Fréttablaðið - 08.06.2002, Qupperneq 14
FRÉTTABLAÐIÐ
8. júní 2002 LAUCARPACUR
Wlálning
tyr/ralla
í
I
Farveland Farveland1
I v*a nonust.
—iom«
gsguuR''
14
GUK+ þriggja ára:
Opnun í íjórum
löndum
MÁLARINNim Bæjarlind 2 • Kópavogi • Sfmi: 581 3500
jfP"
1
myndlist Um þessar mundir fagnar
GUK+ þriggja ára afmæli sínu.
Nú hafa þar verið haldnar 11
myndlistarsýningar. GUK+ er
sérstæður sýningarstaður að því
leytinu að hann samanstendur af
fjórum stöðum í þremur löndum: í
garði við Ártún á Selfossi, garð-
hýsi í Lejre í Danmörku, gangi í
Hannover í Þýskalandi og á skjá
fartölvu í Berlín.
Á morgun opnar Gunnhildur
Una Jónsdóttir sýninguna
Spaceman. Verkin sem hún gerði
fyrir sýninguna tengjast öll inn-
byrðis. Á ganginum í Hannover
sýnir hún teikningu í raunstærð
af rússneska geimfaranum Yuri
Gagarín í farinu Vostok 1. Frá út-
varpi á ganginum berst upptaka
af útsendingu sovéska ríkisút-
varpsins frá 12. apríl 1961. í garð-
inum á Selfossi gefst gestum
tækifæri til að sigrast á aðdráttar-
afli jarðar eitt augnablik og á skjá
fartölvunnar í Berlín má leika
YURI GAGARÍN
í aðalhlutverki á sýningu Gunnhildar.
tölvuleikinn
lendir síðan
geimbúningi
Spaceman. í dag
fallhlífarstökkvari í
á akri hjá GUK+ í
Lejre en þar verður geimbúning-
urinn til sýnis út sumarið. Vef-
síðuGUK+ og frekari upplýsingar
um sýninguna er að finna á
www.simnet.is/guk. ■
I HÁDEGINU OG Á KVÖLDIN
HAMBORGARI, FRANSKAR
OG SÓSA 395 kr.
4 HAMBORGARAR, FRANSKAR
MEÐ SÓSU 1.490 kr.
OPIÐ:
Austurveri, Háaleitisbraut 68
kk 11 - 23 j
kiT|a-h22 8006767
LAUGARDAGURiNN
8. JÚNÍ
YMISLEGT
15.00 Oplnn dagur hjá Litbolta í Lundi
i Kópavogi. Félagar í Litboltafélagi
Reykjavíkur verða á staðnum og
kynna íþróttina og búnað henni
tengdri. Boðið upp á prufuleiki
gegn vægu gjaldi.
OPNANIR
borðrð
'CVMWSTbm.
teiAIFðÖCl#
Grensásvegi 3 - Sfmi, 588 20 20
U) L JÚNÍ Kl. 6:30 S AFRfKA SlÓVf NIA
Kl. 9:00 ÍTJklfA - KKÓATiA
Kl.11:30 IKASIIÍA KfNA
SIM.Jlll Kl. 1:00 TYSON • LEWIS
Kl. 6:30 MtXfKO EKVAD0K
Kl. 9:00 KOSTAKfKA TYKKLAMÐ
Kl.11:30 JAPAN KðSSlAND
apj-p piij-jj
^óuapjjíJx/snn/
jú>jj
Bandarfski listamaðurinn Mark Norman
Brosseau opnar klukkan 17 sýninguna
Space Project í Gallerí Skugga við
Hverfisgötu. Titillinn vísar til rýmishugs-
unar sem Mark leggur áherslu á í verk-
um sínum. í kjallara gallerísins vinnur
Mark málverksinnsetningu. Á efri hæð
samanstendur verkið af texta og æting-
um. Sýningin stendur til 23. júní.
