Fréttablaðið - 18.04.2002, Side 14
14
FRÉTTABLAÐIÐ
18. april 2002 FIMÍVITUDACUR
HÁSKÓLABÍÓ
_____|
MULHOLLAND DRIVE EZCS
■rnTrptnrT
|HARRY POTTER m/ens-tal kLÍ]
Sýnd kl. 7 og 10 stuttiviyndahAtíð
SPÁMENN OG SKÁLD kl. 6 GJEGGAÐIR kl. 8
|BEUTIFUL MIND kLs,7J0ogl0|
AMELIE kl. 4.451 DÝRSLEG ÁST kl. 10
smnRHK' Bia
1 jíSÖLD m/ens.tal kl. 4,6, 8 og 101 Sýnd kl. 8 og 10.50
| IfSÖLD m/ísl tal kl. 4 og 61 [SLACKERS kl. 4, 6, 8 og 101 1
.
□□ Dotby /DD/Inx S(MI 564 0000 - www.smarabio.is
|JIMMY NEUIRON m/M. taE 4^el sýnd kl. 5.45, 8 Og 10.15 VIT 337
|JIMMY NEUTRON M.4,6 8oglo| 0 Sýnd kl-4- 6-8o8 1010
iBEAUTIFUL MIND kl. 8 og 10.20 ] p] jPETUR PAN m/lsl. tali kL4 |
|THE TIME MACHINE 6, 8 og lÖTÖl |ET ~kL 3.45 j iVIT'
Málning
fywalla
Farveland Fgrveland
[SWj
MÁIARINN#Jk
Bæjarlínd 2 » Kópavogí • Símí: 581 3500
www.handfrjals.is
..orfHðJLt FRibiNN i unFERomm
ÖKUMENN!
Almennar
Bíla-
viðgerðir
VELALAND
VÉLASALA • TÚRBÍNUR
VARAHLUTIR • VIÐGERÐIR
Vagnhöföi 21 • 110 Reykjavík
Sími: 577 4500
velaland@velaland.is
FRÉTTIR AF FÓLKI
Dagblaðið The Sunday People
hefur verið gert að greiða
stúlku töluverðar skaðabætur
fyrir að saka
hana um að elta
og ofsækja
söngvarann
Robbie Williams.
Blaðið sagði
stúlkuna vera eit-
urlyfjafíkil og að
neysla hennar
ýtti henni út í
ofsadýrkun á söngvaranum. Það
sagði söngvarann hafa verið það
skelkaðan að hann hafi kallað á
lögregluna. Stúlkan kærði og
dómstólar dæmdu henni í hag og
sögðu söguna algjöran upp-
spuna.
Pamela Anderson hefur sam-
þykkt að ljá fremur líflegri
teiknimyndapersónu rödd sína.
Þættirnir um
Stripperellu
verða sýndir á
bandarísku sjón-
varpsstöðinni
TNN og er per-
sónunni lýst sem
„fatafellu á
kvöldin en ofur-
hetju á nóttunni".
Það er enginn annar en Stan Lee,
skapari Köngulóarmannsins,
sem framleiðir þættina.
Söngvarinn Liam Gallagher
segist enn vera á þeirri skoð-
un að hljómsveit hans Oasis sé
sú besta í heimin-
um. Hann segist
vel kunna man-
nasiði en að hann
kjósi hinsvegar
stundum að haga
sér illa þar sem
lífið getur verið
svo leiðinlegt.
Hann segir að
Oasis ætli sér að halda áfram að
gera plötur þangað til að þeim
finnist þeir hafa gert bestu plötu
í heimi, og að því takmarki hafi
þeir ekki náð enn.
Madonna er víst ekki hrifin
af gælunafninu „Madge“
sem breska pressan hefur fest
við hana. Hún vill frekar að fólk
kalli hana „M“. Að þessu komust
samleikarar hennar í verkinu
„Up for Grabs“ sem hún fer með
aðalhlutverkið í. Verkið verður
frumsýnt í vesturhluta London í
næsta mánuði.
Vandræðagemlingurinn Brian
Harvey, einn af fyrrum
söngvurum strákasveitarinnar
East 17, hefur
lýst sig gjald-
þrota. Hann þén-
aði um 182 millj-
ónir króna áður
en hann var rek-
inn úr sveitinni
fyrir helsælu-
notkun. Fyrrum
eiginkona hans
hefur leitað réttar síns þar sem
kauði hefur ekki borgað meðlag.
Hann segir að það þýði lítið fyr-
ir hana þar sem hann sé búinn
að sólunda öllu fénu.
TOGCI
Viðurkennir að hafa fengið mikið af fyr-
irspurnum erlendis frá eftir velgengni
mynda sinna í skólanum. Stofnaði ný-
lega framleiðslufyrirtækið Glysgirni með
tveimur félögum sínum.
tr-
Islensk stuttmynd
heillar Farelli-bræður
Kvikmyndagerðarmaðurinn Þorgeir Guðmundsson vann tvenn
verðlaun á uppskeruhátíð Columbia University á dögunum fyrir
nýja stuttmynd sína „Memphis". Þar á meðal völdu Farelli-bræður
mynd hans sem fyndnustu mynd hátíðarinnar.
kvikmynpagerð Til þess að ljúka
mastersnámi í leikstjórn við Col-
umbia University í New York
þurfa nemendur að gera tvær
vandaðar stuttmyndir. Þorgeir
Guðmundsson, eða Toggi eins og
hann er kallaður, hefur nú gert
það og fengið mikið lof fyrir.
