Fréttablaðið - 08.06.2002, Blaðsíða 6
6
FRETTABLAÐIÐ
8. júní 2002 LAUCARPflCllR
á mann í júní.
Afmælistilboð á Los Gemelos.
Innifalið: Flug, gisting á Los
Gemelos2,4 i 2 víkur, ferðir tíl
og frá flugvelli erlendis og
íslensk fararstjórn.
Miðað er við 2 fullorðna og 2
börn 2ja-11 ára.
Allir flugvallarskattar innifaldir.
Ef 2 ferðast saman
69.030 kr. á mann.
Hlíðasmára 15 • Simi 535 2100
Sumarskólinn í FB:
N emendaíj öldi nær þre-
faldast á ljórum árum
nám 550 nemendur skráðu sig í
Sumarskólann í FB sem starf-
ræktur er við Fjölbrautaskólann í
Breiðholti. Nemendum hefur
fjölgað mikið á undanförnum
árum. Árið 1999 voru þeir 210
talsins. Síðan þá hefur nemenda-
fjöldinn því nær þrefaldast.
Magnús Ingvason, umsjónar-
maður Sumarskólans, segir nem-
endahópinn mjög fjölbreyttan.
Þar sé að finna framhaldsskóla-
nemendur sem vilji flýta fyrir sér
í námi. Einnig séu þar framhalds-
skólanemar sem vilja vinna upp
það nám sem hefur ekki gengið
sem skyldi. Mesta sprengingin í
nemendafjölda felist þó í nemend-
um sem koma upp úr 10. bekk.
Þeir séu u.þ.b. 200 talsins. „Það
hefur ekki farið framhjá neinum
að mörgum nemendum hefur
gengið illa á samræmdu prófun-
um, sér í lagi í stærðfræði. Nem-
endur geta bætt einkunn sína með
því að taka fagið eða fögin upp í
sumarskólanum."
Alls eru kenndir 34 áfangar við
skólann. Kennslustundir eru á
kvöldin og stendur námið yfir í
mánuð. Auk þeirra sem stunda
nám í skólanum er nokkur hópur
Hlynur Bjarnason:
Lést í
umferðarslysi
BANASLYS Pilt-
urinn sem
lést í umferð-
arslysi eftir
mjög harðan
árekstur á
veginum milli
Strákaganga
og Siglufjarð-
ar á miðviku-
dag hét Hlyn-
ur Bjarnason.
Hann var 19
ára, fæddur
14. mars 1993, búsettur á Siglu-
firði. Hlynur lætur eftir sig unn-
ustu. ■
SUMARSKÓLI FB
Umsjónarmenn Sumarskólans í Fjölbrauta-
skólanum í Breiðholti.
nemenda frá Akureyri í fjarnámi
við skólann. ■
uöLBRAUI^SI
Húðkrabbamein ungra
kvenna margfaldast
Ohófleg notkun ljósabekkja og breyttar sólarvenjur talin vera hluti af
skýringunni. Um það bil þriðjungi fleiri nota bekkina hér en í Svíþjóð.
AUKNING KRABBAMEINS MEÐAL KVENNA
Línuritið sýnir aukningu greindra sortuæxla meðal ungra kvenna.
krabbamein Húðkrabbamein með-
al ungra kvenna hefur margfald-
ast á undanförnum árum. Fyrir
tuttugu árum voru líkur ungrar
konu á að greinast
með sortuæxli í
húð 6,7 af hverjum
100.000 konum en
árið 2001 var talan
komin í 16,7 konur.
Elín Anna Helga-
dóttir læknanemi
hefur unnið að
rannsókn sem mið-
ar að því að finna
tengsl á milli mik-
illar notkunar ís-
lenskra kvenna á
ljósabekkjum og
aukningar á húð-
krabbameini. Þar
má sjá að íslenskar
konur nota ljósa-
bekki mun oftar en
kynsystur þeirra í
öðrum löndum. 94% kvenna á
aldrinum 20-29 ára hafa notað
ljósabekki fyrir tvítugt og um
helmingur karla á sama aldri.
