Fréttablaðið - 13.07.2002, Qupperneq 4
MasterCard
tilboð
vikur
i sólina
á verði
tvessja
Krít
15. ágúst
✓
á mann m.v. tvo fullorðna og tvö
börn 2ja-11 ára.
Ef 2 ferðast saman 91.370 kr*
Miðað við 2 fullorðna í st.ídíói.
Innifalið: Flug, gisting á Malou,
ferðir til og frá flugvelli e>lendis
og allir flugvallaskattar.
Beni-
JLhjliU
6 6 3A Ol
1 * ETíbb.H f "TS"" í f MAMSm
læMHÉlÉMMi
* Verðið miðast við að greitt sé með
tveimur 5.000 kr. Ferðaávísunum
MasterCard. Búið er að reikna það
inní verð.
J
MasterCard
Færð þu Ferðaévfiun
MasterCard með þirtu
kreditkorti?
FERÐIR
www.plusferdir. is
FRETTABLAÐIÐ
13. júlí 2002 LAUCARPAGUR
ísrael og Hisbolla:
Samningur
um fangaskipti
JERÚSALEM. ap Útvarpsstöð ísra-
elska hersins skýrði frá því í gær
að samningur um fangaskipti sé
að verða til milli ísraelsstjórnar
og Hisbolla skæruliðahreyfingar-
innar í Líbanon.
Samkvæmt þessu samkomu-
lagi verður Palestínumaðurinn
Marwan Barghouti, sem setið hef-
ur í fangelsi Israelsmanna frá því
um miðjan apríl, sendur í útlegð
til Evrópu. Auk þess láta ísraels-
menn um það bil hundrað fanga
lausa og láta af hendi lík nokkurra
tuga skæruliða Hisbolla hreyfing-
arinnar.
í staðinn lætur Hisbolla ísra-
elsmanninn Elhanan Tennenbaum
lausan, en honum var rænt í októ-
ber árið 2000. Einnig verður lík-
um þriggja ísraelskra hermanna
skilað til Israels.
Barghouti er með vinsælustu
leiðtogum Palestínumanna. ísra-
elsmenn saka hann um að hafa
skipulagt hryðjuverk, sem her-
SENDUR í ÚTLEGÐ?
Marwan Barghouti hefur veríð í haldi isra-
elsmanna frá því um miðjan apríl. Hann
mun vera skyldur Mustafa Barghouti, sem
komið hefur hingað til lands.
skáir Palestínumenn tengdir
Fatah, stjórnmálahreyfingu Jass-
ers Arafats, hafa framið. Barg-
houti segist eingöngu vera stjórn-
málaleiðtogi og hafa hvergi nærri
ofbeldisverkum komið. ■
Bifröst í Borgarfirði:
Réttarsalur
í skóla
skólar í skoðun er að byggja
réttarsal til að nota við kennslu í
lögfræði í Viðskiptaháskólanum
í Bifröst í Borgarfirði. Verður
það fyrsti réttarsalurinn sem
byggður er í íslenskum skóla:
„Ekkert er ákveðið en við
stefnum að því að bjóða upp á
mastersnám í lögfræði hér við
skólann eftir 2 ár og samhliða
því er ljóst að búa verður fólk
undir lögfræðistörf við raun-
verulegar aðstæður. Því gæti
bygging réttarsalar vel komið til
greina,“ segir Runólfur Ágústs-
son, rektor Viðskiptaháskólans á
Bifröst. ■
Er ekki bændum
til framdráttar
OECD og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hvetja til að dregið verði úr
búvernd. Styrkir og innflutningsvernd tryggja ekki bættan hag bænda.
Núverandi landbúnaðarkerfi er bændum fyrir verstu segir Guðmund-lj
ur Ólafsson hagfræðingur.
Ég hef
stundum
kallað þetta
að landbún-
aðurinn sé í
kæfingarfaðm
lagi við ríkis-
valdið
búvernd „Ég held að bændur séu
smátt og smátt að átta sig á því að
þetta kerfi er þeim fyrir verstu,“
segir Guðmundur Ólafsson, hag-
—4-— fræðingur, um
styrkjakerfið í ís-
lenskum landbún-
aði.“ Ég hef stund-
um kallað þetta að
landbúnaðurinn sé
í kæfingarfaðmlagi
við ríkisvaldið. Það
er innflutnings-
bann og þeir eru á
—♦— miklum styrkjum.
Öll starfsemi sem er svona of-
vernduð rennur undir lok.“
í skýrslu OECD um stuðning
við landbúnað á síðasta ári er sett
fram hörð gagnrýni á þær leiðir
sem hafa verið farnar til að styrk-
ja Iandbúnað. Sérstaklega beinist
gagnrýnin að framleiðslustyrkj-
um til bænda og innflutnings-
vernd sem hækkar matvælaverð
til neytenda. Er gagnrýnt að þess-
ar aðferðir leggi þungar álögur á
neytendur og skattgreiðendur án
þess að tryggja bændum viðun-
andi tekjur. I nýlegri úttekt Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins á ís-
lensku efnahagslífi er einnig lýst
áhyggjum af mikilli vernd land-
búnaðarins og hvatt til þess að
dregið verði úr henni.
„Ég held að ef til dæmis inn-
flutningshöftum væri aflétt
myndu bændur finna leiðir til þess
að geta stundað landbúnað með
einhverjum hætti,“ segir Guð-
mundur. Mjólkurframleiðsla
myndi breytast eitthvað en ekki
verða fyrir miklum búhnykk.
