Fréttablaðið - 08.06.2002, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 08.06.2002, Blaðsíða 8
FRÉTTABLAÐIÐ Útgáfufélag: Fréttablaðið ehf. Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson Ritstjórar: Gunnar Smári Egilsson og Jónas Kristjánsson Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson Ritstjórnarfulltrúi: Steinunn Stefánsdóttir Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Þverholti 9, 105 Reykjavík Aðalsími: 515 75 00 Símbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16 Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Fréttablaðið ehf. Plötugerð: ÍP-prentþjónustan ehf. Prentun: ísafoldarprentsmiðja hf. Fréttaþjónusta á Netinu: Vísir.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð- borgarsvæðinu. Einnig er hægt að fá blaðið á pdf-formi á vísir.is. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Mansal og vændi: Segist geta sannað mál sitt vændi Ellisif Tinna Víðisdóttir, fulltrúi sýslumannsins á Kefla- víkurflugvelli, segir auðvelt að sannreyna allt það sem hún hefur látið frá sér fara í fjölmiðlum, um mansal og smygl á konum. Hún segir Ríkislögreglustjórann hafa óskað eftir nánari upplýsingum um þá vitneskju sem hún fékk frá baltneskum lögregluyfirvöldum um meint vændi á íslandi. í yfir- lýsingu sem Ellisif hefur sent frá sér segir hún að það verði hennar fyrsta verk eftir að hún snýr aftur úr sumarleyfi að koma þeim upp- lýsingum á framfæri við embætt- ið. ■ INNLENT Hrafnkell Brynjarsson, sem var vísað frá Israel fyrir að mótmæla framferði ísraelskra hermanna á hernumdu svæðun- um, kom til íslands í gær. . Landssíminn hefur keypt Kapal- kerfi Hafnarfjarðar af Hita- veitu Suðurnesja. Kapalkerfið verður uppfært til samræmis við Breiðband Símans. HVER ER MAÐURINN? T~ ÁrniM. Mathiesen HANN er sonur Matthíasar Á. Mathiesen, fyrrverandi ráð- herra Sjálfstæðisflokksins, og Sigrúnar Þorgilsdóttur. Hann ólst upp sem strákur við Hringbraut- ina í Hafnarfirði og var virkur í félagsstarfi bæjarins. Sjálfur seg- ist hann alltaf hafa verið klár á því að hann vildi taka þátt í stjórn- málum. Hann var oddviti nem- endafélags Flensborgarskólans, formaður Stefnis, félags ungra sjálfstæðismanna í Hafnarfirði, og varaformaður Sambands ungra sjálfstæðismanna. Árni segist ekki hafa verið neinn afreksmaður í íþróttum þó hann stundaði sund, handbolta, knattspyrnu og meira að segja rugby. Seinna var hann formaður handknattleiksdeildar FH en inn- an þeirrar deildar náði bróðir hans, Þorgils Óttar Mathiesen, betri árangri á íþróttasviðinu. Árni er 44 ára gamall, kvæntur Steinunni K. Friðjónsdóttur og eiga þau þrjár dætur. Yngsta hnátan er rétt 10 mánaða og sú elsta 6 ára. Árni segir fjölskyld- una vana óreglulegum vinnutíma hans enda á vakt allan sólarhring- inn. Árni er dýralæknir að mennt og sinnti þeim störfum að ein- hverju leyti þangað til hann varð ráðherra, sérstaklega á sviði fisk- eldis. Samstarfsmenn Árna segja hann mjög alúðlegan og léttan í framkomu. ■ FREI-TABLAÐIÐ -8.4ÚJ1Í 2002.