Fréttablaðið - 13.07.2002, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 13.07.2002, Blaðsíða 10
FÉLAGASKIPTI 10 FRÉTTABLAÐIÐ 13. júll' 2002 LAUGARDAGUR RÍKHARÐUR TIL LILLESTRÖM Gengið hefur verið frá félagaskiptum Rík- harðs Daðasonar frá Stoke í Englandi til Lilleström í Noregi,. „Hann kom til liðs við Lilleström i æfingabúðunum í gær.. Fátt hefur komið Vöndu Sigurgeirsdóttur á óvart í Símadeildinni: Sér fram á spennu í lokin SÍmadeild kvenna íslandsmótið í knattspyrnu kvenna er nú hálfnað og er KR í efsta sæti eins og búist var við. „Það hefur svo sem ekkert komið mér sérstaklega á óvart varðandi styrkleika liðanna, þó að Stjarnan sé tveimur sætum neðar en spáð var. Mér finnst að Breiða- blik hafi styrkst frá í vor enda fengið nokkra sterka leikmenn til liðs við sig síðan þá. Sama gildir um ÍBV en ég á von á þeim betri í seinni umferðinni. Þegar sterkir leikmenn koma inn í liðin stuttu fyrir mót eflast þau þegar líður á,“ segir Vanda Sigurgeirsdóttir þjálfari kvennaliðs KR í knatt- spyrnu. og á bæði við íslenska námsmenn í Bandaríkjunum og erlenda leikmenn. Vanda segist hafa búist við Valsliðinu sterku og það hafi komið á daginn en þær töpuðu eina leik sínum hingað til gegn KR í vikunni 2-0. Óvæntustu úrslit deildarinnar voru vafalaust sigur ÍBV gegn KR 4-2, á dögunum. „ÍBV stelpurnar börðust vel allan leikinn á meðan mitt lið reiknaði með að þetta væri búið í hálfleik, í stöðunni 2-0. Það má kannski segja að þetta hafi verið gott á okkur að vissu leyti, því fram að þeim leik höfðum við ekki verið að leggja okkur fram í ÍÞRÓTTIR í DAGÍ 7.30 Grafarholt EM pilta í golfi-úrslit 13.00 Kaplakrikavöllur Evrópuleikir félagsliða (FH-Villarreal CF) 14.00 Hásteinsvöllur Símadeild karla (ÍBV KA) 14.00 Sindravellir 1. deild karla (Sindri-ÍR) 15.30 RÚV Gullmótin 18.00 Sýn íþróttir um allan heim 23.00 Sýn Hnefaleikar (Paul Spadafora- Angel Manfredy) TJthald og vilji skipta sköpum Willum Þór Þórsson þjálfari KR segir liðin í Símadeildinni mjög jöfn að getu og ómögulegt sé að spá fyrir um hver hreppir titilinn. símapeild karla Þegar Símadeild karla er hálfnuð situr KR í efsta sæti og þjálfari þeirra er Willum Þór Þórsson sem lék lengi sjálfur með Iiðinu. „Deildin er nú það jöfn að hver einasti leikur virðist detta þeim megin sem baráttan og stemningin er. Það geta allir unnið alla. Landslagið er orðið svo breytt í fótboltanum og breiddin meiri. Áður söfnuðust betri leikmenn á færri lið; stóru liðin með hefðina. Liðin æfa líka öll svipað og metnað- ur er meiri hjá öllum liðunum." Willum tekur það fram að í þessum samanburði fari hann um það bil tuttugu ár aftur í tímann enda sé ekki hægt að tala um þróun nema yfir langt tímabil. „Auðvitað hefur það áhrif líka þegar margir betri leikmenn leika erlendis." Hvað varðar KR liðið segir Will- um að breiddin í liðinu sé mikil, lið- ið hafi á að skipa mörgum góðum knattspyrnumönnum. „Menn legg- ja mikið á sig við æfingar og bar- leikjunum. Það er hvorki gott fyr- ir stelpurnar né landsliðið sem á mikilvæga leiki fyrir höndum í haust, að lykilmenn liðsins komist upp með að leika á hálfum hraða í mótinu." Vanda telur að tapið gegn ÍBV geti orðið afdrifaríkt í lok móts því þegar fjórar umferðir verða eftir af mótinu missir KR fjórar landsliðskonur í nám til Banda ríkjanna. „Þess vegna sé ég fram á spennandi seinni umferð í