Fréttablaðið - 18.04.2002, Blaðsíða 6
SPURNING DAGSINS
Hver verður næsti
borgarstjóri"
„Ég held að Björn Bjarnason eigi eftir að
merja þetta.“
Olga Baldvinsdóttir
nemi í Flugskóla íslands og starfsmaður Beco.
„KANARÍ-FISKUR"
Náið er tylgst með breytingum á öndun
fisksins í árvatninu.
Herstöð í Maryland:
Láta fiskinn
prófa vatnið
umhverfi Hermenn í herstöð
Bandaríkjanna í Ft. Detrick í Mary-
land-fylki reiða sig nú á að sérstakt
afbrigði ferskvatnsfisks segi til um
hvort drykkjarvatn þeirra sé meng-
að eða ekki. Hermálayfirvöld vilja
hafa vaðið fyrir neðan sig þó að áin
Monocacy, sem sér herstöðinni fyr-
ir vatni, þyki nokkuð hrein. Her-
mönnum er gert að taka þaðan
reglulega sýni sem þeir leyfa fiskn-
um (blu-egill sunfish) að svamla í
dágóða stund. Öndunarkerfi teg-
undarinnar er afar viðkvæmt og
öndunin tekur sýnilegum breyting-
um við minnstu mengun. ■
Viðey:
Mótmæla
brúargerð
skipulag Náttúruvernd ríkisins og
Fuglaverndarfélag íslands mæla
ekki með því að byggð verði brú
eða göng út í Viðey. Olafur Steph-
ensen, landeigandi í Viðey og Þór-
ir Stephensen, fyrrverandi stað-
arhaldari, mótmæla einnig hug-
myndum um brúargerð milli
Gufuness og Viðeyjar. Þeir telja
hana í mótsögn við niðurstöður
stýrihóps um framtíð Viðeyjar.
Borgaryfirvöld telja það ekki
vera rétt. Samkvæmt hugmynd-
um hópsins eigi Viðey að vera að-
gengileg allan ársins hring. Ef
niðurstöður könnunar sýni að
tenging sé ófýsileg verður það
skoðað við endurskoðun aðal-
skipulagsins. ■
•• **tt*t' *«f. 'V*.
FRÉTTABLAÐIÐ
18. april 2002 FIIVIMTUDAGUR
Byggingtinðnaður:
Öryggishjálmum Kkt við nærföt
samiðn Svo virðist sem viðhorf at-
vinnurekenda til öryggismála
starfsmanna sinna sé ekki alltaf
sem skyldi. Á fundi sem Félag
byggingarmanna á Akureyri efndi
til á dögunum með ungum bygg-
ingarmönnum kom m.a. fram að
sumir yfirmenn telja það ekki
sjálfsagt mál að starfsmenn fái ör-
yggishjálma. Sem dæmi nefndi
einn fundarmanna að þegar hann
bað um að fá hjálm í vinnunni
hefði yfirmaðurinn spurt hvort
hann vildi ekki líka láta hann fá
númer á nærbuxunum sínum. Það
þýddi að það væri jafn fáránlegt
að vinnustaðurinn væri að útdeila
hjálmum og að útvega nærföt fyr-
BYGGINGARVINNA
Fyrirtæki eru sögð almennt hafa öryggis-
mál starfsmanna í lagi þótt finna megi
undantekningar í þeim efnum.
ir starfsfólk sitt.
Finnbjörn A. Hermannsson, for-
maður Samiðnar, segir að þetta við-
horf þekkist í atvinnugreininni.
Það sé þá aðallega hjá minni fyrir-
tækjum þar sem litið er á þetta
sem kostnað. Þar eru menn líka
með bókhaldið fyrir heimilið og
fyrirtækið í einum og saman vas-
anum. Hann áréttar þó að þetta sé
fremur undantekning frá hinu al-
menna í öryggismálum byggingar-
starfsmanna. Þau mál séu almennt
komin í þokkalegt horf miðað við
það sem áður var. Enda sé það á
ábyrgð atvinnurekenda ef starfs-
menn hafa ekki aðgang að viðhlít-
andi öryggisbúnaði á vinnustað. ■
INNLENT
Lögreglan í Hafnarfirði hand-
tók í fyrradag fjóra unga
menn eftir að hass fannst við leit
í bfl þeirra. Mennirnir voru
færðir á lögreglustöðina til yfir-
heyrslu en sleppt að þeim lokn-
Blágóma er heitið á nýju fram-
boði hjá ungu fólki í Vestur-
byggð, sem býður fram til sveita-
stjórakosninga í vor. Um 50
manns hafa lýst yfir stuðningi
við framboðið en uppstilling list-
ans hefur ekki enn verið ákveðin. *
Þetta er í annað sinn sem ungt
fólk fyrir vestan býður fram en
árið 1996 bauð Funklistinn fram í
ísafjarðarbæ og fékk tvo bæjar-
fulltrúa kjörna.
Hringiðan bróar nviar netlausnir:
Háhraða tenging fyrir landið
F ærum peningana
netið Netfyrirtækið Hringiðan
vinnur nú að þróun háhraða inter-
nettenginu. Með tækninni getur
notandi verið sítengdur við inter-
netið, svo lengi sem hann býr inn-
an tíu kílómetra frá símstöð, en
með þeirri tækni sem nú er notast
við verður notandi að vera innan
þriggja kílómetra.
