Fréttablaðið - 22.05.2002, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 22.05.2002, Blaðsíða 24
FRETTABLAÐIÐ SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 20, dreifing@frettabladid.is VlÐ SEGJUM FRÉTTIR Fréttavefurinn á VÍSÍr.ÍS Fyrstur með fréttirnar HEIMAGÆSLA ORyGGlSMIÐSTOÐ ISLANDS 8ORGART0N131 - SlMl 5302400 WWW.OMS Bakþankar Þráins Bertelssonar Voðaskot(?) Hvenær drepur maður mann og hvenær drepur maður ekki mann?“ spurði Jón Hreggviðsson hér forðum og nú standa yfir mikil réttar- höld yfir allt öðrum Jóni fyrir að hafa gert sig sekan um þann skuggalega glæp að láta fallerast af Borgarstjór- anum í Reykjavík til að skrifa upp á viljayfirlýsingu um að í framtíðinni verði til hjúkrunarpláss handa gömlu fólki. Þegar málið er skoðað ofan í kjölinn kemur samt fljótt í ljós að hinn ákærði Jón (Kristjánsson) er sekur. HEILBRIGÐISRÁÐHERRANN er bersýnilega sekur um að hafa skrif- að undir viljayfirlýsingu um að standa við heilbrigðisáætlun sem Alþingi hef- ur þegar samþykkt og er í verkahring þeirrar ríkisstjórnar sem hann situr í að framfylgja. Hann er líka sekur um að hafa gert sig ómerkan í samstarfi með því að lýsa yfir vilja sínum. KANNSKI ER heilbrigðisráðherran- um nokkur vorkunn að hafa í bjart- sýniskasti haldið að samstarfsflokkur- inn viiji nurla saman í þessi sjúkra- hússpláss handa gamlingjunum úr því að það eru til svo miklir peningar í rík- iskassanum að ekki stóð á því að heim- ila fjármálaráðherra að skrifa upp á tuttugu milljarða ríkisábyrgð fyrir DeCode. En hitt er jafnaugljóst að þótt til séu fáeinir skildingar í góðu búi þá eru þeir fjármunir í vörslu húsbænd- anna og hjúunum allrasíst ætlað að spandera þeim. „Agi verður að vera í hernum,“ sagði góði dátinn Svejk. LÁTUM VERA þótt landbúnaðarráð- herranum sé sleppt í sjónkann á vorin til að tala um verð á agúrkum. En það er illt að þola utanríkisráðherrann vera sífellt að tuða um það sem ekki má nefna (en byrjar á ,,E“), og ef heil- brigðisráðherrann ætlar að taka upp á því að fara að hafa einhverjar veru- legar meiningar um heilbrigðismál rétt fyrir kosningar þá er vitanlega fjandinn laus. Og von að fjaðrafokið út af þessu skuli vera orðið eins og einhver hafi hleypt af voðaskoti og voðaskotið lent í löppinni á Birni Bjarnasyni. En hver var það sem hleypti af skotinu: Var það heilbrigðis- ráðherrann? Eða Björn sjálfur? Eða var það kannski fjármálaráðherrann? Og var voðaskotið voðaskot? Eða skaut einhver að yfirlögðu ráði? „Hvenær drepur maður mann og hvenær drepur maður ekki mann?“ ■ ________________Leiðrétting Að gefnu tilefni skal tekið fram að íslenska sendinefndin á fundi Alþjóða hvalveiðiráðsins er ekki i útrýmingarhættu þó hún hafi ekki fengið inngöngu í ráðið. Ferðatrygginq er alltaf innifalin í F plús fjölskyldutryggingunni Leyfðu aðbera PKKUT ab'— — lyrqðina , meðþer Þeir sem eru með F plús njóta tryggingaverndar fyrir alla fjölskylduna á ferðalagi erlendis. Það er sama hversu margir eru í fjölskyldunni eða hve oft farið er til útlanda, F plús verndin gildir í allt að 92 daga hverju sinni. Að sjálfsögðu býður VÍS líka samsetta ferðatryggingu fyrir þá sem ekki eru með F plús. Hringdu og fáðu nánari upplýsingar í síma 560 5000. F plús fjölskyldutrygging felur, auk slysatryggingar, í sér sjúkrakostnaðartryggingu, ferðarofstryggingu og farangurstryggingu. Sjá nánar í skilmálum F plús tryggingar. Með tryggingunni fær fjölskyldan einnig öryggiskort og aðgang að neyðarþjónustu SOS International. Tryggðu þér ánægjulegra frí. Leyfðu okkur að bera ábyrgðina með þér. & Upiús mm Ert þú með F plús tryggingu? Mundu þá eftir SOS-kortinu! þar sem tryggingar snúast um fólk Vátryggingafélag íslands • Ármúla 3 • 108 Reykjavík • Þjónustuver 560 5000 • www.vis.is Þessi fullkomna þvottavé! er nú á sérstöku afmeelistilboói kr. 80.000 UL/ <r eimtöi

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.