Fréttablaðið - 08.06.2002, Side 10
lilFJÖLSKYLDU-OG
HUSDÝRAGARDURINN
Klessubátar!
Opið alla daga frá
10.00 til 18.00
Nýtt á markaði:
WaterDrain gegn
vökvasöfnun
Nú er komiö á markað náttúrulegt
fæöubótarefni sem dregur úr
vökvasöfnun í líkamanum. Auk
magnesíum og kalsíum inniheldur
WaterDrain jurtakrafta úr birki,
brenninetlu og klóelftingu en allar
eru þessar jurtir taldar vatnslos-
andi og hreinsandi hvort heldur er a
fyrir blóö eöa aöra vessa líkamans. ®
WaterDrain styrkir, hreinsar og
hvetur nýru, þvagfaeri, lungu og
húðina svo eitthvaö sé nefnt. Dag-
skammtur er 2-3 töflur á dag eftir
því hvert markmiðið er, en í pakk-
anum eru 60 hylki eða allt að mán-
aðarskammtur. Fólk sem tekur lyf
skal ávallt hafa samráð við lækni
fyrir inntöku hvers kyns fæðu-
bótarefna sem þessa.
Umboðsaðili
WaterDrain á ^
íslandi er I&d ehf. Innfiutningur&dreifingehf.
SÍmÍ: 553 4030 Sætúni 8-105Reyfijaink
i&d...
FRÉTTABLAÐIÐ
SÖCULECT
VINIR
David Beckham og Diego Simone heilsast
hér að leik loknum. Þeim lenti saman í
síðustu heimsmeistarakeppni og fékk
Beckham rauða spjaldið eftir að hafa reynt
að sparka í Simone. England vann Argent-
ínu 1-0 í gær.
Ísland-Makedónía:
Stefnan sett á sigur
Klárum ótrúlegt
ævintýri með sæmd
handbolti íslenska landsliðið í
handbolta mætir því makedón-..
íska í undankeppni heimsmeist-
aramótsins á morgun klukkan
20.00. íslenska liðið vann fyrri
leikinn með fimm marka mun, 35-
30. Guðmundur Guðmundsson,
landsliðsþjálfari, segir að leikur-
inn á morgun skipti miklu máli, í
raun sé bara kominn hálfleikur.
„Við náðum mjög góðum leik
úti. En lið Makedóna er það sterkt
að við þurfum að halda vöku okk-
ar og einbeitingu. Við þurfum að
landa þessu og ekki reyna að
verja þetta forskot."
Guðmundur segir að góður
andi ríki innan íslenska lands-
liðsins. Leikmenn eru staðráðnir
í að standa sig og munu gefa sig
alla í leikinn. „Þetta er síðasti
leikur á tímabilinu hjá flestum
leikmönnum. Löngu og ströngu
keppnistímabili er að ljúka svo
menn eru staðráðnir í að spila
góðan leik.“
Landsleikurinn við Makedóna
er sá fyrsti hér á landi eftir Evr-
ópumótið í Svíþjóð þar sem það
náði fjórða sæti. Guðmundur
segir að liðið hafi fundið góðan
stuðning að heiman. Landsliðið
vill þakka stuðninginn og hvetur
fólk til að mæta á morgun.
„Menn klæjar í lófana að spila
fyrir framan íslenska áhorfend-
ur. Ég vona að fólk komi og sýni
okkur stuðning í verki og taki
þátt í að landa þessum áfanga.
Heimsmeistarakeppnin er í lok
janúar þannig að það er mikið í
húfi. Þetta er gríðarlega mikil-
vægur leikur og menn mega ekki
sofna á verðinum, hvort sem er
leikmenn eða áhorfendur. Við
þurfum á öllum þeim stuðningi
sem við getum fengið að halda.“
íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu mætir því ítalska í dag.
Liðið á möguleika á sæti á heimsmeistaramótinu. Hyggjumst klára
ævintýrið með sæmd segir landsliðsþjálfarinn.
fótbolti „Stemmningin í hópnum
er frábær. Við komum hér seint í
fyrradag og tókum æfingu í gær-
morgun. Aðstæður hér eru allar
GÓÐAR
islenska landsliðið lagði það spænska að
velli með þremur mörkum gegn engu á
Laugardalsvelli fyrir skömmu.
hinar bestu,“ sagði Jörundur Áki
Sveinsson, þjálfari kvennalands-
liðsins, en hann er staddur á Sar-
diníu þar sem íslenska kvenna-
landsliðið mætir því ítalska í und-
ankeppni HM. Leikurinn er hreinn
úrslitaleikur um annað sæti riðils-
ins. Það lið sem nær öðru sætinu
fer í umspil, líklega við Englend-
inga, um laust sæti á heimsmeist-
aramótinu.
Jörundur Áki segir að ítalska
liðið sé mjög sterkt. „Þær spila
þennan suður-evrópska fótbolta,
eru taktískt mjög sterkar og hafa á
að skipa mjög góðu liði. Þær eru
taldar með einhverja bestu fram-
herjalínu í evrópskum kvenna-
bolta. Ég býst við því að þær eigi
eftir að spila sóknarbolta þar sem
þær þurfa að vinna leikinn."
Jörundur segir sjálfstraust liðs-
ins vera mikið eftir síðustu tvo
leiki.
„Við eigum litla möguleika á að
ná fyrsta sætinu en stelpurnar eru
staðráðnar í að halda öðru sætinu.
