Fréttablaðið - 08.06.2002, Qupperneq 4
4
FRÉTTABLAÐIÐ
8. júní 2002 LflUGARDAGUR
SVONA ERUM VIÐ
NOTKUN VERKJALYFJA
Konur taka verkjalyf frekar en karlar. Fjórð-
ungur kvenna segist oftast eða alltaf taka
verkjalyf ef þær finna fyrir verk.
Þrir af hverjum fimm karlmönn-
um segjast sjaldan eða aldrei
taka verkjalyf.
Tekurðu verkjalyf
ef þú finnur fyrir verk?
2 KARLAR 38%
||KONUR
26% 26% J 1
15% M
36%
OFTAST STUNDUM SJALDAN
/ALLTAF /ALDREI
HEIMILD: GALLUP
Ungir framsóknarmenn:
Sækja eda
sækja ekki
umESB
stjórnmAl Ungir framsóknarmenn
munu taka afstöðu til tveggja til-
lagna um afstöðuna til aðildar ís-
lands að Evrópu-
sambandinu á
sambandsþingi
sínu sem fram
fer um aðra
helgi.
I annarri til-
lögunni er hvatt
til þess að farið
sé í aðildarvið-
ræður eftir Al-
þingiskosningar.
Islendingar séu
nú þegar bundnir
af ákvörðunum
ESB í gegnum
Schengen og EES-samninginn án
þess að hafa þar áhrif. í hinni til-
lögunni segir að gallarnir við aðild
séu meiri en kostirnir. Því sé engin
ástæða til að sækja um aðild. ■
EINAR
SKÚLASON
Ungir framsóknar-
menn velja milli
tveggja tillagna um
ESB sem ganga
þvert hvor á aðra.
FRÁ STOKKHÓLMI
í sömu vikunni og haldið var upp á 750
ára afmæli Stokkhólms ákvað sænska
þingið að veita samkynhneigðum pörum
rétt til að ættleiða börn.
Sænska þingið:
Samkyn-
hneigð pör
mega ættleiða
svi'móð Nú í vikunni samþykkti
sænska þingið að samkynímeigð
pör geti ættleitt börn. Svíþjóð er
þar með orðið fyrsta land heims,
sem gefur samkynhneigðum pör-
um kost á að ættleiða börn. Þetta
gildir bæði um rétt annars ein-
staklingsins til þess að ættleiða
barn sambýlismanns eða -konu,
sem og um rétt pars til þess að
taka að sér barn til ættleiðingar.
Sömu skilyrði eru sett samkyn-
hneigðum pörum um ættleiðingar
eins og öðrum, nefnilega að ætt-
leiðingin verði barninu fyrir
bestu og að parið sé fullfært um
að ala upp börn. ■
1 VESTURLAND I
Afundi bæjarráðs Grundar-
fjarðar á dögunum var sam-
þykkt að fela bæjarstjóra, Ey-
þóri Björnssyni, að skrifa sjáv-
arútvegsráðherra bréf varðandi
möguleikann á því að loka
rækjumiðunum á Breiðafirði
fyrir öðrum en Breiðafjarðar-
bátum. Guðni E. Hallgrímsson,
bæjarfulltrúi, segir það sé hug-
mynd bæjarráðs að kanna mögu-
leikana á því að vernda hags-
muni þeirra sem stundi rækju-
veiðar og vinnslu á Breiðafjarð-
arsvæðinu á þennan hátt.
Skessuhorn sagði frá.
Ung kona í Hafnarfirði:
Lamin með svipu
löcreglumál Ung kona var lamin
með svipu síðastliðið miðviku-
dagskvöld. Hafði konan verið að
hjóla eftir Hringbraut í Hafnar-
firði þegar bíll keyrði aftan að
henni. Maður teygir sig út um
gluggann farþegamegin og lemur
hana með svipu í bakið með þeim
afleiðingum að sár myndaðist.
Konan, sem vildi ekki láta nafn
síns getið, segir sér óneitanlega
hafa brugðið. „Það var enginn að-
dragandi nema ég er laminn og
bíllinn keyrir í burtu. Höggið var
töluvert því ég fékk sár á bakið
þrátt fyrir að hafa klæðst peysu
og gallajakka. Ég get ekki fundið
neina skýringu á þessu athæfi
nema ef vera skyldi að meiða
fólk.“
Mennirnir á bílnum virðast
ekki hafa látið staðar numið.