Uppskeruhátíð skólans var hald-
in í síðustu viku og vann Toggi
þar tvenn verðlaun fyrir mynd
sína „Memphis“. Fyrir fyrri
myndina, „B.S.f.“ vann hann aðal-
verðlaun skólans það árið.
„Memphis er 10 mínútna
mynd sem segir eina sögu í einu
skoti,“ útskýrir Toggi. „Þúsund
feta rúlla er akkúrat 10 mínútur á
lengd og lengsta fáanlega filman.
Myndin fjallar um sjö persónur á
stað sem í fyrstu lítur út fyrir að
vera heirnavistarskóli."
Þetta þýðir að ekki ein klippa
er í myndinni og því þurftu
tökulið, leikarar og leikstjóri að
hafa öll smáatriði á hreinu áður
en filman var látin rúlla. „Við
urðum að taka þetta fjórum sinn-
MEMPHIS
[ myndinni fylgjumst við með 10 mínút-
um úr Iffi 7 einstaklinga sem eru saman
komin á undarlegum stað uppi i sveit.
um. Við vorum á tökustað með
leikurunum í þrjá daga og æfðum
stíft áður en við fórum í tökur."
Leikarar eru Helgi Björnsson,
Benedikt Erlingsson, Ragnhildur
Gísladóttir, Gunnar Jónsson
(Fóstbróðir), Ásmundur Ás-
mundsson myndlistarmaður,
Henrik Baldvin Björnsson,
söngvari Singapore Sling, og
Ragnheiður Pálsdóttir.
Á uppskeruhátíðinni í New
York völdu Farelli-bræður (leik-
stjórar „Dumb and Dumber",
„There’s Something About Mary“
og „Me, Myself and Irene")
„Memphis" fyndnustu mynd há-
tíðarinnar. „í rauninni er þetta
ekki grínmynd," segir Toggi og
hlær léttilega. „En hún er alveg
fyndin. Þeim fannst það greini-
lega.“
Hin nýstofnaða kvikmynda-
framleiðsla Glysgirni framleiddi
„Memphis". Hún er í eigu Björns
Blöndal (fyrrum Ham-
bassaplokkara), Togga og félaga
þeirra Óttars Proppé. „Þetta er í
rauninni önnur myndin sem fyr-
irtækið framleiðir, því Glysgirni
var með í Ham-myndinni. Núna
erum við að vinna heimildar-
myndina „Bítlabærinn Keflavík"
og svo erum við komnir vel á veg
með handrit að kvikmynd í fullri
lengd.“ Áhugasamir geta fræðst
meira um fyrirtækið á heimasíðu
þess, www.glysgirni.com.
Engin ákvörðun hefur verið
tekin um hvenær eða hvernig
myndin verður frumsýnd hér á
landi en eftir helgi fer hún í sýn-
ingu á undan myndinni „Óska-
börn þjóðarinnar" í Berlín.
biggi@frettabladid.is
Kronik á Rás 2 fagnar afmæli sínu:
Orðaslagur og
hip-hopveisla
tónlist Fyrir nokkrum árum voru
ræðukeppnir skólanna eina leið
orðheppinna einstaklinga upp á
verðlaunapall. í kvöld verður orð-
fimleikamönnum boðið upp á nýjan
kost. Því er hinum víðfræga Róbert
Aron Magnússyni, eða Robba
„Chronic" eins og hann er kallaður,
að þakka, en hann hyggst halda
fyrstu „rapp-útsláttarkeppni“
landsins á Gauknum í kvöld. Hún er
haldin í tilefni 1 árs afmælis út-
varpsþáttar hans „Kronik" á Rás 2.
„Það mætast tveir og tveir í einu
sem fá 30 sekúndur hvor,“ útskýrir
Robbi. „Svo eru það bara áhorfend-
ur ásamt yfirdómara sem skera úr
um hvor þeirra kemst áfram í
næstu umferð. Þetta snýst um að
reyna að rakka niður andstæðing-
inn sem mest með orðum. Það má
ekki snerta og þú mátt ekki fara
yfir vissa línu sem skilur keppend-
ur að.“
SKYTTURNAR
Koma alla leið frá Akureyri til að halda
sína fyrstu tónleika í Reykjavík.
Robbi segir að margir af þekkt-
ari röppurum dagsins í dag hafi
fyrst vakið athygli á sér í slíkum
keppnum.
Á afmælisveislunni verða einnig
tónleikar og þar koma fram Dj
Moonshine (einnig þekktur sem Dj
Cruz), Kritkal Mazz, Bæjarins
bestu og Skytturnar.
Fjörið hefst kl. 21, aðgangseyrir
er 700 kr. ■