Fréttablaðið - 08.06.2002, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 08.06.2002, Blaðsíða 2
KJÖRKASSINN 2 FRÉTTABLAÐIÐ 8. júni 2002 LAUGARPAGUR FÆSTIR NEYTT EFEDRÍNS Einn af Hverjum fimm netverjum segist hafa neytt ólöglegra efna sem innihalda efedrín. Hefur þú tekið inn „Ripped Fuel" eða önnur ólögleg efni sem inní- halda efedrín? Niðurstöður gærdagsins i www.visir.is B___________________________________12% Nei Spurning dagsins i dag: Var rétt að meina meðlimum Falun Gong að koma til íslands meðan kínverski for- setinn er í heimsókn? Farðu inn á vlsi.is og segðu þína skoðun ___________CSB9 BEÐIÐ ÁTEKTA Meðan fulltrúi Bandarlkjanna ræðir við ráðamenn á Indlandi og I Pakistan bíða hermenn beggja ríkja átekta. Þessi er ind- verskur. Minnkandi spenna milli Indverja og Pakistana: Stríðshætta er ekki liðin hjá nýju delhi. ap Richard Armitage, aðstoðarutanríkisráðherra Banda- ríkjanna, segir heldur hafa dregið úr spennunni milli Indlands og Pakistans. Þó segir hann enn vera hættu á því, að stríð brjótist út. Armitage ræddi í gær við Atal Bihari Vajpayee, forsætisráð- herra Indlands. Daginn áður hafði hann rætt við Pervez Musharraf, forseta Pakistans. Hann hvatti þá báða til þess að forðast átök, sem gætu endað í kjarnorkustríði. Hann sagði að Indverjar bíði eftir sönnunum þess, að Mus- harraf vilji í raun frið. ■ Verkfallsaðgerðir unglækna: Samþykktu nær ein- róma verkfall Unglæknar samþykktu nær einróma að boða til verkfalls- aðgerða í sumar., Atkvæðagreiðsl- an fór fram á miðvikudag og fimmtudag og 'Var talið í gær- morgun. Niðurátaðan varð sú að 68 þeirra samþykktu en einn var á móti. „Þessi niðurstaða er afgerandi og styrkir okkur í því sem við erum að gera,“ segir Jóhann Elí Guðjónsson, varaformaður Félags unglækna. Við munum tilkynna vinnuveitendum okkar þessa nið- urstöðu síðar í dag eða á mánu- dagsmorgun." ■ STUTT Landssíminn hefur keypt Kap- alkerfi Hafnarfjarðar af Hita- veitu Suðurnesja. Kapalkerfið verður uppfært til samræmis við Breiðband Símans. Reykjavíkurborg og Trygging- armiðstöðin verða að greiða sextugri konu tíu milljóna króna bætur vegna slyss sem hún varð fyrir í strætisvagni. Héraðsdóm- ur Reykjavíkur kvað upp úr- skurðinn. Islendingur handtekinn í Kaupmannahöfn: Reyndi að myrða eiginkonu sína kaupmannahöfn íslenskur mað- ur hefur verið handtekinn í Kaupmannahöfn fyrir morðtil- raun. Maðurinn, sem er 54 ára, stakk fimmtuga eiginkonu sína, sem er dönsk, fjórum sinnum með hníf í háls og brjóst. Að sögn lögreglunnar í Kaup- mannahöfn gerðist þetta í íbúð þeirra í Husum í Kaupmanna- höfn seint á miðvikudagskvöld- ið. Konan liggur á sjúkrahúsi í Kaupmannahöfn. Raddbönd hennar eru skorin í sundur og hún getur ekki talað. Hún er ekki lengur í lífshættu. Maður- inn hefur verið úrskurðaður í 27 FRÁ KAUPMANNAHÖFN Islendingur á sextugsaldri réðst á eigin- konu sína á heimili þeirra I Kaupmanna- höfn aðfaranótt fimmtudags. daga gæsluvarðhald meðan mál- ið er í rannsókn. Fram kemur í dagblaðinu Ekstra Bladet í gær að maðurinn hafi sjálfur hringt í lögregluna eftir að hafa stungið konuna. „Ég hef stungið konuna mína. Ég er hræddur um að henni blæði út,“ segir í blaðinu að hann hafi sagt lögreglunni í símanum. í blaðinu segir ennfremur að maðurinn hafi verið drukkinn og þau hafi fyrr um kvöldið rifist um peningamál. íslenska sendiráðið í Kaup- mannahöfn hafði ekkert frétt af málinu, þegar haft var samband við það í gær. ■ Skerj afj arðarslys: Rannsókn að ljúka lögreglumál Rannsókn lögregl- unnar á Skerjafjarðarslysinu er nú á lokastigi samkvæmt heima- síðu aðstandenda fórnarlamba slyssins. Síðustu fregnir hermi að í raun sé aðeins einum þætti máls- ins ólokið. Það sé fyrst og fremst fjarvera lykilmanna Leiguflugs ísleifs Ottesen sem tefji. Aðstand- endur segja að þeir lykilmenn séu væntanlega ísleifur Ottesen, eig- andi flugfélagsins, „sem hefur verið að losa um eigur sínar á ís- landi og er flúinn land“, eins og segir á heimasíðunni og Birgir Björgvinsson, flugrekstrarstjóri félagsins þegar flugslysið gerðist. Birgir starfar á Grænlandi. ■ Ekki á útleið en vill starfsfrið Hef ekkert brotið af mér, vil einungis starfsfrið sem varla skapast án mannabreytinga, segir for- stjórinn. Hefur ráðið fólk í trássi við starfsáætlanir og unnið gegn samþykktum stjórnar segir, stjórnarformaðurinn. BYGGÐASTOFNUN „Það er fráleitt að halda því fram að ég hafi brotið þannig af mér að það rétt- læti áminningu. Staða mín sem forstjóra er því alls ekki í hættu. En ég tek ásökunum um brot í starfi alvarlega og hef leitað mér ráðgjafar," sagði Theodór A. Bjarnason, forstjóri Byggða- stofnunar. Bréf ganga á víxl milli for- stjórans og Valgerðar Sverris- dóttur iðnaðarráðherra. Ráð- herra spyr m.a. um seinagang við frágang ársreiknings og dagsektir sem féllu á stofnunina vegna hans. Spurt er um út- göngu forstjórans af stjórnar- fundi. Einnig um það hvers vegna ekki hafi verið framfylgt ákvörðun stjórnar um flutning fjármálaumsýslu til Sparisjóðs Bolungarvíkur. Loks er krafist skýringa á meintum óheimilum mannaráðningum. Theodór segist þegar hafa svarað öllum spurningum. Bréf sem ráðherra hafi sent sé vart annað en lúsaleit og sparðatín- ingur. „Ég tel forstjórann brotlegan en ætla ekki að dæma um hvort brotin verðskulda áminningu eða alvarlegri viðbrögð. Hann hefur til dæmis ráðið inn starfs- fólk í ósamræmi við samþykktir stjórnar. Við þurfum hugsan- lega að segja upp fólki. Þá er óskiljanlegt hvers vegna for- stjórinn hefur unnið gegn flutn- ingi fjármálaumsýslunnar ann- að. Sú ákvörðun var tekin þegar Byggðastofnun flutti á Sauðár- krók,“ sagði Kristinn H. Gunn- arsson, stjórnarformaður Byggðástofnunar. Iðnaðarráðherra segir að lausn verði fundin á Byggða- stofnunarmálinu fyrir ársfund 21. júní. Hún hefur þó ekki sagt í hverju lausnin felst. „Ég tel brýnt að fá fullkom- inn starfsfrið og öryggi í sam- skiptum við stjórn Byggðastofn- unar. Ég sé engin rök fyrir því að ég hverfi úr starfi forstjóra og er ekki á útleið. Mér kæmi á óvart ef þess yrði óskað. Ég leyfi mér ekki að krefjast þess að stjórnarformaðurinn verði látinn víkja en bendi á trúnaðar- brest í samskiptum okkar. Ég fæ ekki séð hvernig við eigum að geta starfað saman. Slíkt væri hvorki sanngjarnt né ábyrgt," sagði Theódór Bjarnason. „Við höfum hvor sitt verksvið innan Byggðastofnunar. Ef menn halda sig innan þess þá sé ég ekkert því til fyrirstöðu að við vinnum saman. Ég hef hvorki haft uppi stóryrði um samskiptin við forstjórann né lýst yfir vantrausti á hann. Frá því var gengið í upphafi kjör- tímabils að ég gegndi stjórnar- formennsku í Byggðastofnun allt tímabilið. Ég hef ekki óskað eftir breytingum og mun ekki gera,“ sagði Kristinn H. Gunn- arsson. the@frettabladid.is THEÓDÓR BJARNASON Theódór vísar gagnrýni stjórnarfor- mannsins á störf sín á bug. Flugatyikið við Gardermoen: Flugstjórinn lækkaður í tign flugmÁl Flugmenn Flugleiða sem lentu í alvarlegu flugatviki á Gardermoen flugvelli í Noregi í janúar, eru komnir aftur til starfa hjá félaginu. Þeir hafa verið í leyfi síðan þeir luku við þá flug- ferð. Flugstjórinn verður lækkað- ur í tign og starfar eftirleiðis sem flugmaður hjá Flugleiðum. Báðir hafa mennirnir undirgengist þjálfun eftir atvikið. Rannsóknarnefnd flugslysa í Noregi hefur stýrt rannsókn málsins og er hún á lokastigi. Full- trúar norsku rannsóknarnefndar- innar eru væntanlegir til landsins eftir helgi. Þeir þinga með ís- lenskum starfsbræðrum sínum og fulltrúum Flugleiða. ■ íslensk stjórnvöld vegna komu forseta Kína: Meina friðsömum mót- mælendum að koma mótmæli Dómsmálaráðuneytið hefur fyrirskipað afturköllun á vegabréfsáritunum einstaklinga sem hyggjast koma til íslands meðan á heimsókn Jiang Zemin, forseta Kína, stendur og tengj- ast með einhverjum hætti Falun Gong-samtökunum. Jafnframt verður nýjum umsóknum synj- að. Yfirvöld á íslandi hafa heim- ildir fyrir því að verið sé að skipuleggja, af einstaklingum tengdum Falun Gong fjöldamót- mæli vegna veru forsetans hér. Áætlað er að hingað stefni milli tvö og þrjú hundruð manns þó nákvæm tala fáist ekki staðfest. Með þessum aðgerðum vilja lögregluyfirvöld tryggja öryggi forsetans og almennings. Fá- mennt lögreglulið hér sé ekki í stakk búið að verjast áhlaupi eða óhlýðni mörg hundruð manna. Ef til þess kæmi gæti skapast hættuástand þar sem 29 lífverð- ir forseta Kína séu vopnaðir ög grípa til skotvopna telji þeir ör- yggi hans ógnað. Meðlimir Falun Gong eru ekki þekktir fyrir of- beldi. ■ FÁNI ALÞÝÐULÝÐVELDISINS VIÐ HÓTEL SÖGU Ekki eru fordæmi fyrir þvílikum aðgerðum I öðrum ríkjum vegna komu forseta Kína.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.