Fréttablaðið - 22.05.2002, Síða 10
I III 1 I ABl ADID
10
FRETTABLAÐJÐ ,
22. maí 2Q02 MIÐVIKUDAGUR
Inn og út úr hvalveiðiráðinu
Útgáfufélag: Fréttablaðið ehf.
Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjórar: Gunnar Smári Egilsson
og Jónas Kristjánsson
Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson
Ritstjórnarfulltrúi: Steinunn Stefánsdóttir
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Þverholti 9, 105 Reykjavík
Aðalsími: 515 75 00
Símbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16
Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Fréttablaðið ehf.
Plötugerð: ÍP-prentþjónustan ehf.
Prentun: (safoldarprentsmiðja hf.
Fréttaþjónusta á Netinu: Vísir.is
Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð-
borgarsvæðinu. Einnig er hægt að fá blaðið á
pdf-formi á vísir.is. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn
greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds.
ATHUCASEMD
Röng
fullyrðing
Björn Bjarnason skrifar: _
Ifrétt á forsíðu Fréttablaðsins í
gær er að finna fullyrðingu frá
Magnúsi Stefánssyni, þingmanni
Framsóknarflokksins, sem á ekki
við rök að styðjast. Hann segir mig
hafa ritað undir viljayfirlýsingu um
menningarhús, sem ekki sé papp-
írsins virði. Ég hef ekki ritað undir
neina slíka yfirlýsingu. Ríkisstjórn-
in gaf hins vegar yfirlýsingu um
menningarhús og var hún kynnt á
blaðamannafundi í Ráðherrabú-
staðnum á sínum tíma af fjórum
ráðherrum, tveimur frá hvorum
stórnarflokkanna. Unnið hefur ver-
ið í samræmi við hana síðan. Ég
undrast, að Magnús Stefánsson og
aðrir framsóknarmenn skuli gagn-
rýna okkur sjálfstæðismenn fyrir
þessa viljayfirlýsingu Jóns Krist-
jánssonar og Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur. Við komum hvergi að
henni, en hún hefur að mati Jóns
verið oftúlkuð af R-listanum og
Ingibjörgu Sólrúnu auk þess sem
Jón hefur viðurkennt, að hann hafi
ekki farið rétt að á vettvangi ríkis-
stjórnarinnar, og harmar, að R-list-
inn hafi dregið sig í kosningabarátt-
una hér í Reykjavík með þessum
hætti. Það er verið að hengja bak-
ara fyrir smið að skella skuld vegna
þessa máls á Sjálfstæðisflokkinn -
hér er um vanda R-listans að ræða
og forystumenn þar virðast hafa af
því litlar áhyggjur að gera hlut
framsóknarmanna sem minnstan. ■
1991
Fundur Alþjóða hvalveiðiráðsins
er haldinn í Reykjavík. Hval-
veiðar í atvinnuskyni lögðust af
haustið 1985. Haustið 1989 voru
síðustu sandreyðarnar veiddar
hér við land. Það ár lauk hval-
veiðum í vísindaskyni. Á árs-
fundinum er greinilegt að rök ís-
lendinga um veiðar út frá stofn-
stærð eiga lítinn hljómgrunn.
Meira ber á umræðu um veiðiað-
ferðir. Þolinmæði íslendinga
gagnvart ráðinu er á þrotum. í
nóvemberlok skilar nefnd sem
Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegs-
ráðherra, skipaði, niðurstöðu.
Niðurstaða hennar er að ísland
eigi að segja sig úr hvalveiðiráð-
inu.
1992
Ákvörðun um úrsögn úr hval-
veiðiráðinu er tekin á síðasta rík-
isstjórnarfundi ársins 1991.
Ákvörðunin tekur gildi 30. júní.
Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegs-
ráðherra, segir að í stofnsáttmála
hvalveiðiráðsins sé með skýrum
hætti kveðið á um það að ráðið
eigi að stuðla að verndun og nýt-
ingu hvalastofna. Ráðið hafi hins
vegar smám saman verið að
breytast í hreinræktuð verndun-
arsamtök. Máli sínu til stuðnings
bendir hann á að tillögur um veið-
ar sem hafi verið samþykktar af
vísindanefnd ráðsins hafi ekki
fengist ræddar í ráðinu. Þann 30.
júní gengur ísland úr hvalveiði-
ráðinu. Japan sem keypti hvalaaf-
................. ......Eoi.s.ag.a.
Islendingar reyndu á ný að ganga í Alþjóða
hvalveiðiráðið. Þeim var nú, eins og fyrir
ári, meinuð innganga. Islendingar höfðu
fengið sig fullsadda á ráðinu þegar þeir
sögðu sig úr þvi. Fljótlega fór þó að bera á
efasemdarröddum um þá ákvörðun.
urðir íslendinga er ennþá í ráðinu.
Japönsk lög kveða á um að ein-
ungis megi kaupa hvalaafurðir af
ríkjum sem eigi sæti í Alþjóða
hvalveiðiráðinu.
