Fréttablaðið - 08.06.2002, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 08.06.2002, Blaðsíða 22
FRÉTTABLAÐIÐ SACA DACSINS 8. JUNI Tom Jones söng á Hótel íslandi á þessum degi árið 1990. Hann var þá tæplega fimmtugur og vitanlega í fullu fjöri. Arið 2000 samþykkti Alþingi lagabreytingu sem fól í sér að samkynhneigðir í staðfestri sam- vist hafa nú rétt til stjúpættleið- inga. Frumvarpið var samþykkt með 46 atkvæðum gegn einu og þrír sátu hjá. Imiðju sex daga stríðinu árið 1967 réðst ísraelski herinn á bandaríska njósnaskipið USS Liberty, sem var þá statt skammt út af Gazaströnd fyrir botni Mið- jarðarhafs. Meðal annars var napalm-sprengjum varpað á skip- ið. Níu manns létust á skipinu og sextíu særðust. MENNINGARSKOKK con að byrja daginn í Bernhöfts- bakaríi með grísku bóndabrauði. Viðskiptavinir skrafhreifir í morg- unsárið og brauðið gott. MÆLT með gönguferð eftir Miklu- brautinni í safnaðarheimili Grensás- kirkju þar sem áhugahópur ungs fólks um gigtarvandann safnast saman og ber saman bækur sínar klukkan 13. AÐ því loknu mætti halda í HM- heiminn í Smáralind þar sem sjón- varpsstjarnan Gísli Marteinn Bald- ursson stendur fyrir uppboði á treyj- um frægra íþróttamanna. Allt til styrktar ungum krabbameinssjúkl- ingum. Uppboðið hefst klukkan 15 en góður kostur er að nota ferðina og skoða sig um í Smáralind. Þar eru viðskiptavinirnir ekki síður áhuga- verðir en vörurnar í verslununum. KLUKKAN 16 er hægt að fara á djasstónleika á Jómfrúnni í Lækjar- götu. Þar spilar djasstríóið B - 3 úti í bakgarðinum ef veður leyfir. Annars inni. ÞAÐAN má ganga upp Hverfisgöt- una og njóta þess sem boðið er upp á við opnun myndlistarsýningar bandaríska listamannsins Mark Norman Brosseau, en sýningin opn- ar klukkan 17. Veitingar þar svo og á næstu krám þar í kring. SEM kvöldskemmtun er mælt með dansleik með færeysku hljómsveit- inni Taxi á Fjörukránni í Hafnar- firði. Þar hita menn upp fyrir Sól- stöðuhátíð víkinga sem fer að bresta á. svo heim að sofa. 22 8. júni 2002 LAUGARPAGUR Heimsmaður í sveitina „Mér líst vel á að fara í Hvera- gerði. Þarna eru nýir menn með nýjar hugmyndir,“ segir Orri Hlöðversson, nýráðinn bæjar- stjóri í Hveragerði þar sem Fram- sóknarmenn og Samfylkingin hafa myndað meirihluta. Orri kemur úr Skagafirði þar sem hann hefur starfað síðastliðin fjögur ár, fyrst hjá Atvinnuþróun- arfélagi Skagfirðinga og síðar sem framkvæmdastjóri Fjárvaka sem er dótturfélag Kaupfélagsins á Sauðárkróki. „Fjárvaki er fjármála- og tölvufyrirtæki sem meðal annars sér um alla innheimtu fyrir íbúða- lánasjóð," segi Orri og leggur áherslu á að fyrirtækið hafi feng- ið verkefnið í útboði en sé ekki hluti af byggðastefnu yfirvalda. Þegar íbúðaeigendur greiða af húsbréfum sínum fara peningarn- ir því í gegnum Sparisjóð Hóla- hrepps en á bankaleyfi hans bygg- ir Fjárvaki fjármálastarfsemi sína. Orri er menntaður í hagfræði og stjórnmálafræði í Sacramento í Kaliforníu en fór að námi loknu til Brussel þar sem hann starfaði í fjögur ár: „Fyrst var ég hjá Evr- ópusambandinu en fékk síðan fyr- ir tilviljun starf hjá bandaríska sendiráðinu í Brussel þar sem ég var viðskiptafulltrúi og aðstoðaði bandarísk fyrirtæki með að fóta sig á evrópskum makaði," segir Persónan Orri Hlöðversson er nýr bæjarstjóri i Hveragerði. Áður i Sacramento, Brussel og Skagafirði. Orri sem er 38 ára og kvæntur Helgu Dagnýju Árnadóttur sem starfar í höfuðstöðvum Byggða- stofnunar á Sauðárkróki. Saman eiga þau dótturina Valdísi sem er hálfs annars árs. Saman bíður þeirra nýtt líf í blómabænum Hveragerði. ■ ORRI FER SUÐUR List vel á Hveragerði þar sem eru nýir menn með nýjar hugmyndi. FÓLK í FRÉTTUM Menn finna víða fyrir samúð. Jafnvel á þeim stöðum þar sem þeir hafa síst talið sig eiga von á að finna fyrir slíku. Þannig finna Heimdellingarn- ir á Frelsi.is nú mikið til með Össuri Skarp- héðinssyni, for- manni Samfylk- ingar. Þeir rifja