Fréttablaðið - 26.07.2002, Síða 8

Fréttablaðið - 26.07.2002, Síða 8
I Kaup- manna- höfn Brottför á föstudögum skv. áætlun Flugleiöa FERÐIR Hliöasmára 15 • Simi 535 2100 www.plusferdir. is FRÉTTABLAÐIÐ 26. júlí 2002 FÖSTUPAGUR Japan: Sjálfsvígum fækkar tókýó. ap Sjálfsvígum í Japan fækkaði á síðasta ári um 2,9%. Er þetta annað árið í röð sem sjálfs- vígum í landinu fækkar. 31.042 manneskjur frömdu sjálfsmorð á síðasta ári, miðað við 31.957 árið áður. Um helmingur sjálfsvíg- anna var framinn af heilsufarsá- stæðum. Talið er að 6.845 manns hafi fyrirfarið sér vegna pen- ingavandræða, sem er 0,10% fleiri en árið á undan. 22.144 karl- ar frömdu tóku eigið líf á móti 8.898 konum. Flestir karlmenn- irnir voru á sextugs og sjötugs- aldri. ■ Ársskýrsla Byrgisins: Stór hluti heimilislaus árangur í ársskýrslu meðferða- heimilis Byrgisins í Rockville má sjá að þangað komu 127 einstak- lingar árið 2001. Að jafnaði dvöldu 30 manns í einu auk 10 sem unnu að uppbyggingu á svæðinu. Af þeim 127 sem þar dvöldu luku 41 mann- eskja 6-8 mánaða meðferð á árinu. Um áramót voru 35 þeirra eða 85% enn edrú og liðlega 11% þeirra voru án atvinnu. Við komu voru um 89% þeirra sem sóttu í meðferð, heimilislausir og svipað hlutfall þeirra hafði ekki unnið s.l. sex mánuðina á undan eða voru á bótum frá Tryggingastofnun eða viðkomandi félagsþjónustu. Að- eins 15% höfðu atvinnu fyrir með- ferð. ■ Heildarvelta samkvæmt virðisaukaskattsskýrslum: Veltuaukning í hagkerfinu EFNAHACSMÁi Heildarvelta fyrstu fjóra mánuði árs- ins nam 398 milljörðum króna án virðisaukaskatt samkvæmt tölum Hag- stofu íslands. Það er 38,5 milljörðum meira en var á sama árstíma fyrir ári síðan. Aukningin nemur 10,8% prósentum sé ekki tekið mið af verðbólgu en 2,5% þegar verðbólga hefur verið dregin frá. Mestu munar að velta í . .. . i,IVIIKIh ',EL™*U.K!^IN<? ... fiskveiðum fer úr 21,3 Mikil veltuauknmg hefur orðið i sjávarutvegi milli i milljörðum króna fyrstu fjóra il aukning er einnig í heildar- mánuði síðasta árs í 28 milljarða veltu rafmagns-, gas- og hita- í janúar til apríl á þessu ári. Mik- veitna, sem vex um þriðjung úr 11,5 milljörðum í 15,4 milljarða, og efna- vinnslu þar sem veltu- aukningin nemur 30,8%. Mest er aukningin þó hlutfallslega í fram- leiðslu lækninga-, mæli- tækja og úra 62,7% og landbúnaði og dýraveið- um, 57,6%. Lítilsháttar samdrátt- ur er í smásölu. Sam- drátturinn er þó minni en verið hefur. í Morg- unkornum íslandsbanka í gær var það sagt kunna að vera merki um að neysla sé byrjuð að vaxa á ný. ■ Kamfýlóbakter og salmonella: Lítið um smit síðustu hollusta Lítið hefur verið um kamfýlóbakter- og salmonellu- smit í matvælum í ár og á síðasta ári samkvæmt prófunum Holl- ustuverndar ríkisins. Það er nokk- ur breyting frá því sem var fyrir nokkrum árum. „Fyrir nokkrum árum var tölu- vert mikið um kamfýlóbakter í kjúklingum og margir sem sýkt- ust. Sérstaklega 1999,“ segir Elín Guðmundsdóttir, forstöðumaður matvælasviðs Hollustuverndar ríkisins. „Árið 2000 kom upp salmonellusýking sem var leitt misseri líkum að kæmi úr salati en tókst aldrei að rækta úr salatinu. Sú sýking var nokkuð stór. í fyrra komu upp nokkur tilfelli um salmonellu í kjúkling. Það var allt innkallað og það varð enginn veik- ur af því.