Fréttablaðið - 12.06.2002, Page 23

Fréttablaðið - 12.06.2002, Page 23
MIÐVIKUPAGUR 12. júní 2002 23 [ FÓLK í FRÉTTUM j Ungir jafnaðarmenn sendu frá sér ályktun í gær þar sem harmað er að borgaryfirvöld vilji banna einkadans á svokölluðum nektardansstöðum á þeim for- sendum að þar sé stundað vændi. Fjölmiðlar sinntu þessari ályktun vel. Meðal annars vildi Rás 2 fá Bryndísi ísfold, formann ungra jafnaðarmanna í Reykjavík, í við- tal. Þegar hún komst ekki og Sig- urður Hólm Gunnarsson, stjórn- armaður í UJ, bauð fram krafta sína og rödd var það afþakkað og málið fellt niður. Ætli það sé ekki kallað jákvæð mismunun á ríkis- miðlinum. Ungliðahreyfingarnar eru dug- legar að álykta þessa dagana. Heimdallur, Ungir jafnaðarmenn í Reykjavík og Samband ungra framsóknarmanna sendu frá sér yfirlýsingu í tengslum við heim- sókn forseta Kína, Jiang Zemin. Síðar sama dag kom yfirlýsing frá framkvæmdastjórn Sam- bands ungra sjálfstæðismanna. Þar eru ungir sjálfstæðismenn af öllu landinu hvattir til að taka þátt í mótmælum gegn ógnar- stjórninni í Kína og mannrétt- indabrotum. Nú er vertíð hjá popphljóm- sveitum landsins. Hver ein- asta rúta uppgerð með kojum, borðum og bekkjum og vfir- spenntum glömrurum. Á fjöl- miðla streyma tilkynningar um hvar fjörið verður næst. Á móti sól, Land og synir og Buttercup munu trylla ljúflinga á lands- byggðinni. Viðburðir þessir eru orðnir jafn sjálfsagðir og sauð- burðurinn á vorin. Fjölmiðlar geta oft verið að- gangsharðir við öflun frétta. Stundum verður að halda f jöl- miðlamönnum í vissri fjarlægð í lögregluaðgei’ðum og gengur samstai'f þessara hópa oftast vel. í tengslum við Falun Gong er starf lögi’eglumanna erfitt. Flest- ir sjá að þarna fer friðsamt fólk sem ekki vill neinum illt. Setja margir þeiri’a upp mæðusvip í starfi sínu á Keflavíkurflugvelli þessa dagana enda aðgerðii’nar mörgum ekki að skapi. En fylgja skal yfii’boðurum. Mjög mai’gir íslenskir emb- ættismenn hafa farið í heim- ókn til Kína í boði þarlendra stjórnvalda. Eru þessar boðsferð- ir vinsælar meðal embættis- manna ríkisins og oft fylgja skemmtilegir stjói’nmálamenn með. „Menn eru ekki búnir að vera ráðherrar í mánuð þegar þeir eru farnir til Kína,“ sagði einn í stjórnkerfinu við Frétta- blaðið. Þá eru hugsjónir um mannréttindi f jarlægar í hugum þessa fólks enda í góðu yfirlæti. Kannski það hafi áhrif á af- greiðslu mála í stjórnkerfinu gagnvart kínverskum stjórnvöld- um. Vefurinn er áhrifaríkur vett- vangur til að skipuleggja mótmæli. Á kjosa.is er þegar byrjað á skipulagningu mótmæla vegna komu Jiang Zemin. „Okkur ber skylda til að mótmæla fyrir hönd þeirra sem kjörnir fullti’úar okkar vilja þagga niður í,“ segir á vefsíðunni. Þar er bii’t dagski'á yfir mótmælastöður og nýjustu upplýsingum miðlað til almenn- ings. Fólk getur skráð sig á póst- lista og fengið nýjustu upplýsing- ar í tölvupósti. „Ekki beita