Fréttablaðið - 08.06.2002, Síða 12
12
FRETTABLAÐIÐ
8. júní 2002 LAUGARPAGUR
HASKOLABIO
HAGATORGI • SÍMI S30 1919 • STÆRSTA STNINGARTJAIO LANOSINS
I. 5.45, 8 og 10.15
ÍMULHOLLAND DRIVE kl. 10.151 jVARÐI GOES EUROPE sd kl. 6 ||
11YOU CAN COUNT ON ME kL 5.45 og 8 sd kl 81 jAPOCALYPSE NOW REDUX @
i 1
Sýnd kl. 6, 8 og 10.10 b.i.16 |H1ÁLP ÉG ER FISKUR M. 2. 4 og 6 b.i. 16 | g£|
jSKRÝMSLI HF kl.2 1JTj Iqueen of the damned ujjo. a og 10.10 bj. 161 jY‘*j
iTHE MAIESHC kl.8 | !Y!1I IrESIDENT EVIL kl. 10.10 b.i. 16 f[£3
BUBBLE BOY kl. 2, 4 or 61PSS plMMY NEUIRON m/isl. tali 2 og 4 |
|THE SCORPION KING kl. sl IPÉTUR PAN m/ísl. tali Hil ÉS
undirfataverslun
Síðumúla 3-5
Sími 553 7355
Opið mán.-föst. kl. 11-18
laugard. kl. 11-15
Heimsendlng og sótt
AKtaf spenncmdi
titbod!
Frábœr hóptilbod
fyrir afmœlisveislur!
Iizzq
HÚSIÐ
Grensásvegi 12"' Sími: 533 2200
cXLk mZjám'
Trúlofunar- og
giftingarhringir
20% afsláttur í takmarkaðan tíma
. ".'i.OS**' •>*•
;CSr:. _
www.gunnimagg.is
FRÉTTIR AF FÓLKI
Leikkonan Winona Ryder mun
þurfa að mæta í réttarsal og
svara sökum um búðarhnupl.
Lögfræðingar stúlkunnar höfðu
reynt hvað þeir
gátu til að fá
kærunni vísað
frá en dómari í
Los Angeles setti
dagsetningu á
réttarhöldin eftir
að greint var frá
því að stúlkan
hefði notað
skæri til þess að klippa þjófa-
varnir af þeim fötum sem fund-
ust í tösku hennar. Ef Ryder
verður fundin sek gæti hún átt
yfir höfði sér allt að þriggja og
hálfs árs fangelsisvist. Hún
neitar allri sök og hyggst verj-
ast með kjafti og klóm.
Hún er ekki sú eina í leikara-
stéttinni sem er í vandræð-
um því leikarinn
Woody Harrel-
son var handtek-
inn í London á
fimmtudags-
kvöldið fyrir
skemmdarverk á
leigubíl. Eitthvað
var að þjaka
kauða því hann
tók upp á því að brjóta ösku-
bakka og hurðarhún rétt áður
en hann rauk út úr bílnum.
Hann fór beina leið upp í annan
kyrrstæðan leigubíl en reyndi
svo að taka til fótanna þegar
lögreglan mætti á svæðið. Hann
komst þó ekki langt og þarf að
mæta í réttarsal í London þann
1. júlí til þess að svara sökum.
Söngvaranum R.Kelly hefur
verið sleppt lausum gegn
750 þúsund dollara (um 67,8
milljóna króna)
tryggingagjaldi.
Kelly var hand-
tekinn sakaður í
21 tilviki um að
hafa framleitt
barnaklám. Lög-
reglan í Chicago
hefur síðustu
erið að rannsaka
myndbandsupptöku sem hún
telur að sýni söngvarann hafa
mök við stelpu undir lögaldri.
Söngvarinn hefur neitað því að
vera maðurinn sem sést í hinni
26 mínútna löngu upptöku. R.
Kelly hefur verið kærður þris-
var sinnum fyrir að hafa mök
við stelpur undir lögaldri.
Yfirvöld í Vietnam hafa sagt
að þau muni vísa kynferðis-
glæpamannínum og söngv-
aranum Gary
Glitter úr landi
ef hann finnst
þar. Lögreglan í
Englandi telur að
hann sé staddur
þar. Glitter sat
inni í fjóra mán-
uði eftir að
barnaklám fannst
á tölvu hans eftir að hann hafði
farið með hana í viðgerð. Eftir
fangelsisvistina fluttist hann til
Kambódíu og var þar í sex
mánuði en nú er talið að hann sé
kominn yfir til Víetnam.
CURSE OF THE JADE SCORPION
Hér hefur undirmeðvitundin tekið völdin yfir Allen og Helen Hunt.
