Fréttablaðið - 12.06.2002, Síða 17
f Í2HI21ÍJ HUOMADJIT H3 R3VH I
Bókaforlagið Bjartur:
Endurmenntun Maó formanns
bækur í vikunni kemur út skáldsag-
an Balzac og kínverska saumastúlk-
an eftir kínverska rithöfundinn Dai
Sijie. Sagan kemur út í íslenskri
þýðingu Friðriks Rafnssonar. Hún
fjallar um ástina, heimsbókmennt-
irnar og hlutskipti ungs fólks í kín-
verska alþýðulýðveldinu á dögum
Maó formanns.
Tveir piltar eru sendir í „endur-
menntun" í afskekkt fjallaþorp
snemma á áttunda áratugnum.
Glæpur þeirra felst í að vera synir
nienntafólks, læknis og tannlæknis.
f þorpinu er ekkert sem svalað get-
ur lífsþorsta þeirra, ef frá er talin
fallega saumastúlkan í næsta þorpi
og forboðin ferðataska úr slitnu en
Baizac oq
kinverska
saumasfulRan
BALZAC ...
Siglir í kjölfar þekktra verka á borð við Villt-
ir svanir og Minningar geishu.
fínlegu leðri sem er full af bókum
eftir franska, rússneska og enska
rithöfunda.
Þetta er fyrsta skáldsaga Dai Si-
jie en hann hafði áður getið sér gott
orð sem kvikmyndaleikstjóri. Verk-
ið kom út í Frakklandi árið 2000 og
fékk afbragðsdóma, hlaut margvís-
leg frönsk bókmenntaverðlaun,
komst á metsölulista og hefur nú
verið þýdd á um 25 tungumál. Á
kvikmyndahátíðinni í Cannes á dög-
unum frumsýndi Dai Sijie kvik-
mynd byggða á skáldsögu sinni. Þó
hann hafi fengið leyfi til að taka
myndina á vettvangi í Kína hefur
hann ekki fengið sýningarleyfi fyr-
ir hana þar í landi.
Balzac og kínverska sauma-
stúlkan er sextánda bókin sem kem-
ur út í neon-flokki Bjarts, sem legg-
ur áherslu á nýleg og framúrskar-
andi verk. ■
Stangveiði:
Ný alhliða
handbók
stancveíbí Fyrsta bindi nýrrar
handbókar um stangveiði er kom-
in út. Bókin er eftir Eirík St. Ei-
ríksson, sem m.a. hefur verið rit-
stjóri tímaritsins Veiðimannsins.
Fyrsta bindið ber undirtitilinn
Frá Brynjudal að Brunasandi. í
bindinu er því fjallað um 170 ár og
vötn sem standa stangveiðimönn-
um til boða frá Hvalfirði að Fljóts-
hverfi í Vestur-Skaftafellssýslu.
Eríkur lýsir veiðistöðum og
bendir á agn og veiðiaðferðir.
Greint er frá því hvernig hægt er
að nálgast veiðileyfi.
. .VBBfcw
STANGVEIÐIHANDBÓKIN
Veiðisögur eru meðal efnis I nýrri handbók
um stangveiði.
120 ljósmyndir og 42 skýring-
arkort eru í bókinni. ■
HLYNUR PALL PALSSON
Hann fer til Indlands í haust til að heimsækja SOS-barnaþorp og skemmta íbúum
þeirra með söng, dansi, töfrabrögðum og fjöri.
þenki, félagi höfunda fræðirita
og kennslugagna. „Það var að-
eins dropi í hafið. Það hryggir
mig að sjá að í þessu kapitalíska
þjóðfélagi styrkir enginn gott
málefni án þess að sjá fram-á
gróða. Það vilja fáir stuðla þan-
nig að betri heimi.“
„Það er vissulega stórt verk-
efni að hjálpa bágstöddum börn-
um heimsins. En það þýðir ekki
að hætta við vegna þess að verk-
efnið er of stórt. Það verður að
byrja einhvers staðar. Þó við
förum aðeins til tólf þorpa er
þetta, eins og ég segi stundum,
eldspýta vonarglætu. Margar
eldspýtur gera stórt bál,“ segir
Hlynur að lokum.
