Fréttablaðið - 18.04.2002, Blaðsíða 9
giöAJ^ATTJiíB
FRÉTTÁBLÁÐIÐ
!
8
FASTEIGNASALA
r, i'i'i ,« ijTítÍ,)V ’f'ý !iÍl<SS> .<£jl
FIMMTUPAGUR 18. apríl 2002
Læknar í Oregon-fylki:
Mega aðstoða
við sjálfsvíg
PORTLAND. ap Alríkisdómari úr-
skurðaði í gær að Bandaríkja-
stjórn gæti ekki hrundið sérstök-
um lögum Oregon-fylkis sem
leyfa líknarmorð. Dómarinn
skammaði John Ashcroft dóms-
málaráðherra fyrir að hafa ekki
kynnt sér réttarstöðu ríkisins
gagnvart fylkinu áður en hann hóf
að gagnrýna lögin.
Ibúar í Oregon hafa í tveimur
atkvæðagreiðslum á síðustu átta
árum samþykkt athæfið. Sjúkl-
ingur sem ljóst þykir að muni
deyja innan hálfs árs má biðja tvo
lækna um aðstoð. 91 einstaklingur
hefur farið þessa leið síðan.
Þjóðhagsstofnun um ríkisábyrgð:
Hætt við lakari lífskjörum
STJÓRNSÝSLA Þjóðhagsstofnun segir
margt mæla á móti ríkisábyrgð upp
á 20 milljarða króna vegna lyfjaþró-
unarfyrirtækis deCODE. í umsögn
um frumvarp ríkisstjórnarinnar
kemur fram að inngrip í markað
með þessum hætti gæti skekkt hann
og leitt til lakari lífskjara til lengri
tíma litið. „Ríkisábyrgð heftir
„hönd markaðarins" og skekkir
samkeppnisstöðu fyrirtækja," segir
í umsögninni og ábyrgðir megi ein-
vörðungu réttlæta í sérstökum und-
antekningartilvikum á hagfræðileg-
um forsendum.
12 aðilar hafa sent athugasemdir
og umsagnir um frumvarpið til
efnahags- og viðskiptanefndar Al-
þingis. Greiningardeildir Búnaðar-
og íslandsbanka leggjast frekar
gegn ábyrgðinni og tala um mikla
áhættu í lyfjaiðnaði. Þá lýsir stjórn
Samtaka fjárfesta sig mótfallna
frumvarpinu. í áliti Seðlabankans
kemur fram að bankinn telji ríkisá-
byrgðir almennt ekki heppilegar. ■
DECODE GENETICS/ÍSLENSK ERFÐA-
GREINING
í svari fjármálaráðuneytis við fyrirspum Össurar
Skarphéðinssonar, formanns Samfylkingarinnar,
kemur fram að ESB hafi heimilað nokkrum rikj-
um að veita lyfja- og líftaeknifyrirtækium rikisað-
stoð á þeim forsendum að um nýja atvinnustarf-
semi sé að ræða.
HEIMA HJÁ HRAFNI
Árni Þór Sigurðsson við hús Hrafns Gunn-
laugssonar i fyrradag.
Hrafn Gunnlaugsson:
r-f-i* r ♦ ♦
Ijair sig
ekki í bili
skipulagsmál Hrafn Gunnlaugs-
son kvikmyndaleikstjóri segist
ekki vilja tjá sig að svo stöddu um
fullyrðingar Árna Þórs Sigurðs-
sonar, formanns skipulags- og
byggingarnefndar Reykjavíkur,
þess efnis að tilteknar fram-
kvæmdir hús Hrafns í Laugarnesi
séu í óleyfi og að hluta til á landi
borgarinnar.
Hrafn er staddur erlendis í
leyfi. í tölvuskeyti til blaðsins
segist hann ekki vera í aðstöðu til
að tjá sig um málið fyrr en hann
hafi kynnt sé gögn þess betur. ■
SKIP í HÖFN
Hafrannsóknastofnun segir hitastig sjávar
hafa verið svipað fyrir sunnan land og
undanfarin ár, en fyrir norðan og austan
var það heldur lægra en siðustu ár. Loðnu-
magn f þorskmögum var mun meira en
undanfarin ár.
Stofnmæling botnfiska:
2001 lélegur
árgangur
sjávarútvegur Lengdardreifing
þorsks bendir til að 2001-árgang-
urinn sé mjög lélegur meðan ár-
gangar áranna 1997 til 2000 eru
allir í meðallagi. Heildarvísitala
þorsks mældist svipuð og árið
1999. Þetta er meðal bráðabirgða-
niðurstaða Hafrannsóknarstofn-
unar í togararalli sem fram fór í
mars sl.
Meira aflaðist af þorski núna
en í ralli síðasta árs, eða svipað og
árið 2000. í tilkynningu stofnunai'-
innar segir að óvissa sé með
mesta móti í vísitölu þorsksins.
