Fréttablaðið - 08.06.2002, Síða 11
LAUGARDAGUR 8. júní 2002
FRÉTTABLAÐIÐ
n
David Beckham:
Ur skúrki í hetju
F RIÐILL
FÓTBOLTI David Beckham, landsliðs-
fyrirliði Englands, hefur fengið
fyrirgefningu synda sinna. Hann
skoraði sigurmark Englendinga, úr
vítaspyrnu,
gegn Argent-
ínu í F-riðli
heimsmeist-
aramótsins í
knattspyrnu.
Beckham, sem
var rekinn af
velli þegar lið-
in mættust á
HM fyrir fjórum árum og var tal-
inn hafa eyðilagt möguleika Eng-
lands, fór fyrir sínum mönnum.
Englendingar voru sterkari aðilinn
LIÐ L STIG
Svíþjóð 2 4
Engtand 2 4
Argentína 2 3
Nígería 2 0
Síðasta umferð 12. júní:
Svíþjóð - Argentína Nígería - England
en Argentina hefur verið talið eitt
sterkasta lið keppninnar.
Svíar sigrðu Nígeríu með tveim-
ur mörkum gegn einu í hinum leik
riðilsins. Henrik Larsson skoraði
bæði mörk Svía. Nígería á ekki
lengur möguleika á að komast upp
úr riðlinum. Liðið mætir Englend-
ingum í næstu umferð. Svíum næg-
ir jafntefli til að komast upp úr
riðlinum en Argentína verður að
vinna.
Knattspyrnulandslið Spánverja
virðist vera að komast yfir stór-
mótagrýluna en liðið tryggði sæti
sitt í 16-liða úrslitum heimsmeist-
aramótsins með því að leggja
Paragvæja að velli með þremur
mörkum gegn einu. Carles Puyol
varð fyrir því óláni að skora sjálfs-
mark og kom Paragvæjum yfir.
Spánverjar, sem hafa ekki riðið
feitum hesti frá stórmótum undan-
farin ár, létu þó ekki slá sig út af
laginu og skoruðu þrjú mörk. Fern-
ando Morientes, leikmaður Real
HETJAN
David Beckham, landsliðsfyrirliði Englands,
skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu sem
Michael Owen fiskaði.
Madrid, skoraði tvö mörk með
skalla og nafni hans ,Fernando Hi-
erro, fyrirliði, gulltryggði sigurinn
með marki úr vítaspyrnu. ■
Fimmta umferð
Símadeildar karla:
Fylkir fer
til Eyja
fótbolti Fylkir sækir Eyjamenn
heim í fyrsta leik 5. umferðar
Símadeildar karla í dag. Árbæjar-
liðið er í fjórða sæti deildarinnar
en Eyjamenn í því áttunda. Þó
skilur aðeins eitt stig liðin að.
Leikurinn hefst klukkan 14.00.
Á sunnudag eru þrír leikir. FH
fær Grindvíkinga í heimsókn, KA
fær íslandsmeistara Skagamanna
í heimsókn og Þór sækir Fram
heim. Umferðinni lýkur á mánu-
daginn þegar Keflavík og KR
mætast í Keflavík. ■
Hjarta mitt slær með Tyson
BUBBI MORTHENS
Bubbi er einn helsti áhugamaður um box á Islandi. Hann
telur Lewis sigurstranglegri en segir hjartað slá með Tyson.
Bubbi Morthens telur Lewis sigurstranglegri í kvöld og í betra
formi. Hins vegar bendir hann á að Tyson sé höggþungur og
gæti því orðið Lewis erfiður, sérstaklega í fyrstu lotunum.
box „Þetta er einfaldlega stærsti boxbardagi
seinni tíma“ segir Bubbi Morthens um viður-
eign Mike Tysons og Lennox Lewis í kvöld, eða
öllu heldur eldsnemma í fyrramálið því bardagi
þeirra hefst ekki fyrr en um miðja nótt. „Eng-
inn bardagi í sögu boxins hefur velt meiri pen-
ingum, bæði í kapaláskrift í sjónvarpi þar sem
talað er um 55 milljónir kaupenda og í miðasölu
sem hefur þegar slegið met. Ég held að selt hafi
verið fyrir um 150 milljónir dollara," segir
Bubbi og telur að áhorfendur verði um það bil
13.000. Bubbi hefur sjálfur verið í slíkum
áhorfendahópi, t.d. í leikjum hjá Tyson og
Prince, en hann lýsir sem kunnugt er boxleikj-
um á Sýn.
