Fréttablaðið - 18.04.2002, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 18.04.2002, Blaðsíða 11
FIMMTUPACUR 18. april 2002 FRÉTTABLAÐIÐ u Gr ænmetiskönnun: Tómatar hækka neytendur 42 grænmetistegundir lækkuðu, 19 tegundir hækkuðu í verði og tvær stóðu í stað þegar verð í byrjun febrúar, áður en toll- ar voru afnumdir, og byrjun aprfl er borið saman. Þetta kemur fram í nýrri verðkönnun Samkeppnis- stofnunar. Hækkunin varð einna mest á innfluttum tómötum, eða 33% að meðaltali, Mest varð lækkunin á íslenskum agúrkum, eða 79% að meðaltali. Samkeppn- isstofnun hyggst fylgjast með verðþróun á grænmeti og ávöxt- um á næstu mánuðum. Verð á grænmeti og ávöxtum ræðst m.a. af uppskeru og árstíma. ■ Umdeild ræða forseta: Gagnrýndur á Alþingi alþingi Ólafur Ragnar Grímsson, forseti, varð fyrir mikilli gagnrýni af hálfu þingmanna við upphaf þingfundar í gær vegna ræðu sem hann hélt um Evrópusambandið og alþjóðavæðingu á þemaþingi Norð- urlandaráðs. Guðmundur Árni Stefánsson, þingmaður Sam- fylkingar, sagði forseta hætta sér út á hættulega braut með því að blanda sér í póli- tísk deilumál. Hann sagði forseta ekki geta brugðið yfir sig fræði- mannskufli og falið þá staðreynd að hann væri for- seti. Enda hefðu erlendir gestir hlýtt á hann sem forseta en ekki fræðimann. Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, sagði ræðu for- seta hljóta að kalla á umræðu. Sjálf- ur sæi hann galla á hvernig forseti hefði hagað málflutningi sínum. Sigríður Anna Þórðardóttir, for- maður utanríkisnefndar, sagði marga erlenda gesti hafa undrast orð forsetans. Steingrímur J. Sigfússon, for- maður Vinstri-grænna, sá hins veg- ar ekkert athugavert við ræðuna. Hann furðaði sig þó á því að menn sem löngum hefðu kallað eftir Evr- ópuumræðu vildu ekki ræða um efnisatriði ræðu forsetans. Undir orð hans tók Kristján Pálsson, þing- maður Sjálfstæðisflokks. ■ ÓLAFUR Flestir þingmenn sem tóku til máls höfðu áhyggjur af því hvernig forseti tjáði sig um um- deilt mál. --«-- Keikó: Situr einn að Klettsvík vísindi Keikó verður áfram í Kletts- vík. í sumar á enn að reyna að fá háhyrninginn til að rífa sig lausan frá mannskepnunni. Ocean Fut- ures-samtökin, sem hafa fengið samþykki bæjaryfirvalda í Stykkis- hólmi fyrir því að flytja dýrið þang- að, segjast vonast til að þeim standi sá möguleiki opinn áfram. Af frétt Ocean Futures má ráða, að það að íslandslax hefur frestað áformum um laxeldi í Klettsvík hafi skapað möguleika á áframhaldandi veru Keikós í víkinni. ■ Búnaðarbankinn þakkar fyrirlesurum og yfir 400 gestum á ráðstefnu um fjármál eldri borgara í Súlnasal Hótels Sögu 16. apríl síðastliðinn fyrir einstak- lega fróðleg og vel heppnuð erindi um stöðu fjármála eldri borgara á íslandi og skemmtilegar og líflegar umræður. bi www, Búnaðarbankinn þakkar (Ql Ifk (0. w í Borgarvefsjánni er að finna uppLýsingar um staðsetningu allra Lagna og tengingar þeirra við hús í Reykjavík. Ekkert mál að finna vatnið, rafmagnið og símainntakið með aðstoð Borgarvefsjárinnar. w w w. borgarvefsja#is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.