Fréttablaðið - 18.04.2002, Page 12
12
FRÉTTABLAÐIÐ
18. apríl 2002 FIMMTUDACUR.
Nýjar vörur
Klassa kápur,
stuttar og
síðar, 5 snið.
Hattar, slæður.
Opið laugardaga
frá kl. 10-15.
\c#HDISIÐ
Mörkinni 6, sími 588 5518.
ENGLAND BURSTAÐI PARAGVÆ
Darius Vassell (t.h.) úr enska landsliðinu
slæst hér um boltann við Jose Cardozo úr
liði Paragvæ í vináttulandsleik liðanna sem
fram fór í gærkvöldi á Anfield-leikvanginum
í Liverpool í Englandi. Fjölmargir vináttuleik-
ir fóru fram i gærdag og í gærkvöldi.
Styrkleikalisti FIFA:
Island
aftur niður
fótbolti íslenska karlalandsliðið í
fótbolta er í 56. sæti á styrkleika-
lista FIFA, sem var gefinn út í gær.
Liðið fellur niður um eitt sæti síðan
listinn var síðast gefinn út. Það hef-
ur ekki spilað neinn landsleik í
millitíðinni.
Heims- og Evrópumeistarar
Frakka eru sem fyrr í fyrsta sæti
listans. Mikil barátta er um annað
sætið þar sem Brasilíumenn kom-
ast naumlega upp fyrir nágranna
sína frá Argentínu. Portúgal er í
fjórða sæti, Kólumbía fimmta, ítal-
ía sjötta og Mexíkó sjöunda. Meðal
hástökkvara mánaðarins eru Japan
og Finnland. ■
Bylting í
fótboltcinum
Risabardagi í júní:
Holyfield mætir Rahman
Úrslitakeppni
Esso-deildar hafin:
KA sigrað
á útivelli
eitt liða
handbolti Úrslitakeppni ESSO-
deildar karla i handbolta hófst í
gærkvöldi með fjórum æsispenn-
andi hörkuleikjum sem ekki nokk-
ur leið var að spá fyrir um úrslit-
in í. Á Hlíðarenda mættust Valur
og Þór Akureyri og endaði sá leik-
ur 29-23 fyrir Val. Á Ásvöllum
lögðu Haukar FH með 26 stigum
gegn 17. Afturelding vann ÍR 22-
19 á Varmá, og á Seltjarnarnesi
sigraði KA leikinn við Gróttu KR
ORUGGUR SIGUR VALS
Einar Gunnarsson skorar með þrumuskoti
fyrir Val gegn Þór Ak. á Hlíðarenda i gær-
kvöldi.
28-27 eftir æsilegan leik sem fór í
framlengingu. ■
hnefaleikar Evander
Holyfield og Hasim Rah-
man ætla að berjast 1. júní
nk. Þeir eru báðir fyrrum
heimsmeistarar í þunga-
vigt en hafa aldrei mætt
hvor öðrum. Don King
skipuleggur bardagann,
sem fer fram í New Jers-
ey.
Báðir hnefaleikakapp-
arnir eru frekar frægir
fyrir umstang í kringum
bardaga en færni. Holy-
field er fórnarlamb Mike
Tyson. Tyson beit bita úr
eyra hans í bardaga árið
1997. Rahman lenti í slag við
Lennox Lewis í sjónvarpsþætti í
ágúst síðastliðnum. Þá voru þeir
EVANDER „REAL DEAL" HOLYFIELD
Frægur fyrir að láta Mike Tyson bíta
af sér eyrað.
stærsti
haldið í
ur þess.
að kynna seinni bardaga
sinn, sem Lewis vann.
Áður hafði Rahman náð
heimsmeistaratitlunum
af Lewis. Holyfield hef-
ur unnið 37 bardaga,
gert tvö jafntefli og tap-
að fimm sinnum. í 25
bardögum sló hann and-
stæðinginn í rot. Rah-
man hefur unnið 35 bar-
daga og tapað þremur.
Hann hefur 29 sinnum
slegið mann í rot.