Annað tilfelli var tilkynnt til lög-
reglunnar í Hafnarfirði sama
kvöld. Tíu ára stúlka sem var að
leik við Selvogsgötu lenti í sömu
reynslu sem skildi eftir svipufar
á bakinu. Unga konan biður þá
sem urðu vitni að þessum atburð-
um að gefa sig fram við lögreglu.
Hún segir gerendur hafa ekið á
dökkgrænum bíl og þann sem
veitti svipuhöggið með ljóst
hár. ■
LÖGREGLUSTÖÐIN Í HAFNARFIRÐI
Tvö tilfelli voru tilkynnt til lögreglu vegna
manna sem réðust á vegfarendur með
svipu.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Árni pantaði átta fána fyrir Þjóðleikhúsið en aðeins tvær flaggstangir eru við húsið.
Ekki persónuleg
viðskipti Arna
Vitnum í máli Arna Johnsen og honum ber illa saman. Þetta kom
ljóslega fram í vitnaleiðslum í Héraðsdómi Reykjavíkur.
dómsmál Ósamræmis gætti í
framburði vitna og frásögn Árna
Johnsen, við vitnaleiðslur í máli
þingmannsins fyrrverandi í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur. Húsvörður
Þjóðleikhússins kannaðist ekki
við kaup Árna á fánum, veifum né
—4— heldur ljósaserí-
um. Þá sagði hann
að við leikhúsið
væru tvær tólf
metra flaggstang-
ir. í framburði
annars vitnis kom
hins vegar fram að
Árni hefði pantað
—♦— átta stóra fána fyr-
ir fjórtán metra
flaggstangir og fjölda veifa. Að
auki hefði Árni pantað þjóðfána
en við leikhúsið flagga menn að-
Að auki hafði
Árni pantað
þjóðfána en
við leikhúsið
flagga menn
aðeins tjúgu-
fánum.
eins tjúgufánum.
Fyrirsvarsmaður Torfs- og
grjóthleðslunnar sagði að hann
hefði móttekið 645.000 kr. frá Árna
vegna vanefnda á samningi í
tengslum við vinnu við Brattahlíð
á Grænlandi. Sölumenn BYKO
sögðust hafa kannað heimildir
Árna til úttekta en ekki voru gerð-
ar athugasemdir við þær. Einn
þeirra sagðist þó kannast við að
Árni hefði einnig persónulegan
reikning hjá fyrirtækinu en að við-
skiptin sem um ræðir hafi ekki
verið persónuleg heldur vegna
leikmunageymslu Þjóðleikhússins.
Framkvæmdastjóri Fagtúns,
sem seldi Árna þakdúk, hafði
sömu sögu að segja. Viðskipti
Árna við fyrirtækið hafi verið
vegna Þjóðleikhússins en ekki
persónuleg kaup Árna eins og
Árni heldur fram. Það kom fram
hjá einu vitnanna, matreiðslu-
manni, að Árni hefði beðið það um
að útbúa reikning fyrir sig vegna
70 manna veislu. Sá neitaði, sagð-
ist ellegar þurfa að greiða virðis-
aukaskatt en Árni á þá að hafa
sagt að reikningurinn væri í
einkabókhald sitt og þyrfti vitnið
því ekki að hafa áhyggjur af núm-
erun reikningsins. Varð úr að
vitnið gaf út kvittun fyrir upp-
hæðinni. Þá upplýsti Daníel
Helgason, framkvæmdastjóri
Forum ehf. að ákærði, Stefán Axel
Stefánsson, hefði hvergi komið
nálægt útgáfu reiknings þess,
sem honum er gefið að sök að hafa
gefið út.
stefan@frettabladid.is
Málefni albönsku flóttamannanna:
Athugasemdir við málsmeðferð
félagsmál Rauði krossinn á
íslandi hefur gert athuga-
semdir við meðferð á máli
fimm Albana sem neitað var
um hælisvist hér á landi. Þór-
ir Guðmundsson, upplýs-
ingafulltrúi RKÍ, segir að at-
hugasemdirnar beinist helst
að því að mál mannanna
hefði verið afgreitt í miklum
flýti. Þeir voru yfirheyrðir,
mál þeirra skoðað og úr-
skurður kveðinn upp á rúmri
klukkustund. Mönnunum hafi ekki
verið gefinn kostur á túlki og þan-
nig ekki getað gert grein fyr-
ir ástæðum óskar um hælis-
vist. Það sé grundvallaratriði
að mönnum sé gefið færi á að
tjá sig á sínu tungumáli.
