Fréttablaðið - 13.07.2002, Síða 2
2
FRÉTTABLAÐIÐ
18. júní 2002 ÞRIÐJUDAGUR
Reiðar konur í Nígeríu:
Umsátur um
olíufyrirtæki
WARRI. NÍGERÍU. ap Um það bil 150
konur hafa haldið útflutningsstöð
olíufyrirtækisins ChevronTexaco
í suðausturhluta Nígeríu í umsátri
undanfarna viku. Konurnar krefj-
ast þess að synir þeirra fái störf
hjá fyrirtækinu og rafmagni verði
veitt til þorpanna, þar sem þær
búa. Um það bil 700 starfsmenn
olíufyrirtækisins, þar á meðal
Bandaríkjamenn, Bretar og
Kanadamenn, hafa verið lokaðir
inni í húsakynnum þess vegna
umsátursins.
Konurnar vilja ekki semja við
neina aðra en æðstu yfirmenn fyr-
irtækisins. ■
BÓKANIR SVIPAÐAR
Hjá Flugleiðum finna menn ekki fyrir ótta
farþega við að ferðast 11. september.
Ameríkuflug Flugleiða:
Enginn ótti
við ellefta
september
ferðalöc Allt bendir til þess að
bókanir í Ameríkuflug Flugleiða
11. september verði með eðlileg-
um hætti þrátt fyrir ótta margra
við þá dagsetningu í ljósi voða-
verkanna á Manhattan og Penta-
gon þann dag í fyrra:
„Mér sýnast bókanir 11. sept-
ember vera svipaðar og venjulega
og engin verulegur munur á flugi
til og frá Ameríku," segir Birkir
Hólm sölustjóri hjá Flugleiðum.
„Vera má að upp komi einstaka til-
felli vegna dagsetningarinnar en
af þeim hef ég ekki frétt enn né
merkt á bókunum." ■
—«—
Samkeppnisráð:
Ólöglegt
Scimráð
flutninga-
fyrirtækja
VIÐSKIPTI Samstarf Samskipa og
Vöruflutninga Vesturlands um
rekstur sameiginlegrar vöruaf-
greiðslu í Borgarnesi auk vöru-
dreifingar og vörusöfnunar innan
bæjarins og í nágrannasveitum
brýtur í bága við samkeppnislög.
Samkeppnisráð komst aö þessari
niðurstöðu í gær, en samstarfið
brýtur í bága við ákvæði laganna,
sem fjallar um ólöglegt samráð.
Samkeppnisráð hefur hins
vegar ákveðið að veita fyrirtækj-
unum undanþágu frá ákvæðinu
að uppfylltu því skilyrði að sam-
starfið nái einungis til umræddr-
ar starfsemi í Borgarnesi. Þá er
fyrirtækjunum óheimilt að miðla
hvers konar viðskiptalegum upp-
lýsingum á milli sín nema sem
nauðsynlega leiðir af fram-
kvæmd samstarfsins. Fyrirtækj-
unum er ennfremur gert að upp-
lýsa Samkeppnisstofnun um allar
verðbreytingar á þjónustu sinni á
skilgreindum markaði næstu
þrjú ár. ■
Séra Baldur Rafn Sigurðsson í útvarpsmessu:
Blessaði Arna Johnsen
á elliheimilinu Grund
kirkiustarf „Fyrirgefningin er
tjáningarform kærleikans," segir
séra Baldur Rafn Sigurðsson sem
blessaði Árna Johnsen í messu á
elliheimilinu Grund um síðustu
helgi og hvatti vistfólk til að fyrir-
gefa þingmanninum fyrrverandi.
Messunni var útvarpað um land
allt en séra Baldur er að öllu jöfnu
sóknarprestur í Njarðvíkurkirkju.
Vistfólk á Grund tók ósk séra
Baldurs Rafns með jafnaðargeði
þó skiptar skoðanir væru á meðal
þeirra að messu lokinni.
ELLIHEIMILIÐ GRUND
Fyrirgefningin er tjáningarform kærleikans.