„Tíðni hóf að aukast eftir að
fyrstu ljósabekkirnir bárust til
landsins um 1980. Það er ljóst að
eitthvað í umhverfi okkar hefur
haft áhrif þar á eins og breyttir
lífshættir og sólarlandaferðum
fjölgaði um svipað leyti. Vísbend-
ingar eru þrátt fyrir það allar á þá
lund að notkun ljósabekkja hafi
þar mest áhrif.“
í rannsókn Elínar Önnu segir
að 70% allra kvenna og 35% karla
hafa einhvertíma farið í ljós.Sam-
bærilegar tölur í Svíþjóð eru 41%
kvenna og 25% karla. Elín Anna
segir UVA-geisla ríkjandi í ljósa-
bekkjum en það eru þeir geislar
sem valda ekki bruna. „Þeir
kunna því að vera mun hættulegri
en menn hafa haldið og þessi
rannsókn miðar að því að sýna
fram á að svo sé.
Bárður Sigurgeirsson, húð-
sjúkdómalæknir og einn leiðbein-
andi Elínar Önnu, tekur undir með
henni og segir mjög athyglisvert í
rannsókn hennar hve margar kon-
ur hafi brunnið og hve notkunin sé
óhófleg á ljósabekkjum. „Á tíu
árum hefur orðið þreföldun á tíðni
sortuæxla og sjúkdómurinn
greinist hjá mun yngra fólki. Það
er einmittt fólkið sem notar bekk-
ina hvað mest. Það er með þetta
eins og svo margt annað í læknis-
fræðinni að sönnunarbyrðin er
mjög há þó vísbendingar séu allar
á sömu lund.“
í rannsókn Elínar Önnu kemur
fram að sorutuæxli er orðið al-
gengasta krabbamein meðal
ungra kvenna á íslandi og hefur
verið nefnt „krabbamein unga
fólksins". í Bandaríkjunum grein-
ast árlega meira ein milljón
manna með húðkrabbamein að því
segir í netútgáfu Herald Tribune.
Þar segir ennfremur að rannsókn-
ir sýni að sólbruni á unga aldri
geti leitt til krabbameins síðar á
ævinni.
bergljot@frettabladid.is
Skipti á bæjarstjórastöðu:
Sjaldgæft en
ekki einsdæmi
sveitarstjórnir Það er ekki eins-
dæmi að samstarfsmenn í sveit-
arstjórn skipti með sér bæjar-
stjóraembættinu eins og Fram-
sóknarmenn og Sjálfstæðismenn
í Kópavogi hyggjast gera. Það er
þó afar sjaldgæft. Eina dæmið
sem viðmælendur blaðsins muna
eftir er á ísafirði í kjölfar sam-
einingar sex sveitarfélaga. Þá
skiptust Jónas Ólafsson, sveitar-
stjóri á Þingeyri, og Kristinn Jón
Jónsson, bæjarfulltrúi á ísafirði
með sér bæjarstjórastarfinu.
Kristinn segir að skiptin þá hafi
verið frábrugðin skiptunum í
Kópavogi að því leyti að hann og
Jónas hafi að hluta verið bæjar-
stjórar á sama tíma en skipst á að
sinna starfinu. ■
Rekstur Heimilistækja
seldur:
Sjónvarps-
miðstöðin
tekur við
vidskipti Esjuberg hf. hefur selt
dótturfyrirtæki Sjónvarpsmið-
stöðvarinnar ehf. heildsölu og
verslunarrekstur Heimilistækja
hf. Sjónvarpsmiðstöðin mun taka
við öllum helstu umboðum Heim-
ilistækja s.s. Philips, Kenwood,
Blaupunkt og Nad og reka áfram
heildverslun og verslun Heimilis-
tækja í Sætúni 8. Áhersla er lögð á
að sem flestir starfsmenn starfi
áfram hjá nýju eigendunum.
