Fréttablaðið - 06.03.2002, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 6. mars 2002
FRÉTTABLAÐIÐ
11
Hagstjórn Seltjarnarnesbæjar gagnrýnd:
Skuldir vaxið um 70% á 4 árum
fjármál Skuldir Seltjarnarnesbæj-
ar uxu um 70% frá árinu 1997 til
2001 að sögn Sunnevu Hafsteins-
dóttur, bæjarfulltrúa Neslistans.
Sunneva og Högni Óskarsson,
sem eru í minnihluta í bæjar-
stjórn, gagnrýndu fjármálastjórn
sjálfstæðismanna harkalega á
bæjarstjórnarfundi í síðustu viku
þegar þriggja ára fjárhagsáætlun
bæjarsjóðs var rædd.
Sunnevar sagði að Neslistinn
hefði látið taka saman fyrir sig
upplýsingar um skuldastöðu bæj-
arins og niðurstaðan væri sú að
höfuðstóll þeirra hefði vaxið úr
297 milljónum króna árið 1997 í
505 milljónir árið 2001. Sunneva
sagði að engin heildarstefna eða
langtímamarkmið væru í fjár-
hagsáætluninni. Þar væri rætt um
að halda áfram að lækka skuldir
og draga úr fjármagnskostnaði,
sem skuldastaðan sýndi að hefði
ekki verið gert.
Að sögn Sunnevu hafa afborg-
anir og vextir vaxið um 73% á síð-
ustu fjórum árum. í bókun sem
minnihlutinn lagði fram á bæjar-
BEST REKNA BÆJARFÉLAGIÐ
Sigurgeir Sigurðsson, bæjarstjóri Seltjarnar-
ness, vísar gagnrýni minnihlutans til föður-
húsanna og segir bæinn eitt besta rekna
bæjarfélag landsins.
stjórnarfundinum segir að
greiðslur yfirdráttarvaxta hafi
vegið þungt á síðasta ári, en þan-
nig vaxtagreiðslur þættu ekki
merki um góða hagstjórn.
Sigurgeir Sigurðsson bæjar-
stjóri sagðist vísa gagnrýni
minnihlutans til föðurhúsanna.
Fjárhagsstaða Seltjarnarness
væri mjög góð samanborið við
önnur sveitarfélög og bærinn
fengið hól sem best rekna bæjar-
félag landsins undanfarin ár.
Hann sagði að langtímaskuldir
bæjarins næmu um 375 milljón-
um króna og að þær væru greidd-
ar niður um 50 milljónir á ári. ■
Gríðarlega mismunandi verð á fiski:
Allt að 97%
verðmunur
milli verslana
neytendur Gífurlegur verðmunur
er á fiskverði á milli verslana. í
nýrri verðkönnun Samkeppnis-
stofnunar kemur fram að munur-
inn er allt að 97%. Það er heil smá-
lúða sem er á svo misháu verði.
Hún var dýrust í Hagkaupum
Eiðistorgi, á 1279 en ódýrust í
fiskbúðinni Hafrúnu, á 650 kr. kg.
Mjög mikill verðmunur er einnig
á stórlúðu í sneiðum, 89%, nýjum
og söltuðum kinnum, 89%, stein-
bítssneiðum og steinbítsflökum,
82% og 89%. Stórlúðan var dýrust
í Nýkaup í Kringlunni, 1999 kr. kg
en ódýrust í Fjarðarkaupum, 1098.
Nýjar og saltaðar kinnar voru
dýrastar í Fiskbúðinni Vör en
ódýrastar í Fjarðarkaupum, 360
kr kg. Steinbíturinn var ódýrastur
í Nóatúnsverslunum en dýrastur í
Fiskbúðinni Hafberg og Fiskbúð-
FISKINN Á DISKINN
Meðaltalshækkun á fiski er nokkum vegin sú sama og hækkun vísitölu. Verðmunur á milli
verslana er hins vegar mjög mikill.
inni Vör þegar um var að ræða
sneiðarnar en í Hagkaupum Eiðis-
torgi þegar um var að ræða flökin.