Ef einhver vill aðstoða eða fá
frekari upplýsingar um ferðina
er netfang Hlyns dadarad-
ara@hotmail.com.
halldor@frettabladid.is
Sírnir H. Einarsson og Ýr Róbertsdóttir
standa að sýningunni SírnÝr í sal Dom-
us Vox við Skúlagötu (fyrrum Casa-
blanca). Ýr sýnir abstrakt málverk með
leturhugleiðingum en Sírnir vinnur aðal-
lega fígúratíft í grafík. Sýningin stendur
til 14. júní.
Textíllistamaðurinn Yoichi Onagi frá Jap-
an sýnir verk sín í Hafnarborg, menn-
ingar- og listastofnun Hafnarfjarðar.
í Listasafni Kópavogs stendur yfír fyrsta
sýningin úr Listaverkasafni Þorvaldar
Guðmundssonar og Ingibjargar Guð-
mundsdóttur. Meðal annars eru til sýnis
fjögur verk eftir tvo færeyska lista-
menn, S. Joensen Mikines og Ingálvur
av Reyni. Sýningin stendur til 28. júlí.
Nemendasýning svart/hvíta hópsins úr
Ljósmyndaskóla Sissu stendur nú yfir á
Tapasbarnum við Vesturgötu. Sýningin
stendur til 30. júní.
Björg Sveinsdóttir sýnir myndir teknar á
tónleikum hljómsveitarinnar Sigur Rós-
ar í Laugardalshöll, Listasafni Reykjavík-
ur, Montreux og London á Kaffitári við
Laugaveg. Sýningin er opin á verslunar-
tíma og lýkur 1. ágúst.
Maria Krístin Steinsson sýnir olíumál-
verk í Listhúsinu í Laugardal. Sýningin
stendur til 29. júní.
Listin meðal fólksins er yfirskrift sýningar
í Ásmundarsafni. Á sýningunni verða
verk Ásmundar Sveinssonar mynd-
höggvara skoðuð út frá þeirri hugsjón
hans að myndlistin ætti að veraÝ hluti af
daglegu umhverfi fólks en ekki lokuð
Orange-bókmenntaverðlaunin:
Sex keppa um
verðlaunin
bókwenntir Birtur hefur verið listi
þeirra sex rithöfunda sem til-
nefndar hafa verið til Orange-
bókmenntaverðlaunanna í ár.
Verðlaunin voru sett á laggirnar
árið 1996 og eiga að
vekja athygli á rit-
verkum breskra
kvenrithöfunda.
Verðlaunin eru
ávísun upp á 30 þús-
und pund (um 3,9
milljónir íslenskra
kr.) sem ónafn-
greindur styrktar-
aðili greiðir ár
hvert.
Konurnar sex
sem eiga bækur á
HELEN
DUNMORE
Fær hér aðra
tilnefningu
sípa- Hún vann tilnefningarlistan-
um þetta árið eru
rithöfundarnir Anna
Burns, Helen Dunmore, Maggie
Gee, Chloe Hooper, Ann Patchett
og Sarah Waters. Ein hefur unnið
sömu verðlaun
árið 1996.
TILNEFNINGAR TIL ORANGE
BÓKMENNTAVERÐLAUNANNA
2002:
Anna Burns - No Bones
Helen Dunmore - The Siege
Maggie Gee - The White Family
Chloe Hooper - A Child's Book of
True Crime
Ann Patchett - Bel Canto
Sarah Waters - Fingersmith
verðlaunin áður, Helen Dunmore
árið 1996 fyrir bók sína A Spell of
Winter Viking, en tvær hinna til-
nefndu voru að gefa út sínar
fyrstu bækur.
í fyrra vann bókin The Idea of
Perfection eftir Kate Grenville.
Athygli hefur vakið í bókmennta-
heimum Breta að skáldsaga
Joanne Harris, Five Quarters of
the Orange, sem hefur selst afar
vel, er ekki á meðal tilnefndra.
Orange-bókmenntaverðlaunin
verða afhent á morgun. ■
ERUNOUK MHSiOH
SKUGGINN
AF SVARTRI
FLUGU
SKUGGINN AF SVARTRI FLUGU
Ný sakamálasaga:
Rót á til-
veruna
bækur Skugginn af svartri flugu,
nefnist sakamálasaga með þjóð-
sögulegu ívafi eftir Erlend Jóns-
son sem komin er út. Sagan gerist
í Reykjavík og víðar um og fyrir
nýliðin aldamót. Söguhetja, sem
jafnframt er sögumaður, er opin-
ber stai-fsmaður á miðjum aldri.