Sumarsýning á munum í eigu Hönnun-
arsafns íslands opnuð f sýningarsa!
safnsins við Garðatorg. Sýningin heitir
flát. Þar eru 40 nytjahlutir, sem eiga það
sammerkt að þeim er ætlað að geyma,
rúma eða varðveita eitthvað sem fyrir er,
í allra víðasta skilningi, jafnvel þannig að
stundum reynir á þanþol nytjahugtaks-
ins. Tinna Gunnarsdóttir listhönnuður
sér um útlit sýningarinnar.
Jón Reykdal opnar sýningu í Listhúsi
Ófeigs klukkan 16. Á sýningunni eru
rúmlega 30 verk, aðallega vatnslita-
myndir og nokkur olíumálverk. Sýningin
er I tilefni 30 ára starfsafmælis Jóns og
hún stendur til 26. júní.
Tea Jáaskeláinen frá Finnlandi opnar
klukkan 16 einkasýningu I Gallerí Tukt I
Hinu húsinu. Sýningin nefnist Mandala.
Yoichi Onagi, textíllistamaður frá Japan,
opnar sýningu I Hafnarborg, menning-
ar- og listastofnun Hafnarfjarðar. Klukk-
an 16.30 geta gestir við opnun sýningar-
innar séð hina fornu athöfn þegar hefð-
bundið japanskt te er lagað.
Ljóskur og borg
I gær var opnuð sumarsýning Listasafns Reykjavíkur - Kjarvalsstaða.
Tæplega fimmtíu myndlistarmenn eiga verk á sýningunni, þeirra á
meðal Bjargey Olafsdóttir.
myndlist „Það er gaman að safnið
skuli kaupa nýja, íslenska mynd-
list,“ segir Bjargey Ólafsdóttir.
Hún er einn af tæplega fimmtíu
myndlistarmönnum sem eiga
verk á sýningunni Maður og
borg á Kjarvalsstöðum. Þar
kennir ýmissa grasa úr safneign-
inni en áherslan er lögð á fígúra-
tív verk sem tengjast borginni á
einn eða annan hátt. Verkin
spanna yfir sjötíu ára tímabil frá
1930 til ársins 2000.
Þorbjörg Gunnarsdóttir,
deildarstjóri sýningardeildar
Listasafns Reykjavíkur, valdi
verkin á sýninguna. Þau elstu
eru eftir listamenn sem vöktu at-
hygli því verk þeirra snerust
ekki lengur um náttúruna heldur
fólk og bæjarlíf, viðfangsefni
sem fram til þessa hafði ekki
þótt þess vert að fjalla um í list-
rænum miðlum.
Mörg verkanna á sýningunni
eru eftir yngri kynslóð og unnin
í ólíka miðla. Meðal annars er
þar innsetning eftir Þórodd
Bjarnason, sem heitir Takið
börnin með. Hún samanstendur
af sex þríhjólum sem börn mega
hjóla á um safnið. Hlynur Halls-
BJARGEY ÓLAFSDÓTTIR
Einn fjölda myndlistarmanna, sem eiga verk á sýningunni Maður og borg á Kjarvals-
stöðum. Verk Bjargeyjar heitir Ljóskur I París.
blómið
blóm og gjafavörur
£jT3jj£;á£ivacjJ fj[) - £JJjjJJ ú'öl 1330
opið: mán...10-19 þri - lau...10-21 sun...12-19
son sýnir átta einstaklinga af
ólíku þjóðerni á átta sjónvarps-
skjám segja frá því sem þeim
þykir mikilvægt á sínu móður-
máli. Þar eru einnig verk eftir
Ilmi Stefánsdóttur, Jóhann
Torfason og Særúnu Stefánsdótt-
ur.
Verk Bjargeyjar heitir Ljósk-
ur í París. Það lýsir misheppnaðri
tilraun tveggja stúlkna til að
draga Fransmann á tálar. „Þetta
er skyggnimyndasýning. Hún er í
litlum kassa, litlum sýningarsal á
sýningunni. Þetta eru 80 ljós-
myndir. Kristján heitinn Eldjárn
samdi síðan dularfulla tónlist við
verkið sem hljómar í kassanum."