mótini og úrslit ráðast sjálfsagt ekki fyri en í síðustu leikjunum," segir Vanda. bryndis@frettabladid.is KR-STELPUR ÆFA VEL Þótt Vanda sé ánægð með árangur síns liðs segir hún hverja og eina geta gert bet- ur hugarfarslega. VANDA SIGURGEIRSDÓTTIR OG WILLUM ÞÓR ÞÓRSSON Þau eru þjálfarar efstu liða Símadeilda karla og kvenna, KR. áttan og stemningin er til staðar í hópnum, þannig að ég er ánægður með hugarfarið hjá leikmönnum," segir Willum. Hann segir fátt hafa komið sér á óvart í fyrri hluta móts og ekkert lið hafi verið afgerandi nema Akra- nes nú síðustu leiki. „Þó ég telji uppsveiflu liðsins ekki vera bara einum manni að þakka þá er ljóst að nærvera Bjarka Gunnlaugsson- ar eflir hina leikmennina bæði sál- rænt og fótboltalega," segir Willum og á við aukið sjálfstraust þeirra, auk þess sem með leikstíl sínum nái hann því besta út úr samherjun- um, til dæmis með því að opna svæði fyrir aðra. „Það eru fáir leik- menn sem hafa þann eiginleika að geta valið besta kostinn í stöðunni hverju sinni, eins og Bjarki gerir, hann er mjög útsjónarsamur." Willum telur árangur KA ekki hafa komið sér á óvart, liðið hafi haldið sömu leikmönnum lengi og þeir séu mjög góðir knattspymu- menn. „Þeir berjast líka og verjast vel allt frá fremsta manni.“ Willum segir ógerning að spá fyrir um lok mótsins, liðin séu jöfn og tveir sigrar í röð breyti miklu um stöðu liðs í deildinni. „Mótið helst jafnt og spennandi allt til loka og ég held að það lið sem hef- ur úthaldið og viljann standi uppi sem sigurvegari í lokin,“ segir Willum. bryndis@frettabladid.is Islandsmótið í kvennaknattspyrnu: Ekkert óvænt SVONA LEIT SPAIN UT FYRIR MÓTIÐ: KR 186 Valur 154 Breiðablik 151 ÍBV 117 Stjarnan 104 FH Þór/KA/KS 45 Grindavík 36 5ÍMADEILP kvenna Staðan í efstu deild kvenna þegar íslandsmótið er hálfnað er a mestu leyti eins og spáð var fyrir mótið. KR er í efsta sæti og Valur í því öðru. Lið Stjörn- unnar er þó tveimur sætum neðar í töflunni í dag, en liðinu hafði ver- ið spáð og FH og Þór/KA/KS eru einu sæti ofar. Munurinn er þó ekki mikill og gæti breyst í einni umferð, því aðeins tvö stig skilja þessi þrjú lið að. ■ SVONA ER STAÐAN I DEILD- INNI EFTIR SIÖ UMFERÐIR: Lið Leikir U J T Mörk Stig KR 7 6 0 1 37-4 18 Valur MSi 5 1 1 14-6 16 Breiðablik 7 5 0 2 18-6 15 ÍBV 7 4 0 3 16-12 12 FH 7 2 1 4 7-24 7 Þór/KA/KS 7 2 0 5 7-18 6 Stjarnan 7 1 2 4 4-13 5 Grindavík 7 1 0 6 3-23 3 Símadeild karla hálfnuð: Deildin opin og spennandi SÍMADEILD karla íslandsmótið í knattspyrnu karla er nú um það bil hálfnað. KR er í efsta sæti. þremur sætum ofar en þeim var spáð og athygli vekur að KA er fimm til sex sætum ofar en í spánni. Hafa verður í huga að ekki hafa öll lið leikið jafnmarga leiki. Grindavík sem spáð var titli í upphafi móts er í 5. sæti en þótt FH sé fjórum sætum neðar en spáð var hefur liðið aðeins leikið átta leiki og stutt er á milli liðanna í deildinni. ■ SVONA LEIT SPAIN UT FYRIR MÓTIÐ: Grindavik 257 Ia 242 Fylkir 232 KR 222 FH 212 (BV 120 Fram 110 KA 102 Keflavík 78 Þór 75 SVONA ER STAÐAN í DEILDINNI: Lið Leikir U J T Mörk Stig KR 9 5 2 2 12-8 17 Fylkir 9 4 3 2 17-13 15 KA 9 4 3 2 10-7 15 ÍA 10 4 2 4 19-15 14 Grindavík 9 3 3 3 16-17 12 ÍBV 9 3 2 4 13-13 11 Keflavik 9 2 4 3 13-17 10 Fram 8 2 3 3 12-12 9 FH 8 2 3 5 9-13 9 Þór 10 2 3 5 14-20 9 g L

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.