Fréttablaðið - 26.07.2002, Qupperneq 16
16
FRÉTTABLAÐIÐ
26. júlí 2002 FÖSTI/PAGUR
Allan sólarhringinn.
Birna Þórðardóttir, blaðamaður.
Listakonur í Vesturporti:
Frá þremur
löndum
mynplist í dag verður opnuð í Vest-
urporti á Vesturgötu 18 sýning á
verkum Kristínar Scheving frá ís-
landi, Jenny McCabe frá Englandi
og Magali Theviot frá Frakklandi.
Sýningin er samvinnuverkefni lista-
kvennanna, sem ferðast til þriggja
landa á þremur mánuðum. Vestur-
port er opið helgina 27. til 28. júlí
frá kl. 14 til 18. ■
lítsala/
Útsalai
Utsalan í fullum gangi
10-50%
afsláttur
Tískufatnaður
Sundfatnadur
líndirfatnaður
Náttfatnaður
Náttsloppar
Franskir dagar á Fáskrtáðsfirði:
Látlaust ljör og skipti-
markaður með staka sokka
hAtIð Um helgina verður mikið
fjör á Fáskrúðsfirði, en þar halda
heimamenn hátíðina Franska
daga í sjöunda skipti. „Við gerum
þetta til að undirstrika tengslin
millli Fáskrúðsfjarðar og Frakk-
lands, hér var aðalbaekistöð fran-
skra skútusjómanna," segir Al-
bert Eiríksson upplýsingafull-
trúi. „Þetta er mikið samvinnu-
verkefni, fólk tekur að sér
ákveðin verkefni ár eftir og ár
og þetta hefur mannbætandi
áhrif á svona lítið samfélag. Hér
miðast allt við Franska daga,
fólk fer ými'st í frí eftir hátíðina
eða passar eða vera komið heim
úr fríi áður en hún hefst.“
Á hátíðinni verður stanslaust
stuð og blandað saman gamni og
alvöru. Hljómsveitir spila á
föstudags og laugardagskvöld,
söngvakeppni verður haldin,
harmonikkuball, varðeldur og
flugeldasýning svo fátt eitt sé
nefnt. „Svo eru náttúrlega fastir
liðir eins og dorgveiðikeppnin og
á hverju ári er skiptimarkaður
með staka sokka,“ segir Albert.
„Það er landlægt þetta með að
annan sokkinn vanti. Hér hefur
líka farið fram keppni í stígvéla-
sparki og sveskjusteinaspýting-
um.“ Albert segir fjölda Frakka
væntanlega á hátíðina og til stan-
di að keppa við þá í franska spil-
inu Pétanque. „Þetta er einfalt
spil og við verðum að standa okk-
ur, það er ótækt að Frakki hampi
íslandsmeistartitlinum í spil-
inu.“
Hátíðin hefst með minningar-
FRANSKIR DAGAR
Bæjarbúar leggjast allir á eitt að gera há-
tíðina sem veglegasta.
athöfn í Franska grafreitnum á
föstudagskvöld og svo dunar
fjörið fram á sunnudag. ■
FÖSTUDAGUR
26. JÚLÍ
SKEMMTANIR_____________________
Kringlukráin Hljómsveitin Hafrót, Sig-
urður Hafsteinsson, Rafn Erlendsson og
Pétur Hreinsson.
00.00 Grandrokk Rapp-hipp-hopp-jazz
tónleikar þar sem saman koma
Rímnamín-rapparar og jazzarar af
yngri kynslóðinni
Players Ekta kántrý beint frá L. A. GIS &
Big City.
21.00 Sportkaffi. Karlakvöld.
Vopnafjörður, Vopnaskak. í svörtum föt-
um í Miklagarði.
TÓNLIST______________________________
Tónlistarhátiðin í Reykholti hefst með
tónleikum klukkan 21 í kvöld. Hátíðin
stendur fram á sunnudag. Dagskráin er
afar fjölbreytt, en áhersla er lögð á nor-
ræna og evrópska tónlist að þessu sinni,
með Finnland í forgrunninn. Haldnir
verða fernir tónleikar þar sem m.a. verð-
ur flutt tónlist eftir Mozart, Schubert, Si-
belius, Bach, Handel, Debussy, Ravel og
Chopin. Flytjendur eru meðal helstu
tónlistarmanna landsins og gestir hátíð-
arinnar í ár eru Petteri Salomaa, bariton
frá Finnlandi, og Love Derwinger, píanó-
leikari frá Svíþjóð.