„Ég heyrði af þessu en geri ekki
athugasemdir við,“ segir séra Guð-
mundur Óskar Ólafsson, prestur á
Grund, sem fékk séra Baldur Rafn
til að messa þennan dag. Ræða
séra Baldurs var 20 mínútna löng
og kom hann víða við. Sjálfur seg-
ir hann: „Megininntak ræðu minn-
ar var að við eigum að láta dóm-
stólana dæma bæði í máli Árna og
öðrum. Það er ekki okkar þó dóm-
stóll götunnar sé aldrei langt und-
an. En hann verðum við stundum
að stöðva.“ ■
Vel gengur að
manna skólana
Með betri vinnuaðstöðu kennara og aukinni ábyrgð á faglegu starfi er
kennsla að verað eftirsóknarvert starf að mati Þorsteins Sæbergs skóla-
stjóra. Aldrei fyrr hefur eins vel gengið að ráða í stöður hvort sem er í
Reykjavík eða á landsbyggðinni
í ágúst undan-
farin ár hefur
átt eftir að
manna tals-
vert margar
stöður en sú
er ekki raunin
kennarar Vel gengur að fá grunn-
sskólakennara til starfa í Reykja-
vík á komandi skólaári, að sögn
Ingunnar Jónsdóttur hjá Fræðslu-
ý. miðstöð Reykja-
víkur. Hún segist
að vísu ekki hafa
tölulegar upplýs-
ingar um þær stöð-
ur sem losnuðu í
vor en tilfinning
þeirra sem fylgjast
með sé sú að ekki
> ár- verði um skort að
—»— ræða í haust. „í
ágúst undanfarin ár hefur átt eft-
ir að manna talsvert margar stöð-
ur og í flesta skóla vantað kenn-
ara. Nú veit ég hins vegar til þess
að margir stöður eru nú þegar
fullmannaðir og í þá skóla þar
sem enn vantar kennara eru í
mesta lagi ein eða tvær stöður
lausar.“
Ingunn telur ekki vafa leika á
því að kjarasamningarnir sem
undirritaðir voru í fyrravor hafi
þessi áhrif. Eftir síðasta skólaár
hafi menn fundið hvað þeir bættu
kjörin í raun og veru en voru ekki
aðeins tölur á blaði. „Ég býst við
að atvinnuástandið í landinu hafi
einnig mikið að segja því við höf-
um orðið þess vör að margir kenn-
arar eru að snúa til kennslu að
nýju eftir að hafa verið í öðrum
störfum," segir Ingunn.
Elna Jónsdóttir formaður Fé-
lags framhaldsskólakennara segir
sína tilfinningu vera þá að hreyf-
ing sé í framhaldskólunum og
talsvert auglýst eftir kennurum.
„Það segir þó ekki alla söguna því
samkvæmt lögum verður að aug-
lýsa þær stöður sem leiðbeinend-
ur eru í, á hverju ári. Án vafa
gengur þó betur að manna allar
tgp
;1| |!! I
íl'
i «f 4
11
P w m fííí
II! illli im fílll
m .1111 m ií
iffl > — l III; : if II llll
ini llli
■ Wl >
tUii
FÁAR STÖÐUR ENN LAUSAR
Með lengri viðveru á vinnustað hafa kennarar gert auknar kröfur um bætta vinnuaðstöðu
sem skólarnir hafa orðið við.
stöður vegna bættra launa og ég
held að ekki sé útlit fyrir kennara-
skort í ár,“ segir hún.
Þorsteinn Sæberg fyrrum for-
maður Félags skólastjóra segist
hafa heyrt á kollegum sínum á
landsbyggðinni að betur gangi að
manna stöður nú en nokkru sinni
fyrr. „Ég held að það fleira en
nýir kjarasamningar hafi þar
áhrif á þrátt fyrir að þeir vegi
þungt. Kennarar hafa nú meiri
áhrif á faglegt starf í skólunum
og með lengri viðveru á vinnu-
stað hafa þeir gert auknar kröfur
um bætta vinnuaðstöðu sem skól-
arnir hafa orðið við. Ég vil trúa
að með þeim breytingum sé
kennsla orðin eftirsóknarvert
starf sem sótt sé í,“ segir Þor-
steinn Sæberg.
bergljót@frettabladid.is
Lítil fjölgun gistinátta á síðasta ári:
Odýrari gisting frekar en dýrari
ferðalöG Ferðalangar sækja
meira í ódýrari gistingu en
áður. Þetta má lesa út úr
skýrslu Hagstofunnar um
fjölda gistinótta á síðasta ári.
