hún sagði að oftast kæmi í ljós að fólk hefði mjög rangar hugmyndir um fjöl- da innflytjenda á íslandi. „Oft talaði það um að hingað streymdu innflytjendur. Sem dæmi þá sagðist ungur drengur vilja losna við alla Pakistanana. Hann var spurður um hvort hann vissi hvað þeir væru margir. Hann sagðist ekki hafa hugmynd um það. Þá var honum sagt að þeir væru í kringum ellefu. Þetta er mjög mikið svona. Okkar fræðsla gengur mikið út á það að leiðrétta þessar röngu hugmyndir og upplýsingar sem fólk hefur. Grundvöllurinn að fordómum eru vissar staðalmyndir sem fólk hef- ur um ákveðna hópa.“ ■ Grunað fólk í alvarlegu fíkniefnamáli: Sleppt lausum úr gæsluvarðhcildi löcreclumál Kona og maður sem grunuð eru um aðild að stóru fíkniefnamáli hafa verið látin laus úr gæsluvarðhaldi sam- kvæmt úrskurði Hæstaréttar. Málið snýst m.a. um innflutning á um 5 kílóum af amfetamíni í jan- úar. Úrskurðurinn hnekkti viku- gömlum úrskurði héraðsdóms sem hafði orðið við kröfu lög- reglu um varðhald yfir fólkinu fram til 8. apríl nk. Konan viðurkenndi m.a. að hafa flutt skilaboð og peninga milli bróður síns í Þýskalandi og ýmssa karla og kvenna hér á landi. Kveðst hún hafa vitað að peningarnir voru afrakstur fíkni- efnasölu. Hún hefur játað að hafa fengið menn hér á landi til að taka við póstsendningum sem hún vissi að innihéldu fíkniefni. Maðurinn hefur viðurkennt að hafa sótt og geymt dósir að und- irlagi barnsmóður sinnar. Hins HÆSTIRÉTTUR ÍSLANDS Lögregla færði ekki rök fyrir því að gæslu- varðhald sé nauðsynlegt yfir konu sem ját- aði aðild að stóru fíkniefnamáli. vegar hafi hann ekki vitað að þær innihéldu fíkniefni. Hæstiréttur segir rökstuddan grunúr fyrir hendi um að fólkið eigi aðild að broti sem við liggi allt að 12 ára fangelsi. Hins vegar hafi ekki verið færð viðhlítandi rök fyrir því að hlutur þeirra í málinu sé slíkur að áframhaldandi gæsluvarðhald yfir þeim sé nauð- synlegt með tilliti til almanna- hagsmuna. ■ Frjálslyndir og óháðir: Ólafur og Margrét leiða framboðið framboðsmál Ólafur F. Magnús- son borgarfulltrúi segir að stefnt sé að því að kynna framboðslista og málefnaáherslur Frjálslyndra og óháðra fyrir komandi borgar- stjórnarkosningar um miðjan mánuðinn, eða 18. mars n.k. Ólaf- ur mun ásamt Margréti Sverris- dóttir framkvæmdastjóra Frjáls- lynda flokksins leiða listann í borginni sem er sagður nánast til- búinn. Fyrir utan Reykjavík er unnið að framboði Frjálslyndra og óháðra í ísafjarðarbæ og einnig í Skagafirði. Þá er búist við að full- trúi flokksins verði í framboði með öðrum í Sandgerði og Þor- lákshöfn. Óvíst er með fleiri framboð. Ólafur F. segist líta svo á að framboðslistinn endurspegli vel þær áherslur sem framboðið stendur fyrir. Þær lúta m.a. að umhverfismálum, umferðar- og öryggismálum og heilbrigðis- og velferðarmálum. Sem dæmi nefn- ir hann að það sé fásinna að Reykjavíkurborg ætli að taka þátt í því að skuldsetja sérhvern borg- arbúa fyrir um eina milljón króna vegna Kárahnjúkavirkjunar. Hann segir að ef hann verði áfram kjörinn fulltrúi borgarbúa í borg- arstjórn muni hann leggja þunga áherslu á það að knýja ríkisvaldið fil að leggja fram meira fjármagn til að efla t.d. umferðai’öryggi og löggæslu. í því sambandi bendir hann á að það virðist vera til gnótt af peningum þegar „Kárahnjúka- og sendiráðasukk" er annars veg- ar. Af þeim sökum sé ljóst að það þui’fi að forgangsraða hlutunum upp á nýtt. ■ ÓLAFUR F. MACNÚSSON Segir að framboðslistinn sé nánast tilbúinn. íbúar í Úganda: Halda upp á fall Idi Amins kampala. ap íbúar í Úganda ætla héðan í frá að halda daginn 14. apr- íl hátíðlegan ár hvert. Tilefnið er fall einræðisherrans Idi Amins árið 1979. „Það hefur verið ákveðið að gefa valdatapi Idi Amins nauðsynlega athygli," sagði talsmaður forseta Úgandas, Yoweri Musaveni. Hann sagði að ríkisstjórnin hafi raunar verið búin að taka þessa ákvörðun fyrir ári. Ekki hafi tekist að skipu- leggja daginn fyrr en nú. Idi Amin rændi völdum í Úg- anda árið 1971 þegar Milton Obote, þáverandi forseti, var staddur er- lendis. ■ | INNLENT I Miklir erfiðleikar eru í rekstri Landspítalans. Skortur er á húsnæði, rúmum og starfsliði að því er ruv.is greinir frá. Nú þegar vantar 255 hjúkrunan'ými. Á bráðadeildum Landspítalans liggur fjöldi fólks sem ætti að vistast annars staða og fólk sem bíður eft- ir plássi á hjúkrunarheimilum. Eft- ir nokkra daga verður rækileg út- tekt lögð fyrir ríkisstjórnina sem heilbrigðisráðherra lét vinna. ■ INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3-101 Reykjavík Sími 570 5800 - Bréfsími 562 2616 Netfang: isr@rhus.rvk.is UTBOÐ F.h. Strætó bs er óskað eftir tilboðum í ábyrgðartryggingu strætisvagna og þjónustubíla. Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu Útboðsgögn eru seld á skrifstofu okkar á kr. 3.000. Opnun tilboða: 22. apríl 2002 kl. 14:00, á sama stað. STR15/2 F.h. Fasteignastofu Reykjavík- urborgar er óskað eftir tilboðum í múrviðgerðir á 5 leikskólum Reykjavíkurborgar. Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar gegn 5.000 kr. skilatryggingu. Opnun tilboða: 20. mars 2002 kl. 11:00, á sama stað. FAS16/2 Orkuveita Reykjavíkur UTBOÐ Orkuveita Reykjavíkur, Gatnamála- stofa Reykjavíkur, Lína.Net og Landssími íslands óska eftir tilboðum í verkið: „Endurnýjun gangstétta og veitukerfa 2. áfangi 2002, Hlíðar.“ Endurnýja skal dreifikerfi hitaveitu, vatns- veitu, rafveitu og síma og gangstéttir í Bogahlíð, Stigahlíð, Grænuhlíð og Hamrahlíð. Helstu magntölur eru: Skurðlengd: 3.770 m Lengd hitaveitulagna: 4.060 m Strengjalagnir: 27.200 m Lagning ídráttaröra: 6.900 m Heilulögn: 300 m2 Steyptar stéttar: 2.280 m2 Malbikun: 1.300 m2 Verkinu skal lokið 10. september 2002. Útboðsgögn fást á skrifstofu Innkaupa- stofnunar Reykjavíkurborgar, Frí- kirkjuvegi 3, Reykjavík frá og með 5. mars 2002 gegn 20.000 kr. skila- tryggingu. Opnun tilboða: 19.mars. 2002 kl. 11:00 á skrifstofu Innkaupastofnunar. SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ BORGARTÚN 3-105 REYKJAVÍK • SÍMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219 Auglýsing um deiliskipulag og breytingu á aðalskipulagi í Reykjavik Grafarvogur, lóð Landssímans sunnan Borgarvegar austan Smárarima. í samræmi við 18. og 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, er hér með auglýst til kynningar tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 1996-2016 og deiliskipulagsáætlun fyrir lóð Landssímans í Rimahverfi Grafarvogi. Tillögurnar taka til svæðis er afmarkast af lóð Rimaskóla til suðurs, Smárarima til vesturs, Borgarvegi til norðurs og íbúðabyggð við Laufrima og Mosarima til austurs. Tillaga að breytingu á aðalskipulagi gerir ráð fyrir að breyta landnotkun lóðarinnar úr athafnasvæði í íbúðarsvæði að mestu. U.þ.b. 5700 m2 svæði (tvær lóðir), í kringum núverandi byggingar, verður þó áfram athafnasvæði. Þá verður hluti svæðisins syðst á reitnum, sem liggur að lóð Rimaskóla, stofnanasvæði þar sem gert er ráð fyrir að heimilt verði að byggja leikskóla og grunnskóla fyrir yngstu börnin. Deiliskipulagstillagan gerir m.a. ráð fyrir að nyrst á svæðinu, upp við Borgarveg, rísi þrjár íbúðarblokkir 7-11 hæða með u.þ.b. 132 íbúðum auk þjónustumiðstöðvar. Þar rísi jafnframt tvær íbúðarblokkir á þremur hæðum með allt að 72 íbúðum. Heimilt verði að reisa hjúkrunarheimili í stað 3 hæða blokkanna. Samkvæmt tillögunni verður lögð ný gata um mitt svæðið. Milli hennar og núverandi byggðar við Laufrima og Mosarima verði heimilt að byggja 8 raðhús á 2. hæðum með samtals um 59 íbúðum. Aðkoma að þeim verður um hina nýju götu. Á miðju svæðinu, í kringum núverandi hús fjarskiptastöðvarinnar, verði auk þess heimilt að reisa atvinnuhúsnæði á 2. hæðum. Syðst, við lóð Rimaskóla, er gert ráð fyrir stofnanalóð fyrir barnaskóla fyrir yngri börn og leikskóla á allt að 2 hæðum. Vestast á svæðinu, við Smárarima, er gert ráð fyrir 47 einbýlishúsum á 1-2 hæðum með aðkomu frá Smárarima. Tillögurnar liggja frammi í sal skipulags- og byggingarsviðs í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 10.00 - 16.00 frá 6. mars 2002 til 17. apríl 2002. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum við þær skal skila skriflega til skipulags- og byggingarsviðs (merkt skipulagsfulltrúa) eigi síðar en 17. apríl 2002. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar. Reykjavík, 6. mars 2002. Skipulags- og byggingarsvið.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.