Fréttablaðið - 15.05.2002, Side 24
FRETTABLAÐ
Trúlofunar- og
giftingarhringir
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 20, dreifing@frettabladid.is
VlÐ SEGJUM FRÉTTIR Fréttavefurinn á VÍSÍV.ÍS Fyrstur með fréttirnar
www.gunnimagg.is
ORYGGISMIÐSTOÐ ISIANDS
» B0RGARTÚNI 31 • SlMI 530 2400
WWW.0l.IS
Bakþankar
Þráins Bertelssonar
Skrýtin veröld
Eftir því sem menn komast næst
(samkvæmt BBC) ræður Bússi
Bandaríkjaforseti yfir 7.295 kjarn-
orkuflaugum í fínu ástandi en Putti
Rússa-sar hefur 6.094 glansandi
kjarnaodda til ráðstöfunar. Þar fyrir
utan hafa þessir leiðtogar aðgang að
gömlum lagerum þar sem er að
finna marga öfluga bombu sem hægt
væri að gera upp í neyðartilvikum
með töluverðum eldglæringum. Þar
fyrir utan eiga Kínverjar, Frakkar
og Bretar samtals um 1.335 bombur
klárar til notkunar. Þetta eru þær
tölur sem eru gefnar upp til skatts.
Samtals eru þetta 14.724 sprengjur
sem mundu hæglega nægja til að út-
rýma öllu lífi á plánetunni, þrátt fyr-
ir kjarnorkuafvopnunarsamninginn
(Nuclear Non-Proliferation Treaty)
sem þessi ríki gerðu með sér fyrir
rúmum þremur áratugum, árið 1970.
Síðan hafa 187 þjóðir undirritað
þetta samkomulag þótt sprengjunum
fækki lítið.
FYRIR utan kjarnorkuveldin fimm
telja menn að Indverjar eigi sosum
eins og 60 til 250 kjarnaodda, Pakist-
anir 10 til 150, og ísraelsmenn trú-
lega um 100 stykki. Þar fyrir utan er
álitið að Norður-Kóreumenn eigi
kannski 2 eintök í felum og að
nokkrar þjóðir séu í laumi komnar
mjög nærri því að koma sér upp
kjarnorkusprengjum.
ÞETTA er óskemmtileg tilhugsun.
Þetta er eiginlega geggjun. Jafnvel
þótt Bússi og Putti segist nú hafa
ákveðið að fækka hjá sér niður í
tæpar 4.000 bombur samtals á næstu
tíu árum. Þeir 19 utanríkisráðherrar
NATO-landanna sem nú funda vest-
ur á Melum bera ábyrgð á meira en
helmingnum af öllum þessum vítis-
vélum. Það er mikil ábyrgð. Og ekki
að undra þótt menn fái aðsvif því að
engum er rótt að vita af öllum þess-
um vopnum fyrst alltaf er verið að
tala um nauðsyn þess að fækka
þeim.
SÍÐAN borgarastríðinu lauk á ís-
landi á þrettándu öld hefur hervaldi
verið beitt nokkrum sinnum; t.d.
þegar Músílmenn rændu hér á 16du
öld, við erfðahyllingu Danakonungs
á 17du öld, þegar Jörundur Jörunds-
son ákvað að gerast hér hæstráðandi
til sjós og lands á 19du öld, og svo á
20tu öldinni þegar Bretar hernámu
landið. Við vorum vinafáir íslend-
ingar á þeim árum. En nú erum við í
NATO og eigum nokkur þúsund
atómsprengjur á lager. Skrýtin ver-
öld. ■
r
20% nfoMsJjj/
ifJ i/jjjjjjj jjjjjjjjjjjjjjJiijjj
Komdu með bílinn
-við græjum hann
Verð frá 29.900
...þegar Mjómtæki
skipta máli
HLJÓMTÆK
Lágmúla 8 • Sími 530 2800