Fréttablaðið - 12.06.2002, Page 16
VRÉTTABLAPfÐ
’2.'júni'?.0Q2 MÐyiKUPAGUKf
Hollywood vill frelsi:
Kosið um hvort bíó-
borgin verður sjálfstæð
Upphaf og endir
„Að drepast"
Sigtryggur Krístinsson, skynlaust vinnudýr.
stjórnmál íbúar Hollywood
ganga til kosninga 5. nóvember
næstkomandi. Þar kjósa þeir um
það hvort kvikmyndaborgin
verður sjálfstæð borg eða áfram
hluti af Los Angeles. Margir
kvikmyndakónganna kvarta sár-
an yfir því að þeir borga meiri
skatt en borgin fær til umráða.
Ef íbúar Hollywood og aðrir í
Los Angeles samþykkja aðskiln-
aðinn verður Hollywood 184
þúsund manna borg með tæp-
lega sautján milljarða króna í
tekjur og rúmlega fimmtán
milljarða í árleg útgjöld. Hins-
vegar verður að borga Los Ang-
eles árlegt „meðlag“ upp á tvo
milljarða í 20 ár til að bæta upp
tapaðar tekjur.
Ekki er víst hver niðurstaðan
verður. Margir eru fylgjandi að-
skilnaði og aðrir á móti honum.
Hollywood varð hluti af Los
Angeles árið 1910 vegna vatns-
skorts. ■
Þekking stúdenta í þágu
þjóðar:
Tíu sveitar-
félög fá af-
henta styrki
stvrkir Tómas Ingi Olrich
menntamálaráðherra afhendir í
dag 15 styrki úr sjóðnum Þekk-
ing stúdenta í þágu þjóðar til
nemenda í Háskóla íslands. Af-
hendingin fer fram í Tækni-
garði, Dunhaga 5. Auk ráðherra
munu formaður stjórnar sjóðs-
ins, Ingunn H. Bjarnadóttir, og
formaður Stúdentaráðs,
Brynjólfur Stefánsson flytja
stutt ávörp.
Sjóðurinn er tilraunaverkefni
til eins árs, samstarfsverkefni
Stúdentaráðs, Byggðastofnunar,
Rannsóknaþjónustu Háskólans,
Sambands íslenskra sveitarfé-
laga og nokkurra sveitarfélaga.
Markmið sjóðsins er að auka
rannsóknarstarf á landsbyggð-
inni og vekja athygli stúdenta á
rannsóknartækifærum og að-
stöðu til rannsókna á lands-
byggðinni.
Styrkirnir renna til verkefna
í 10 sveitarfélögum. Þau eru
Akraneskaupstaður, Akureyrar-
kaupstaður, Fjarðabyggð,
Grindavíkurkaupstaður, Sveit-
arfélagið Hornafjörður, ísa-
fjarðarbær, Sandgerðisbær,
Stykkishólmsbær, Tálknafjarð-
arhreppur og Vestmannaeyja-
bær. ■
MIÐVIKUPACURINN
12. JÚNI
FUNDIR______________________________
16.00 Tómas Ingi Olrich menntamála-
ráðherra afhendir 15 styrki úr
sjóðnum Þekking stúdenta í
þágu þjóðar til nemenda í Há-
skóla Islands I Tæknigarði við
Dunhaga. Formaður stjórnar
sjóðsins, Ingunn H. Bjarnadóttir,
og formaður Stúdentaráðs,
Brynjólfur Stefánsson, flytja stutt
ávörp.
TÓNLEIKAR___________________________
20.00 Mozartveisla í Eskifjarðarkirkju.
Þar verða leiknir forleikir, dúettar
og aríur úr Mozart-óperum ásamt
fagottkonsert, hornkonsert og
fiðlukonsert. Hluti af tónlistarhá-
tiðinni Bjartar nætur í júní.
21.00 Hljómsveitirnar Fídel, Dust og
Kimono leika á Stefnumótum
Undirtóna á Gauki á Stöng. 500
króna aðgangseyrir.
LEIKHÚS_____________________________
10.00 Brúðubíllinn mætir á Fróðengi
og sýnir leikritið Óþekktarormar.
Klukkan 14 er Brúðubíllinn kom-
inn vestur í bæ og sýnir I Frosta-
skjóli.
20.00 Uppselt á Veisluna í leikstjórn
Stefáns Baldurssonar I Þjóðleik-
húsinu.
21.00 Uppselt á einleikinn Sellófón í
Hafnarfjarðarleikhúsinu. Björk
Jakobsdóttir samdi og leikur.
MYNPLIST____________________________
Um síðustu helgi opnaði sumarsýning
Listasafns Reykjavíkur - Kjarvalsstaða.
