Fréttablaðið - 13.07.2002, Side 14
14
FRÉTTABLAÐIÐ
13. júlí 2002 LAUGARDAGUR
HASKOLABIO
IIACAtOftOI * SÍHI UÖ I Í t V * ÍÍ4HSIA SÝNIN(.AHt JAl l> LANOSINS
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10 Sýnd kl. 2, 4, 5.50, 8 og 10.10
ISCOOBY DÖÖ kl. 2,4,6, 8 og 10 |BAD COMPANY kl. 8 og 10.201
IJADE SCORPION kL6 HJALP EG ER FISKUR kl. 2,4 og 61
jJIMMY NEUTRON kL2 og4 IAMORES PERROS klTÍl
Sýnd kl. 530,8 og 1030 vrr 400 Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.10 vrr 398
Sýnd kl. 530,8 og 1030 |S0R0R1TY BOYS 2,4,6,8 og 10.10
|bÁD COMPANY kl, 530, 8 og 1030 j m HJÁLP ÉG ÉRFÍSKUR 2 og 3.45] f"]
[ÁBOUT ABOY3.45, 5.50,8 Ogio.io jPÉTUR PAN m/isl- tali 2 og 3.451 vl,|
VEL HEPPNAÐAR SÖGUHETJUR
Úr kvikmyndinni I Kina spiser de hunde
Framhaldið á I Kina
Spiser De Hunde:
Nýir Olsen
bræður
komnir
á kreik?
kvikmyndir Danska leikstjóranum
Lasse Spang Olsen hefur tekist að
skapa nýja Olsen bræður. Sú er að
minnsta kosti skoðun blaðamanns
Jyllands Posten. í gær var frum-
sýnd í Danmörku framhald mynd-
arinnar I Kina spiser de hunde, sem
einnig var sýnd hér á landi og naut
mikilla vinsælda.
Nýja myndin, sem heitir Gamle
mænd i nye biler, eða Gamlir kallar
á nýjum bflum, hefst á því að glæpa-
maðurinn Harald, sem leikinn er af
Kim Bodnia, losnar úr fangelsi.
Fyrr en varir er hann ásamt félög-
um sínum úr fyrri myndinni lentur í
ráðabruggi sem gæti sent hann í
fangelsi. Minnir óneitanlega á upp-
hafssenu úr Olsen mynd.
Lasse Spang Olsen segist meira
en tilbúinn til þess að gera fleiri
myndir um Harald og félaga ef vel
gengur. Fjölmargar myndir voru
gerðar um Egon Olsen og félaga
hans sem voru ansi skondnir
glæponai'. Þær myndir eru sígildar í
danskri kvikmyndamenningu og ís-
lendingar þekkja þá einnig af góðu.
Það er aldrei að vita nema Harald
og félagar hljóti sama sess. ■
.—
Lék í yfir 120 myndum:
Rod Steiger
látinn
leikari Kvikmyndaheimurinn
syrgir nú lát leikarans góðkunna
Rods Steigers, sem lést í fyrradag
77 ára að aldri.
Norman Jewison,
sem leikstýrði Stei-
ger í myndinnni In
the Heat of the
Night, sagði Steiger
hafa verið „einn
mest skapandi leik-
ara sem hann hafði unnið með í
gegnum tíðina." Steiger hlaut ósk-
arsverðlaun fyrir frammistöðu
sína í kvikmyndinni.
Hann lést á sjúkrahúsi í Los
Angeles eftir að hafa gengist und-
ir gallblöðruaðgerð.
Steiger hóf feril sinn sem leik-
ari árið 1951og lék í yfir 120 kvik-
myndum. Hann sló fyrst í gegn í
kvikmyndinni On the Waterfront,
sem frumsýnd var árið 1954.
Hann lék síðan í mörgum mynd-
um sem teljast til þeirra klass-
ískra kvikmynda en hafnaði ein-
nig hlutverkum í myndum sem
eru sígildar, eins og The God-
father og Patton. ■
FRÉTTIR AF FÓLKI |
Stephen Fry, sem meðal ann-
ars er þekktur fyrir leik sinn
þáttunum um glaumgosann
Wooster og bryt-
ann Jeeves, ætlar
að spreyta sig á
þáttastjórn á
næstunni. Hann
mun stýra spurn-
ingaþætti um jað-
arþekkingu. Lið,
skipuð frægu
fólki, munu reyna
að svara „fáránlega erfiðum"
spurningum. Ef vel tekst til
verður hafin framleiðsla á þátt-
unum, en fyrst verður eingöngu
gerður einn, í tilraunaskyni.