upp að hann hafi ekki fyrr verið búinn að fagna stórsigri í sveitar- stjórnarkosningunum en DV birti skoðanakönnun sem sýndi Sam- fylkinguna með aðeins 17% fylgi. Tíu prósentustiga og fimm þing- sæta tap frá síðustu kosningum. „Æ, æ, greyið Össur! Hefur Sam- fylkingin þá eftir allt saman ekki öðlast neinn þroska eða trúverð- ugleika?" spyrja Heimdellingar. Spurningin er þó hvort samúðin sé heilshugar meint eða í henni finnist háð. Menn eru gjarnir á að segja að fólk sé fljótt að gleyma. Sér- staklega þegar kemur að pólitík. Það er þó ekki að sjá af könnun DV á vinsældum stjórnmála- manna. Nokkrir hafa enn mestar mætur á Jóni Baldvini Hanni- balssyni og Hjörleifi Gutt- ormssyni, þó langt sé síðan báðir hættu á þingi. Það er líka athyglisvert að fylgjast með hverjir komast á lista yfir óvinsældir. Þar má finna Jón Baldvin, Methúsalem Þórisson, Hannes Hólmstein Gissurarson og Jón Sigurðsson. | AFMÆLI | Afmælisdagurinn er skírnardagurinn Salvatore Torrini, veitingamaður á Italíu, er 56 ára á morgun. „Ég kom hingað til lands út af konu eins og svo margir útlend- ingar,“ segir Salvatore Torrini sem á afmæli á morgun; verður 56 ára. Hann hefur verið hér á landi í 30 ár og þar af rekið veit- ingastaðinn Ítalíu við Laugaveg í 11 ár. Á íslandi hefur Salvatore eignast þrjú börn og meðal þeirra er söngdrottningin Emiliana Torrini sem er 25 ára. „Nú bý ég einn og í synd og kann því vel,“ segir Salvatore sem er ekki van- ur að halda sérstaklega upp á af- mælið sitt; hvorki hér á landi né heima á Ítalíu í æsku: „Heima í Napólí er siðurinn sá að halda upp á skírnarafmæli sitt en ég var skírður 9. ágúst. Það er því í raun afmælisdagurinn minn,“ segir Salvatore sem býst ekki við að gera sér neinn daga- mun á morgun þrátt fyrir afmæl- ið. „Ég tek hverjum degi sem nýj- um,“ segir hann. Ékki er þó ólíklegt að Sal- vatore skelli einhverju góðu á pönnuna á veitingastaðnum Ítalíu þegar líður á morgundaginn. Helst vill hann pasta í nýrri út- færslu á hverjum degi og hér áður fyrr þótti honum best að drekka Falcone-rauðvín með: „Falcone var allt of gott með pastanu þannig að ég hætti að drekka. En pastað stendur samt TORRINI VILL PASTA Nýtt á hverjum degi og Falcone-rauðvínið var gott með hér áður fyrr. fyrir sínu,“ segir þessi ítalski ís- Suður-Ítalíu þar sem hann fædd- lendingur sem fest hefur rætur í ist á heitum júnímorgni fyrir 56 norðrinu sem um flest er ólíkt árum. ■ www.hollver.is z Z> Q _i o cc fe CQ Taktu eftir merkjunum - þau tala sínu máli Vörur sem innihalda hættuleg efni eiga að vera merktar á íslensku með varnaðarmerkjum ásamt hættu- og varnaðarsetningum. Mikilvægt er að neytendur kynni sér merkingar vörutegunda og fari eftir þeim viðvörunum sem þar koma fram. Framleiðendur, innflytjendur og seljendur bera ábyrgð á því að merkingar séu í samræmi við reglur. Spjald með varnaðarmerkjum fæst endurgjaldslaust hjá Hollustuvernd Hollustuvernd ríkisins Ármúla 1a, 108 Reykjavík. Sími 585-1000. Heimasíða: www.hollver.is Leiðrétting Að gefnu tilefni skal tekið fram að forstjórar Byggðastofnunar hafa hingað til ekki fengið áhættuþóknun fyrir að gegna starfinu. Hvorki í Reykjavík né á Sauðárkróki. ...Mn .. TÍMAMÓT JARÐARFARIR__________________________ 11.00 Magnús Freyr Sveinbjörnsson, Sundstræti 34, ísafirði, verður jarðsunginn frá Isafjarðarkirkju. 14.00 Svala Albertsdóttir, Holtabraut 8, Blönduósi, verður jarðsungin frá Blönduóskirkju. 15.00 Guðmundur Ingi Arnarsson, Hlíðarvegi 6, Grundarfirði, verður jarðsunginn frá Grundarfjarðar- kirkju. AFMÆLI_______________________________ Örnólfur Thorsson er 48 ára í dag. Sigríður Lillý Baldursdóttir er 48 ára I dag. ANDLÁT Gunnhildur Anna Valdimarsdóttir er látin. Jaðarförin hefur farið fram. Aðalheiður Þorleifsdóttir, Karlsbraut 6, Dalvík, lést 5. júní. Ingveldur Einarsdóttir, Hringbraut 80, Reykjavík, lést 5. júní.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.