Fréttablaðið - 26.04.2002, Qupperneq 6
FRÉTTABLAÐIÐ
26. apríl 2002 FÖSTUPAGUR
SPURNING DAGSINS
Fylgist þú með umræðum
á Alþingi?
"Nei, það geri ég ekki. Ég fer hins vegar á
netið og fylgist með umræðu i fjölmiðlum
þarí'
Sigurlfna Halldórsdóttir, skrifstofumaður.
Laxsíld:
Hlé gert á tilraunaveiðum
SJÁVflRÚTVEGUR Tog- og nóta-
veiðiskipið Ásgrímur Halldórs-
son SF - 250 er hættur í bili leit
og tilraunaveiðum á laxsíld.
Leiðangur skipsins stóð yfir í
sex sólarhringa. Þórður Jóns-
son forstjóri SR-mjöls segir að
ætlunin sé að fara í annan leið-
angur eftir einhvern tíma.
Hann segir að von sé á skýrslu
frá fiskifræðingi um árangur-
inn í þessari nýafstöðnu ferð. Þá
vonast menn til að fregna eitthvað
um laxsíldina frá togurum sem
eru á karfaveiðum út af Reykja-
neshrygg. Hann segir að lítið hafi
verið um lóðningar á laxsíld í
ÁSGRÍMUR HALLDÓRSSON SF.
Sagt er að lítið hafi verið um lóðningar á
laxsíld í þá sex sólarhringa sem leitað var.
þessari fyrstu ferð skipsins. Þrátt
fyrir það telur hann að menn hafi
ekki orðið fyrir vonbrigðum, enda
þessi rannsókn rétt að byrja.
Hins vegar hefðu menn náð
sýnishornum af laxsíldinni í
ferðinni.
Þórður Jónsson segir að
menn muni taka ákvörðun um
það áður en langt um líður
hvenær sé skynsamlegt að
fara í aðra ferð. í því sam-
bandi hefur verið rætt um að
þetta gætu orðið tvær til þrjár
ferðir á miðin til viðbótar. Það
yrði þá í viku í hvert sinn. Hann
áréttar að menn hefðu ekki haft
neina sérstaka trú á því að aflinn
kæmi um leið og skipið færi á
miðin til veiða. ■
Skíðaslysið í Tungudal:
Pilturinn
á batavegi
LANDSPÍTflLiNN Sextán ára gamall
piltur, sem slasaðist alvarlega á
skíðasvæðinu í Tungudal við
ísafjörð, fyrir um mánuði er á
góðum batavegi. Hann var á gjör-
gæslu Landspítalans í Fossvogi í
rúmar þrjár vikur en var fluttur
á barna- og unglingadeild 11. apr-
íl.
Samkvæmt upplýsingum frá
spítalanum hefur pilturinn, sem
slasaðist þegar hann lenti á höfði
og baki eftir að hafa stokkið á
stökkpalli, náð ótrúlega góðum
bata. ■
;
FINNUR ÁRNASON
Þetta þvældist nokkuð fyrir okkur þannig
að loks var tekin ákvörðun.
TÖLVUTEIKNING AF ÁLVERI f REYÐARFIRÐI
Hugsanlegt er að Alcoa taki yfir hugmyndir Norsk Hydro um að reisa álver á Reyðarfirði.
LANDSVIRKJUN
Finnur Arnason:
Hagkaup
er fleirtala
málfræði Finnur Árnason, for-
stjóri Hagkaupa, segir að sú
ákvörðun hafi verið tekin fyrir fá-
einum árum að notast fremur við
fleirtölumynd nafns verslunar-
innar en eintölumyndina. Sam-
kvæmt þessu er maður staddur
réttilega í „Hagkaupum" en ekki í
„Hagkaupi." Margir muna eftir
því að Hagkaupsfjölskyldan lét
eitt sinn þau boð út ganga að rétt
væri að notast við eintölumynd-
ina.
„Við ræddum við íslensku-
fræðinga sem bentu á að í eintölu
vísaði nafnið til „launa“ en ekki
sagnarinnar „að kaupa," þ.e. þar
sem maður gerir bestu kaupin.
Þess vegna var þessi ákvörðun
tekin. ■
1 ÍÞRÓTTIR |
Eggert Magnússon, formaður
KSÍ, var í gær kjörinn í fram-
kvæmdastjórn UEFA á þingi
sambandsins í Stokkhólmi. Egg-
ert fékk stuðning rúmlega helm-
ings aðildarríkja þegar í fyrstu
umferð og var því með fyrstu
mönnum til að ná kjöri.
Sagðir alvöru menn
með mikinn áhuga
Sérfræðingar Alcoa voru á Austfjörðum að kynna sér aðstæður og
ræða við heimamenn. Koma að undirbúnu verkefni. Ekki búnir
að afskrifa Norsk Hydro.
stóriðja Sérfræðingar frá banda-
ríska álrisanum Alcoa komu til
Austfjarða i vikunni til að kynna
sér aðstæður og ræða við heima-
menn. Þetta er liður í athugun
—o— álfyrirtækisins á
hugsanlegri þátt-
töku þeirra í
rekstri stóriðju í
fjórðungnum.
Áður höfðu full-
trúar fyrirtækis-
ins rætt við for-
ustumenn sveitar-
—♦ félaga á Austfjörð-
um og bæjarstjóra Fjarðabyggð-
ar. Smári Geirsson, forseti bæjar-
stjórnar í Fjarðabyggð, segir að
það sé alveg ljóst að þarna séu á
ferðinni alvöru menn sem hafa
Sýnir svart á
hvítu hvað ál-
ver í Reyðar-
firði og virkjun
Kárahnjúka er
girnilegt verk-
efni.
mikinn áhuga á þessu verkefni.