Hnefaleikasamband-
ið í New Jersey er í
skýjunum. „Þetta er
bardagi sem við höfum
mörg ár,“ sagði talsmað-
Opin kló
Á morgun verdur fyrsti áfangi stærstu íþrótta-
hallar landsins í Grafarvoginum tekinn í notk-
un. Aðeins vika er síðan íþróttahöll var opnuð í
Kópavoginum. Hallirnar gjörbreyta fótbolta-
menningu landsins.
ATLI
„Gervigrasið er hreint ótrúlegt."
fótbolti Fyrsti áfangi hallarinnar í
Grafarvogi er fótboltasalurinn.
Þar er að finna völl samkvæmt al-
þjóðlegum kröfum. Á hann er lagt
gras af þriðju kynslóð gervigrass.
Það er fyllt með gúmmi og sandi.
Alls fara 12 kg af gúmmi og 13 kg
af sandi á hvern fermetra. I Kópa-
vogshöllinni, sem er ívið minni, er
einnig að finna nýja gervigrasið.
Gæði þess eru slík að stærstu fé-
lög Evrópu ætla að leggja gervi-
gras á risastóra leikvanga sína.
„Þetta getur orðið bylting,“
segir Atli Eðvaldsson landsliðs-
þjálfari. „Nú er hægt að spila allt
árið. Vellirnir eru í fullri stærð og
grasið hreint ótrúlegt. Það er eins
og á góðum velli um miðjan júní.
Fyrir þremur árum sagði fram-
kvæmdastjóri FIFA að fyrir 2010
yrði gervigras löglegt fyrir lands-
leiki. Menn voru gáttaðir. Þetta er
að sannast rétt. Þróunin er ör.“
Stærstu lið Evrópu eiga í enda-
lausum vandræðum með að halda
grasinu góðu á risastórum leik-
vöngum. Erfitt er fyrir sólina að
gægjast inn fyrir háa veggi.
„Krafan er mikil hjá stóru liðun-
Opnum kl. 13 alla daga
lokað laugard./sunnud.
LGuðmundsson ehf
Skipholt 25 • 105 Reykjavík
I
o
Q£
o
IÞRÓTTAHÖLLIN í GRAFARVOGI
Opnunarhátíð hefst á morgun og stendur yfir fram á sunnudag.
um. Grasið verður að vera full-
komið. Sumir skipta alveg um á
vellinum fimm eða sex sinnum á
ári. Um leið og stóru knattspyrnu-
samböndin gefa grænt ljós skipta
flestir yfir í gervigras."
í Grafarvogi er lofthæðin
meiri en í Kópavogi, auk þess sem
sæti eru fyrir 2.000 manns. „Hall-
irnar eiga eftir að flýta fyrir vor-
inu og lengja sumarið," segir Atli.
„Þetta býður upp á margt. Hægt
er að halda mót á veturna og selja
sjónvarpsréttinn. Erlend lið geta
KÓPAVOGSHÖLL
Opnuð í síðustu viku.
komið í heimsókn yfir vetrartím-
ann. Ekki má síðan gleyma því að
æfingaaðstaðan er miklu betri.
Leikmenn æfa á rennisléttum
velli í tuttugu stiga hita.“
íslenska landsliðið mætir Skot-
um og Lettum í október. Atli hikar
ekki við að nýta hallirnar til æf-
inga. „Ef það er rigning og fjúk-
andi rok daginn fyrir leik - eins og
það vill oft vera - þá nýtum við að
sjálfsögðu aðstöðuna. Þar er hægt
að fara vandlega yfir leikskipulag
og æfa t.d. horn og aukaspyrnur,"
segir Atli og vonast eftir björtum
tímum í íslenskum fótbolta.
halldor@frettabladid.is
Mennirmr i brunm
England - Paragvæ: 4-0
Þyskaland - Argentína: O-l
ítalía - Úrúgvæ: 1-1
Frakkland - Rússland: 0-0
írland - Bandaríkin: 2-1
Danmörk - fsrael: 3-1
Júgóslavía - Litháen: 4-1
Slóvenía - Túnis: 1-0
Belgía - Slóvakía: 1-1
Tyrkland - Chile: 2-0
Noregur - Sviþjóð: 0-0
LAGERSALA
A LEIKF0NGUM
Krabbinn kröftugi
sem skríður
áour kr. 2.990,-
Nu kr.