Fréttablaðið - 15.05.2002, Blaðsíða 22
FRÉTTABLAÐIÐ
SAGA PACSINS
15. MAI
Arið 1952 var fiskveiðilögsagan
færð úr 3 sjómílum í 4. Rúm
sex ár liðu þar til fiskveiðilögsag-
an var aftur færð, þá í 12 mílur.
Arið 1967 var fyrsta ís-
lenska sjónvarpsleik-
ritið frumsýnt á þessum
degi. Leikritið heitir Jón
gamli og er eftir Matthías
Johannessen.
Islendingar lögðu Kýpurbúa í eft-
irminnilegum leik í handknatt-
leik, 42-11. Þetta er stærsti sigur
íslendinga í landsleik í handbolta.
Arið 1988 hófu Sovétríkin að
flytja herlið sitt burt frá
Afganistan. Meira en átta ár voru
þá liðin frá því misheppnuð tilraun
þeirra til að hernema landið hófst.
Stanslaust stríð ríkti í Afganistan
allan þann tíma.
FÓLK í FRÉTTUM
Asgeir Friðriksson, ritstjóri
Pressunnar, telur að heima-
smíðuð kosningabarátta R-list-
ans sé ekki að skila árangri.
Hópurinn sem
stýrt hefur mál-
um er skipaður
þeim Kristrúnu
Heimisdóttur,
Skúla Helgasyni,
Birni Inga
Hrafnssyni. Þá
hefur Einar Karl
Haraldsson verið þeim til halds
og trausts og Guðmundur Stein-
grímsson var ráðinn ritstjóri R-
listans. Ásgeir telur að Sjálf-
stæðismenn séu að sigra kosn-
ingabaráttuna þó svo enn virðist
langt í land að þeir beri sigurorð
í kosningunum sjálfum.
APressunni er sagt að Sam-
fylkingin og Framsóknar-
flokkurinn hafi bundist böndum
í Reykjanesbæ. Fari svo að
Sjálfstæðismönnum, með Árna
Sigfússon í broddi fylkingar, tak-
ist ekki að ná hreinum meiri-
hluta bænum muni flokkarnir
tveir vinna saman að afloknum
kosningum.
Umgjörð NATÓ-fundarins í
Reykjavík hefur ekki bara
haft áhrif á leikskóla- og grunn-
skólabörn í Vesturbænum. Ung-
ur maður, sem býr á Melunum
og er vanur að taka strætó í
vinnuna, sagðist hafa mætt of
seint síðstu daga útaf fundinum.
Strætó stoppaði ekki lengur við
Birkimel og hann hefði lent í
töluverðu basli með að finna út
hvar hann stoppaði. Loksins þeg-
ar hann hefði talið sig hafa fund-
ið það út hefði strætó bara ekki
komið eða þá bara alltof seint.
Maðurinn sagði að hann og
vinnuveitandi hans gætu vart
beðið eftir að fundinum lyki.
22
15. maí 2002 MIÐVIKUDAGUR
Er þegar farin að undirbúa næstu listahátíð
persónan „Það er ótrúlegur létt-
ir að hátíðin er komin af stað.
Það gengur mikið á síðustu dag-
ana þegar verið er að hnýta alla
spotta," segir Þórunn Sigurðar-
dóttir, stjórnandi Listahátíðar
Reykjavíkur. Hún segir opnun-
arhátíðina um síðustu helgi hafa
gengið mjög vel. „Við höfum
fengið mjög jákvæð viðbrögð
frá fólki sem er mjög ánægju-
legt. Ég er enn á fullu, það er
margt sem þarf að gera og alltaf
verið að bregðast við nýjum að-
stæðum hverju sinni. En ég er
með gott og hæft starfsfólk,
sem skiptir öllu í svona.“
Aðspurð hvað upp úr standi
eftir opnunina segir Þórunn að
það sé hve vel hafi tekist að
koma trommuleikurunum upp í
loftið í norðanrokinu. „Það má
fyrst og fremst þakka vöskum
mönnum hjá Orkuveitunni sem
stjórnuðu krananum. Þeir fundu
út að best væri að gera þetta á
Austurvelli þar sem lognið var
mest. Trommuleikararnir höfðu
aldrei komið fram í svona mikl-
um strekkingi og ég var afskap-
lega fegin þegar loftfimleika-
konan var lent á jörðu niðri,“
segir Þórunn hlæjandi.