AKUREYRI_____________________________
21.00 Deiglan í Listagili. Heimur Ijóðs-
ins. Kvæðakvöld með kvæðum
eftir Halldór Kiljan Laxness og
Pablo Neruda.
OPNUN________________________________
í dag opnar Olga Pálsdóttir myndlistar-
kona sýningu á verkum sínum á Vatns-
stíg 9. Olga er fædd í Norður-Rússlandi,
en hefur búið á Islandi í meira en 13 ár.
Hugmyndin að baki verka Olgu er að
tefla saman syndinni f nútímaþjóðfélagi
og afleiðingum hennar, en fyrir utan trú-
arlegan bakgrunn fjalla verkin um sið-
ferði og pólitfk.
í dag verður opnuð f Vesturporti á
Vesturgötu 18 sýning á verkum þriggja
listakvenna undir heitinu c3. Sýningin er
samvinnuverkefni listakvennanna, sem
ferðast til þriggja landa á þremur mán-
uðum, og stendur sýningin í þrjá daga í
hvert sinn. Konurnar eru Kristín Schev-
ing frá Islandi, Jenny McCabe frá
Englandi og Magali Theviot frá Frakk-
landi.
Vesturport er opið helgina 27. til 28. júlí
frá kl. 14.00 til 18.00 báða dagana.
LISTAMENN A ÆFINGU
Unnendur góðrar tónlistar ættu að fá eitthvað við sitt hæfi á Reykholtshátíð.
T ónlistarhátíð
í Reykholti
Flytjendur eru meðal helstu tónlistarmanna landsins. Frá Finnlandi
og Svíþjóð koma góðir gestir og áhersla er lögð á að hátíðin sé jafn
ánægjuleg fyrir flytjendur og áheyrendur.
tónlist Tónlistarhátíðin í Reyk-
holti er nú haldin í sjötta sinn.
Hátíðin hefst í dag og stendur
fram á sunnudag. Dagskráin er
afar fjölbreytt, en áhersla er
lögð á norræna og evrópska tón-
list að þessu sinni, með Finnland
í forgrunninn. Haldnir verða
fernir tónleikar þar sem m.a.
verður flutt tónlist eftir Mozart,
Schubert, Sibelius, Bach, Hand-
el, Debussy, Ravel og Chopin.
Flytjendur eru meðal helstu tón-
listarmanna landsins og gestir
hátíðarinnar í ár eru Petteri Sal-
omaa, bariton frá Finnlandi, og
Love Derwinger, píanóleikari frá
Svíþjóð.
Steinunn Birna Ragnarsdótt-
ir, píanóleikari og stjórnandi há-
tíðarinnar, segir það lengi hafa
verið draum að halda svona há-
tíð. „Ég hafði tekið þátt í sam-
bærilegum hátíðum til dæmis á
Spáni, bæði sem þátttakandi og
áhorfandi, og fannst þetta mjög
hrífandi form. Þetta verður
meira en að fara bara á tónleika,
miklu meiri upplifun og léttari
stemmning," segir Steinunn
Birna. „Svo er auðvitað gaman
fyrir flytjendur að vera saman í
viku fyrir hátíðina. Það er allt
öðruvísi en þegar fólk vinnur sitt
í hvoru lagi og hittist bara á æf-
ingum. Þarna erum við allan sól-
arhringinn í vinnubúðum, æfing-
ar eru reyndar mjög strangar, en
við borðum saman, gefum okkur
tíma til að fara saman í sund og
gera ýmislegt skemmtilegt, þan-
nig að umgjörðin um þetta er
mjög sérstök." Steinunn Birna
segir ánægju flytjenda skila sér
til áheyrenda, sem séu á móti
mjög þakklátir. „Áherslan hefur
verið á það frá byrjun að þetta sé
allt mjög ánægjuleg upplifun,
hvort sem er fyrir flytjendur eða
áheyrendur.“
Opnunartónleikar hátíðarinn-
ar verða í kvöld klukkan 21, á
morgun verða tónleikar klukkan
15 og 21, og á sunnudaginn lýkur
hátíðinni með tónleikum klukkan
16.
edda@frettabladid.is
í GÖMLU JAPIS BÚÐINNI, Brautarholti 2 SON I
Ný sending af geisladiskum!
Ný sending af DVD 356 titlar
POPP-ROCK og HEIMSTÓNLIST - fjölbreytt flóra
TÖLVULEIKIR f úrvali
Virðum rétt
versiunarmanna:
LOKAÐ UM
VERSLUNARMANNAHELGiNA!
SON
OPiD ALLA DAGA KL 12 - 19