Fréttablaðið - 13.07.2002, Síða 6
6
FRÉTTABLAÐIÐ
15. júlí 2002 LAUGARDAGUR
SPURNINC DACSINS
Hvernig notar þú
frítímann þinn?
Ég er bara úti með vinunum. Stundum
graffa ég svolítið, spreyja á veggi þar sem
það má.
Matthías Örn Almann-kaas.
Ólafsfjörður:
Hafnaði öll-
um bæjar-
stjóraefnum
Samkeppnisstofnun bannar auglýsingar Seglagerðarinnar um fellihýsi:
Hótar allt að 10 milljóna sektum
samkeppnisstofnun Samkeppnis-
stofnun hefur bannað Seglagerð-
inni Ægi að birta auglýsingar með
ýmsum fullyrðingum um fellihýsi
og tjaldvagna sem taldar eru ósann-
aðar og villandi og brjóta því gegn
ákvæðum samkeppnislaga. Fyrir-
tækið notaði meðal annars í auglýs-
ingunum orð eins og „vinsælust",
„best“, „flottust" og að um væri að
ræða „einu fellihýsin sem sérhönn-
uð væru fyrir íslenskar aðstæður"
og væru þau „betur búin en önnur
fellihýsi“. Þá sagði ennfremur að
fellihýsin væru þau mest seldu á ís-
landi árin 1998 til 2001. Engin gögn
voru hins vegar lögð fram til stað-
festingar á því. Eftir ítrekaðar at-
SAMKEPPNISSTOFNUN
Hefur bannað Seglagerðinni Ægi að segja
flottastir, bestir, vinsælastir, i auglýsingum
um tjaldvagna eins og þessa. Samkeppnis-
stofnun hótar allt að 10 milljóna króna
sektum virði Seglagerðin Ægir ekki bannið.
hugasemdir Samkeppnisstofnunar
svaraði Seglagerðin og sagði að
fullyrðingunum hefði verið breytt.
Engin dæmi voru hins vegar gefin
upp um hvernig orðalagi auglýsing-
anna hefði verið breytt. Auglýs-
inganefnd, sem er ráðgefandi fyrir
samkeppnisráð, komst að þeirri
niðurstöðu að fullyrðingar í auglýs-
ingum Seglagerðarinnar brytu
gegn ákvæðum Samkeppnislaga.
Samkeppnisstofnun staðfesti þann
úrskurð og bannaði birtingu aug-
lýsinganna. Verði banninu ekki
fylgt mun Samkeppnisstofnun leg-
gja til að sektir upp á allt að 10
milljónir króna verði lagðar á
Seglagerðina. ■
Mál Árna Johnsen:
Áfrýjun
ekki verið
ákveðin
DÓMSMÁi Ekki hefur enn verið tek-
in ákvörðun um það hvort dómi
Héraðsdóms Reykjavíkur yfir
Árna Johnsen verði áfrýjað. Jakob
R. Möller, lögfræðingur Árna, segir
að ekki sé kominn tími til að taka þá
ákvörðun. Hann segir að sér þyki
ekki ólíklegt að ákvörðun um hvort
dómnum verði áfrýjað eða ekki
liggi fyrir í kringum næstu helgi.
Árni var dæmdur í 15 mánaða
fangelsi. Dómurinn var ekki skil-
orðsbundinn og hefur komið fram
að sumum dómspekingum hefur
þótt það nokkuð þungur dómur. ■
Stjóm Ecevits á bláþræði
Vinsæll ráðherra í Tyrklandi hefur stofnað nýjan flokk til höfuðs Bulent Ecevit
forsætisráðherra. Sjö ráðherrar hafa sagt af sér í vikunni. Stjórnin hefur verið
lömuð vikum saman eftir að Ecevit veiktist
SVEITARSTJÓRNARMÁL Meirihluti
bæjarráðs Ólafsfjarðar hafnaði
öllum umsækjendum um starf
bæjarstjóra í Olafsfirði. 'l'uttugu
sóttu um stöðuna, allt karlmenn.
Meðal umsækjenda voru lög-
fræðingar, hagfræðingar, við-
skiptafræðingar, verkfræðingar
og fyrrverandi sveitarstjóri.
Enginn þeirra þótti að mati nýs
meirihluta í bæjarstjórn Ólafs-
fjarðar hafa það til að bera sem
sóst var eftir. Meirihlutinn
ákvað því að hafna öllum um-
sækjendum að sinni og fela for-
manni bæjarráðs og forseta bæj-
arstjórnar Ólafsfjarðar að kanna
aðrar leiðir við ráðningu bæjar-
stjóra. ■
ankara. ap f gær, daginn eftir að
Ismail Cem sagði af sér sem utan-
ríkisráðherra Tyrklands, stofnaði
hann ný stjórnmálasamtök til höf-
uðs forsætisráðherra landsins,
Bulent Ecevit. Cem er sjöundi
ráðherrann úr stjórn Ecevits sem
sagt hefur af sér nú í vikunni.