Sýning með ljósmyndum af
hljómsveitinni Oasis opnar í
ágúst í London Basement Gall-
ery. Sýningin ber
heitið „Beenther-
donethat" og á
henni gefur að
líta Ijósmyndir
teknar af Roger
Sargent, sem tek-
ur myndir fyrir
tímaritið NME.
Myndirnar span-
na feril hljómsveitarinnar frá
árdögum hennar til dagsins í
dag.
Rokkjaxlinn Bruce
Springsteen hyggur á hljóm-
leikaferð með haustinu. Tilefnið
er útkoma nýju
plötunnar hans,
The Rising, sem
er væntanleg í
búðir í lok júlí.
Springsteen og
hljómsveitin hans
gamla góða E
Street Band
koma til Evrópu í
október. Ekki hefur verið til-
kynnt enn hvaða borgir verða
svo heppnar að fá gamla galla-
buxnatöffarann i heimsókn.
Áður en Springsteen heldur til
framandi landa fer hann í tón-
leikaferð um Bandaríkin.
Robert Plant, söngvari Led
Zeppelin, hefur játað að hafa
laumast til að fara á tónleika
með hljómsveit
sem hefur sitt
lifibi’auð af því
að flytja gömul
Zeppelin lög.
Hann hafði sig
sneypulega á
brott þegar tón-
leikagestir báru
kennsl á hann.
„Einhver sagði mér frá þessari
hljómsveit og ég veit hversu fá-
ránlega ég leit út á þessum tíma,
ég meina, ég er alveg hlægilegur
í dag, en mig langaði bara svo til
þess að sjá hvernig ég kom fyr-
ir.“ Plant hafði vonast til þess að
enginn tæki eftir sér en síðan
tók hann eftir því að allir sáu
þegar hann kom inn. „Þeir voru
að spila „The Ocean“ og allir litu
upp af sviðinu þegar ég kom inn
... ég hugsaði, hvað á ég að gera?
Neyðist ég til að fara upp á svið
og taka Battle of Evermore með
söngvaranum, þannig að ég sneri
við og flúði.“
Engin Þjóðhátíð
án Arna
Mótshaldarar útihátíða víða um land eru í óða önn að undirbúa sig
fyrir verslunarmannahelgina. I Eyjum ganga framkvæmdir vel. Það
sama er upp á teningnum í Galtalæk, Staðarfelli og Skagaströnd.
útihátíðir Þrjár vikur eru þang-
að til ein stærsta ferðahelgi árs-
ins rennur upp, verslunar-
mannahelgin. Utihátíðir eru
haldnar víða um land og vinna
mótshaldarar af fullum krafti
við að gera allt klárt. Birgir Guð-
jónsson, mótshaldari í Vest-
mannaeyjum, segir fram-
kvæmdum miða vel áfram. Þeg-
ar Fréttablaðið sló á þráðinn
voru menn í óða önn að setja upp
stóra sviðið. Birgir segir hljóm-
sveitirnar sem þar munu leika
vera Land og syni, í svörtum föt-
um, Hljóma, Á móti sól og írafár.
Hann segir engar breytingar á
hefðbundnum dagskrárliðum,
brennunni, flugeldasýningu og
brekkusöngnum. Nú sem fyrr
muni Árni Johnsen stjórna
fjöldasöngnum. „Það er alveg
klárt að það er engin Þjóðhátíð
án Árna,“ bætti Birgir við.
í Galtalæk verður boðið upp
á skipulagða dagskrá. Jakob
Frímann Magnússon, tónlistar-
maður, segir meðlimi hljóm-
sveitarinnar Stuðmanna miðað
að því að kynslóðirnar geti
skemmt sér saman. „Andinn
sem svífa á yfir vötnum í Galta-
læk á að vera blanda nostalgíu,
nútíð og framtíð." Auk Stuð:
manna leika hljómsveitirnar í
svörtum fötum,
X Rottveilerhundar auk sjö
unglingahljómsveita. Þá verða
ýmis skemmtiatriði í boði. Jakob
Frímann segir að verið sé að
reísa risavaxið svið sem muni
verða með því metnaðarfyllsta
hljóð- og ljósakerfi sem völ sé á.
