Fréttablaðið - 12.06.2002, Page 1
PERSÓNAN
BLIÐVIÐRI
Fiskur, fótbolti
og Falun Gong
HEIMAGÆSLA
ÖRYGGISMIÐSTÖÐ ÍSLANDS
BORGARTÚNI 31 • SlMI 530 2400
WWW.OI.IS
ERLENT
Þakklátur
fyrir stuðninginn
bls 4
Dauðlangar í
heitu pottana
bls 7
FRÉTTAB
112. tölublað - 2. árgangur
MIÐVIKUDAGUR
Ræða hindranir
innan Norðurlanda
ráðherrafundur Norrænu sam-
starfsráðherrarnir funda í Tromsö í
Noregi í dag. Þar munu þeir meðal
annars ræða skýrsiu um réttindi
Norðurlandabúa og þær hindranir
sem verða á vegi þeirra sem flytja
milli Norðurianda.
Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500_IVIiðvikudagurinn 12. júní 2002
Stjórnarmanni dæmdur
aðgangur að gögnum
15 styrkir aíhentir
styrkir Tómas Ingi Olrich, mennta-
málaráðherra, afhendir í dag 15
styrki úr sjóðnum Þekking stúd-
enta í þágu þjóðar. Styrkirnir renna
til stúdenta við Háskóla íslands
sem vinna að verkefnum í tíu sveit-
arfélögum.
| VEÐRIÐ í DAGÍ
REYKJAVÍK Hægviðri, skýjað
með köflum. Hiti 13-18 stig.
VINDUR ÚRKOMA HITI
fsafjörður Q 8-13 Léttskýjað Ol3
Akureyrí 0 3-8 Súld QlO
Egilsstaðir o 5-10 Skýjað Qll
Vestmannaeyjar ©3-8 Skýjað Q17
Brúðubíllinn á ferð
börn Brúðubíllinn mætir kl. 10 á
Fróðengi og sýnir ieikritið Óþekkt-
arormar. Kiukkan 14 verður hann
kominn vestur í bæ og sýnir í
Frostaskjóli. Líf og fjör verður því
við þennan skemmtilegasta bíl í
bænum í dag.
Fallliðin mætast
fótbolti Liðin sem féllu úr efstu
deild í fyrra, Valur og Breiðablik,
mætast á Hlíðarenda klukkan 20 í
kvöld. Gengi liðanna hefur verið
misjafnt og verður spennandi að
sjá hvernig þeim vegnar í dag.
KVÖLDIÐ f KVÖLD
Tónlist 18 Bíó 16
Leikhús 18 íþróttir 14
IVlyndlist 18 Sjónvarp 20
Skemmtanir 18 Útvarp 21
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
FRÉTTABLAÐIÐ
'61,3%
Hvaða blöð lesa 25 til 39 ára
íbúar á höfuð-,
borgarsvæð-
inu á miðviku-
dögum?
Meðallestur 25 til 39
ára á miðvikudögum
samkvæmt
fjölmiðlakönnun
Gallup frá
mars 2002
70.000 eintök
70% fólks les blaðið
MEÐALLESTUR FÓLKS A ALDRINUM 25 TIL 80 ARA
A HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 69,7% SAMKVÆMT
FJÖLMIBLAKÖNNUN GALLUP I MARS 2002,
Héraðsdómur Vesturlands hefur fyrirskipað Verkalýðsfélagi Akraness að veita stjórnarmanni í
félaginu aðgang að bókhaldsgögnum félagsins. Harðar deilur hafa verið innan félagsins. Lög-
maður félagsins segir óvild ráða gjörðum stjórnarmannsins.
dómsiviál Verkalýðsfélagi Akra-
ness er samkvæmt dómi Héraðs-
dóms Vesturlands, skylt að veita
Vilhjálmi Birgissyni, meðstjórn-
anda í félaginu, aðgang að öllum
bókhaldsgögnum félagsins fyrir
árin 1997, 1998 og 1999, að við-
lögðum 10 þúsund kóna dagsekt-
um. Aðgangur Vilhjálms að gögn-
unum er bundinn við skrifstofu
félagsins.
Vilhjálmur, sem kjörinn var í
stjórn félagsins fyrir tveimur
árum, hefur gagnrýnt slælega
ávöxtun fjármuna félagsins og
sakað stjórnina um óráðsíu. Þær
ásakanir hafa einkum beinst gegn
Hervari Gunnarssyni, formanni
Verkalýðsfélags Akraness, sem
jafnframt er launaður starfsmað-
ur félagsins. Hatrammar deilur
hafa verið innan félagsins vegna
þessa. Við framlagningu reikn-
inga fyrir árið 2000 treysti Vil-
hjálmur sér ekki til að skrifa at-
hugasemdalaust upp á reikning-
ana. Vilhjálmur óskaði ítrekað eft-
ir aðgangi að bókhaldsgögnum
fyrri ára en bæði Hervar Gunn-
arsson og síðar félagsstjórn synj-
uðu því.