Það mun síðan koma fljótt í ljós
hvaða árangur þessar viðræður
og athuganir munu skila, eða jafn-
vel strax í næsta mánuði.
í því sambandi bendir forseti
bæjarstjórnar m.a. á að ákvarðan-
ir og stefnumótun í þessum stór-
iðju-áformum muni gerast miklu
hraðar en menn hafa átt að venj-
ast til þessa. Staða þessa máls sé
t.d. allt önnur vegna þeirrar miklu
vinnu sem þegar sé búið að inna
af hendi í tengslum við áform
Norsk Hydro. Af þeim sökum séu
Bandaríkjamennirnir að koma að
verkefni sem er fullkomlega und-
irbúið. Aðspurður hvort þetta gefi
heimamönnum tilefni til meiri
bjartsýni í þessum efnum en oft
áður segir Smári að þarna séu á
ferðinni mjög áhugasamir aðilar.
Það verður síðan að láta á það
reyna hvort áhugi þeirra muni
skila sér í byggingu og rekstri ál-
verksmiðju í Reyðarfirði. Hann
hafnar því að þarna sé um ein-
hverja tálsýn að ræða, enda liggur
ekkert fyrir hvað muni koma út úr
þessum viðræðum. Á hinn bóginn
telur hann að áhugi frá fleiri fyr-
irtækjum sýni það svart á hvítu
hvað álver á Reyðarfirði og virkj-
un Kárahnjúka sé girnilegt verk-
efni. Hann vill þó ekki segja
hvaða fyrirtæki það eru. Þá séu
menn ekki búnir að afskrifa þátt-
töku Norsk Hydro í þessum stór-
iðju-áformum.
grh@frettabladid.is
Sveitarstjórnarkosningar:
Konur í framboði
á skólabekk
ENDURMENNTUN TÖluverð-
ur áhugi virðist vera
meðal kvenna sem eru í
framboði til sveitar-
stjórna að sækja nám-
skeið til að auka þekk-
ingu sína á þessu stjórn-
sýslustigi. Fullbókað var
á fyrsta námskeið sem
haldið var í byrjun mán-
aðarins. Alls verða hald-
in þrjú námskeið. Um 15
-20 konur eru á hverju
námskeiði auk þess sem
boðið er upp á fjar-
kennslu. Það er ráð-
herraskipuð nefnd um aukinn
hlut kvenna í stjórnmálum sem
stendur fyrir þessum námskeið-
um í samstarfi við Endurmennt-
unarstofnun Háskóla ís-
lands.
Hildur Helga Gísla-
dóttir, formaður nefnd-
arinnar, segir að þessi
námskeið séu m.a. hald-
in til að gera konur ör-
uggari á þessum vett-
vangi og stuðla þá um
leið að því að fleiri úr
þeirra röðum gefi kost á
sér til þátttöku í stjórn-
málum. Hún segir að á
þessum námskeiðum sé
m.a. farið yfir grunnat-
riði í stjórnsýslu sveitar-
félaga, löggjöf, meðferð mála,
helstu störf, fundarreglur, fund-
arstjórn, afgreiðslu mála og
áhrif kynferðis í stjórnmálum. ■
HILDUR HELGA
GÍSLADÓTTIR
Segir mikilvægt
fyrir konur að vita
út í hvað þær eru
að fara.
Bráðnun jökla þýðir ekki endilega
góðan vatnsbúskap.
Vatnsbúskapur
Landsvirkjunar:
Ræðst af
mörgum
þáttum
jöklar Þorsteinn Hilmarsson, upp-
lýsingafulltrúi Landsvirkjunar,
segir að þrátt fyrir að bráðnun
jökla auki vatnsmagn í jökulám sé
ekki þar með sagt að vatnsbúskap-
ur sé hagstæður. Hann tekur árin
1999 og 2000 sem dæmi. Þá hafi
vatnsbúskapur gengið illa, og hafi
slæmt árferði þar ráðið mestu.
Þorsteinn segir spár um aukið
vatnsmagn í jökulám engin áhrif
hafa á væntanlegar virkjunar-
framkvæmdir. Þær áætlanir byggi
á margra ára rannsóknum á hegð-
an jökla og jökuláa en ekki á
spám. ■
—*—
J árnblendifélagið:
Gengishagn-
aður bjíirgar
Ll!l!*C.lðP. Telonolrn innnmonðifnlnrt
ið hf. skilaði rúmum 30 milljónum
lcrnna í haCTnnð á fvrsta árQfinrð-
ungi ársins. í fyrra var hagnaður:
inn rúmar 17,5 milljónir króna. í
uppgjörinu eru færðar aukalega
til tekna 16 milljónir kr. vegna
uppgerðra skaðabótakrafna frá
síðasta ári.
Hagnaður eftir skatta nam 62,6
milljónum króna en í fyrra tapaði
félagið 94 milljónum króna. Geng-
ishagnaður varð á tímabilinu að
upphæð 94 milljónir króna saman-
borið við 191 milljóna krónu tap á
sama tímabili í fyrra.
Heildareignir félagsins í lok
mars voru um 10 milljarðar og
heildarskuldir um 5 milljarðar. ■
VIÐSKIPTI
Farsímafyrirtækið Siemens rak
á miðvikudag 45 manns frá
þróunardeild sinni í Álaborg í
Danmörku. Þetta er þriðja fjölda-
uppsögnin á árinu. Alls hefur 92
verið sagt upp. Ástæða uppsagn-
anna er samdráttur í farsímaiðn-
aði að því er Berlingske tidende
greinir frá.