Eignarhaldsfélagið Esjuberg mun
áfram reka verslanir Euronics í
Smáralind og Kringlunni. ■
^---
„Tíðni hóf að
aukast eftir að
fyrstu Ijósa-
bekkirnir bár-
ust til landsins
um 1980.
Ýmsir aðrir
þættir í um-
hverfinu hafa
áhrif en vís-
bendingar eru
þrátt fyrir það
allar á þá lund
að notkun
Ijósabekkja
hafi þar mest
áhrif."
Saman-hópurinn:
Afengisneysla aldrei meiri en nú
forvarnir Áfengisneysla hefur
aldrei verið meira en nú. Hún hef-
ur vaxið jafnt og þétt frá 1993 og
árið 2001 var hún komin upp í 6,14
lítra af hreinum vínanda á hvern
íbúa 15 ára og eldri. Þetta kom
fram í samantekt Þórunnar Stein-
dórsdóttur frá Áfengis- og vímu-
varnaráði í tilefni af kynningu á
verkefni Saman-hópsins um
aukna ábyrgð foreldra með yfir-
skriftinni 18 ára ábyrgð sem hald-
in var í Nauthólsvík á miðviku-
dag.
Þórunn segir að á sama tíma og
almennt aðgengi að áfengi hafi
aukist hafi auglýsingar áfengis-
innflytjenda á svokölluóu léttöli
aukist. Engum dyljist að hér sé
um að ræða duldar bjórauglýsing-
ar þar sem eitt vörumerki sé látið
auglýsa annað.
Þórunn segir sterk tengsl milli
áfengisneyslu unglinga og nauðg-
ana. Benti hún á tölur frá Neyðar-
móttöku sem sýni að 1/3 hluti ung-
menna sem þangað leiti hafi verið
undir áhrifum áfengis þegar
nauðgun átti sér stað. Þá sýni töl-
ur frá Umferðarráði að rekja
*
SvctLarlclöoia í iQadinu
___________________________________________________________ ’vl'r 1 TOWHI1U
FJÖLDI VÍNVEITINGALEYFA Á LANDINU 1990-2001
I máli Þórunnar kom fram að almennt sé talið að fjölgun útsölustaða ÁTVR og fjölgun
vínveitingaleyfa hafi aukið neysluna. Útsölustaðir séu nú 40 talsins víðsvegar um landið
og meira en helmingur þeirra sé úti á landsbyggðinni.
megi töluverðan hluta umferðar- og 50 prósent ökumanna sé undir
slysa til ölvunaraksturs. Milli 40 24 ára aldri. ■
STOFNANIR
Sigurður Þórðarson, ríkisend-
urskoðandi, var kjörinn ann-
ar tveggja endurskoðenda
EUROSAI, samtaka 45 ríkisend-
urskoðenda í löndum Evrópu, á
aðalþingi samtakanna í Moskvu
dagana 27.-31. maí. Meðal
gesta við opnun þingsins voru
forseti Rússlands og forseti
Dúmunnar, neðri deildar rúss-
neska þingsins.
FJÖLMENNING
Símsvörunarþjónusta Fjöl-
menningarseturs á Vest-
fjörðum fyrir fólk af erlendum
uppruna var formlega tekin í
notkun á fimmtudag. Þjónustan,
sem er rekin í samstarfi við
Rauða kross íslands, fer fram á
landsvísu og hefur það að
markmiði að koma í veg fyrir
að fólk af erlendum uppruna sé
misnotað. Til að byrja með
verður boðið upp á símsvörun-
arþjónustu á pólsku í síma 470
4708 og á serbnesku og króat-
ísku í síma 470 4709, en boðið
verður upp á símsvörunarþjón-
ustu á fleiri tungumálum síðar.
BB sagði frá.