Líf stjórnar Ecevits virðist
hanga á bláþræði. Tveir af þrem-
ur stjórnarflokkunum vilja að
kosningar verði haldnar sem
fyrst. Hann veiktist alvarlega í
maí síðastliðnum og síðan þá hef-
ur stjórnin verið nánast lömuð.
Vaxandi þrýstingur hefur ver-
ið á forsætisráðherrann að segja
af sér. Hann hefur þó jafnan neit-
að því og sagt að öngþveiti myndi
skapast í stjórnmálum. Einnig
mætti búast við hruni á markaði
ef hann segði af sér. Síðast í gær
sagðist hann í blaðaviðtali alls
ekki hafa í hyggju að láta undan
kröfum um afsögn.
Cem segir að nýju stjórnmála-
samtökin sín verði hliðholl Vest-
urlöndum og byggð á grundvall-
arstefnumálum sósíaldemókrata.
Hlutverk þeirra verði að endur-
vekja trú landsmanna á stjórn-
málin. Meginverkefni flokksins
verði að koma á umbótum sem
verði til þess að Tyrkland geti
fengið inngöngu í Evrópusam-
bandið. „Tyrkland má ekki missa
oq nauðsynleqir
THUU
Polar 100
Polar 200
Evolution 100
Evolution 500
Vision 650
Einnig Fáanlegt:
Burðarbogar
Hjólagrindur
Kajak Festingar
www.stilling.is
SKEIFUNNI 11 • SIMI 520 8000 • BILDSH0FÐA 16 • SIMI 577 1300 • DALSHRAUNI 13 ■ SIMI 555 1019
®]Stilling
AUSTURVEGI 69 • SÍMI 483 1800 • SMIÐJUVEGI 68 ■ SÍMI 544 8800
FORSÆTISRÁÐHERRANN oc lífverðir hans
Heilsu Bulents Ecevits, sem er fyrir miðri mynd, hefur hrakað undanfarið.
af því tækifæri," sagði Cem. „Við
erum staðráðin í því að grípa til
þeirra ráðstafana, sem nauðsyn-
legar eru.“
Meðal þeirra umbóta, sem
Evrópusambandið krefst að gerð-
ar verði í Tyrklandi, er að dauða-
refsing verði afnumin og kúrdum
verði tryggð aukin réttindi. Eftir
að heilsu Ecevits hrakaði hafa
deilur magnast meðal ráðherra
stjórnarinnar um umbætur af
þessu tagi, sem Ecevit hugðist
koma á.
Cem er meðal vinsælustu
stjórnmálamanna í Tyrklandi.
Hann gegndi stóru hlutverki í að
bæta tengslin við Grikki í kjölfar
jarðskjálfta sem urðu í báðuni
ríkjunum fyrir nokkrum misser-
um.
Með Cem í nýju hreyfingunni
er efnahagsráðherrann Kemal
Dervis, sem einnig nýtur mikilla
vinsælda. Dervis sagði af sér á
fimmtudaginn en forseti lands-
ins neitaði að taka afsögn hans
gilda. ■
Búferlaflutningur fyrri hluta árs:
Tíundi hver lands-
maður flutti
búseta Nær tíundi hver landsmað-
ur flutti sig um set fyrri hluta árs
ef mið er tekið af breyttum skrán-
ingum á lögheimili í þjóðskrá
Hagstofunnar. Alls tilkynntu
26.355 einstaklingar breytta bú-
setu. Rúmlega helmingur, 14.753
einstaklingar, fluttist milli heim-
ila í sama sveitarfélagi. 8.253 flut-
tu milli sveitarfélaga, 1.843 fluttu
hingað frá útlöndum og 1.506 héð-
an til útlanda.
Á landsbyggðinni fækkaði
fólki í öllum landshlutum nema á
Vesturlandi. Af einstökum sveit-
arfélögum fjölgaði íbúum mest í
Kópavogi, um 273, og Hafnarfirði,
um 184. Mest var fækkunin í Sel-
tjarnarnesi, þar sem íbúum fækk-
aði um 67, Skagafirði, þaðan sem
brottfluttir voru 37 fleiri en að-
fluttir.
Landsmönnum fjölgaði um 337
sé tekið mið af búferlaflutningum
til og frá landinu. Brottfluttir ís-
lenskir ríkisborgarar voru þó 179
fleiri en þeir íslendingar sem
fluttust heim. 516 fleiri erlendir
ríkisborgarar fluttu hingað til
lands en af landi brott. ■