Þórunn hefur verið ráðin
stjórnandi Listahátíðar til fjög-
urra ára og stýrir því bæði
Listahátíðinni nú og þeirri sem
haldin verður eftir tvö ár. Þetta
er í fyrsta sinn sem þessi háttur
er hafður á ráðningu stjórnanda
Persónan
Þórunn Sigurðardóttir er stjórnandi Lista- |
hátíðar í Reykjavik sem hófst um helgina. j
Listahátíðar.
Þórunn er þegar farin að und-
irbúa hátíðina 2004. „Listahátíð
er verkefni sem lærist ekki
nema af reynslunni. Stjórnand-
inn verður óneitanlega vogaðri
eftir því sem lengra líður og það
skiptir gríðarlega miklu máli.
Listahátíð þarf að höfða til al-
mennings og í leiðinni að vera
ögrandi. Einnig þarf hún að vera
eins konar uppeldisstöð, koma
fram með nýja hluti fyrir lista-
menn og listháhugafólk." ■
ÞÓRUNN SIGURÐARDÓTTIR
Þórunn hefur verið ráðin stjórnandi
tveggja Listahátíða, eða til fjögurra ára, og
er þetta í fyrsta sinn sem sá háttur er
hafður á.
AFMÆLI
Snöggsteiktur lundi í tilefni dagsins
Sigríður Ingvarsdóttir, alþingiskona, heldur alltaf upp á afmælið sitt með einhverjum hætti
og í kvöld býður hún gestum upp á eigin villibráð.
Eg byrja daginn eins og
venjulega klukkan sex í
World Class. í kvöld ætla ég
svo að bjóða vinum og kunn-
ingjum í lundaveislu,“ segir
Sigríður Ingvarsdóttir, alþing-
iskona, sem ætlar að halda upp
á 37 ára afmælisdaginn sinn í
dag með þessum sérstaka
hætti. „Við verðum sennilega
tíu í veislunni, en lundann
veiddi ég sjálf á draumaeyj-
unni minni, Flatey á Skjálf-
anda,“ segir Sigríður. „Ég
snöggsteiki lundann ásamt
fullt af lauk og sveppum og
sýð upp gráðostasósu með,“
segir hún, aðspurð hvernig
lundinn sé nú best matreiddur.
Sigríður segir að lundi sé eð-
almatur og gestirnir viti að
hverju þeir gangi í veislunni í
kvöld. „Það er alltaf tilhlökk-
unarefni að borða lunda.“
Sigríður segir engar sér-
stakar hefðir varðandi afmæl-
isdaga í fjölskyldunni, en að
hún noti öll tækifæri til að
gera eitthvað sniðugt. „Ég er
svo mikið barn í mér að ég
held alltaf upp á daginn,“ seg-
ir hún.
Sigríður hefur komið víða
við á lífsleiðinni, hefur meðal
annars stundað kennslu, verið
kynningarfulltrúi Olís og setið
í bæjarstjórn. Þá hefur hún
skipstjórnarréttindi á 30 tonna
skip og starfaði á tímabili hjá
Hafrannsóknarstofnun. „Mér
finnst allt skemmtilegt sem ég
geri,“ segir Sigríður. „Ég hef
líka byssuleyfi, en ekki hefur
SIGRÍÐUR INGVARSDÓTTIR
Hefur varðveitt barnið í sér og ólgar af lífsgleði og ævintýraþrá.
gefist tími til að nota byssuna
til veiða enn. Lundann veiddi
ég í háf.“ Sigríður, sem á íbúð
á Siglufirði, ætlar að verja
tíma sínum í kjördæminu í
sumar. „Ég ætla líka að ferð-
ast um landið en punkturinn
yfir i-ið verður svo að svala
ævintýraþránni með ferð til
Kuala Lumpur og Bali.“
Sigríður býr með tveimur
dætrum sínum og ætlar að
hafa afmælisköku fyrir þá
yngri um miðjan daginn.
