Fréttablaðið - 22.05.2002, Page 11

Fréttablaðið - 22.05.2002, Page 11
MIÐVIKUDAfclÍR*22maí iö02! FRÉlfÁBLÁÐ'lfe1^ 1 or r 11 Innanlandsflug Flugfélags íslands: Brottförum hefur fækkað um 10% INNANLANDSFLUG Flugfélag íslands flýgur tíu til tólf flug á dag. Rauðu strikin héldu: Aðeins áfangasigur rauðu strikin Framkvæmdastjórn Starfsgreinasambands íslands fagnar því að rauðu strikin hafi haldið. Hún leggur hins vegar áherslu á að aðeins sé um áfangasigur að ræða. Þróun gengismála eigi að gefa tilefni til verðlækkana og því sé mikil- vægt að verðlagseftirlit sé virkt og aðilar vinnumarkaðarins og almenningur þrýsti á um að hag- stæð þróun gengisins skili sér til neytenda. Þá telur stjórnin tímabært að viðskiptaráðherra og ríkisstjórn hlutist til um afnám verðtrygg- inga lána. ■ Flug Brottförum í inn- anlandsflugi hjá Flugfé- lagi íslands fækkaði um 10% frá árinu 2000 til 2001. Að sögn Árna Gunnarssonar, mark- aðs- og sölustjóra Flug- félags íslands, má rekja fækkunina til minnk- andi eftirspurnar á markaði. Fram hefur komið að tap á innan- landsflugi eru tæpir 2 milljarðar frá því flugið var gefið laust árið 1997. Árni seg- ir brottfarir frá árunum 1997 til 1999 hafa verið í kringum 8.500. Árið 2000 hafi þeim fjölgað í 10.989, eða um 30%. Aukninguna megi að einhverju leyti rekja til þess að það ár tók Flugfélag ís- lands yfir flug íslandsflugs til Ak- ureyrar og Egilsstaða og yfir af- greiðslu félagsins á öðrum leið- um, þ.e. til Bíldudals, Gjögurs og Sauðár- króks. Hjá Flugfélagi ís- lands eru um tíu til tólf flug á dag. Sex ferðir til Akureyrar, tvö til ísafjarðar á og tvö til Egilsstaða. Árni segir ferðum fjölgað um helgar og sumrin til síðastnefndu stað- anna ef eftirspurn sé næg. Erlendir ferða- menn gegni lykilhlutverki í innan- landsflugi á sumrin. „Hlutfall þeirra er allt að 40-50% yfir sum- armánuðina. Þeir eru mjög stór markhópur fyrir okkur.“ ■ Vísitölur Hagstofu Islands: Launavísi- tala hækkar lítillega efnahagsmál Launavísitalan hækk- aði lítillega milli mars og apríl. Hagstofa Islands reiknar út vísitöl- una miðað við meðallaun í apríl 2002. Vísitalan er 225,4 stig og hækkaði um 0,2% frá í mars. Vísi- tala byggingarkostnaðar, sem gildir fyrir júní, hefur einnig hækkað um 0,2% og er 277,4 stig, en hana reikn- ar Hagstofan út eftir verðlagi um miðjan maí. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 7,4%. ■ Sýklalyf á meðgöngu tengd sjúkdómum í bömum Sýklalyf á meðgöngu hafa verið tengd ofnæmissjúkdómum síðar á lífsleiðinni í nýrri viðamikilli rannsókn. Ofnæmi meðal barna hér er með því mesta sem þekkist á Norðurlöndum. Baráttan harðnar í Hafnaríirði Stefnir í einvígi Sam- fylkingar og Sjálfstæðis- flokks kosningar Baráttan milli Sam- fylkingarinnar og Sjálfstæðis- flokksins í Hafnarfirði fer harðn- andi með hverjum degi. Sam- kvæmt nýrri könnun á vefsvæð- inu heimur.is er munurinn milli framboðanna ekki marktækur. D- listinn mælist með tæp 47% at- kvæða, en var með 47% í síðustu könnun, og Samfylkingin bætir við sig tæpu prósentustigi og fer í 44%. Framsóknarflokkurinn fær tæp 5% og Vinstri grænir eru einnig innan við 5%. Þetta þýðir að VG ná ekki inn manni og fram- sókn tapar sínum. ■ heilbrigðismál Ný rannsókn bendir til tengsla milli sýkla- lyfjanotkunar á meðgöngu við ýmsa ofnæmissjúkdóma sem hrjá börn síðar á lífsleiðinni. Rannsóknin, sem unnin var við Nottingham-háskóla í Bretlandi, sýnir að líkur á að barn þjáist af astma aukist um 43% hafi móðir þess notað sýklalyf á meðgöng- unni. Líkur á heymæði aukast um 38% og hættan á ofnæmisút- brotum um 11%. Greint var frá rannsókninni í breska blaðinu Independent on Sunday, en hún er til kynningar á ráðstefnu American Thoracic Society í Atlanta í vikunni. Rannsóknin náði til 7.500 breskra barna á síðari hluta tí- unda áratugarins. Niðurstöðurnar ýta undir kenningar um að orsakir auk- inna ofnæmissjúkdóma í börn- um sé að finna í vestrænum lifn- aðarháttum og lyfjanotkun. Vís- indamennirnir vilja þó ekki full- yrða að tengja megi ofnæmi sýklalyfjanotkun. Sigurður Kristjánsson, sér- fræðingur í ofnæmissjúkdóm- um og barnalækningum, segir tíðni ofnæmissjúkdóma í börn- um hér jafnast á við það sem mest gerist á Norðurlöndunum. í alþjóðlegri könnun sem nær til 139 landa kom fram að hérlend- is er tíðni astma hjá 11 ára börn- um 9%, tfðni ofnæmisexems 26,9% og 11% í frjóofnæmi. „Það kom okkur verulega á óvart að niðurstöðurnar hér voru á við það sem hæst gerðist í sambærilegri könnun í Sví- þjóð,“ sagði hann. Sigurður sagði margar kenn- ingar í gangi um orsakir ofnæm- issjúkdóma og taldi rétt að fara varlega í að draga ályktanir af einni rannsókn. „Börn mæðra sem reykja eru t.a.m. með minni lungu en börn mæðra sem ekki reykja. Það má t.d. hugsa sér að sýkingar á meðgöngu hafi áhrif á lungnavöxt," sagði hann. Guðmundur Sigurðsson, land- læknir, segir að áður en varað yrði frekar við sýklalyfjanotkun á meðgöngu þyrftu að fara fram frekari rannsóknir. Hann segir niðurstöðurnar forvitnilegar, en áréttar að mjög varlega sé farið í lyfjagjöf til vanfærra kvenna. oli@frettabladid.is Kosningaskrifstofa Aðalstræti 9 s. 552-2600 • wwwxf.is • xf@xf.is Hægt er að styrkja framboðið í síma 901 5101 (símtalið kostar 1.000 kr.) Forystumenn F-listans eru þekktir fyrir 4 1 I 'v| Ail J§ 5 LÁ í málflutningi. Þeir láta sig varða samborgara sína og vilja réttlæti þeim til handa. Ólafur F. Magnússon Margrét K. Sverrisdóttir Gísii Helgason

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.