Lambakjöt yrði dýrara og meiri
hátíðarmatur. Svína- og alifugla-
rækt fengi væntanlega versta út:
reið í fyrstu segir Guðmundur. „í
raun og veru má segja að kerfið
núna byggist á því að vernda
VERSLAÐ I MATINN
Skýrsla OECD leiðír (Ijóst að verð landbúnaðarafurða út úr búð er tvöfalt hærra en það
væri ef innflutningur landbúnaðarafurða væri frjáls.
svína- og alifuglarækt meðan hefð-
bundinn landbúnaður sé að koðn-
ast niður.“ Svína- og alifuglarækt
ætti þó að geta aðlagast breyttum
aðstæðum að mati Guðmundar.
„Á einhverjum tíma, 10 - 15
árum, á íslenskur landbúnaður að
geta aðlagast frjálsum innflutn-
ingi,“ segir Guðmundur. „Á þess-
um tíma þyrfti að hjálpa mönnum
verulega. Núna fá menn hins veg-
ar stuðning án þess að þeir standi
í nokkrum breytingum."
brynjolfur@frettabladid.is
Lögregluofbeldið í Kaliforníu:
Myndatökumaður
inn handtekinn
INGLEWOOD, ap Maðurinn sem náði
að taka myndband af því, þegar
lögreglumaður í Inglewood í Kali-
forníu barði svartan mann um síð-
ustu helgi, heitir Mitchell Eugene
Crooks. Hann hefur nú verið
handtekinn. Hann á eftir að af-
plána sjö mánaða dóm vegna smá-
þjófnaðar og fyrir að hafa ekið
undir áhrifum áfengis.
Lögregluþjónar höfðu hendur í
hári hans fyrir utan húsakynni
sjónvarpsstöðvarinnar CNN í
Hollywood. Crooks reyndi að
hlaupast á brott og hrópaði hátt á
hjálp.
Lögregluþjóninn Jeremy
Morse, sem á myndbandi Crooks
sást berja á sextán ára svörtum
pilti, sagði í skýrslu sinni að pilt-
urinn hefði gripið sig hreðjataki
áður en hann barði hann í andlitið.
Ronald Banks, lögreglustjóri í
Inglewood, sagðist á fimmtudag
hafa orðið fyrir vonbrigðum eftir
að hafa séð myndbandið. „Þetta
MYNDATÖKUMAÐURINN
HANDTEKINN
Öryggisinyndavélar við byggingu sjón-
varpsstöðvarinnar CNN náðu upptöku af
því þegar Mitch Crooks var handtekinn á
fimmtudaginn.
endurspeglar ekki venjuleg
vinnubrögð okkar og starfshætti,"
sagði hann. ■
Síbrotamaður:
Skilorðs-
bundið fang-
elsi fyrir fjöl-
da afbrota
dómsmál Héraðsdómur Norður-
lands Eystra dæmdi tvo karlmenn
og eina konu, öll á þrítugsaldri í
fangelsi fyrir fjársvik, hilmingu
og þjófnaði. Karlmennirnir voru
einnig sakfelldir fyrir fíkniefna-
viðskipti. Fólkið gaf út falsaða
tékka úr stolnum tékkheftum, stal
úr verslunum og seldi þýfið. Sá
sem þyngsta dóminn hlaut, fékk 5
mánaða fangelsisvist, þar af eru 4
skilorðsbundnir. Hinn maðurinn
hlaut 4 mánaða fangelsi, skilorðs-
bundið og konan var dæmd í 40
daga fangelsi skilorðsbundið. ■
STUTT
Héraðsdómur Reykjavíkur
framlengdi í gær gæsluvarð-
hald yfir þremur karlmönnum,
sem grunaðir eru um að hafa reynt
að smygla 30 kílóum af hassi til
landsins. Þeir verða í gæsluvarð-
haldi til 16. október. Lögreglan
lagði hald á efnið í byrjun mars, en
það kom til landsins í gámi með
flutningaskipi frá Norðurlöndun-
um. Aldrei áður hefur verið lagt
hald á jafnmikið magn af hassi í
einni sendingu.
Hlutabréf í Vátrygingafélagi ís-
lands hafa verið skráð á Til-
boðsmarkað Kauphallarinnar. Við-
skipti hófust á genginu 24.17 við-
skipti fyrir samtals tæplega 93
milljónir króna höfðu farið fram í
lok dags í gær. Lokagengi VÍS var
skráð 25.
Ráðist var á bandaríska her-
menn í Afganistan í gær,
skammt frá þeim stað þar sem
bandarískir hermenn vörpuðu
sprengjum á brúðkaupsveislu fyrir
nokkru.
Hosni Mubarak, forseti Egypta-
lands, segir að öngþveiti geti
hlotist af því, ef Jasser Arafat
verður bolað frá völdum á yfir-
ráðasvæðum Palestínumanna. Það
geti haft enn meira ofbeldi í för
með sér.
Jasser Arafat, Ieiðtogi Palestínu-
manna, segist ekki hafa ákveðið
hvort hann ætli að bjóða sig fram í
kosningunuin í janúar. Hann hafi
hins vegar engin áform um að láta
af völdum á næstunni.
Tíundi hver íbúi aðildarríkja
Evrópusambandsins segist
stunda vinnu á sunnudögum. Flest-
ir starfa þeir, sem vinna á sunnu-
dögum, á hótelum, veitingahúsum
og sjúkrastofnunum.
Vladimir Pútín, forseti Rúss-
lands, hefur skipað téténskan
mann, Abdul-Khakim Sultygov,
mannréttindafulltrúa sinn í
Téténíu.
I