1994
Bera fór á efasemdarröddum um
að úrsögn úr ráðinu hefði verið
skynsamleg. Jón Baldvin Hanni-
balsson, utanríkisráðherra, sagð-
ist hafa sannfærst um það eftir
samtöl við japanska ráðamenn að
rétt væri að ganga í hvalveiðiráð-
JÓNAS SKRIFAR:
Moby Dick sleppur enn
Barátta íslendinga fyrir hvalveiðum er farin að
minna á þráhyggju Ahab skipstjóra, sem elti hval-
inn Moby Dick árangurslaust um heimshöfin.
Söguhetja rithöfundarins Herman Melville tapaði
alltaf bardögunum og alltaf tapar ísland í baráttu
sinni við að hefja hvalveiðar að nýju.
Síðustu misserin hefur slagurinn einkennzt af
tilraunum til að komast að nýju í Alþjóða hvalveiði-
ráðið, sem við yfirgáfum í fússi fyrir áratug. Við
getum ekki hafið hvalveiðar án aðildar, því að hún
er eina leiðin til að selja afurðirnar. Japanir mega
ekki kaupa hvalkjöt af ríkjum utan ráðsins.
Á fundi ráðsins í Japan var hafnað með fimm at-
kvæða meirihluta að taka umsókn íslands á dag-
skrá, þar sem hún væri sama umsóknin og felld
hafði verið í fyrra. Þetta kom áheyrnarfulltrúum
íslands í opna skjöldu, enda höfðu þeir gert sér
rangar hugmyndir um afstöðu ríkja.
Sex ný ríki eru komin í ráðið síðan í fyrra og þar
af fjögur, sem Japan hefur keypt til fylgis við hval-
veiðar. Þetta dugði íslendingum ekki, því að stór-
veldin með Bandaríkin í broddi fylkingar eru al-
gerlega andvíg hvalveiðum og beittu sér gegn lög-
fræðilegri þrætubókarlist íslendinga.
Við þessu eiga ráðamenn okkar engin svör nema
reiðina. Hún beinist einkum að sænskum stjórn-
völdum, því að sænskur formaður ráðsins fylgdi
bandarískum ráðum um fundarsköp. Vandséð er
þó, að sjávarútvegsráðherra íslands geti fram-
kvæmt hótanir um að hefna sín á Svíum.
ísland er ekkert stórveldi, sem getur ráðskazt
með hagsmuni Svíþjóðar. Tilraunir til slíks munu
þvert á móti koma okkur í koll á öðrum sviðum, því
að við þurfum mjög á Svíum að halda til að gæta
hagsmuna okkar í Evrópusambandinu. Hótanir
Árna Mathiesen eru því marklausar með öllu.
Vandi okkar er sá, að ríku þjóðirnar í heiminum,
með Bandaríkjamenn í broddi fylkingar, eru alger-
lega andvígar hvalveiðum, fyrst og fremst af til-
finningalegum ástæðum. Hvalurinn Moby Dick er
„ Bandaríski fulltrúinn í ráðinu kvað þó
fast að orði um röksemdir Islendinga og
fapana um, að hvalur étifisk frá mönnum.
Hann sagði þetta vera bull
til að draga athygli frá ofveiði áfiski. “
ein ástsælasta sagnapersóna heimsins og heldur
verndarhendi yfir allri ættkvísl sinni.
Við tökum raunar þátt í vestrænu dálæti á hvöl-
um. íslenzk sveitarfélög keppast um að fá að hafa
háhyrninginn Keikó. Hvalaskoðun er orðin svo
mikilvæg atvinnugrein, að hugsanlegar tekjur af
hvalveiðum yrðu aðeins skiptimynt til samanburð-
ar. Við sitjum báðum megin borðsins.
Tilfinningar Vesturlandabúa nægja einar til að
hindra hvalveiðar okkar, hvað sem öllum rökum
líóur. Bandaríski fulltrúinn í ráðinu kvað þó fast að
orði um röksemdir íslendinga og Japana um, að
hvalur éti fisk frá mönnum. Hann sagði þetta vera
bull til að draga athygli frá ofveiði á fiski.
Nú er úr vöndu að ráða. Japanir hafa ekki fé til
að kaupa fleiri smáríki í hvalveiðiráðið. Til að kom-
ast í ráðið verðum við að falla alveg frá fyrirvör-
um, sem meirihluti aðildarríkjanna hafnar. Síðan
geta fulltrúar íslands reynt að byrja á nýjum núll-
punkti og hefja jn'ætubók innan ráðsins.
Eitt er ljóst. Island mun áfram berja höfðinu við
steininn eins og Ahab skipstjóri. Þráhyggjan er
hornsteinn hugsunar okkar eins og hans. Áfram
verður fé og orku eytt í vonlausar tilraunir til að
tefla málum í þá stöðu, að við getum hafið hval-
veiðar og farið að selja hvalkjöt að nýju.
Á sama tíma munum við halda áfram að auka
tekjur okkar af ást Vesturlandabúa á hvölum. Við
munum rækta hina meiri hagsmuni meðan við
náum ekki fram hinum minni hagsmunum.
