Fréttablaðið - 15.05.2002, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 15.05.2002, Blaðsíða 1
AFMÆLI Býður gestum í eigin bráð bls 22 ÚTCÁFA Kiljan komin til að vera bls 16 ÍÞRÓTTIR Dýrmœt reynsla fyrir lífið bls 13 Jarðgerðarta nkur Minna sorp! FLUTNINGATÆKNI mð - |U- í Súðarvogi 2, Reykjavík í Slmi 535 2535 5 FRETTABLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 90. tölublað - 2. árgangur Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Miðvikudagurinn 15. maí 2002 natofunpur Utanríkisráðherrar allra 19 aðildarríkja Atlantshafs- bandalagsins og utanríkisráð- herra Rússlands gengu í gær frá samkomulagi um að setja á fót nýjan samstarfsvettvang ríkjanna 20 sem kemur í stað núverandi samráðs ríkjanna. Samþykktin markar þáttaskil í samskiptum Rússlands og Atlantshafsbanda- lagsins sem verða nánari en áður. „Við höfum góða sögu að segja,“ sagði George Robertson, lávarður, aðalframkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, þegar hann kynnti samkomulagið á blaðamannafundi í Háskólabíói í gær. Robertson sagði nýja sam- starfsráðið gjörbreyta samstarfi ríkjanna. Rússland muni koma að samstarfi aðildarríkja Atlants- hafsbandalagsins á jafningja- grundvelli. Áður hafa Rússar fundið að því að NATO-ríkin væru búin að taka ákvörðun þeg- ar fulltrúar ríkjanna hittust til að ræða stöðu mála. Robertson sagði að stofnun samstarfsráðsins opnaði ný tæki- færi í samstarfi NATO og Rúss- lands. Hversu vel það gengi færi eftir pólitískum vilja ríkjanna. fótbolti Kynningarfundur Síma- deildar kvenna í knattspyrnu verð- ur haldinn á.Grand Hóteli kiukkan 12. Á fundinum munu fyrirliðar, þjálfarar og formenn liðanna spá fyrir um úrslitin í sumar. 1KVÖLDIÐ í KVÖLPi Tónlist 16 Bíó 14 Leikhús 16 [þróttir 12 Myndlist 16 Sjónvarp 20 Skemmtanir 16 Útvarp 21 Forstjórinn segist hafa verið lagður í einelti Igor Ivanov, utanríkisráðherra Rússlands, sagði að atburðirnir 11. september hefðu sýnt að gamli samráðsvettvangurinn dygði ekki til að takast á við þær hættur sem þjóðirnar stæðu frammi fyrir. Nýi vettvangurinn þýddi að þjóðirnar myndu í sam- einingu bregðast við ógnum, ákveða aðgerðir og hrinda þeim í framkvæmd. Hann sagði að nýi vettvangurinn væri mikilvægt skref áfram en þó aðeins fyrsta skrefið í átt að nánara samstarfi Rússlands og NATO. Meira á bis. 4 og 8. Kosningafundur í Háskóla Islands fundur Opinn fund- ur í tilefni af borg- arstjórnarkosning- unum í Reykjavík verður haldinn í Hátíðarsal Háskóla íslands klukkan 17.1S. Forystumenn framboðanna kynna málstað sinn og takast á. Fundarstjóri verður dr. Ólafur Þ. Harðarson, forseti Fé- lagsvísindadeildar. Fyrirkomulag fundarins verður þannig að þátttak- endur á fundinum fá þrjár mínútur fyrir framsögur en síðan verða fyr- irspurnir úr sal. ÍVEÐRIÐ t DACI SÍÐA 14 REYKIAVÍK Norðlæg átt. 5-10 m/s og léttskýjað. Hiti 5 til 10 stig. VINDUR ÚRKOMA HITI ísafjörður Q 8-13 Léttskýjað ©4 Akureyri O 10-15 Skúrir O3 Egilsstaðir o 10-15 Skúrir Vestmannaeyjar © 10-15 Léttskýjað Q 7 Nýttheimili fyrir heimilislausa félagsmál Samhjálp, í samvinnu við Félagsþjónustuna í Reykjavík, opnar heimili fyrir heimilislausa Reykvfkinga klukkan 15.30. Mikil þörf er á heimili sem þessu en talið er að nokkrir tugir manna hafi ekki átt fastan samastað mjög lengi. Heimilið verður á Miklubraut 20 og þar verður rými fyrir 7 tii 8 ein- staklinga. Mikill ágreiningur er milli forstjóra og stjórnarformanns Byggðastofnunar. Stjórnarformaðurinn segir forstjórann andstæðan sér því hann hafi látið hann endurgreiða lán til húsakaupa. Forstjór- inn segir ágreininginn snúast um flutning Qármálaumsýslu stofnunarinnar. stjórnsýsla Theodór Bjarnason, forstjóri Byggðastofnunar, segir að eftir að hann hafi