Fréttablaðið - 22.05.2002, Blaðsíða 23
1 Það sem
I
I
Reykjavíkurlistinn hefur tekið grunnskólamálin föstum tökum. Þegar Reykjavíkurlistinn tók
við voru fjórirskólarí Reykjavík einsetnir. í haust verða allir 34skólarnir einsetnir
Reykjavíkurlistinn hefur byggt 50 þúsund fermetra af grunnskólarými í stjórnartíð sinni.
Það er jafn mikið og 10 ráðhús.
Það gerist
í Reykjavík
WWW.XR.IS
■ ■
Grunnlaun kennara hækkuðu um 51% við síðustu kjarasamninga, kennurum hefur verið
fjölgað verulega vegna bættrar þjónustu við nemendur, tölvukostur hefurverið margfaldaður,
gert hefur verið átak í kennslu raungreina og lestrarkennslu. Fjöldi stuðningsfulltrúa og skólaliða
hefur verið stóraukinn, sem og samráð við foreldra.
Eftir þetta uppbyggingarstarf er forgangsmál að styrkja innra starf skólanna, auka sjálfstæði
þeirra og virkja hæfileika hvers nemanda. Blásið verður til samstarfs við íþróttahreyfingar,
tónlistárskóla og frjáls félagasamtök og settar upp frístundamiðstöðvar í skólunum þar sem
nemendum verður boðið upp á fjölbreytta viðbót við skólastarfið.
Öllum grunnskólanemendum mun gefast kostur á heitum máltíðum. Næsta haust verður öllum
grunnskólum borgarinnar gefinn kostur á að bjóða nemendum sínum heitan mat í hádeginu.
Góð menntun mun ráða úrslitum um hag borgarbúa í framtíðinni. Þess vegna setur Reykjavíkur-
listinn skólamál í öndvegi. Við höfum skýra framtíðarsýn. Með þínu atkvæði munum við gera
hana að veruleika.
XR-Atkvæði þitt skiptir máli