“ Hollustuvernd ríkisins tekur sýni úr matvælum til að greina hvort örverur sé að finna í þeim. Samkvæmt reglum má selja fros- na kjúklinga þó kamfýlóbakter hafi greinst í þeim en salmonella má ekki vera í matvælum á mark- aði. Báðar tegundir örvera deyja KEYPT I MATINN Undanfarið hefur ekki komið til faraldra á borð við þá sem lögðu suma í rúmið árin 1999 og 2000. við suðu en til að tryggja öryggi verður að fara varlega með vörur sé hætta á að örverur séu í þeim. ■ Síðasti söludagur er 8. ágúst. -takmarkað sætaframboð Baráttan um öldur ljósvakans Ekki gefið að Fjölmiðlafélagið fái útsendingar- tíðnir Norðurljósa verði þau gjaldþrota. Oheimilt að framselja tíðnir, enda bundnar kennitölu. Skylt að auglýsa þær lausar til umsóknar. sjónvarp „Tíðniheimildir eru gefnar út á kennitölu og bundnar henni. Það getur enginn ráðstaf- að tíðniheimildum til þriðja aðila, Það getur enginn ráð- stafað tíðni- heimildum sfnum til þrið- ja aðila, á það hefur reynt. á það hefur reynt. Ef kennitala er ekki lengur til, þá eru allar tíðni- heimildir viðkom- andi, fallnar nið- ur,“ segir Guð- mundur Ólafsson, forstöðumaður tæknideildar Póst- og Fjarskiptastofnunar. í þeim átökum sem átt hafa sér stað milli ljósvakamiðla að undanförnu er meðal annars tek- ist á um tíðniheimildir sem eru takmörkuð auðlind. Norðurljós hafa nú til afnota verulegan hluta þeirra sjónvarpsrása sem til skiptanna eru og því eftir nokkru að slægjast. Fjölmiðlafélagið ehf. hefur sem kunnugt er, att kappi við Norðurljós og staðið fyrir „að- för“ að félaginu eins og forstjóri Norðurljósa orðar það. Það er þó ekki sjálfgefið að Fjölmiðlafélag- ið ehf. fái þær rásir sem Norður- Ijós notar nú, fari fyrirtækið í gjaldþrot. Öðru máli gegndi ef Fjölmiðlafélagið keypti hlutabréf í Norðurljósum, tæki yfir skuldir og næði þannig yfirráðum í fé- laginu. Póst- og Fjarskiptastofn- un skiptir sér eðli málsins sam- kvæmt, ekki af eignarhaldi hluta- félaga. „Samkvæmt nýjum fjarskipta- lögum ber okkur að auglýsa laus- ar tíðnir, þegar eftirspurn er meira en framboð. Hvernig svo sem ber að mæla slíkt. Það eru engir biðlistar, heldur auglýsum við lausar tíðnir, þegar og ef slíkt kemur upp. Á Vatnsenda er aðeins hægt að hafa þrjá sterka sjón- varpssenda á því tíðnisviði sem sjónvarpstækin ráða við. En við getum úthlutað nokkrum tíðni- heimildum á Esju. ef einhver hef- ur áhuga á slíku. í dag snúa hins vegar öll loftnet að Vatnsenda. Það þyrfti því að setja upp ný loft- net sem snúa að Esju fyrir stöð sem vildi senda af tojmi Esjunn- ar,“ segir Guðmundur Ólafsson. the@frettabladid.is SJÓNVARPSSENDIR Á VATNSENDA Verði sjónvarpsfélag gjaldþrota þarf að auglýsa tíðnir félagsins lausar.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.