„Henni finnst meira spenn-
andi að fá að gista hjá vinkonu
sinni en að taka þátt í lunda-
fögnuðinum í kvöld. Þessi
eldri verður þó væntanlega
með,“ segir Sigríður. ■
Edda@frettabladid.is
Sumarskólinn í FB
Yfir 60 áfangar í boði.
Kennt frá 23. maí tii 21. júní.
Nám fyrir nemendur í 10. bekk hefst 5. júní.
Netinnritun hafin á www.fb.is.
Símainnritun frá 15:00 til 17:00 virka daga í síma 570 5620.
Almenn innritun í FB frá 16. maí á mnii 17:00 og 19:00.
Einnig innritað laugardaginn 18. maí frá 10:00 til 13:00.
Allar frekari upplýsingar á www.fb.is.
Síminn aðalstyrktaraðili
Félags heyrnarlausra:
Táknmál
kynnt ung-
um bömum
heyrnarlausir Fulltrúar Símans og
Félags heyrnarlausra undirrituðu í
gær samstarfssamning, en Síminn
verður aðalstyrktaraðili félagsins
næstu tvö árin.
Félag heyrnarlausra og Síminn
hafa um árabil átt mjög gott sam-
starf sem hefur stuðlað að því að
auka aðgengi heyrnarlausra að fjar-
skiptum. Samstarfið hófst árið 1995
þegar Síminn afhenti Félagi heyrn-
arlausra fyrsta textasímaforritið
sem kom út hér á landi.
Með tilkomu myndsíma gátu
heyrnarlausir í fyrsta sinn talað á
móðurmáli sínu, íslensku táknmáli,
í síma og afhenti Síminn Félagi
heyrnarlausra tvo myndsíma að
gjöf í tilefni að 40 ára afmæli fé-
lagsins.
Meó tilkomu SMS skilaboða varð
bylting í fjarskiptamöguleikum
heyrnarlausra. Nú er í raun svo lit-
ið á að farsímar séu eitthvert mikil-
vægasta öryggistæki heyrnar-
lausra. ■
TÍMAMÓT
IARÐARFARIR_________________________
13.30 Sigríður K. Pálsson, Jöklafold 12,
Reykjavík, verður jarðsungin frá
Grafarvogskirkju.
AFMÆLI______________________________
Sigríður Ingvarsdóttír, alþingismaður,
er 37 ára í dag.
ANDLÁT______________________________
Kolbrún Anna Carlsen, Grænuhlíð 15,
Reykjavík, lést 3. maí. Jarðarförin hefur
farið fram.
Trausti Guðmundsson. Austurbergi 18,
Reykjavík, lést 2. maí. Úttörin hefur farið
fram.
Guðbjörg Guðmundsdóttir, áður til
heimilis á Freyjugötu 32, Reykjavík, lést
12. maí.
Guðrún Jónsdóttir, Freyjugötu 9,
Reykjavík, lést 12. maí.
Helgi Jóhannsson frá Núpum, Bröttu-
hlíð 6, Hveragerði, lést 12. maí.
Sigrún Bárðardóttir, Snekkjuvogi 12,
lést 12. maí.
Gísli Guðmundsson, Háaleitisbraut 40,
Reykjavík, andaðist 10. maí.
Halldóra Borg Jónsdóttir, Daltúni 23,
Kópavogi, lést 10. maí.
Gunnar Stefánsson, Hofsósi, lést 9. maí.