Óvissan er talin skýrast af mikl-
Um breytileika milli stöðva, sér-
staklega á grunnslóð norðanlands.
Stofnvísitala ýsu meira en tvö-
faldaðist frá árinu 2001 og er sú
hæsta frá byrjun rallsins, svipuð
og árið 1987. Aukningin er sögð
vera vegna árganga áranna 1998
til 2000 sem allir eru mjög sterkir.
Stofnvísitala gullkarfa hækkaði
nokkuð frá árinu 2001 og er svip-
uð og árið 2000. Stofnvísitala gull-
karfa hefur hækkað frá árunum
1992 til 1995 þegar hún var í lág-
marki. ■
Fyrirtæki til sölu, t.d.:
• Heildverslun með tæki og vörur fyrir bygg-
ingariðnaöinn. Ársvelta 100 MKR. Góður
hagnaður um margra ára skeið.
• Mjög góður söluturn í Hafnarfirði með bíla-
lúgum, grilli og video. 6,5 MKR mánaðar-
velta og vaxandi. Mikill hagnaður. Árs-
reikningur 2001 tilbúinn.
• Lítil kvenfataverslun við Laugaveg. Góð af-
koma fyrir 1 -2 konur. Auðveld kaup
• Glæsileg sólbaðstofa í Breiðholti. 9 bekkir.
Meðalvelta 1.100 þús á mánuði.
• Veitingahúsið Tex-Mex á Langholtsvegi.
Góður staður með mikla möguleika. Auð-
veld kaup.
• Lítil en vel þekkt heildverslun með iðnað-
arvélar. Hentar vel fyrir 1-2 starfsmenn,
sérstaklega smiði.
• Hárgreiðslustofan Trít, Aðalstræti. Falleg
og björt stofa með 8 stólum. Mikið að
gera. Auðveld kaup.
• Góð sérverslun með íþróttavörur í Austur-
bænum. Ársvelta 24 MKR. Miklir mögu-
leikar. Hentugt fyrir hjón.
• Videósjoppa í Breiðholti með 4 MKR veltu
á mánuði. Auðveld kaup.
• Rótgróið og vel arðbært gistihús mið-
svæðis í Reykjavík. 15 herbergi, ársvelta
20 MKR. Möguleiki á 15 herbergjum til við-
bótar og íbúð fyrir eiganda.
• Sólbaðstofa í miðbænum. 6 bekkir + gufu-
bað og önnur aðstaða. Velta 500-600 þús.
á mánuði og vaxandi. Auðveld kaup.
• Hlíðakjör. Söluturn í góðu húsnæði í Eski-
hlíð. Hentugt fyrir hjón. Auðveld kaup.
• Trésmiðja sem framleiðir aðallega innrétt-
ingar. Góð tæki og húsnæði. 4-6 starfs-
menn. Auðveld kaup.
• Heildverslun með þekkt fæðubótaefni sem
aðallega eru seld í apótek. Ársvelta 20
MKR.
• Verslun, bensínssala og veitingarekstur í
Búðardal. Eigið húsnæði. Mjög góður
rekstur. Ársvelta 180 MKR og vaxandi með
hverju ári. Besti árstíminn framundan.
• Lítill söluturn - videóleiga í Háaleitishverfi.
Auðveld kaup.
• Ein vinsælasta sportvöruverslun landsins.
Góður rekstur - miklir framtíðarmöguleikar.
• Veitingastaður í atvinnuhverfi. Mánaðar-
velta 2-3 MKR á mánuði. Eingöngu opið
virka daga kl. 7-17. Auðveld kaup.
• Góður og vaxandi söluturn í Grafarvogi.
Velta 2,7 MKR á mánuði. Verð aðeins 5,5
MKR.
• Stór og vinsæll pub í miðbænum. Mikil
velta.
• Þekkt lítið veitingahús í miðbænum. Ein-
staklega hagstætt verð og greiðslukjör af
sérstökum ástæðum. Gott tækifæri.
• Lítil heildverslun með snyrtivörur. Ýmsir
möguleikar.
• Söluturn og veitingarekstur með 4 sölulúg-
um á frábærum stað í avinnuhverfi. Árs-
velta 70 MKR.
• Kaffihús við Laugaveg. Ársvelta 35 MKR.
Góður hagnaður.
• Lítil tískuverslun í Kringlunni. Auðveld
kaup.
• Höfum til sölu nokkrar heildverslanir í ýms-
um greinum fyrir rétta kaupendur. Ársvelta
100-350 MKR. Einnig stórar sérverslanir
með eigin innflutning.
• Stór pub í miðbænum. Einn stærsti bjór-
sölustaður borgarinnar.
• Verktakafyrirtæki sem sérhæfir sig í gang-
stéttum. Góð tæki. Ársvelta 50 MKR.
• Stór skemmtistaður í miðbænum. Mjög
góður rekstur.
• Stór og mjög vinsæll pub í úthverfi. Einn
sá heitasti í borginni.
