Fréttablaðið - 12.06.2002, Qupperneq 14
14
FRÉTTABLAÐIÐ
12, júní 2002 MIÐVIKUPAGUR
HÁSKOLABIO
Sýnd kl. 58 og 10.15
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10,15
ALIG
HJÁLP ÉG ER FISKUR
MULHOLLAND DRIVE
kl. 10.15
WAYNES WORLD
YOUCANCOUNrONME UL5As\ [APOCAiyPSENOWREDUX
8, Og 10
6
5mnnn\± niú
Sýndkl. 5.30, 8 og 10.30
PR Sýnd kl. 7.30 og 10
HIGH CRIMES
kl. 5.30 8 OC 10.30
Sýnd kl. 5, 8 og 10.50
STW Sýnd kl. 4.30
SPIDERMAN kl. 5,8 og 10.30 B.1.101
í>64 0000 v/ww.smar;j^0jís
Sýnd kl. 4,6,8 og 10.10 bXlG Sýnd kl. 4,6,8 og 10 vitmi__________
Sýnd kl. 6, 8 og 10.10 b.L16 , J jHJÁLP ÉC ER FISKUR kl. 4 og 6 b.i. 16 [ |^|
[SKRÝMSLI HF kl.2 ÍQUEEN OF THE DAMNED kl.5.50, 8 og 10.10 b.i. 16 j
;THE MAIESHC kl.8 (GfS [RESÍDENT EVIL kl. 10.10 b.i. 16 |fí£l
jBUBBLE BOY kl. 4, 6 og 81 jJIMMY NEUTRON m/isL tali kL4|^!
V/ðaro/íur
Klæðninga*
MALARINN#A
Bæjarlind 2 • Kópavogi • Simi: 581 3500
Heímsending og sótt
Alltof spennandi
titboði
Frábcer hóptilbod
fyrir afmœlisveislur!
\ 5 4
Tzzq
Hl
Grensásvegi 12 ■ Simi: 533 2200
HENCO
Alpex rör
Sérlega meðfærileg
rör til vatns- og
hitalagna.
Val um presstengi
eða skrúfuð tengi
Hí VA TNS VIRKINN ehf.
Ármúla 21, Sími: 533-2020
Handfrjáls búnaður..
FRÉTTIR AF FÓLKI
Leik- og söngkonan Jennifer
Lopez hefur sagt skilið við
eiginmann sinn, dansarann Chris
Judd, eftir aðeins
9 mánaða hjóna-
band. Slúðurblöð-
in hafa haldið því
fram að hún sé
tekin aftur saman
við rapparann
Sean „Puff
Daddy/P. Diddy“
Combs. Sjálfur vill hann nú ekki
kannast við það en óskar henni
alls hins besta á þessum erfiðu
tímum.
Saksóknarar í máli leikkonunn-
ar Winonu Ryder, sem sökuð
er um búðarhnupl, segjast geta
sannað að stúlkan sé stelsjúk og
að hún hafi átt við þetta vanda-
mál að stríða í talsverðan tíma.
Ekki er vitað hvernig þeir ætla
að fara að því þar sem Ryder
hefur ekki farið á sakaskrá til
þessa.
Nú hefur skiln-
aðarvottorð
liðsmanna dúetts-
ins The White
Stripes verið birt
á Netinu. Eftir að
sveitin öðlaðist
velgengni í Evr-
ópu urðu miklar
vangaveltur um
tengsl parsins en
þau héldu því alltaf fram að þau
væru systkini. í síðustu viku
birtist svo skyndilega brúð-
kaupsvottorð þeirra þar sem
kom fram þau hefðu gengið í það
heilaga árið 1996. Á skilnaðar-
vottorðinu kemur fram að þau
skildu í febrúar árið 1999.