Jónas Kristjánsson
^ Alveg einstalce
y°rtilboð!
j 'ftÍ fiámaverA:
Cámaverð:
5.900 kr.
Gámaverð:
3.990 kr.
Höftim fengið gám af Ijósum
á hreint ótrúlegu verði...
...og þú ert boðin(n) í
Cámaveislu á gámaverði:
14Mkr.
Gámaverð:
1.990 kr.
Gámaveislan nær líka til:
Mosraf Mosfellsbœ, Rafbúðin Álfaskeiði Hafnarfirði, Geisli
Vestmannaeyjum, Rofþjónusta Slgurdórs Akranesi, Reynir
Ólafsson Keflavík. Fossraf Selfossi, Lónlð Höfn, Sveinn
Guömundsson Egilsstöðum, Kaupfólag Vopnflröinga, Johan
Rönning Akureyn, Öryggi Húsavík, Rafbær Siglufiröi, Rafsjá
Sauðarkrók, Kaupfélagið Hvammstanga, Rafalda
Neskaupstað, Straumur ísafirði, Blómsturvellir
Hellissandi, Guöni E. Hallgríms Grundarfiröi. Kaupfélagið
Blönduósi, Húslð Gríndavík.
Rafkaup
Ljós & Lampar “
Ármúla 24
Sími 585 28 00
ið að nýju. Fleiri tóku í sama
streng. Meðal annarra Björn
Bjarnason, formaður utanríkis-
málanefndar, sem vildi inngöngu
með fyrirvara um að við ætluðum
að hefja hvalveiðar á grundvelli
vísindalegra raka.
2001
íslendingar vilja ganga á ný inn í
hvalveiðiráðið með fyrirvara um
hvalveiðibannið sem er í gildi.
Hvalveiðiráðið hafnar aðild ís-
lendinga. ■
ORÐRETT
ANNARRA KÖNNUR
Sem ráðherra og
þingmaður hef ég
að sjálfsögðu haft
áhuga á að sinna
málefnum aldraðra.
Björn Bjarnason.
Morgunblaðið 19. maí
„BEEN THERE,
DONE THAT"
Ég er ekki á leið í
þingframboð að ári,
ef það er spurning-
in sem undir liggur.
Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir. Morgunblaðið,
19. maí
BABÚ, BABÚ
Þá var heilbrigðis-
ráðherra fenginn til
að bjarga málunum.
Inga Jóna Þórðar-
dóttir. Fréttablaðið,
21. maí
LOKSINS EITTHVERT FJÖR
Sú lítilsvirðing sem sjálfstæðis-
menn hafa sýnt heilbrigðisráð-
herra verður ekki liðin.
Cuðjón Ólafur Jónsson, lögfræðingur
og framsóknarmaður. Hrifla.is
ALMENNIR MANNASIÐIR
í HÚSI DAVÍÐS
Mér dettur í hug hvort menn
ætlist til að Jón hegði sér á ríkis-
stjórnarfundum eins og sveita-
konan sem var sífellt að afsaka
bakkelsið sem hún bar gestum.
„Fyrirgefið þið, fyrirgefið þið
þetta meðlæti ef meðlæti skyldi
kalla. Já, afsakið mig, já ef mig
skyldi kalla!"
Birgir Guðmundsson, fyrrverandi frétta-
stjóri DV, um viljayfirlýsingu heilbrigðis-
ráðherra. Silfur Egils, vefsíða, 20. maí
OG VIÐ ERUM
LÍKA FLEST Á ÞVÍ
AÐ JÖRÐIN SÉ
HNÖTTÓTT
Að mínu mati erum
við ekki aðilar að
Alþjóða hvalveiði-
ráðinu
Gunnar G. Schram, prófessor.
Fréttablaðið, 21. maí
ÞJÓÐRÉTTARLEGAR OG LÖG-
FRÆÐILEGAR BOÐFLENNUR
Út frá lögfræðilegu sjónarhorni
og þjóðréttarlegu þá eru ríki ekki
aðilar ið alþjóðastofnunum þó
þau sjálf kjósi.
Gunnar G. Schram, prófessor.
Fréttablaðið, 21. maí
MARTRÖÐ GAGNRÝNANDANS
En vandræði undirritaðs hófust
fyrst fyrir alvöru þegar upp rann
sú erfiða skylda að reyna að
finna eitthvað aðfinnsluhæft við
flutning stjörnunnar.
Ríkharður Örn Pálsson um
tónleika June Anderson á Listahátíð.
Morgunblaðið, 21. maí.
VERÐUR SÍFELLT MEIRA SEXÝ
Kjörþokki Björns hefur vaxið til
muna frá því að kosningabarátt-
an hófst og er líklegt að það sé að
skila sér í „eðlilegu" hlutfalli
kvenna í hópi kjósenda flokksins.
Ásgeir Friðgeirsson greinir kosninga-
baráttuna í pistli á Pressunni sem birtist
á strik.is