Bjargey hefur í nógu að snúast
þessa dagana. Hún er í samstarfi
við franskan „gallerista í París“,
er að skrifa handritið að stutt-
mynd og undirbúa einkasýningu í
Gerðarsafni í vetur. í haust fer
hún til Weimar í Þýskalandi á
styrk í fjóra mánuði. „Maður
verður að flakka á milli landa til
að lifa af þessu. Það gengur bara
vel, enda er ég hörkudugleg.“
halldor@frettabladid.is
Sunna Sigfríðardóttir opnar mál-
verkasýningu I ash Gallerí Lundi I
Varmahlíð. Verkin eru máluð
með olíu á striga og eru lands-
lagsmyndir sem sýna ferðalag
Sunnu frá Raufarhöfn til Akureyr-
ar. Sýningin stendur til 28. júní.
BÍÓ
17.00 Á Vorblóti 2002 á Grand Rokk
verður myndin Gudjon eftir Þor-
finn Guðnason sýnd.
19.00 Fimm af áhugaverðum ungum
kvikmyndagerðarmönnum sýna
nýjar leiknar myndir teknar á
Grand Rokk. Myndirnar keppa til
verðlauna á Vorblóti 2002.
GÖNGUR
10.00 Morgunganga Félags eldri borg-
ara í Hafnarfirði frá Hraunseli.
11.00 Grasagarðurinn í Laugardal
stendur fyrir fræðsluferð um garð-
inn. Auður Jónsdóttir garðyrkju-
fræðingur fjallar um áhugaverðar
trjátegundir fyrir garðeigendur,
einkum þyrni og heggi. Yfir 5.000
plöntutegundir eru i Grasagarðin-
um en einungis hluti þeirra eru
þekktar sem garðplöntur. Mæting
er í lystihúsinu sem stendur við
garðskálann, og er aðgangur
ókeypis.
14.00 Örn Óskarsson líffræðingur fræðir
gesti Alviðru um þær fjölbreyti-
legu fuglategundir sem þar er að
finna. Gengið að Soginu og í
Þrastaskóg. Þátttakendur hvattir til
að taka með sér sjónauka. Boðið
upp á kakó og kleinur að göngu
lokinni. Upplýsingar í Alviðru í
síma 898 1738.
FUNDIR_____________________________
13.00 Fornleifastofnun fslands heldur
málþing í Skálholtsskóla. Það ber
yfirskriftina Skálholtsrannsóknir
fyrr og nú. Þar verður fjallað um
yfirstandandi fornleifarannsóknir í
Skálholti og rannsóknir gerðar á
árunum 1954 til 1958. Fyrirlesarar
eru Orri Vésteinsson, Sveinn Ein-
arsson, Mjöll Snæsdóttir, Gunnar
Karlsson og Guðrún Ása Gríms-
dóttir. Mjöll leiðsegir gestum um
uppgraftarsvæðið en hún er verk-
efnisstjóri fornleifarannsóknanna í
Skálholti ásamt Orra. I skólanum
verður kaffihlaðborð að hætti Val-
gerðar biskupsfrúar.
FYRIRLESTRAR_____________________
14.00 Arnbjörg Jóna Jóhannsdóttir
heldur fyrirlestur um meistara-
verkefni sitt í véla- og iðnaðar-
verkfræði I stofu 158 í VR-II við
Hjarðarhaga. Verkefnið heitir
Framleiðsluskipulagning hjá
Delta hf. I verkefninu eru skoðað-
ar aðferðir við framleiðsluskipu-
lagningu sem notaðar eru hjá
framleiðslufyrirtækjum. Leiðbein-
endur voru Birna Pála Kristins-
dóttir dósent og Páll Jensson pró-
fessor.