Fréttablaðið - 13.07.2002, Page 16
vr
HVER ER TILGANGUR LIFSINS?
Tilgangur lífsins er að lifa lífinu lifandi.
Vigdis Sigurjónsdóttir
o
o
©
ö
©
©
ö
©
©
©
IVIETSÖLULISTI
METSÖLULISTIEYMYNDSSON
YFIR ERLENDAR BÆKUR
lan Rankin
RESURRECTION MEN
Robert B. Parker
DEATH IN PARADISE
Ed McBain
MONEY.MONEY.MONEY
Martha Grimes
BLUE LAST
David Baldacci
LAST MAN STANDING
Elizabeth George
TRAITOR TO MEMORY
Patricia Cornwell
ISLE OF DOGS
Acid Row
MINETTE WALTERS
Thief of Time
TERRY PRATCHETT
Nicci French
THE REDROOM
Erlendar bækur:
Spennu-
sögur alls-
ráðandi
bækur Spennusögur ráöa ríkjum
á lista Eymundsson yfir erlend-
ar bækur sem kemur ekki á
óvart. Þetta eru nefnilega þær
tegundir bóka sem fólk kýs
gjarnan að lesa í sínum sumar-
fríum. Margir fremstu spennu-
sagnahöfunda eiga bækur á list-
anum. Má-þar nefna höfunda á
borð við Ed McBain, David
Baldacci og Patriciu Cornwell.
Bókin sem trónir nú í efsta sæti,
Resurrection men eftir Ian
Rankin, segir af breska rann-
sóknarfulltrúanum John Rebus.
Þessi saga er sú 13. í röðinni. ís-
lenskir sjónvarpsáhorfendur
ættu að kannast við kauða því
Ríkissjónvarpið hefur sýnt
nokkrar bíómyndir um þennan
mislynda lögregíumann. ■
DAGURISVEIT
Reiðskólinn Þyrill býður upp á dagsferð-
ir fyrir börn að Torfastöðum í Fljitshlið.
Farið er frá Reiðhöllinni í Víðidal kl.
8:00 og komið til baka kl. 16:30. Börn-
in fá afhentan hest sem þau hafa af-
not af allan daginn. Skólinn útvegar
hjálma og hnakka. Riðið er eftir lands-
laglnu og söguslóðir Njálu kannaðar.
Komið við á Sögusetrinu á Hvolsvelli í
bakaleiðinni.
16
QlQAJaATTSm
RE1
TRÉTTABL AT5IÐ
SOOSUÚi J«>DAanA3UAJ
13. julí 2002 LAUGARDAGUR
Galtalækj arskógur:
Söngveisla
á hátíðarsviði
tónleikar Á morgun, sunnudag,
klukkan 17.00 verða haldnir útitón-
leikar á hátíðarsviðinu í Galtalækj-
arskógi. Þar munu bræðurnir frá
Álftagerði, þeir Sigfús, Pétur, Gísli
og Óskar, koma fram ásamt söng-
konunni ástælu Diddú. Spaugstofu-
mennirnir Örn Árna og Karl Ágúst
sjá um kynningar og gamanmál en
undirleikur er í höndum Stefáns
Gíslasonar og Jónasar Þóris.
Guðni Björnsson, framkvæmda-
stjóri Galtalækjarskógar, segir tón-
leikana til styrktar uppbyggingu í
LAUGARDAGUR
13. JÚLÍ
GONGUFERÐIR
11.00 Á vegum NLFR verður farið í
grasaferð um nágrenni Reykjavik-
ur í dag. Farið verður undir leið-
sögn Ásthildar Einarsdóttur,
grasalæknis og fegrunarsérfræð-
ings. Tíndar verða jurtir til tegerð-
ar og fleira við nágrenni Vífils-
staðavatns. Hist verður við Vífils-
staðavatn og þaðan gengið á slóð
jurtanna. Áætlað er að ferðin taki
um þrjár klukkustundir.
TÓNLEIKAR
skóginum. „Nú eru t.d. síðustu for-
vöð að sjá eitthvað fara fram á
gamla sviðinu, sem er auðvitað það
svið sem gestir Galtalækjar þekkja
í gegnum tíðina, ákaflega fornfá-
legt, en hefur sannarlega staðið
fyrir sínu. Gamla sviðið verður rif-
ið niður daginn eftir tónleikana og
verður í framtíðinni notað sem
barnasvið. Nýtt hátíðarsvið verður
svo tekið í notkun fyrir Galtalækj-
arhátíðina um verslunarmanna-
helgina," segir Guðni.