Þeir sem algerlega vilja tryg-
Á LEIÐ TIL EYJA
Biðröð myndaðist við miðasölu BSÍ þegar sala á farmiðum til Eyja hófst síðastliðinn
þriðjudag. Þeir sem ómögulega geta beðið geta hitað sig upp fyrir þjóðhátíð í Eyjum í
Þrastarskógi nú um helgina. Það eru félagar sem standa að vefsíðunni eyjar2002.com
sem skipuleggja þá uppákomu.
gja það að geta skemmt sér án
þess að vímuefni séu nálæg ættu
að leggja leið sína á útihátíð í
Staðarfelli, nánar tiltekið á Sel-
strönd í Dalasýslu. Hjalti
Björnsson, dagskrárstjóri á
sjúkrahúsinu Vogi, segir að búið
sé að skipuleggja viðamikla dag-
skrá sem stíluð sé inn á alla fjöl-
skylduna. Til staðar verði öll
þjónusta.
Sú hátíð sem hvað fjölmenn-
ust var í fyrra var Kántrýhátíðin
á Skagaströnd. Sigurður Sigurð-
arson, framkvæmdarstjóri, seg-
ist ekki búast við eins miklum
fjölda í ár. í boði verði hefðbund-
in dagskrá sem byggð sé upp af
heimamönnum og aðkomuhljóm-
sveitum. Gat hann þess að vænt-
anlegur væri geisladiskur til
heiðurs Hallbirni Hjartarsyni,
primus motoi', Kántrýhátíðarinn-
ar, sem tengjast myndi hátíðinni
að einhverju leyti. Það væri ekki
síst gert til að hampa frum-
kvöðlastarfi Hallbjarnar. Gerði
hann ráð fyrir að nú sem
endranær kæmi fólk sem komið
væri yfir þrítugt ásamt fjöl-
skyldum sínum.
kolbrun@frettabladid.is
Ný kvíkmynd í bígerð:
Berjast Súperman og
Batman á hvíta tjaldinu?
kvikmyndir Hugsanlegt er að ofur-
hetjurnar Batman og Súperman
muni eigast við í nýrri kvikmynd
sem er í bígerð. Warner Brothers
kvikmyndafyrirtækið hefur til-
kynnt um að það ætli að framleiða
kvikmyndina sem verður leik-
stýrt af Wolfgang Petersen. Þess-
ar upplýsingar eru hafðar eftir
Variety, helsta málgagns
skemmtiiðnaðarins.
Matt Damon, sem meðal ann-
ars hefur leikið í kvikmyndinni,
Good Will Hunting, hefur verið
orðaður við kvikmyndina, en ekki
er í ljóst í hvoru hlutverkinu hann
myndi lenda.
Batman og Superman eru vin-
sælustu ofurhetjurnar sem þekkj-
ast. Vinsælar Hollywoodmyndir
hafa verið gerðar um þær báðar.
Fjórar Batman myndir voru gerð-
ar á níunda og tíunda áratugnum.
Fjórar Superman myndir voru
einnig gerðar þar sem Christoph-
er Reeve fór með aðalhlutverkið.
Hann er sem kunnugt er lamaður
ídag.
Vinsældir kvikmyndarinnar
um Spiderman hafa sannfært
kvikmyndaverin að óvitlaust sé að
fjárfesta í ofurhetjum.
í myndinni fyrirhuguðu er ætl-
unin að Superman og Batman
lendi upp á kant hvor við annan
vegna „ágreinings um hugmynda-
fræði“. Petersen segir þá fullkom-
ið par, eins og tvær hliðar á sama
KLASSÍSKAR HETJUR
Mætast I kvikmynd að því er nýjustu
fregnír herma.
pening, þar sem annar er bjartur
og göfugur en hinn myrkur og
hefndargjarn. Superman er sá
fyrrnefndi en Batman síðar-
nefndi. ■