Dáleiðandi grín
Kvikmyndin „The Curse of the Jade Scorpion'' var frumsýnd í gær í
Háskólabíói. I henni leikur Woody Allen einkaspæjara sem lendir
undir valdi dáleiðara.
kvikmyndir Framleiðsla kvik-
myndagerðarmannsins og leik-
stjórans Woodie Allen er slík
að við hér á klakanum náum
yfirleitt aðeins rétt í skottið á
myndum hans. Hann gerir yf-
irleitt eina mynd á ári og eru
þær svo lengi að ná að íslands-
ströndum að halda mætti að
þær væru sendar hingað með
flöskuskeytum. Allen er vana-
lega búinn að frumsýna nýj-
ustu afurð sína þegar myndin
frá árinu áður kemur í íslensk
bíóhús. í síðasta mánuði frum-
sýndi hann myndina
„Hollywood Ending“ á kvik-
myndahátíðinni í Cannes, mán-
uði áður en myndin „The Curse
of the Jade Scorpion" frá árinu
áður er frumsýnd hér. En seint
er víst betra en aldrei.
í þessari gamanmynd
Allens, eins og í svo mörgum,
leikur hann aðalhlutverkið.
Hér er hann í hlutverki CW
Briggs, einkaspæjara í New
York sem vinnur fyrir trygg-
ingarfyrirtæki á fimmta ára-
tugnum. Þessi sjálfskipaði
„snillingur“ í faginu segist
geta leyst hvaða vandamál sem
er með því að lauma sér „inn í
huga glæpamannsins" eins og
hann orðar það. Vitanlega er
þessu snúið um koll þegar
glæpamaðurinn kemst, með
því að nota á hann dáleiðslu,
inn í huga hans. Briggs verður
því einskonar strengjabrúða í
höndunum á dáleiðandanum
sem notar hann til að fremja
glæpaverk sín.
Undir dáleiðslunni tengist
hann einnig nýjum starfsfé-
laga sínum Betty Ann Fitzger-
ald, leikin af Helen Hunt,
sterkari böndum en þau bæði
kæra sig um. Hún var ráðin til
að kynna sér fyrirtækið innan-
frá og endurskipuleggja til að
rétta hag þess. Þetta þýðir vit-
anlega að uppsagnir liggja í
loftinu og stúlkan því varla sú
vinsælasta þar á bæ.
Allen hefur alla tíð sagst fá
hugmyndir á skemmri tíma en
það tekur að framkvæma þær
og virðist það skiptast í tímabil
hvort hann gerir gamanmyndir
eða alvarlegri. Að þessari vann
hann með sama fólki og þegar
hann gerði hina stórskemmti-
legu „Small Time Crooks“.
Með önnur hlutverk í mynd-
inni fara Dan Aykroyd, Eliza-
beth Berkley og Charlize Ther-
on.
biggi@f rettabladid.is
Annar stofnmeðlimur The Ramones:
Fcmnst látinn
á heimili sínu
tónlist Tónlistarmaðurinn Dee
Dee Ramone, sem var annar
stofnmeðlimur pönksveitarinnar
The Ramones, fannst látinn á
heimili sínu á miðvikudagskvöld-
ið. Það var eiginkona hins 50 ára
gamla pönkara sem fann hann lát-
inn í sófanum á heimili þeirra í
Hollywood. Talið er að hann hafi
af slysni tekið inn of stóran
skammt eiturlyfja. Ekki hefur
verið greint frá því hvaða efni það
var en áhöld til eiturlyfjanotkun-
ar fundust á heimilinu. Krufning-
in fer fram á þriðjudag.
The Ramones var stofnuð í
Queens-hverfi New York-borgar
árið 1974 af Dee Dee, réttu nafni
Douglas Colvin, og félaga hans
Joey, réttu nafni Jeffrey Hyman.
Allir liðsmenn sveitarinnar tóku
upp eftirnafnið Ramone, klædd-
ust leðurjökkum og rifnum galla-
buxum og ýktu einfalda rokktóna
sjötta áratugarins. Fyrir vikið
varð sveitin fyrirrennari pönk-
bylgjunnar. Fyrsta plata þeirra
kom út árið ‘76 og er talin hafa
haft mikil áhrif á bresku pönk-
sveitina Sex Pistols.
Dee Dee yfirgaf sveitina árið
‘89 þar sem hann ætlaði að gerast
rappari. Þegar sá ferill kappa fór
í vaskinn stofnaði hann rokksveit-
THE RAMONES
Nú er þeir tveir horfnir yfir móðuna miklu.
Dee Dee (neðri hægri) og Joey (efri
hægri). Saman stofnuðu þeir sveitina.
ina Chinese Dragons.
Söngvari Ramones, Joey
Ramone, lést af hvítblæði í fyrra.
Með vinsælari lögum sveitarinnar
eru m.a. „I Wanna Be Sedated",
„Now I Wanna Sniff Some Glue“,
„Teenage Lobotomy" og „Shenna
Is A Punk Rocker". ■