Það var markmið sem við settum
okkur í upphafi. Það er hreint ótrú-
legt að við séum komin í þessa
stöðu með þessum sterku þjóðum í
riðli. Það er alveg ótrúlegt. Við
erum samt ekki södd og við ætlum
okkur að fara lengra."
Árangur kvennalandsliðsins er
betri en karlaliðið hefur nokkru
sinni náð. Jörundur Áki vill þó ekki
gera mikið úr því og segir að erfitt
sé að bera liðin saman þar sem
mun fleiri þjóðir séu í karlaboltan-
um.
„Við berum okkur saman við
JÖRUNDUR ÁKI SVEINSSON
Segir íslenska kvennaknattspymu
á réttri leið.
aðrar kvennaþjóðir í Evrópu. Að
vera með Rússlandi, Ítalíu og
Spáni í riðli og vera komin í þessa
stöðu segir okkur að við erum á
réttri leið. Þetta er jafnasti riðill-
inn í Evrópu og öll lið að taka stig
af hvert öðru. Þetta er alveg ótrú-
legt ævintýri og við hyggjumst
klára það með sæmd.“
kristjan@frettabladid.is
Málarar - Múrarar - Píparar - Smiðir
Dúkarar - Rafvirkjar - Ræstitæknar
Vertu í góðum höndum!
Eltt númer - 511 1707
www.handlaginn.is
handiaginn@handlaginn.is
Heimsmeistaramótið í knattspyrnu:
Brassar og Kínverjar
fótbolti Brasilía mætir Kínverj-
um í annarri umferð C-riðils á
heimsmeistaramótinu í fótbolta í
dag. Brasilía lagði Tyrki að velli í
mjög svo umdeildum leik. Þeir
eiga þó væntanlega frekar auð-
veldan leik fyrir höndum. Leikur-
inn hefst klukkan hálf tólf. Suð-
ur-Afríka mætir Slóvenum í B-
riðli. Liðin eiga möguleika á að ná
öðru sæti riðilsins en Spánverjar
eru þegar búnir að tryggja sæti
sitt.
ítalir mæta Króötum í G-riðli.
ítalir eru taldir með eitt af sigur-
stranglegri liðum mótsins en
Króatar töpuðu frekar óvænt á
móti.
Á sunnudag verða einnig þrír
leikir. Mexíkó mætir Ekvador.
Fyrrnefnda liðið er feykisterkt
Ekvadorar virka ekki jafn sann
færandi.
Kosta-Ríka og Tyrkland mæt
ast í C-riðli. Kosta-Ríka er efst í
riðlinum eftir sigur á Kínverjum
Tyrkir ætla sér upp og munu
berjast til síðasta blóðdropa.
Japan og Rússland mætast í
síðasta leik helgarinnar. Rússai
sigruðu Túnis með tveimu:
mörkum gegn engu en virkuðu
ekki sannfærandi. Japanir gerði
jafntefli við Belga í stórkostleg-
um leik. ■
RONALDO
Sýndi snilldartilþrif I síðasta leik
gegn Tyrkjum og er kominn i sitt
gamla form.
8. júní 2002 LAUGARPAGUR
LANDSLIÐSÞJÁLFARINN
Segir að stuðningurinn hér heima fyrir hafi
skipt máli á Evrópumótinu.
lÍPRÓTTIR í DAG|
8. júní
08.45 Sýn HM 2002 (Italia - Króatia)
11.15 Sýn HM 2002 (Brasilia - Kína)
13.35 Sýn Gillette-sportpakkinn
14.00 Sýn HM 2002 (S-Afrika - Slóvenía)
Símadeild karla
14.00 Hásteinsvöllur / ÍBV - Fylkir
1. deild karla
14.00 Ölafsfjarðarvöllur
Leiftur Dalvik - Sindri
2. deild karla
14.00 Leiknisvöllur
Leiknir R. - Völsungur
14.00 Siglufjarðarvöllur / KS - Selfoss
A kvenna - HM 2003
16.00 Ítalía - ísland
Simadeild karla
16.00 Akureyrarvöllur
KA - ÍA
16.00 Sýn
HM 2002 (ítalia - Króatía)
16.20 _ RÚV
Vélhjólasport
16.50 RÚV
Formúla 1
18.00 Sýn
HM- 4 4 2
ia30_ Sýn
HM 2002 (Brasilia - Kina)
22.45 Sýn
Hnefaleikar
(Lennox Lewis - Hasim Rahman)
00.25 Stöð 2
HM 4-4-2
01.00 Svn
Box - Lennox Lewis - Mike Tyson
9. júní
08.45 Sýn
HM 2002 (Kostarika - Tyrkland)
11.15 Sýn
HM 2002 (Japan - Rússland)
13,35__Sýn
Heimsfótbolti með West Union
14.00 Sýn
HM 2002 (Mexíkó - Ekvador)
14.20 Stöð.2
Mótorsport (e)
16.00 Sýn
HM 2002 (Kostarika - Tyrkiand)
16,50__ RÚV
Formúla 1
18.01 Sýn
HM- 4 4 2
18.30 Sýn
NBA-tilþrif
Sirnadeild karla
19.15 Kaplakrikavöllur / FH - Grindavík
19.15 Laugardalsvöllur / Fram - Þór A.
20.00 RÚV
Landsleikur i handbolta
21.00 Svn
Golfmót i Bandarikjunum
22.00 Sýn
HM 2002 (Japan - Rússland)