Fréttablaðið - 21.06.2002, Page 24
I
FRETTABLAÐ
b
F
E
\
í
SlMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 20, dreifing@frettabladid.is
ViÐ SECJIIM FRÉTTIR Fréttavefurinn á VÍSÍr.ÍS Fyrstur með fréttirnar
Trúlofunar- og
giftingarhringir
20% afsláttur í takmarkaðan tíma
www.gunnimagg.is
HEIMAGÆSLA
ORYGGISMIÐSTÓÐ ÍSLANDS
BORGARTÚNI 31 • SfMI 530 2400
WWW.0I.IS
Bakþankar
Eiríks Jónssonar
Kínverska
Þegar öllu er á botninn hvolft vor-
um við ekki alveg nógu kurteis
; við kínverska forsetann þegar hann
i kom hingað til lands um daginn.
Margir af helstu hugsuðum íslensku
þjóðarinnar stigu á stokk og úthúð-
t uðu gestinum sem glæpamanni og
t gott ef ekki vitleysingi.
r —4—
MÁ VERA. En eitt gleymdist. Kin-
verski forsetinn er þrátt fyrir allt
höfuð einnar mestu menningarþjóðar
heims sem hefur hugsað um rök til-
verunnar lengur en flestar aðrar. Og
með heimsfrægum árangri. Hvar
kannast ekki við Konfúsíus og for-
feðradýrkun hans. Eða Lao - tse og
Taoismann sem kenndi okkur öllum
að betra er að svigna en brotna. Saga
Kína er samofin heildrænni hugsun
mannkyns hvað sem líður stjórnar-
fari í landinu síðustu áratugi. Það
gleymist stundum að Kínverjar hafa
fyrir árþúsundum komist að þeirri
niðurstöðu að heildin skipti meira
máli en einstaklingurinn.
—4—
í KÍNA hefur austræn ró getið af
sér hugsun sem er önnur en hin sem
þroskast hefur af veikum mætti í
vestrænu írafári. Frelsi einstak-
-— lingsins er góðra gjalda vert en hef-
ur þó ekki verið formað í hugsana-
kerfi nema í um 200 ár. Kínverjarnir
tóku sér þúsundir ára til að hugsa
um það sama og komust að annarri
niðurstöðu.
—♦—
FLEST AF ÞESSU gleymdist þeg-
ar kínverski forsetinn tyllti hér nið-
ur fæti. Sannfæring vestrænnar
hugsunar logaði í íslenskum höfðum
sem höndlað hafa sannleikann um
hvaó sé mannkyni best. En sannleik-
urinn er afstæður. Menn mega trúa
því að Falun Gong sé leikfimisamtök
þeirra sem fara hægt í kollhnís.
Meinlaus samtök rólyndra. Kínafor-
seti iítur hins vegar svo á að samtök-
in séu stjórnarandstaða sín. Hann
lifir og hugsar eftir kenningum Kon-
fúsíusar um að virða eigi foreldra og
yfirvöld - skilyróislaust. En ef til vill
gengur honum verr að tileinka sér
hugsanir Lao - tse.
.-.1.4.—
LÆRDÓMURINN er þessi: Þegar
maður býður gestum heim er það
gert af kurteisi. Mótmæli og óspekt-
ir í gestaboðum eru ekki í anda kín-
verskrar hugsunar. Á Vesturlöndum
þykja þau hins vegar sjálfsögð. Enda
erum við ekki búin að hugsa málið
jafn lengi og bræður okkar í Kína. ■
Anm Mánudaga - föstudaga kl. 10:00
Vrlt/ Laugardaga kl. 10:00 - 17:00
Sunnudaga kl. 12:00 - 17:00
orðinn að veruleika
I tilefni af 80 ára afmceii Brœðranna Ormsson hafa þýsku
AEG verksmiðjurnar hafið framleiðslu á nýrri AEG þvottavél
fýrir hinn kröfuharða íslenska markað
Þessi fullkomna þvottavél er nú
á sérstöku afnuelistilboði
kr. 80.000
■ 1
mm )( mn
Umboósmenn um land allt