-XAUCARPAGUR—. Samgönguráðuneytið vanrækti að krefjast hærri tryggingar: Ríkið bæti tjón vegna gjaldþrots dóivisiviál Hæstiréttur hefur dæmt fslenska ríkið til að greiða manni 100 þúsund krónur í skaðabætur vegna tjóns sem hann varð fyrir þegar ferðaskrifstofan ístravel varð gjaldþrota. Maðurinn hafði keypt ferð hjá ístravel en gat ekki nýtt hana þar sem ferðaskrifstofan skilaði 4 dögum seinna inn starfs- leyfi sínu og lýsti yfir því að grund- völlur fyrir starfseminni væri brostinn. Maðurinn krafði sam- gönguráðuneytið um endur- greiðslu og vísaði til tryggingar sem ferðaskrifstofum er skylt að hafa. Tryggingunni er ætlað að standa straum af kostnaði ef til gjaldþrots eða rekstrarstöðvunar kemur. Ráðuneytið hafnaði kröf- unni og sagði að tryggingaféð hefði aðeins hrokkið fyrir heimflutningi viðskiptamanna ístravels. í dómi Hæstaréttar segir, að þrátt fyrir skýr fyrirmæli reglugerðar um að lágmarkstrygging skyldi vera 10 milljónir króna hefði samgöngu- ráðuneytið ekki krafið ístravel um hækkun 6 milljóna króna trygging- ar sem félagið hafði sett fyrir gild- istöku reglugerðarinnar. Van- ræksla ráðuneytisins hefði valdið manninum tjóni og það bæri ríkinu að bæta. ■ FERÐAMENN Ríkissjóður var dæmdur til að bæta ferða- manni tjón vegna gjaldþrots. INNLENT Myndatökumenn frá bresku sjónvarpsstöðinni BBC eru staddir á ísafirði við tökur á myndefni í heimildarþátt um sjó- slysið þegar breski togarinn Ross Cleveland fórst í ísafjarðardjúpi í byrjun febrúar 1968. Kafað verður niður að flakinu. Átján menn fórust með togaranum þeg- ar hann sökk út af Arnarnesi en einn komst af. Það var Harry Eddom sem fannst nær dauða en lífi innst í Seyðisfirði. BB sagði frá. Lokið hefur verið við að reisa þjónustuhús við Go-kart brautina við Reykjanesbraut. Að sögn Stefáns Guðmundssonar hjá Reis-bílum verður húsið fokhelt eftir um hálfan mánuð. Víkur- fréttir sögðu frá. Tek ekki geð- þóttaákvarðanir Sjávarútvegsráðherra segist hrærast í umhverfi hagsmunahópa. Hann ber þó sjálfur ábyrgð á sínum ákvörðunum. Aður hlustar hann á vísindamenn og þá sem starfa í sjávarútvegi. Niðurstað- an er engin geðþóttaákvörðun heldur byggir á hagsmunum Is- lendinga til langs tíma. vidtal Árni M. Mathiesen, sjávar- útvegsráðherra, er umkringdpr öflugustu hagsmunahópum á ís- landi. Ákvörðun hans á hverju vori um heildarafla í fiskveiðum hefur víðtæk áhrif á almenning og fyrirtæki hringinn í kringum landið. Þar rekast á mörg sjónar- horn. „Ég verð alltaf að muna að það er ég sem tek ákvörðunina og ber ábyrgð á henni. Hagsmunaaðil- arnir bera ekki ábyrgð á minni ákvörðun. Þó ég hlusti auðvitað og taki tiliiti til þeirra sjónarmiða, séu þau að mínu viti réttlæt- anleg og skynsamleg. Ákvörðunin verður alltaf mín,“ segir Árni. „Ef eitthvað fer úrskeið- is þýðir ekki fyrir mig að standa upp og segja að hagsmunaaðilarnir hafi viljað hafa þetta svona.“ Eftir að Hafrann- sóknastofnun skilar skýrslu um ástand fiski- stofna þarf Árni að huga að mörgu. Fiskifræðing- ar hafa verið gagnrýndir undanfarin ár af sjó- mönnum fyrir mat á stofnstærð einstakra tegunda. í fyrra tilkynnti Haf- rannsóknastofnunin síðan að ákveðnir fiskistofnar hefðu verið ofmetnir. Sjávarútvegsráðherra segir að hann taki tillit til fiskifræði sjó- mannsins en nái fótfestu við ákvörðun sína með skýrslu Haf- rannsóknastofnunarinnar. „Vand- inn við niðurstöður Hafrann- sóknastofnunarinnar er að þær eru byggðar á eldri athugunum. Stofnunin býr ekki alltaf yfir nýj- ustu upplýsingum. Stundum hafa þeir ekki tækin til að mæla til- teknar breytingar í umhverfinu. Sjómennirnir úti