„Keppendurnir fá í kringum 30 milljónir
dollara hvor í sinn hlut, fyrir utan prósentur af
áskrift svo þetta eru um 3-4 milljarðar ís-
lenskra," segir Bubbi og upplýsir að bestu box-
mennirnir séu ríkustu íþróttamenn veraldar
því engin íþrótt velti svo miklum peningum.
Hvor er sigurstranglegri, lý'son eða Lewis?
„Líkurnar eru mun meiri á að Lewis sigri.
Tyson hefur barist svo lítið við marktæka and-
stæðinga undanfarið. Hann hefur ekki verið að
gera neinar rósir síðan 1988. Lewis er í betra
formi.“ En kemst Tyson ekki langt á nafninu og
sigurhefðinni, ber Lewis kannski virðingu fyrir
Tyson? „Kannski skiptir það máli, en ég efast
um að Lewis beri virðingu fyrir Tyson, nema að
því leyti að hann veit að hann er höggþungur.“
Eins og Bubbi bendir á er Tyson nú í seinni
tíð fyrst og fremst frægur fyrir endalaus vand-
ræði. „Ég hef ákveðna samúð með lyson, því ég
þekki sögu hans. Ég veit að hann ólst upp við
mjög erfiðar aðstæður og svo er hann haldinn
geðsjúkdómi; geðhvarfasýki og tekur lyf við
henni. Orðspor hans er slæmt og hann hefur
líka þurft að líða fyrir það, eins og endalausar
nauðgunarákærur benda til, því nafnið selur,
hvernig sem á það er litið.“ En með hvorum
heldur Bubbi? „Eg verð að viðurkenna að hjarta
mitt slær með Tyson."
bryndis@frettabladid.is
Á HEIMAVELLI
Jacques Villeneuve mun keppa á heima-
velli á morgun. Brautin er nefnd í höfuðið
á föður hans.
Formúla um helgina:
Heimavöllur
Villeneuve
formúla Tímatökur fyrir Mont-
real-kappaksturinn í Formúlu 1
hefjast í dag klukkan fimm. Keppt
er á Gilles-Villeneuve brautinni
sem er heimavöllur Jacques Vil-
leneuve. Brautin er meira að segja
nefnd í höfuðið á föður hans. Öku-
menn þurfa að keyra 69 hringi til að
komast í mark. Meðalhraði hennar
er 220 kílómetrar á klukkustund. ■
Veðrið ekkert vandamál
Gott fyrir heimilið, vinnustaðinn og sumarbústaðinn
Þessari tegund Markísa er stjórnað
innan frá að öllu leyti
Niels S. Olgeirsson og Ragnheiður
Valdimarsdóttir, Bröttuhlíð 12, Mosfellsbæ:
„Að geta stjórnað hitanum innandyra og lokað
sólina úti svo hún baki ekki húsgögnin er mikils
virði. Okkurfinnst þetta meiriháttar gott og
sniðugt. Við erum oft spurð að því hvort þörf sé
á þessu á íslandi og hvort þetta virki. Eftir að
hafa haft þetta í á þriðja ár erum við í engum
vafa um notagildið. “
Einföld notkun: út-inn-upp-niður,
allt að þinni vild.
Hitamál
innandyra
leyst
• Ryðfrítt.
• Hindrar 92% hita.
• Skýlir fyrir vindi af
þaki.
• 100% vatnshelt,
• Einföld uppsetning
• 1. handdrifið
• 2. rafdrifið
• 3. sjálfvirkt
Afgreiðslufrestur:
1- 3 vikur í apríl og maí,
2- 5 vikur í júní - ágúst.
Eins og sést á myndinni er rigning engin
fyrirstaða fyrir útiveru á sólpallinum
Ragnar Ólafsson og Steinunn Sigvaldadóttir,
Bróttuhlíð 7, Mosfellsbœ: „Eftir að við fengum
markísuna hefur nýtingin á sólpallinum og
garðveran verið mun meiri. Skjólsœlla er á
pallinum, blautviðri engin fyrirstaða og þetta
prýðir húsið okkar. “ Þegar Ragnar og Steinunn
halda sínar vikulegu grillveislur sér grillið um
varmann undir markísunni fram eftir kvöldi. I
Hrein fjárfesting ehf.
Nánari upplýsingar í síma 567 7773 og 893 6337 (kvöid og heigar)
Söluaðilar í Reykjavík, á Akureyri og Egilsstöðum