Fréttablaðið - 22.05.2002, Blaðsíða 14
14
22. maí Í0Ó2' MIÐVlKÚb'AdÚR
?:
FRÉ'ffÁ'BLAÐliÍ)1'5
HASKOLABIO
MS4T6tr,l • iiMI S;0 I<)I9 « STÆRiTÁ S^HIHGARTjALD LAHDSIMS
c ;
Sýnd kl. 8 og 10.15
[JÖHN Q kL 10.15 I
Sýnd kl. 5 og 9
BEAUTIFUL MIND kl.5|
[MULHOLLAND DRÍVE kl. 7J0 o* 1015]
FILMUNDUR
SCORPION KINC kL 51 Iles diaboliques kLsl
[lSÖLD m/íslensku tali
5mfíRfíV BIO
THX sfMI 564 0000
ALFA&AKKA
Ú
SAMl1
lb):
4,9i\dírjáls búnaöjui
www.hand ,y< . .
Málning
fyr/rallá
Farveland Farveland’
I V*Q ROOV*11
MALARiNN J&Æ
Bæiarlind 2 • Kópavoqi« Sim»: 581 3500
Nauticalia
4-
aðstoö sem hentar öllum börnum.
Mikilvaeg m.a. við athyglisbresti,
misþroska, ofvirkni, tourette og
sértækum námsörðugleikum. um-
sagnir og netverð á ofvirkni-
bókin.is Pöntunarsími: 895-0300
KVIKMYNDIR
Afhverju lengri?
Eg hugsa að það séu fleiri á
þeirri skoðun að kvikmyndin
„Apocalypse Now“ sé meistara-
verk en hafa í raun séð hana.
Þannig var það a.m.k. í mínu til-
felli. Af einhverjum ástæðum
hafði ég aldrei tælt hana með mér
heim á öllum mínum vídeóleigu-
ferli þó svo að „ég vissi“ að þarna
væri meistaraverk á ferð.
Þannig að þegar ég sá nýju út-
gáfuna í bíó á dögunum var ég að
upplifa alla heildina í fyrsta skipt-
ið. Öll myndgæði endurbætt, auk
þess sem rúmlega 50 mínútum
var þær 150 sem nú þegar voru til
staðar.
Um leið og ég fékk grun minn
staðfestan, að þarna væri snilld-
arverk á ferð, óska ég þess í dag
að hafa séð myndina í fyrsta
skiptið í sinni upprunalegu mynd.
Þessi nýja útgáfa ber lengd sína
frekar illa. Ég spurði félaga minn,
sem dró mig með í þeirri von að
AFOCALYPSE NOW REDUXE: ________
„frelsa mig“ með þessu meistara-
verki, hvaða atriði hefðu verið ný.
Mér virðist sem flest þau atriði
sem upprunalega voru klippt út,
en fá nú að fljóta með, þjóni sög-
unni afar lítið og séu meira til
þess að vekja áhorfandann til um-
hugsunar á tilgangsleysi Víet-
namstríðsins. Eitthvað sem flestir
gera sér grein fyrir í dag.
Semsagt, frábær mynd en end-
urútgáfan ætti aðeins að höfða til
þeirra sem eru harðir aðdáendur
myndarinnar. Fyrir okkur hin
sem upplifum hana ferska er
þetta fremur þungur, langur hníf-
ur.
Birgir örn Steinarsson
Skútur, margar gerðir.
Fjafavörur úr kopar.
Hagstætt verð.
Fiskislóð 26
Stuiiaugur Jónsson & Co. ehf. S: 551 -4680
www.sturlaugur.is • sturlaugur@sturlaugur.is
Kennarar og foreldrar
Beyonce Knowles, ein söng-
kona tríósins Destiny’s
Child, ætlar að opinbera fyrstu
sólósmáskífu
sína á Netinu.
Lagið heitir
„Work it Out“ og
verður að finna í
kvikmyndinni
„Goldmember",
þriðju myndinni
um kyntröllið
Austin Powers.
Hún fer einnig með hlutverk
njósnarans Foxy Cleopatra í
myndinni. Laginu verður hleypt
á Netið á AOL dagana 23. - 24.
maí.
Hljómsveitin REM gerir þó
örlítið betur en Beyonce
því á heimasíðu þeirra
www.remhq.com
fæst gefins heil
breiðskífa. Um
er að ræða end-
urhljóðblandanir
af síðustu plötu
þeirra „Reveal"
og plötuumslag
sem hægt er að
sækja. Michael
Stipe, söngvari REM kallar
þetta gjöf til aðdáenda og full-
yrðir að platan verði hvergi
seld í plötubúðum.
Nú er vinnsla hafin á fjórðu
kvikmyndinni um Indiana
Jones. Framleiðendur lentu þó í
undarlegri stöðu
á dögunum þegar
þeir hófust
handa við að
grafa sig inn í
leikmunageymsl-
una. Þannig var
mál með vexti að
þeir fundu engar
svipur því þær
hafa flestar verið gefnar til
uppboða sem safna peningum til
góðgerðarmála. Verður Indiana
þá svipulaus í næstu mynd?