Dómari fellst á það með Vil-
hjálmi, að honum beri sem aðal-
stjórnarmanni að hafa eftirlit með
rekstri skrifstofu félagsins, ráð-
stöfun fjármuna og ávöxtun sjóða
félagsins. Dómarinn telur enn-
fremur að ekki sé hægt að tak-
marka aðgang Vilhjálms að bók-
haldsgögnum við þann tíma sem
hann sitji í stjórn. Fjárhagur
Verkalýðsfélags Akraness eigi sér
rætur í meðferð fjármuna þess
næstliðin ár. Dómarinn fellst ekki
á að aðgangur stjórnarmanna að
bókhaldsgögnum sé háður vilja
eða samþykki félagsfundar.
Lögmaður félagsins sagði
málatilbúnað Vilhjálms stafa af
óvild í garð Hervars og reyndar
annarra forystumanna félagsins
líka. Vilhjálmur hafi haldið uppi
umfangsmiklu andófi innan
stjórnar félagsins og lagt alla þá
steina í götu félagsins sem honum
hafi verið tækir. Krafa hans um
óheftan aðgang að bókhaldi fé-
lagsins hafi þann tilgang einan að
lúsleita þar að einhverjum tilefn-
um til að ala á úlfúð og sundrungu
innan félagsins.
Dómari sagði þessar ásakanir
hafi ekki verið réttlættar. Vil-
hjálmur hafi sýnilega staðið höll-
um fæti í félagsstjórn og félaginu
sé því skylt að veita honum að-
gang að umbeðnum gögnum.
the@frettabladid.is
IÐKENDUR FALUN GONC FÆRÐIR í NJARÐVÍKURSKÓLA Þeir iðkendur Falun Gong sem komu til landsins í gær voru færðir í
Njarðvíkurskóla tíl að koma í veg fyrir að þeir gætu verið með mótmæli I tengslum við heimsókn Jiang Zemin, forseta Kína, hingað til
lands. Fjallað er um kyrrsetningu Falun Gong-liða og fyrirhugaða heimsókn Zemin á blaðsíðum 2, 6 og 8.
Hart deilt að lokinni vísitasíu herra Karls Sigurbjörnssonar um Borgarbyggð:
Kyrrðarstund biskups í loft upp
kirkjan Til harðra orðaskipta
kom á milli herra Karls Sigur-
björnssonar, biskups yfir ís-
landi, og séra Flóka Kristins-
sonar, sóknarprests á Hvann-
eyri, á kyrrðarstund sem bisk-
upinn hélt á Akranesi með
prestum á Vesturlandi að lok-
inni vísitasíu í Borgarbyggð.
Séra Geir Waage í Reykholti
hunsaði fund biskups en séra
Flóki mætti og þagði ekki undir
ræðu biskups. Að henni lokinni
hellti séra Flóki sér yfir biskup
með orðaflaumi og vísaði ótt og
títt til smæðar biskups í verald-
legum og andlegum skilningi.
„Ég greini ekki frá því sem
gerist á fundum biskups með
prestum en þarna hélt bisk-
upinn kyrrðar- og uppbygging-
arstund með prestum þar sem
mat var lagt á vísitasíuna," seg-
ir séra Þorvaldur Karl Helga-
son biskupsritari. Sjálfur vill
séra Flóki hafa sín mál og bisk-
ups í friði fyrir fjölmiðlum.
Herra Ólafur Skúlason, fyrrum
biskup yfir íslandi, segir þó
þetta: „Sjálfur var ég ekki á
fundinum en ég hef haft spurn-
ir af honum. Mér þykir leiðin-
legt að biskup þurfi að búa við
þetta og harma að svona uppá-
komur eigi sér stað þar sem
biskup er annars vegar.“
Gagnrýni séra Flóka á biskup
byggir helst á stjórnunarstíl
hins síðarnefnda. Telja séra
Flóki og skoðanabræður hans í
prestastétt að biskup setji sig á
háan hest gagnvart prestum og
stjórni í raun eins og forstjóri í
stórfyrirtæki. Prestar líti hins
vegar svo á að hver prestur sé
herra í eigin sókn. Af þessum
ástæðum sé biskup ekki allra og
því deilurnar. ■
| PETTA HELST |
Hrafn Gunnlaugsson krefst
þess að fá 37 milljónir króna
í bætur frá borginni vegna þess
að honum var meinað að reisa
vinnustofu við hús sitt. bls. 2
—+....
Þrír f jórðu hlutar þess f jár
sem hefur safnast til kaupa á
nætursjónaukum fyrir þyrlur
gæslunnar koma frá einkaaðilum.
bls. 2
--
Eigendur Heiðaf jalls hafa kært
aðmírál Varnarliðsins og
bandaríska sendiherrann vegna
mengunar á landi sínu. bls. 4
—4—
Greiningardeildir bankanna
spá því að ný mæling neyslu-
verðsvísitölu sem verður birt í
dag sýni að verðbólga hafi aukist.
bls. 4
Krem sem er nýkomið á
markað á að hjálpa þeim
konum sem vilja fá stærri brjóst.
bls. 9
| ÍÞRÓTTIR
Gest-
gjafarnir
alla leið?
SÍÐA 12
IrÓNLISlj
Rokkað í
Hafnarfirði
SÍÐA 14