of- beldi eða dónaskap, slík hegðun skemmir fyrir,“ eru skilaboð sem eru til fyrirmyndar á svona síðu. Löng bílaleSt lagði leið sína til Njarðvíkur til að mótmæla fyrir utan Njai’ðvíkurskóla. Þar er Falun Gong-liðum haldið. , Keyrði lestin á 60 km hraða og mátti sjá bíl við bil svo langt sern augað eygði. Allt í einu stoppaði lestin. Enginn vissi hvað var á seyði en eftir stutta stund komst hreyfing á lestina aftur. Fai’þegi í fremsta bílnum þurfti nefnilega aö pissa og bað bílstjói-ann að stoppa á rneðan hann kastaði af sér vatni. Auðvitað þurftu allir friðelskandi menn að bíða einnig. Paul McCartney giftir sig: Allt sem þú þarft er ást, aftur SVIÐSLJÓS Mikil leynd ríkti yfir brúðkaupi Bítilsins Paul McCartneys og fyi’rum fyrirsæt- unnar Heather Mills í gærdag. Brúðkaupið fór fram í 17. aldar kastala í Monaghan-sýslu, rétt hjá bænum Glaslough í írlandi, og var mikið fjölmiðlafár þegar gestirnir byi’juðu að mæta á staðinn. Fyrstu gestirnir flugu inn á svæðið með þyrlu til að forðast forvitin augu blaðaljósmyndara. Talið er að um 300 fjölskyldu- meðlimir og vinir hafi verið í veislunni. Þar á meðal má nefna ti’ommai’ann Ringo Starr, Chrissie Hynde, Jools Holland, George RINGO STARR Flaug á einkaþotu sinni til írlands og beint upp í limósíuna. Hann flutti vist ræðu í veislunni. Martin, fyrirsætuna Twiggy og Dave Gilmour gítarleikara Pink Floyd. Paul hafði þó gantast með það þegar hann hitti blaðamenn að það yrðu í mesta lagi um 10 fræg- ir einstaklingar á meðal gesta. Börn Pauls úr fyrra hjónabandi hans við Lindu Eastman, sem lést árið 1998 úr bi’jóstakrabbameini, voru öll á staðnum. Það var fjöl- skylda einnig. Paul McCartney kynntist He- ather Mills ári eftir að Linda lést og bað hennar í fyrra. Hún klæddist brúðarkjól sem hún gerði sjálf með aðstoð tveggja fatahönnuða. ■ PAUL OG HEATHER Hér sést parið Ijóma af hamingju þegar þau hittu blaðamenn, daginn fyrir brúð- kaupið. Risa-rýmingarsala á fartölvum og fleiri tækjum, ótrúlegt verð. Við bjóðum þér fartölvur með allt að 80.000 kr. afslætti - og Trecento skrifborðsstól í kaupbæti. Takmarkað magn! Fyrstir koma, fyrstir fá! Skrifborðsstóll llU Webnote P4, 1,6 GHz Intel Pentium 4, 1,6 GHz örgjörvi. Win XP. 80.000 kr. verðlækkun. Presario fartölva ly AMD DURON 850 MHz örgjörvi. IPC Helios Pentium IV Intel Pentium IV 1,6 GHz örgjörvi. 17" TATUNG margmiðlunarskjár. 40 GB Ultra-DMA harður diskur. 256 vinnsluminni. 16 DVD drif og geislaskrifari. ÝMISLEGT ÓDÝRT VERÐ ÁDUR TATUNG 15” LCDskiár. 49.900 59.900 Lexmark Z43, einn sá albesti. 14.900 19.900 Lexmark Z33, frábær heimilsprentari. 12.900 15 900 Lexmark Z23, sá ódýrasti. 7.900 9.900 HP 920 X, traustur og góður. 14.900 15.900 Toshiba Satelite 3000 fartölva, Plll 900 r im iiii iiii ini i Skrifstofumarkaður Opið virka daga 10-18 Skeifunni 11d • Sími 533 1010 GRIFFILL

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.