Sýnishorn úr næstu mynd um
galdramanninn unga Harry
Potter er nú fáan-
legt á Netinu. Á
slóðinni
harrypotter.warn-
erbros.co.uk má
finna 34 sek-
úndna brot úr
„Harry Potter
and the Chamber
of Secrets" en
hún verður frumsýnd fyrir
næstu jól. í brotinu má meðal
annars sjá Harry Potter og fé-
laga hans Ron fljúga um á bíl
* 1
0»
Hafnarfjörður rokkar
Hljómsveitin Botnleðja er úr Hafnarfirði. Þar styðja menn við bakið á
sínu listafólki og bærinn studdi þá félaga út til tónleikahalds í Evrópu
gegn því að sveitin lífgaði upp á bæjarlífið. Botnleðja býður því börn-
um og unglingum að taka þátt í tónlistarsmiðju í lok mánaðarins.
tónlist Máltækið segir að grasið
sé ávallt grænna hinum megin
sama hvar þú ert staddur. í tilviki
tónlistarmanna er þetta hins veg-
ar staðreynd. Ekki það að grasið
sé svona betra á bragðið annars
staðar en hér á íslandi, það er ein-
faldlega meira af því. Rollurnar
hér eru of margar á litlum bletti
sem fótboltamenn myndu ekki
einu sinni sætta sig við að leika á.
Það sem hefur þó haldið lista-
mönnum frá því að hoppa yfir
girðinguna á næsta blett er sú að
hún er há. Aðeins einn útgangur
er á girðingunni og vörðurinn vill
fá meiri ull fyrir stuttar skoðun-
arferðir á græna stóra túnið hin-
um megin en flestar rollurnar ná
að safna á einu ári. Þá kemur sér
vel að þekkja bóndann sem á
birgðir af ull.
Hafnarfjarðarbær hugsar um
lömbin sín eins og piltarnir í
rokkhljómsveitinni Botnleðju
fengu að finna þegar þá vantaði
ull til að komast í tónleikaferða-
lag um Evrópu með bandarísku
sveitinni Sparta.
Bærinn og Æskulýðs- og tóm-
stundaráð Hafnarfjarðar styrktu
hljómsveitina og þakkar Botn-
leðja fyrir sig með því að halda
tónlistarsmiðju daganna 28.-29.
júní. Þar fá börn og unglingar
tækifæri til að kynnast tónlist,
tónlistarbransanum, hljóðfærum,
tónlistarfólki og öðrum krökkum
með sama áhugamál. Yfirskrift
smiðjunnar er „Hafnarfjörður
rokkar".
í lok smiðjunnar, á laugardags-
kvöldinu, heldur Botnleðja svo
tónleika í Straumi ásamt Sign,
Úlpu, öðrum hafnfirskum sveitum
og þátttakendum smiðjunnar.
Áhugasamir geta skráð sig
með því að senda beiðni á
botnledja@botnledja.is. Áætlað
er að foreldrar fái fullan aðgang
að smiðjunni frítt til að gera þeim
kleift að taka þátt í ævintýrinu
með börnum sínum.
Tónleikaferðalagið um Evrópu
gekk framar öllum vonum en
Islendingum gefst færi á að
heyra í vel samæfðri
Botnleðjunni á Arnarhóli á 17.
júní. Sveitin gaf nýverið út
smáskífuna „In Line“ í Bretlandi
og fékk hún misgóðar viðtökur
hjá gagnrýnendum.
biggi@frettabladid.is
BOTNLEÐJA
Allar nánari upplýsingar um rokksmiðju Botnleðju er að finna á heimasíðu þeirra www.botnledja.is.
System of a Down:
Ný smáskífa
væntanleg
tónlist Hljómsveitin magnaða
System of a Down undirbýr nú
þriðju smáskífuútgáfuna af hinni
mögnuðu breiðskífu „Toxicity".
Lagið heitir „Aerials" og verður
gefið út þann 8.júlí næstkomandi.
Hljómsveitin var stofnuð árið
‘95 og gaf út fyrri breiðskífu sína
þremur árum síðar. Vinsældir
hennar hafa vaxið ört og aðdá-
endahópurinn orðinn talsvert stór
áður en önnur breiðskífan skaut
þeim upp á meginstrauminn.
Slagarinn „Chop Suey“ var það
sem þurfti til að tryggja vinsæld-
irnar.
Bassaleikarinn, Shavo Odadji-
an, ætlar að leikstýra myndbandi
lagsins. Hann gerði einnig mynd-
band lagsins „Toxicity". ■
SYSTEIVI OF A DOU/N
Á góðri leið með að verða ein vinsælasta rokkhljómsveit Bandaríkjanna.