TÓNLIST
Mohy d niðurleid
Elsku besti Moby. Mér þykir
leiðinlegt að þurfa að til-
kynna þér það að eintakið sem
þú sendir mér af nýjustu plötu
þinni, „18“, er því miður ónýtt.
Ég veit það vel að þú átt vel-
gengni síðustu plötu þinnar,
„Play“, að þakka hversu vel
gekk að selja lögin í auglýsingar.
Enda var sú plata melódísk og
þar af leiðandi skemmtileg til-
breyting frá þeirri raftónlist
sem var í gangi. Hún smellpass-
aði því í það að selja bíla og
jogginggalla. En hefði ekki verið
gáfulegra núna að forðast það að
„klóna“ síðustu plötu? Þú hefðir
a.m.k. getað notað önnur hljóm-
borðshljóð en þú notar í vinsæl-
ustu lögum þínum, er það ekki ?
Ef þig langar svona til að semja
auglýsingarstef afhverju færðu
þér þá ekki vinnu á næstu aug-
lýsingaskrifstofu? Ég skal jafn-
vel mæla með þér.
MOBV:____________;_____________18
Jú, jú ég hafði svolítið gaman
af þremur lögum, „Jam for the
Ladies", „We are all made of
stars“ og seinna lagið sem
Sinead O’Connor syngur
„Harbour". Öll hin 15 voru það
gerilsneidd af allri sköpunar-
gleði að ég tók diskinn úr spilar-
anum í bræðingskasti og notaði
hana sem skotskífu þegar ég
prufaði nýja haglarann minn!
P.s. Elsku kallinn minn, spar-
aðu þér eintakið næst!
Birgir örn Steinarsson
FRÉTTIR AF FÓLKI
Búið er að læsa mörgum geisladiskum þannig að ómögulegt er að
spila þá á tölvum. Fyrsti læsti íslenski diskurinn er „Eldhúspartí
FM957“. Nú er þó hægt með auðveldum leiðum að komast fram hjá
lásunum. Er hægt að læsa diskum endanlega?
tónlist „Lásinn virkar þannig að
geisladrifið sér ekki diskinn,"
útskýrir Eiður Arnarsson, út-
gáfustjóri Spors, en nýjasta út-
gáfa þeirra „Eldhúspartí
FM957“ er læst tölvum. „Það er
ekki góð hugmynd að setja
svona disk í drifið þitt, því hann
er ekki fyrir tölvur." Forritið
sem er búið að koma fyrir á
disknum kemur einnig í veg fyr-
ir að hægt sé að fjölfalda, eða
„brenna”, diskinn.
Þetta er vissulega ókostur
fyrir þá sem ef til vill nota tölv-
ur sínar sem geislaspilara, hvort
það er í vinnu eða heima í stofu.
„Við höfum mætt því þannig að
hver sem kaupir plötuna, sem er
varin, getur sótt allt innihald
hennar og hlustað á það á Net-
inu.“ Þannig fær kaupandinn níu
stafa kóða í bæklingi plötunnar
sem hann svo notar til að nálgast
lögin á heimasíðu Skífunnar.
Skjölin eru í dulkóðuðum wma
(Windows Media Audio) skjölum
sem aðeins er hægt að leika í
sömu tölvu og þau eru sótt í.
Þessi þjónusta á þó aðeins við ís-
lensku diskanna, en erlendu út-
gefendurnir hafa ekki enn kom-
ið upp slíku kerfi þó að flestar
nýjar útgáfur þeirra séu læstar.
Skífan er fyrst evrópskra út-
gáfufyrirtækja til að bjóða
kaupendum upp á þjónustuna.
Erlendar fréttastofur hafa
þegar greint frá einfaldri lausn
ELDHÚSPARTÍ FM957
Sálin hans Jóns mlns er ein af þeim hljómsveitum sem á lag á fyrsta íslenska geisla-
disknum sem er læstur tölvum.
til þess að komast fram hjá lás
diskanna. Hún felst í því að taka
tússpenna og strika yfir ystu
rönd geisladisksins, þar sem
forritið sem geymir lásinn, er
falið á disknum. „í þágu vísind-
anna þá prufaði ég þetta,“ viður-
kennir Eiður. „Þetta virkaði í
smá stund. Sony er núna að
breyta diskum sínum þannig að
það er víst ekki lengur hægt að
sjá hvar forritið er. Ef fólk
krassar á diska sína er alltaf
mikil hætta á að þeir skemmist.
Hakkarar finna samt alltaf nýj-
ar leiðir. En með þessu erum við
að reyna að vekja fólk til um-
hugsunar að það er náttúrulega
að stela. Þetta bitnar ekki bara á
útgefendum. Þetta er jafn vont
fyrir listamenn og höfunda, það
gleymist oft. Við erum ekki með
þessu að reyna að stöðva ólög-
lega dreifingu á Netinu, heldur
minnka fjölföldun á diskum."
Eiður segir að plötusala hafi
farið minnkandi vegna nýrrar
tækni og það megi glögglega sjá
á sölu safnplatna. „Venjuleg
Pottþétt-plata seldist t.d. í 5 - 6
þúsund eintökum fyrir 3 árum.
Nú er hún komin í undir 3 þús-
und eintök.“
biggi@frettabladid.is
Lok, lok og
læs eða hvað?