„I byrjun ætlum við að bjóða
upp á allt að tíu megabæta teng-
ingu en eftir ár eða svo vonumst
við til að geta boðið upp á 100
megabæt," segir Guðmundur Kr.
Unnsteinsson, hjá Hringiðunni.
Fyrirtækið hefur þegar reynt
tæknina á Grundarfirði með góð-
um árangri.
í samkomulagi sem samgöngu-
ráðuneytið og Landssíminn gerðu
með sér um uppbyggingu fjar-
skiptakerfa er kveðið á um að
ADSL-þjónusta verði í boði í öll-
um stærstu þéttbýliskjörnum
Haldið er fram
að Lands-
bankinn hafi
verið notaður
til að koma í
veg fyrir sam-
keppni á
trygginga-
markaði eins
og áformað
var.
viðskipti „Við erum að færa pen-
ingana á gjöfulli mið,“ sagði Jón
Ásgeir Jóhannesson, forstjóri
Baugs, aðspurður um ástæður
þess að félag, sem hann er aðili
að, seldi hlut fyrir
um 800 milljónir í
Tryggingamið-
stöðinni (TM).
Hann sagði þetta
vísbendingar um
hver fjárfesting-
arstefna þessa eig-
endahóps væri
gagnvart TM.
Aðspurður
hvort félög tengd
Baugi hafi með
þessu verið að losa
pening til að
standa undir mikl-
um vaxtagreiðslum vegna fjár-
festinga erlendis sagði Jón Ásgeir
svo ekki vera.
Athygli vekur að tveir stjórn-
armenn TM eru meðal seljenda;
þeir Jón Ásgeir og Hreinn Lofts-
son. Hreinn var áður stjórnarfor-
maður TM en hætti eftir átök um
eignarhlut í félaginu. Þau átök
enduðu þannig að Landsbankinn
keypti 11 prósent í TM í nafni fjöl-
skyldu Sigurðar heitins Einarsson-
ar í Vestmannaeyjum af Straumi.
Heimildir Fréttablaðsins segja
að Landsbankinn hafi keypt hlut-
inn á yfirverði, á genginu 67, til að
koma í veg fyrir að aðrir næðu
sterkri stöðu í TM. Lokagengi
þennan dag var 61. TM á líka væn-
GUÐMUNDUR
KR. UNN-
STEINSSON
Framkvæmda-
stjóri Hringiðunn-
ar segir að kostn-
aður fyrir notend-
ur verði svipaður
og á þeirri þjón-
ustu sem nú
þekkist.
landsins, fyrir 75-80% þjóðarinn-
ar. Hringiðan ætlar að bjóða þeim
sem ekki hafa aðgang að ADSL,
sem og öðrum, upp á þjónustuna
og leitar nú stuðnings og fjár-
mögnunar í verkefnið. ■
HREINN LOFTSSON
OG JÓN ÁSGEIR JÓHANNESSON
Bæði Jón Ásgeir og Hreinn eru stjórnar-
menn í TM. Félag þeim tengt hefur nú los-
að eignarhlut I TM en í febrúar
stefndu þessir aðilar á að auka hlut sinn I
fyrirtækinu.
an hlut í íslandsbanka og fléttaðist
þetta inn í yfirráðarétt á þeim hlut
TEKIST Á UM TRYGGINGAMIÐSTÖÐINA
Sala eigendahóps tengdum Baugi I TM virðist marka þau timamót í félaginu, að ekki verði
tekist á um ráðandi hlut í því á næstunni. Eyjafjölskyldan svokallaða á um 43 prósent f félaginu.
á aðalfundi bankans sem var
stuttu síðar.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins hafði Landsbankinn verið
að safna bréfum í TM fyrir Eyja-
fjölskylduna í nokkurn tíma.
Nokkuð hafði verið keypt á lægra
gengi og voru fjölskyldunni seld
bréfin á meðalgenginu 65. Þetta
var hluti af þjónustunni.
Þegar Jón Ásgeir var spurður
hvort salan á mánudaginn tengdist
þessum hræringum sagði hann
það augljóst. Hins vegar vildi
hann ekki tjá sig ítarlegar um það.
Jón Ásgeir segir eigendahópinn
hafa stefnt að breytingum á fjármála-
markaði í tengslum við TM. Aformað
hafi verið að koma með nýjar áherslur
og samkeppni í tryggingakerfinu.
Þegar staðið er í vegi slíkra breytinga
sé vænlegra að færa fjái-magnið á
gjöfulli mið.
bjorgvin@frettabladid.is
fyrírisumanðMhjámkkuK
www.f galla
.1 s
Walarhöfða 2a • 110 Rfiykjavik • Simí: 577 4444 • Fax: 567 7445 • fjallasport@fjallasport.is
á gjöfulli mið
Jón Asgeir Jóhannesson segir augljóst af hverju félag honum tengt sé að losa sig við hlut í Trygg-
ingamiðstöðinni. Þetta er eftirmáli sölu Straums á bréfum TM til Landsbankans. Höfðu hug á
aukinni samkeppni í tryggingasölu.