Fréttablaðið - 18.04.2002, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 18.04.2002, Blaðsíða 24
FRETTABLAÐIÐ SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 20, dreifing@frettabladid.is BP VlÐ SEGJUM FRÉTTIR n á Bakþankar; Björgvins Guðmundssonar Leyndarmál dagbókanna Góð frænka mín hefur unnið hjá Skeljungi í mörg ár og unir hag sínum vel. Þetta er ein af þessum gömlu góðu frænkum sem manni þykir mikið vænt um. Þrátt fyrir örar tækniframfarir hefur mikil- vægi hennar á skrifstofunni síst minnkað og fær hún að halda sínum gömlu vinnuhefðum. Ein af þessum hefðum er að skrifa stutta færslu í dagbók þegar færi gefst á daginn. í mörg ár hefur hún haldið utan um daglegt líf fjölskyldunnar og skráð stórviðburði; bæði sorgir og sigra. Þegar ég hitti hana í fermingar- veislu um daginn sagði hún mér frá atviki einu sem gerðist á vinnu- staðnum í aðdraganda jólanna. Hún var nýbúin að ná sér í morgunkaff- ið og sest niður við morgunverkin þegar her embættismanna rýkur inn. Mennirnir komu í fylgd lög- reglu og frænku var ýtt úr sæti sínu og út af skrifstofunni. Hún sagðist skiljanlega hafa verið skelk- uð yfir látunum í þessu fólki sem sagðist vera frá Samkeppnisstofnun að rannsaka meint verðsamráð olíu- fyrirtækja. —• -♦— Eins og frænka hefur alltaf gert þá hlýddi hún skipunum yfirvalda. Embættismennirnir hirtu alla papp- íra hjá henni og þar á meðal dag- bækurnar þar sem hagir fjölskyld- unnar höfðu verið samviskulega skrásettir. Hún sagðist ekki skilja hvernig þessi stofnun hefði heimild til að ráðast inn á svæðið þar sem hún eyðir megninu af deginum og hirða allt lauslegt. Sárnaði henni mest að dagbækurnar hurfu. Eina samráðið sem var að finna í þeim var samráð þeirra hjóna um gott nafn á barnabarnið. —♦— En leyndarmál dagbókanna er víst ekkert leyndarmál þegar rannsókn- arhagsmunir yfirvalda eru í húfi. Þá er réttur frænku minnar og ann- arra starfsmanna fyrirtækja lítils virði. Hinar göfugu eftirlitsstofnan- ir skulu hafa forgang. En frænka óskar engum illt og sagðist að lok- um vonast til að starfsfólk Sam- keppnisstofnunar hafi getað glaðst og grátið með sorgum og sigrum fjölskyldunnar. Þetta væri jú fólk eins og við. ■ Microsoft• 60LD CERTIFIED Við erum f góðum félagsskap samstarfsfyrirtækja Microsoft sem fengið hafa hæstu einkunn fyrir sölu á Microsoft-lausnum og þjónustu tengdri henni. Microsoft er ekki aðeins kappsmál að fjárfesta f fultkomnum og áreiðanlegum hugbúnaðarlausnum. Fyrirtækið telur ekki síður mikilvægt að samstarfsfyrirtæki þeirra miðli þekkingunni áfram á áhrifarfkan hátt. Til þess þarf þekkingu og hæfni. Til þess þarf fyrirtæki eins og AcoTæknival. Fyrirtæki sem uppfyllir þarfir annarra fyrirtækja um hagnýtar hugbúnaðarlausnir. AcoTækntval veitir þér forskot f samkeppni. Partner AcoTæknival SKEIFUNNI 17 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 550 4000 • WWW.ATV.IS Komin með gullið!

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.