Þar kemur fram að gistinæt-
ur voru 1.742.000 talsins á
síðasta ári. Það er fjölgun um
0,3% frá árinu áður.
Gistinóttum fækkar um
6.000 eða hálft prósent þegar
aðeins er litið til hótela og
gistiheimila. Gistinóttum á
farfuglaheimilum fjölgar um
8% milli ára. 5% aukning varð í
aðsókn á heimagististaði. Þá varð
fjórðungsaukning í fjölda
HÓTEL SAGA
Mikið er byggt af nýjum hótelum. Gistinóttum
á hótelum fækkar þó.
gistinótta á svefnpokagististöð-
um. Mest varð aukningin þó í skál-
um í óbyggðum, 28%.
Höfuðborgarsvæðið er
sem fyrr sá landshluti þar
sem gistinætur eru flestar
með 40% hlutdeild. Næst-
flestar gistinætur voru á
Suðurlandi, 19%. Fæstir
gistu hins vegar á Vest-
fjörðum og Suðurnesjum.
Aðeins 3% gistinótta voru á
hvoru svæði um sig. Út-
lendingar gista frekar á
höfuðborgarsvæðinu en ís-
lendingar. Helmingur
gistinátta útlendinga er á
höfuðborgarsvæðinu. Nær þriðj-
ungur gistinátta íslendinga er á
Suðurlandi. ■
Víðimelsmálið:
Gögn á leið
til ákæru-
valdsins
LÖGREGLA Lögreglurannsókn
vegna morðsins á Víðimel aðfar-
arnótt mánudagsins 18. febrúar
er að ljúka. Að sögn lögreglu eru
gögn í málinu á leið til ríkissak-
sóknara.
Þór Sigurðsson, 23 ára Reyk-
víkingur, situr í gæsluvarðhaldi.
Ilann hefur játað að hafa orðið
Braga Óskarssyni að bana. Ilann
réðst á Braga eftir að hafa brotist
inn á dekkjaverkstæði við Ægis-
síðu. ■
HEIÐARFJALL
Landeigendur ætla sér að halda áfram
baraáttu sinni og hafa ákveðið að kæra
fyrir hæstarétti.
Héraðsdómur
Reykjavíkur:
Frávísun
vegna
Heiðaríjalls
dómsmál Héraðsdómur úrskurð-
aði í máli landeigenda Heiðar-
fjalls á Langanesi gegn ríkis-
stjórn Bandaríkjanna. Niðurstaða
dómsins var að vísa málinu frá á
þeim forsendum að Bandaríkjun-
um beri ekki að sæta lögsögu ís-
lenskra dómstóla. í niðurstöðum
dómsins segir m.a. „í varnar-
samningum eru engin ákvæði um
að stjórn Bandaríkja Norður-Am-
eríku skuli sæta lögsögu íslenskra
dómstóla um ágreining á borð við
þann sem hér er fyrir dómi.“
Páll Arnór Pálsson lögmaður
landeigenda segir að því sé ekki
að leyna að þessi frávísun valdi
vonbrigðum. „Næsta skref í mál-
inu er að kæra þennan úrskurð
fyrir Hæstarétti og vona að hann
ómerki úrskurðinn," segir Páll
Arnór.
Enginn fulltrúi Bandaríkjanna
var viðstaddur dóminn. ■
Borgarnes:
Ferðamenn
í bílveltu
lögregla Fólksbíll valt á Akravegi
á Mýrum í gær. Að sögn lögreglu
voru tveir erlendir ferðamenn í
bílnum, sem var bílaleigubíll, og
sluppu þeir lítið meiddir. Talið er
að ökumaðurinn hafi misst stjórn
á bílnum í lausamöl. Bíllinn var
fluttur af slysstað með kranabíl.
Einnig varð þriggja bíla
árekstur á þjóðveginum um 5 km
norðan við Borgarnes. Að sögn
lögreglu er ekki talið að neinn hafi
slasast alvarlega en einn bílanna
var fluttur af slysstað mikið
skemmdur. ■