á sjó skynja þetta öðruvísi. Þeirra nálgun er ekki eins nákvæm og fiskifræð- inganna og ég get þar af leiðandi ekki byggt eins mikið á því sem þeir segja. Ég get hins vegar not- að þessa tilfinningu þeirra sem viðbót við ráðgjöf fiskifræðinga." Gagnrýni kom fram á Árna þegar hann tók steinbít úr kvóta, gaf veiðar frjálsar, en setti svo aftur kvóta á veiðarnar. Kom fram í umræðunni að Árni hefði ekki raunveruleg völd heldur tæki þá ákvörðun sem hagsmuna- „Þó hagsmunaaðil- arnir séu harðir í horn að taka, enda hlutverk þeirra að gæta hagsmuna sinna umbjóðenda, þá eru þeir yfir lín- una ábyrgir. Eftir þau kynni sem ég hef haft af svipuð- um samtökum I nágrannalöndun- um þá vel ég frek- ar íslensku hags- munaaðilana til að eiga samskipti við. Þeir eru ábyrgari." —«,— aðilar næðu að þrýsta fram. „Þeir sem segja þetta ganga út frá því að völdin felist í því, að ég geti tekið einhverjar geðþóttaá- kvarðanir. Ef ég fer illa með vald- ið þá er mér ekki treyst fyrir því mjög lengi,“ segir Árni. „Niður- staðan er ekki einhver málamiðl- un á milli þessara aðila. Hún verð- ur að ganga upp bæði til lengri og skemmri tíma. Einnig verður að hámarka nýtingu auðlindarinnar. Ég get svo gert einhverjar mála- miðlanir milli þess sem er til lengri tíma og skemmri tíma.“ Árni segir sjómenn harða gagnrýnendur. Hann sé í formlegum tengslum við samtök þeirra, heimsæki byggðarlög úti á landi og fái sér reglulega kaffi á Kænunni við Hafnar- fjarðarhöfn. „Þar er mik- ið af sjómönnum sem gefa mér jarðsamband." Hann segir gagnrýni þeirra ekki alltaf sann- gjarna, að minnsta kosti í fyrstu umferð. „Ég vil alls ekki vera að væla undan þeim. Menn verða að vera trúir sínum karakter. Það þarf skap og sterkar tilfinningar til að gera þá hluti sem sjómenn eru að gera. Ef það þýðir að þeir eru snöggir upp og málflutningur þeirra stundum ósanngjarn þá þoli ég það alveg.“ Árni sótti sjálfur sjóinn þegar hann var rúmlega tvítugur strák- ur f Hafnarfirði. „Hann var mjög sjóveikur," segir Árni hlæjandi aðspurður hvernig sjávarútvegs- ráðherra var sem sjómaður. Hann gerir ekki mikið úr skuttogara- ferli sínum. „Þó væri ég ekki við- ræðuhæfur um ýmsa hluti ef ég hefði ekki verið smávegis á sjó.“ Árni gerði sér ekki vonir um ráðherrastól þó áhugi fyrir þátt- töku í stjórnmálum hafi verið til staðar frá unga aldri. „Það er ekk- ert sérstaklega auðvelt að komast áfram í pólitík sem sonur stjórn- málamanns þó sumir haldi það. Það getur bæði hjálpað og-unnið gegn manni,“ segir sonur Matthí- asar Á. Mathiesen, fyrrverandi ráðherra Sjálfstæðisflokksins. „Ég kom inn í pólitíkina þegar mikil hugmyndafræðileg gerjun átti sér stað með Félagi frjáls- hyggjumanna," segir Arni. „Ég held að það sé algjör- lega úti- lokað að vera stjórn- mála- maður ef þú hefur ekki ein- hverja hug- mynda- fræði. Þá ertu eins og strá í vindi og hefur skoðana- kannanir og þrýstihópa til að segja hvað þú átt að gera. Hug- myndafræðin að- stoðar mig að vísa veginn." bjorgvin@frettabladid.is ÁRNI M. MATHIESEN „Ég ráðfæri mig við marga. Það fer eftir því hvað er í gangi. Ég vil ekki nefna neinn einstak- an í því sambandi. Það er auðvitað gott að tala við fólk sem er ekki eins ná- tengt sjávarútvegi og þeir sem vinna við greinina.."

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.