„Önnur uppbygging í skóginum
SÖNGBRÆÐUR
Álftagerðisbræður ásamt Diddú og Spaugstofumönnum munu skemmta gestum
í Galtalæk á sunnudag.
er m.a. landgræðsla, skógrækt og
aðstaða fyrir sumardvalargesti."
Guðni segir gráupplagt fyrir
fólk að fá sér sunnudagsbíltúr aust-
ur og njóta náttúrunnnar og fagurs
söng við rætur Heklu. Aðgangseyr-
ir á tónleikana er 1.500 krónur, en
aðgöngumiða er hægt að fá í for-
sölu fram á sunnudag á bensín-
stöðvum OLÍS.
aawiiawisKL'-nf.rKWLTji
14.00 Haldnir verða tónleikar í Árbæjar-
safni í dag. Tríóið Jazzandi leikur
fyrir gesti þekkta djass standara
ásamt frumsömdu efni. Tríóið
skipa Sigurjón Alexandersson á
gítar, Sigurdór Guðmundsson á
bassa og Ingvi Rafn Ingvason á
trommur.
16.00 Á veitingahúsinu Jómfrúnni við
Lækjargötu í dag koma fram
söngkonan Andrea Gylfadóttir
og gítarleikarinn Guðmundur
Pétursson. Tónleikarnir hefjast kl.
16 og standa til kl. 18. Leikið
verður utandyra á Jómfrúrtorginu
ef veður leyfir, en annars inni á
Jómfrúnni. Aðgangur er ókeypis.
21.00 Sænski barritónsaxafónleikarinn
Cecilia Wennerström heldur tón-
leika í kvöld á Valaskjálf á Egils-
stöðum í kvöld. Með henni leika
þeir Kjartan Valdemarsson, pi-
anó, Matthias M.D. Hemstock,
trommur og færeyski bassaleikar-
inn Edvard Nyhoím Debess.
Kynnir er Friðrik Theodórsson.
SKEMMTANIR____________________________
23.00 Á Kringlukránni í kvöld leikur
hljómsveitin Úlfarnir.
23.00 Þeir félagar Svensen og Hall-
funkel skemmta í kvöld á
Gullöldinni.
23.00 Hljómsveitin KOS leikur og syngur
i kvöld á Fjörukránni.
23.00 Á Piayers í Kópavogi sjá Björg-
vin Halldórs og Sigga Beinteins
um stuðið.
23.30 Dj. Benni verður við völdin í búr-
inu á Café 22 og heldur væntan-
lega uppi góðri partýstemningu
með hæfilegri blöndu af nostalgíu
og nýlegu stöffi að hætti hússins.
23.30 Hljómsveitin SSSól heldur uppi
stuðinu í Sjallanum, Akureyri, i
kvöld.
23.30 Dansleikur verður í Hreðavants-
skálanum í kvöld Hljómsveitín
Sóldögg leíkur fyrir dansi.
24.00 Tríóið Úlrik skemmtir fram á
morgun á veitingahúsinu Café
Amsterdam.
MYNPLIST______________________________
Kanadíski landslagsmálarinn David Al-
exander sýnir í Hafnarborg. Verkin sem
eru til sýnis eru afrakstur (slandsdvalar
Alexanders um sumarið 2000 er hann
var með vinnuaðstöðu í Straumí. Sýn-
ingin er opin alla daga nema þriðjudaga
kl. 11-17 og henni lýkur 22. júlí.
Elsa Rodrigues ung listakona frá Lissa-
bon í Portugal er með einkasýningu í
Gallerí Tukt. Elsa byrjaði á undirbúningi
verkanna þegar hún dvaldi á íslandi á
síðasta ári. Hún sýnir Ijósmyndir þar
sem hún notar sjálfa sig sem efnivið til
að túlka viðfangsefnið. Sýningin stendur
til 14. júlí.
Listamennirnir Maria Patricía Tinajero-
Baker frá Equador, Amy Barillaro, Ann
Chucvara, Julie Poitras Santos og
Jaeha Yoo sem öll eru bandarísk,
Tsehai Johnson frá Eþíópíu og hin ís-
lenska Hrafnhildur Sigurðardóttir hafa
opnað sýningu í Sverrissal Hafnarborg-
Líf og fjör
í miðbænum
Skemmtidagsskrá í miðbænum í dag. Fyrsti laugardagur af sex þar
sem auknu lífi er hleypt í miðbæinn. Þema dagsins er götulist.
hátíð „Ætlunin er að efla líf í
miðbænum," segir Silja Hauks-
dóttir sem vinnur við fram-
kvæmd verkefnisins. „Þetta er
fyrsti laugardagurinn af sex
þar sem stefnt er að því að hafa
skemmtilegar uppákomur í
miðbænum." Hugmyndin er að
hennar sögn að miðbærinn
verði undirlagður af dags-
skránni. Á boðstólum verði tón-
leikar, útigrill, götulistamenn,
andlitsmálarar, skákkeppni, úti-
markaður, leiktæki og
skemmtikraftar.
