Fréttablaðið - 22.05.2002, Blaðsíða 4
4
FRÉTTABLAÐIÐ
22. maí 2002 MIÐVIKUDACUR
SVONA ERUM VIÐ
KJÖTFRAMLEIÐSLA, í TONNUM TALIÐ, Á SÍÐASTA ÁRATUC SÍÐUSTU ALDAR:*
1990 2000 Aukning
Kindakjöt 9.454 9.735 2,9%
Nautakjöt 2.932 3.626 23,6%
Svínakjöt 2.533 4.783 88,8%
Alifuglakjöt 1.520 3.051 100,7%
*Tölur af vef Hagstofu islands.
Vinsældir bresku
ráðherranna:
Brown
vinsælli en
Blair
bretland Gordon Brown, fjár-
málaráðherra, er vinsælasti ráð-
herra bresku ríkisstjórnarinnar
samkvæmt skoðanakönnun bres-
ka blaðsins Guardian. 67% að-
spurðra kváðust ánægðir með
störf fjármálaráðherrans en að-
eins 49% sögðust ánægð með
störf Tony Blairs, forsætisráð-
herra. Mikill rígur hefur verið
milli þeirra síðan Blair varð for-
maður Verkamannaflokksins á
kostnað Browns.
Samgönguráðherrann Stephen
Byers nýtur ekki mikils stuðnings
meðal almennings. Aðeins 18%
aðspurðra kváðust sáttir við
frammistöðu hans. ■
—♦—
Skýrsla Sameinuðu
þjóðanna:
Fjórðungur
spendýrateg-
unda í útrým-
ingarhættu
umhverfismál Tæplega fjórðung-
ur spendýrategunda í heiminum á
það á hættu að deyja út á næstu 30
árum. Þetta kemur fram í skýrslu
Sameinuðu þjóðanna um ástand
umhverfisþátta í heiminum. Talið
er að eyðilegging heimkynna dýra
og flutningur tegunda á milli
heimshluta séu helstu orsakavald-
ar þróunarinnar. í skýrslunni
kemur fram að rúmlega 11 þús-
und dýra- og plöntutegundir séu
nú í útrýmingarhættu, þar af rúm-
lega 1000 spendýrategundir. Er
það um fjórðungur allra spen-
dýrategunda.
Ein af hverjum átta fuglateg-
undum er í útrýmingarhættu og
rúmlega 5000 plöntutegundir. ■
I ERLENT I
Kínversk stjórnvöld horfa til
himins þessa dagana. Þau
ætla sér að senda geimfar á
braut umhverfis jörðu árið 2005
og mannað geimfar til tunglsins
árið 2010. í framhaldi af því ætla
þeir að koma sér upp varanlegri
geimrannsóknarstöð á tunglinu.
George W. Bush Bandaríkja-
forseti ætlar ekki að draga
úr refsiaðgerðum Bandaríkjanna
gegn Kúbu. Fyrst þurfi Kúbu-
stjórn að „efna til frjálsra kosn-
inga og hefja raunverulegar
efnahagsumbætur".
Stuðningur meðal Palestínu-
manna við sjálfsmorðsárásir
innan landamæra ísráels hefur
minnkað nokkuð, eða úr 58 pró-
sentum í 52 prósent sámkvæmt
skoðanakönnun sem birt var í
gær.
2.461 erlendur ríkisborgari með kosningarétt:
Einn af hverjum tíu á T álknafirði
með erlendan ríkisborgararétt
Vopnað rán á Heathrow
flugvelli:
12 manns
handteknir
kosnincar 2.461 erlendur ríkisborg-
ari er á kjörskrá fyrir sveitarstjórn-
arkosningarnar á laugardag en alls
eru 204.923 á kjörskrá. Flestir er-
lendu ríkisborgaranna á kjörskrá,
1.603, eru búsettir í Reykjavík. Það
er 1,2% af heildarfjölda þeirra sem
eru á kjörskrá í Reykjavík. Erlendir
ríkisborgarar eru hlutfallslega
flestir á kjörskrá í Tálknafirði 9,3%.
Þar eru 20 kjósendur af 215 með er-
lendan ríkisborgararétt.
Kjósendur eru 11.291 fleiri en
þeir voru við sveitarstjórnarkosn-
TÁLKNAFJÖRÐUR
Erlendir ríkisborgarar eru hlutfallslega flest-
ir á kjörskrá á Tálknafirði.
ingar fyrir fjórum árum síðan sam-
kvæmt tölum Hagstofunnar. Fjölg-
unin nemur 5,8% af kjörskrá. Kon-
ur eru 103.089 talsins en karlar
101.837.
17.400 kjósendur hafa í fyrsta
skipti kosningarétt í sveitarstjórn-
arkosningum vegna aldurs. 1.611 ís-
lenskir ríkisborgarar með lögheim-
ili annars staðar á Norðurlöndum
eru á kjörskrá.
Kosið er í 105 sveitarfélögum.
Þeim hefur fækkað um 19 á fjórum
árum. Flest voru þau 229 árið 1950. ■
sakamál Tólf manns hafa verið
handteknir á fimm mismundandi
stöðum í Lundúnum grunaðir
um að aðild að ráni á öryggisbíl
með tugi milljóna króna innan-
borðs. Ránið átti sér stað þánn
19. mars síðastliðinn á Heat-
hrow-flugvelli. Umtalsvert
magn peninga fannst við húsléit
hjá þeim grunuðu. 10 hinna
handteknu voru karlmenn, að
því er kom fram á fréttavef Sky.