Albönunum var snúið við
og þeir sendir með ferjunni
aftur til Noregs eftir að þeir-
ra varð vart. Norsk yfirvöld
munu skoða mál þeirra. Við
yfirheyrslur óskuðu menn-
irnir eftir pólitísku hæli en
rauði KROSS íslands því var synjað á þeirri forsendu að
Rauði krossinn gerir athugasemdir við frásögn þeirra væri ekki trúverð-
málsmeðferð albönsku flóttamannanna. ug. ■
| STUTTAR FRÉTTIR [
IUjósi mikillar og viðvarandi
spennu á milli Indlands og
Pakistan hefur utanríkisráðu-
neytið sent frá sér tilkynningu
þar sem fólki er ráðlagt frá því
að ferðast til landanna eins og
sakir standa. Er íslendingum,
sem staddir eru í Pakistan eða á
Indlandi, ráðlagt að fylgjast náið
með fréttaflutningi af gangi mála
og íhuga jafnframt að yfirgefa
svæðið.
Brotist var inn í söluturn á
Njálsgötu um þrjúleytið í
fyrrinótt og stolið þaðan smápen-
ingum. Einhverjar skemmdir
voru unnar á peningakassa. Að
sögn lögreglunnar í Reykjavík
komst þjófurinn undan með því
að skríða út um glugga.
Aætlunarflug:
Millilanda-
flug hafíð frá
EgUsstöðum
samgöngur Vikulegt áætlunarflug
á milli Dússeldorf og Egilsstaða
hófst þegar farþegaþota LTU Air-
bus A320 lenti á Egilsstaðaflug-
velli í gærkveldi. Þetta er í fyrsta
sinn sem erlent flugfélag hefur
áætlunarflug til Egilsstaðaflug-
vallar. Þar með hófst vikulegt
áætlunarflug á milli Dússeldorf og
Egilsstaða. LTU hefur flogið til ís-
lands frá því árið 1995 í samvinnu
við Terra Nova-Sól. Með áætlunar-
flugi til Egilsstaða fjölgar ferðum
LTU á milli íslands og Þýskalands
og eykur möguleika á ferðum ís-
lendinga til Þýskalands og öfugt. ■
MEÐ FINGURINN Á KASSANUM
Brenda Steele heitir þessi kona, sem tekur
þátt í nýstárlegri tilraun með að nota ting-
ur i staðinn fyrir greiðslukort í verslunum.
Umdeild tilraun:
Fingrafór
í stað korta
SEATTLE. ap í Seattle í Bandaríkjun-
um er nú hægt að greiða fyrir vör-
ur í verslunum með því að sýna
fingraförin sín. Verið er að gera
tilraun með þetta í þremur versl-
unum. Tvö þúsund manns taka þátt
í þeirri tilraun.
Þetta nýja fyrirkomulag byggir
á tölvutækni, sem gerir verslunum
kleift að tengja fingraför við-
skiptavina við greiðslukort þeirra.
Viðskiptavinirnir þurfa ekki annað
en að leggja fingur á skanna sem
tengdur er við búðarkassa.
Sú gagnrýni hefur þegar skotið
upp kollinum, að þetta stofni per-
sónuleynd fólks í hættu. ■
1 VESTFIRÐIR |
Landflutningar Samskip sögðu
nýverið upp leigu á helmingi
þess svæðis sem fyrirtækið hef-
ur haft fyrir gámageymslu á
ísafjarðarhöfn. Kristín Hálf-
dánsdóttir, rekstrarstjóri Land-
flutninga Samskipa á ísafirði,
segir þetta ekki til marks um
minnkandi umsvif fyrirtækisins
á Vestfjörðum, heldur hluta af
þróun sem átt hefur sér stað
víða um heim. BB sagði frá.
Héraðsdómur Vestf jarða
sýknaði í gær fyrrum at-
vinnurekanda á Þingeyri af
kröfum ákæruvaldsins um brot
gegn lögum og reglum um að-
búnað og öryggi á vinnustöðum.
Ekki var gætt fyllsta öryggis við
hausunarvél með þeim afleiðing-
um að verkakona missti löngu-
töng, skaddaði vísifingur og
marðist á handarbaki. BB sagði
frá.