neitað að færa ^ fjármálaumsýslu stofnunarinnar til Þettavarsvo Bolungarvíkur, groft að hann heimabæjar Krist- var einn kom- jns pj Gunnars- inn í samninga- SOnar stjórnarfor- viðræður við manns stofnunar- Sparisjóð Bol- innar, hafi hann ungarvíkur um unnið markvisst þetta mál gegn sér. Kristinn —♦— H. segir forstjór- ann hins vegar andstæðan sér vegna þess að hann hafi verið gerð- ur afturreka með óeðlilega við- skiptahætti. „Það var ákveðið mál sem spillti samskiptum okkar,“ sagði Kristinn H. „í haust gerði ég athugasemdir við tilteknar embættisfærslur for- stjórans. Ég gerði kröfu til þess að hann færði það til betri vegar og gerði stjórninni grein fyrir því á stjórnarfundi í desember. Hann gerði það en tók það mjög illa upp. Málið fór síðan í eðlilegan farveg til ráðuneytis og ríkisendurskoð- unar sem hafa staðfest mín sjónar- mið í málinu." Byggðastofnun greiddi um 760 þúsund krónur fyrir forstjórann og var upphæðin til greiðslu á 5% hlut í íbúðarhúsi sem hann keypti á móti stofnuninni. Theodór sagði að stjórninni hefði verið kunnugt um málið enda hefði hann átt inni hjá stofnuninni ógreidd laun sem þessu nam og talið að um skulda- jöfnun hefði verið að ræða. Málinu hefði samt verið skotið til ríkisend- urskoðunar án alls samhengis. Hann væri nú búinn að endur- greiða fjárhæðina. Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra vildi ekkert tjá sig um þetta atriði í gær. „Ágreiningur minn við stjórnar- formanninn hefur ekkert að gera með þetta,“ sagði Theodór. „Hann hefur bókstaflega lagt mig í einelti eftir að ég vildi ekki taka þátt í því með honum að flytja fjármálaum- sýsluna til Bolungarvíkur. Þetta var svo gróft að hann var einn kominn í samningaviðræður við Sparisjóð Bolungarvíkur um þetta mál en það þarf samþykki stjórnar í veigamiklu máli sem þessu.“ Theodór sagði að eftir stjórnar- fundinn í desember hefði honum fundist vegið að sínum heilindum. „Ég óskaði eftir því við stjórnar- menn að þeir gæfu út skriflega yf- irlýsingu mér til handa þar sem tekinn væri af allur vafi um mína starfshætti og lýst yfir fullu trausti á mig sem forstjóra. Það var gert.“ nánar bls. 4 gar@frettabladid.is trausti@frettabladid.is 1 ÞETTA HELST 1 Gengið frá öflugra samráði synda sinna Símadeild kvenna kynnt Alcoa er í daglegu sambandi við íslensk stjórnvöld í tengslum við hugsanlega bygg- ingu álvers fyrir austan. bls. 2 -—♦— Hollendingar ganga til þing- kosninga í dag. Stjórnar- flokkarnir búa sig undir skell. bls. 4 Tilraun til að mynda starfhæfa stjórn í Færeyjum áður en þing kemur saman í dag rann út í sandinn í gær. bls. 4 ,—♦— Rauða strikið hélt og samning- ar standa. ASÍ telur tímabil stöðugleika og verðhjöðnunar framundan. bls. 6 1 IþróttiiTT Verða að trúa á sjálfa sig SÍÐA 12 ROBERTSON LÁVARÐUR MILLI UTANRÍKISRÁÐHERRA RÚSSLANDS OC TÉKKLANDS Robertson sagði nýja vettvanginn ekki eiga að tryggja að allir væru alltaf sammála um allt. Hann ætti að tryggja grundvöll fyrir samskipti þjóðanna og stuðla að auknu öryggi þeirra. Rússar skipta við NATO sem jafningjar á nýjum samráðsvettvangi: Kona sem hefur starfað hjá Læknavaktinni í Kópavogi hefur gengist við því að hafa dregið sér fé. Fjárdrátturinn nemur milljónum króna. bls. 6 1 FÓLK | Skal iðrast NOKKRAR STAÐREYNDIR UM FRÉTTABLAÐIÐ 61,3% Hvaða blöð lesa 25 til 39 ára íbúar á höfuð- borgarsvæð- inu á miðviku-l dögum? Meðallestur 25 til 39 ára á miðvikudögum samkvæmt fjölmiðlakönnun Callup frá mars 2002 70.000 eintök 70% fólks les blaðið MEÐALLESTUR FÓLKS A ALDRINUM 25 TIL 80 ÁRA Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 69,7% SAMKVÆMT FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP I MARS 2002.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.