í dag verður jafningja-
fræðslan með götuhátíð á Lækj-
artorgi. Allan daginn verður
skemmtun á torginu og má þar
nefna flóamarkað með varning
frá búðum Laugavegarins, leik-
tæki og andlitsmálningu. Auk
þess verða tónleikar þar allan
daginn.
„Hver laugardagur hefur
síðan sitt þema,“ segir Silja. í
dag er þemað götulist og munu
fjölbreyttir hópar listamanna
skemmta sér og gestum Lauga-
vegarins á morgun. Meðal þeir-
ra sem munu troða upp eru trú-
badorar, götulistamenn, trúðar,
sem mála á andlit krakka, söng-
hópur, breakdanshópur, grafík-
listamenn og ýmsar hljómsveit-
DAGSKRA JAFNINGJAFRÆÐSLUNNAR A LÆKJARTORGI
TÍMI HUÓMSVEIT TÓNLIST
13.00 Bæjarins bestu hip hop
13.30 Sveittír gangaverðir r'n b
14.00 Reaper heavy Metal
14.30 Kimono rokk
15.00 Afkvæmi guðanna rapp
15.30 Leikfélagið Ofleikur leikatriði
16.30 Forgotten Lores hip hop
17.00 Leoncie popp
17.30 Kuai rokk
18.00 Snafu metal
18.30 Sumartónlist
Þegar er hafin skipulagning
á óvæntum og skemmtilegum
viðburðum fyrir næstu iaugar-
daga. Sem dæmi um atburði
sem eru í bígerð er öfug um-
ferð upp Laugaveginn, skreyt-
ingu og breytt útlit Hallgríms-
kirkju, afsteypu af lófum
þekkts fólks á Laugaveginn og
uppboð á munum þeirra.
Dagsskráin í dag fer fram á
Ingólfstorgi, Skólavörðustíg,
Laugarvegi, Lækjartorgi, í
Grófinni og Austurstræti. ■
BÍÓFERD
Konur gera líka
Enn er hægt að komast í bíó í
miðbæ Reykjavíkur. Regnbog-
inn á Hverfisgötu á sínum stað og
sýnir Unfaithful eftir sama leik-
stjóra og gerði Fatal Attraction
fyrir mörgum árum. Þar hélt
Michaei Dougias fram hjá eigin-
konu sinni með skelfilegum afleið-
ingum. Á Hverfisgötunni heldur
Diane Lane nú fram hjá Richard
Gei’e með ekki minni látum. Tím-
inn sem Ííður á milli myndanna
sýnir okkur að konur gera það líka
og ekki er það skárra.
Þarna er margt umhugsunar-
vert og þokki Diane Lane er
hverrar mínútu virði á tjaldinu.
Franski sjarmörinn Oliver
Martinez er hins vegar ekki eins
trúverðugur og illskiljanlegt
hvernig frú Lane datt í hug að
skipta á honum og Gere. Henni
leiddist líklega.
Sjálfum leiddist mér að fá ekki
að taka með mér súkkulaðisjeik
inn í kvikmyndahúsið. Samkvæmt
reglum kvikmyndahúsa er bannað
að bera sælgæti og aðra matvöru
sem keypt er utan húss með sér í
salinn. Oðruvísi mér áður brá þeg-
ar maður poppaði heima fyrir bíó-
sýningar og fór svo með heilan
poka af volgu poppi í bíó. Þá var
líka hægt að velja á milli fjölda
UNFAITHFUL:
kvikmyndahúsa í miðborginni;
Nýja bíó og Gamla, Stjörnubíó og
Hafnarbíó en öll eru þau nú horfin
í versiunarmiðstöðvar úthverf-
anna en það voru einmitt leiðindi
úthverfanna sem leiddu Diane
Lane í fang Oliver Martinez. Hann
bjó í miðbænum og þangað sóttu
ástríður hennar og losti. Þar vilj-
um við líka geta farið í bíó en
Regnboginn er nú einn eftir.
Eiríkur Jónson