Hún heitir Maður og borg. Þar eru vek
eftir tæplega fimmtíu myndlistarmenn,
frá árinu 1930 til 2000, og tengjast þau
borginni á einn eða annan hátt
Stökktu til
Rimini
4. júlí
frá 49.663.-
Síðustu sætin
Ótrúlegt tilboð á síðustu sætunum til
Rimini þann 4. júlí í tvær vikur. Sumarið er komið og yndislegt veður á
þessum vinsæla áfangastað íslendinga. Þú bókar núna, og tryggir þér síð-
ustu sætin, og fjórum dögum fyrir brottför hringjum við í þig og tilkynnum
þér hvar þú býrð. Og að sjálfsögöu nýtur þú traustrar þjónustu fararstjóra
Heimsferða allan tímann.
kr 49.663 Verð kr. 59730
Verð
M.v. hjón með 2 böm, 2-11 ára.
Flug, gisting, skattar, 4. júlí, 2 vikur.
Staðgrrítt.Alm.vofl kr. 52.251
M.v. 2 í íbúð, 4. jíilí í tvær vikur
Flug og gisting, skattar
Staðgreitt. Alm. Verð kr. 62.738
Heimsferðir
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Hvítur maður
með rautt nef
í haust heldur Hlynur Páll Pálsson til Indlands. Þar ætlar hann að
bregða sér í hlutverk trúðsins Nóa og gleðja munaðarlaus, indversk
börn með leik og skemmtun.
hjAlparstarf „Við förum til tólf SOS-
barnaþorpa víðsvegar um Indland
og verðum þná til fimm daga á
hverjum stað. I hverju þorpi er ætl-
unin að taka upp stuttmynd, sem
börnin semja og leika í,“ segir
Hlynur Páll Pálsson. Hann heldur
af stað í byrjun september ásamt
Hafsteini Gunnari Sigurðssyni
kvikmyndagerðarmanni. Ferð þeir-
ra um Indland tekur rúma þrjá
mánuði. „Síðan verður gerð heim-
ildarmynd um ferðina til að sýna ís-
lenskum skólabörnum líf barna í
framandi löndum," segir Hlynur.
Persónan sem indversku börnin
fá að kynnast er trúðurinn Nói.
Hlynur bregður sér í hlutverk hans
til að skemmta þeim. „Nói er leik-
hústrúður, ekki sirkustrúður. Hann
þarf bara rautt nef til að vera til. Ég
ætla að verða mér úti um föt í stíl
innfæddra til að vera ekki fram-
andi. Bara hvítur maður með rautt
nef. Það gerir börnunum gott að sjá
vestrænt fólk, sem kemur aðeins til
að leika við þau og gera lífið
skemmtilegra."
Hugmyndin að verkefninu varð
til þegar Hlynur eyddi degi í SOS-
barnaþorpi í Marokkó. „Ég var þar
staddur ásamt íslendingum í al-
þjóðlegu listaverkefni. Það eina
sem við gerðum var að leika við
börnin og það var mjög gefandi fyr-
ir alla viðstadda. Ulla Magnusson
hjá SOS-barnaþorpunum hjálpaði
okkur og kom okkur í samband SOS
á Indlandi. Við gistum hjá þeim en
borgum annan ferðakostnað sjálfir.
Hvorugur okkar hefur komið til
Indlands áður. Ástæðan fyrir því að
landið varð fyrir valinu er fólks-
fjöldinn og gífurleg fátækt. Það er
nær vonlaust fyrir þessi munaðar-
lausu börn að vinna sig upp í rót-
grónu stéttasamfélagi."
Hlynur hefur undirbúið ferðina í
rúmt ár. Nauðsynlegt var að fá ótal
sprautur og fara í bólusetningai'.
Hann sótti víða um styrki en fékk
aðeins jákvæð viðbrögð hjá Menn-
ingarsjóði Islandsbanka og Hag-
Gerð verður heimildarmynd um ferðina, sem verður vonandi sýnd íslenskum skóla-
börnum.
Liza Minelli:
Skrifar ævisögu sína
sviðsljós Leik- og söngkonan Liza
Minelli er byrjuð að rita endur-
minningar sínar. Leikkonan er
orðin 56 ára gömul og ætlar að
láta allt flakka í bókinni. Búist
er við því að hún muni þéna allt
að 63 milljónir króna fyrir vikið.
Liza Minelli hefur meðal ann-
ars þurft að glíma við áfengis-
og eiturlyfjavandamál. Hún
mun einnig segja frá ævi og
dauða móður sinnar, Judy Gar-
land, og erfitt samband sitt við
hálfsysturina Lornu Luft.
Það á að hafa verið nýi eigin-
maður hennar, leikritaframleið-
andinn David Gest, sem hvatti
hana til þess að kveða niður
drauga sína með þessum hætti.
Lorna Luft skrifaði eitt sinn
metsölubókina „Me and My
Shadows" um ævi sína og móður
þeirra Lizu, Judy Garland. Síðar
var sú þók kvikmynduð. ■
LIZA MINELLI
Ævi hennar hefur víst ekki verið neinn
kabarett.