Hann er einhleypur og lifir frem-
ur tilbreytingarsnauðu lífi. Jafn-
væginu í lífi hans er svo raskað af
utanaðkomandi atburðum.
Bókin er 190 blaðsíður að lengd
og er gefin út af bókaútgáfunni
Smáragili. ■
Fjallamjólk Kjarvals:
Málverkið lánað til Kjarvcilssafns
FJALLAMJÓLK
Jóhannes S. Kjarval (1885-1972): Fjallamjólk (1941). Olía á striga, 110x146. Fjallamjólk
hefur verið sýnd á fjölda sýninga sem kynna Kjarval, Þingvelli eða íslenska myndlist bæði
heima og erlendis. Myndir af málverkinu hafa oftar en einu sinni prýtt kápusíður á bókum
og sýningarskrám.
myndlist Við opnun sumarsýningar
Listasafns Reykjavíkur, Maður og
borg, á Kjarvalsstöðum 7. júní var
tilkynnt, að Listasafn ASÍ hefur
lánað hið fræga málverk Fjalla-
mjólk (1941) eftir Jóhannes S.
Kjarval til Kjarvalssafns Lista:
safns Reykjavíkur. Listasafn ASÍ
átti frumkvæði að því að lána
þetta lykilverk til Listasafns
Reykjavíkur til lengri tíma, með
það í huga að það verði hluti af yf-
irlitssýningu á verkum Jóhannes-
ar S. Kjarvals í Listasafni Reykja-
víkur.
Málverkið Fjallamjólk telst til
meginverka íslenskrar listasögu
og er afar dýrmætur hluti af
menningararfi þjóðarinnai’. Það
er því eðlilegt að slíkur dýrgripur
sé varðveittur og sýndur þar sem
flestir geta séð og notið hans. Með
því að lána Fjallamjólk til sýning-
ar í Kjarvalssafni Listasafns
Reykjavíkur vill Listasafn ASÍ
stuðla að því að verkið sé alltaf
aðgengilegt almenningi og hægt
sé að skoða það í samhengi við
önnur öndvegisvei’k listamanns-
ins.
Listasafn ASÍ eignaðist þetta
einstæða listaverk Kjarvals 1961,
en verkið var mikilvægur hluti af
frumgjöf Ragnars Jónssonar til
safnsins. Kjarval málaði Fjalla-
mjólk 1941 og er það talið eitt af
öndvegisverkum listamannsins. í
Kjarvalskveri Matthíasar Johann-
essen kemur fram að Kjarval hafi
gert lauslegt svartkrítai’uppkast
af verkinu á léreft við Flosagjá,
en síðan fullmálað það í vinnu-
stofu sinni í Austurstræti. ■
Tímaritið Islenskt mál:
Greinar um málfræðileg efni
inni á söfnum.
í anddyri Borgarleikhússins sýna nem-
endur Myndlistaskólans í Reykjavík í
samvinnu við Borgarbókasafn. Sýningin
nefnist ...með endalausum himni...
Myndverkin eru unnin undir hughrifum
frá textum Halldórs Laxness.
SÝNINGAR___________________________
Allir leikir HM 2002 í fótbolta eru sýndir
beint á stóru tjaldi í HM-heiminum í
Vetrargarðinum í Smáralind. ( HM-
heiminum er einnig að finna sandlagð-
an strandboltavöll, knattþrautavöll með
marki.
Tilkynningar sendist á netfangið
ritstjorn@frettabladid.is
bækur Út er kominn 23. árgangur
tímaritsins íslenskt mál og al-
menn málfræði. Efni heftisins er
fjölbreytt að venju. Þar er að
finna ítarlegar fræðilegar greinar,
umræðugreinar, smágreinar, at-
hugasemdir, orðfræði, ritdómar
og ritfregnir.
Heftið er liðlega 300 blaðsíður
á lengd. íslenska málfræðifélagið
gefur tímaritið út og er Höskuldur
Þráinsson ritstjóri þess. ■
17juni.is