Fólkið er á aldrinum 27 til 37
ára. ■
HAFNARFJÖRÐUR
Kosningarnar eru óvíða meira spennandi. „Hér mun eitt atkvæði geta ráðið úrslitum," segir Lúðvík. „Mér sýnist að flokkarnir geti verið að'dansa inn og út úr bæjarstjórn með menn á
kosninganótt. Það er eins gott að menn hafi sterka maga," segir Þorsteinn.
Mikil spenna á
lokasprettinum
Utlit er fyrir mjög tvísýnar kosningar í Hafnarfirði. Samfylking og Sjálfstæðisflokkur stefna á
meirihluta í bæjarstjórn. Framsókn og Vinstri-grænir vara við því að einn fiokkur nái meirihluta.
kosnincar Sveitarstjórnarkosn-
ingarnar næsta laugardag eru
óvíða tvísýnni en í Hafnarfirði.
Sjálfstæðisflokkur og Samfylk-
ing virðast bítast um að flokkar-
nir verði með meirihluta í bæj-
arstjórn að kosningunum lokn-
um. Framsóknarflokkur og
Vinstri-grænir eiga erfiðar upp-
dráttar og eiga á hættu að ná
ekki inn manni.
„Ég held að menn séu raun-
verulega að takast á um hvort
það verði einn flokkur við völd
eða fleiri," segir Þorsteinn
Njálsson, oddviti Framsóknar.
Þorsteinn segir Framsóknar-
menn hafa gert góða hluti í
meirihlutasamstarfi en ýmislegt
hafi ekki náðst fram. Hann vilji
leiðrétta kúrsinn og leggja meiri
áherslu á velferðar- og félags-
mál.
„Þessar kosningar snúast um
það hvort flokkarnir sem sitja
núna í meirihluta fái umboð til
að halda áfram þessari einka-
væðingar- og sérhagsmuna-
stefnu sinni eða hvort hér verði
vinstrimeirihluti eftir kosning-
arnar,“ segir Sigurbergur Árna-
son, efsti maður á lista Vinstri-
grænna. Hann segir barnaskap
að líta á kosningarnar sem ein-
vígi stóru flokkanna og telur
Hafnfirðinga ekki hafa góða
reynslu af einsflokksstjórnum.
Magnús Gunnarsson, bæjar-
stjóri og leiðtogi Sjálfstæðis-
manna, segir kosningarnar snú-
ast um framtíðarþróun Hafnar-
fjarðar. „Nú sér fyrir endann á
uppbyggingu í leikskóla og
grunnskólamálum." Takast verði
á við áframhaldandi uppbygg-
ingu bæjarins og þróun byggðar
suður með sjó. Þá verði farið í
frekari eflingu þjónustu við íbúa
eftir gríðarlegar fjárfestingar
og uppbyggingu í grunnskóla-
málum.
„Það er ljóst að hér eru tvær
stórar fylkingar að takast á,“
segir Lúðvík Geirsson sem leiðir
Samfylkinguna. „Þær eru að
takast á um grundvallaratriði."
Hann segir valið standa milli
þess að Sjálfstæðismenn fái að
halda áfram með einkahyggju,
einkavæðingu og einkafram-
kvæmdir eða hvort Samfylking-
in fær umboð bæjarbúa til að
snúa blaðinu við. Taka verði
fjármálastjórn fastari tökum og
beygja af braut einkafram-
kvæmda sem engu skili nema
handfylli af greiðsluseðlum.
brynjolfur@frettabladid.is
Landsvirkjun:
Stjórncirfundur
verður í vikunni
stóriðja Pétur Jónsson, stjórnar-
maður í Landsvirkjun, segir að
stjórnin muni að öllum líkindum
verða kölluð saman í byrjun þessar-
ar viku. Ræða þurfi stöðuna varð-
andi virkjun á Austurlandi og sölu á
raforku til álvers í tengslum við við-
ræður stjórnvalda og bandaríska
álfyrirtækisins Alcoa. Þrýstingur er
á viðræðunefnd að fá Alcoa form-
lega að samningaborði fyrir 24. maí
svo Landsvirkjun geti klárað nauð-
PÉTUR JÓNSSON
Pólitíkin á heima á Alþingi.
synleg útboð.
Pétur segir að hægt sé að blása
upp pólitísku moldviðri í stjórn
Landsvirkjunar vegna virkjana.
Hann telur þó að slíkur málflutning-
ur eigi ekki heima þar. Landsvirkjun
starfi samkvæmt lögum, reisi og
reki vissar virkjanir og leggi virkj-
unarkosti fyrir iðnaðarráðuneytið.
Hann segir að pólitíkin eigi heima á
Alþingi.
Ef fulltrúar Reykjavíkurborgar
eru á móti þessum rekstri ber þeim
frekar að selja en að andæfa í stjórn.
Skylda stjórnarmanna er að vinna
skynsamlega að virkjunarmálum í
landinu samkvæmt lögum og vilja
Alþingis. ■