38% verðmunur var á ýsuflök-
um, þau voru ódýrust í Samkaup-
um, á 795 kr. kg en dýrust í versl-
unum Nóatúns, 1098 kr. kg.
64% verðmunur var á hrogn-
um, þau voru ódýrust í Fiskbúð-
inni Okkar, á 650 kr. kg en dýrust í
verslunum Nóatúns á 1069 kr. kg.
Verðkönnunin var gerð í 17
fiskbúðum og 11 matvöruverslun-
um á höfuðborgarsvæðinu. Kann-
að var verð á 16 tegundum auk
hrogna og lifrar. Sambærileg
könnun var gerð fyrir einu ári síð-
an. Ef borið er saman meðalverð á
fisktegundunum þá og nú kemur í
ljós að þær hækka að meðaltali
um 14,2%. Vísitala neysluverðs
hefur hækkað um 8,9% á tímabil-
inu, þar af liðurinn matvörur um
13,3%. ■
[ VIÐSKIPTI |
IGlandsbanki bendir á að óheppi-
legt sé þegar innherjar eigi
viðskipti með hlutabréf skömmu
fyrir uppgjör fyrirtækja, sem
þeir tengjast. Benda þeir á þrjú
slík dæmi í síðustu viku; viðskipti
með bréf SH, Síldarvinnslunnar
og SR-mjöls. Þó er ekki gefið í
skyn að innherjarnir hafi nýtt sér
trúnaðarupplýsingar til að hagn-
ast á viðskiptunum.
......
Krónan styrktist í síðustu viku
og var gengisvísitalan í
135,83 stigum í lok vikunnar.
Greiningardeild íslandsbanka tel-
ur að afgangur á viðskiptajöfnuði
við útlönd í desember og janúar,
fréttir af góðri loðnuveiði og nýt-
ing vaxtamunar hafi ráðið þar
mestu.
Undrakrem!
Grœðandi og
uppbyggjandi
f~ andlits- og
kuldakrem.
20% afsláttur i mars!
Apótekið, Lyf & heilsa,
Heilsuhúsin, Lyfja,
Blómaval, Heilsubúðin Hfj.
og sölustaðir um land allt.
\ / (go*/uvá
.kaij0fej»l(jar*kýil
ÞJÓNUSTA REYKJ AVÍKU RBORGAR
v Laugardalur
uvdllUr
Félags*og
þjómistumiðstoð" ^
« oinka#]
qsWÍMjursfeiti ..sóríl^)l
Laugardalilðuo i j v
#4
(
__ ðkautðhlmi
ilthöM® \
X<\ \ .:’"’(^u»ajwH»fes!i
Fjöi»krH!ua»r«uf í \ \ '•priMsjvberg
Lundur«elnksrckínn
irdui
Slthc msf
. ' Mónjínw
lUbofg^j í j
\ S*sjuvi>llur
TúmthAH
Aillaitíji
mtm
UUíkrllslfafe f
BOROARSKRIF8TOFUR F6LAOSWÖNUSTA
ORUNNSKÓLAR / ITR
LEIKSKÓLAR
OÆSLOVeLLIR UMKVERFI8MAL
V-....
4 jOrkuvejSiRevlííiivliW \jj)^an
y y \ \ \ \ \
V)Stfmiiníli l>*VfiS; J ;
MENNINOAR-
8TARFSEMI
-1
Hverfafundur borgarstjóra
meö íbúum á svæöinu norðan Miklubrautar, austan Lönguhlíðar og vestan Elliöaáa
ér I kvijld k(. 20:001 féjiigsliteimiii Þróttar . ___________________________
Á fundinum ræðir borgarstjóri áherslur í starfi borgarinnar og helstu framkvæmdir á árinu 2002. Einnig
verður ný hverfskipting borgarinnar kynnt ásamt ýmsum hugmyndum um samráð íbúa og borgaryfirvalda.
Borgarstjóri