• Lítið plastframleiðslufyrirtæki sem fram-
leiðir bílahluti. Góð markaðsstaða.
• Lítið gistihús í miðbænum. 7 herbergi.
• Lítill sport pub í úthverfi. Mikil matsala.
Auðveld kaup.
• Lítil en mjög efnileg heildverslun með um-
hverfisvæn hreinsefni.
Rótgróið veitingahús við Bláa lónið. Góður
og vaxandi rekstur í eigin húsnæði.
Lítil heildverslun með góða markaðsstöðu
í matvöru óskar eftir sameiningu við fjár-
sterkt fyrirtæki til að nýta góð tækifæri.
Stórt og fjölbreytt heilsustúdíó. Eurowave,
Ijósalampar, sogæðanudd, leirvafningar og
fl. Mjög góð staðsetning.
Veitingahús á Akranesi
Efnalaug/þvottahús í stóru hverfi. Arðbær
rekstur og miklir vaxtamöguleikar fyrir
hendi. Mjög hentugt fyrir fjölskyldu.
óvenju arðbær videóleiga. Upplýsingar
aðeins á skrifstofunni.
Meðeigandi óskast áð litlu matvælafyrir-
tæki með mikla möguleika,
Ein besta sólbaðstofa borgarinnar. Góður
hagnaður. Skipti möguleg á góðu atvinnu-
húsnæði.
• Suðurlandsbraut 50 (bláu húsin)
• Sími 533 4300 • Gsm 820 8658
Krefur stjórn Lyfja-
verslunarinnar svara
Grímur Sæmundssen kveður sér hljóðs á aðalfundi Lyfjaverslunarinnar í dag og
mun krefjast svara af hverju meirihluti stjómar tók þá ákvörðun að selja hluta-
bréf í Delta. Segir hluthafa hafa tapað á annan milljarð króna.
aðalfundur Grímur Sæmundssen,
stjórnarmaður í Lyfjaverslun ís-
lands, mun á aðalfundi félagsins í
dag krefja meirihluta stjórnar
svara af hverju félagið seldi öll
bréf sín í lyfjafyrirtækinu Delta
hf. í október sl. Segir hann að með
sölunni hafi hluthafar Lyfjaversl-
unarinnar tapað
♦— vel á annan millj-
Ekki hefur tek- arð króna á innan
ist að bera við fjórum mánuð-
klæði á vopn- um miðað við
in í Lyfjaversl- gengi Delta í dag.
uninni þrátt Órn Andrésson,
fyrir tilraunir á sem situr einnig í
stjórnarfundi. stjórn Lyfjaversl-
unarinnar, segir að
þessi ákvörðun
hafi verið tekin til að félagið gæti
staðið undir skuldbindingum.
Áætlað var að fara í hlutafjárút-
boð um haustið en vegna mála-
ferla meðal annars við Jóhann Óla
Guðmundsson, viðskiptafélaga
Gríms, var það ekki mögulegt.
Stjórn Lyfjaverslunarinnar
seldi um 16 prósent hlut sinn í
Delta á genginu 34,5 í október
2001. Söluverðmæti hlutarins var
um 1,6 milljarðarður króna. Geng-
ið var við lok markaða í gær um
70.
Örn benti á að auðvelt væri að
vera vitur eftir á. Jóhann Óli Guð-
mundsson hafi meðal annars selt
sinn eignai’hlut til Kaupþings í
janúar á þessu ári. Þá var gengið
um 45.
Grímur segir að öllum hafi ver-
ið Ijóst að uppgangur Delta yrði
mikill á næstu mánuðum. Fjórum
dögum fyrir söluna hafi komið já-
kvæð afltomuviðvörun frá félag-
inu. Engin svör hafa fengist af
LYFJAVERSLUN ISLANDS
Síðasta hálfa ár verður gert upp á aðalfundi félagsins í dag. Ekki er gert ráð fyrir miklum
átökum um stjórnarsæti og mun fulltrúi Jóhanns Óla Guðmundssonar komast í stjórn.
hverju það lá svona á að selja
þennan hlut.
Grímur mun taka til máls í um-
ræðum um skýrslu stjómar. Ætlar
hann að ræða við hluthafa hver þróun
mála hjá Lyfjaversluninni hafi verið
frá því í júlí í fyrra. Hann segir að
ryki hafi verið slegið í augu hluthafa
og kaup félagsins á Frumafli hafi
verið notuð sem tæki í baráttu
nokkurra aðila til að ná völdum í fé-
laginu.
Jóhann Óli segii’ að vegna æsings
hafi ekki verið hlustað síðasta sumar.
„Ef horft er fram hjá vígamóði síðast
liðinsárs þá ætti hver og einn hlut-
hafi, sem tók þátt í því sem þar fór
fram, að spyrja sig óháð persónum:
Hvers er ég bættari í stöðunni í dag?“
bjorgvin@frettabladid.is