Fréttablaðið - 27.07.2002, Síða 4
4
FRÉTTABLAÐIÐ
27. júlí 2002 LAUGARPAGUR
SVONA ERUM VIÐ
KONUR HAFA VINNINGINN
Karlar eru fjölmennari en konur í þremur
af tólf póstnúmerum Reykjavíkur. ( öllum
hinum póstnúmerunum í höfuðborginni
hafa konur vinninginn.
KYNJASKIPTING EFTIR HVERFUM
KARLAR KONUR
101 Reykjavík 7.294
103 Reykjavík 832 968
104 Reykjavík 4.510 4.847
105 Reykjavík 7.449 7.825
107 Reykjavík | 4.912
108 Reykjavík 5.967 6.276
109Reykjavík 6.147 6.356
110 Reykjavík 4.567 4.430
11JReykjavík 4.760
112 Reykjavík 8.654 8.905
113 Reykjavík 107 117
116 Reykjavík 395 372
HEIMILD: HAGSTOFAN|
Hassmálið til
ákæruvaldsins:
Rannsókn
lokið
logregla Fíkniefnadeild lögregl-
unnar í Reykjavík hefur lokið
rannsókn á máli sem tengist inn-
flutningi á um 30 kílóum af hassi.
Maður um fimmtugt hefur setið í
gæsluvarðhaldi vegna málsins.
Búist við því að gögn í málinu
verði send ríkissaksóknara á
næstu dögum.
Lögreglan lagði hald á efnið í
mars, en það kom til landsins í
gámi með flutningaskipi frá
Norðurlöndunum. Lögreglan hef-
ur aldrei áður lagt hald á jafn-
mikið magn af hassi í einni send-
ingu.
I fyrradag var maður dæmdur
í tveggja ára fangelsi fyrir til-
raun til smygls á 30 kílóum af
hassi frá Spáni, en efnið var gert
upptækt á flutningamiðstöð í
Barcelona. ■
Stofnfj áreigandi
í SPRON:
Vill van-
traust
á stjórn
spron Sveinn Valfells, stofnfjár-
eigandi í SPRON hefur sent
stjórn sparisjóðsins bréf þar sem
hann krefst þess að á fyrirhuguð-
um fundi stofnfjáreigenda, 12.
ágúst næstkomandi, verið tekin
fyrir tillaga um vantraust á
stjórn sjóðsins og ný stjórn kjör-
in. í bréfi sem Sveinn sendi Jóni
G. Tómassyni, formanni stjórnar
SPRON, segir að ástæða van-
trauststillögunnar sé ummæli
stjórnar SPRON á opinberum
vettvangi um að hún hyggist ekki
samþykkja viðskipti á grundvelli
samnings fimm stofnfjáreigenda
við Búnaðarbankann. ■
Skuld Norðudjósa
við Islandsbanka
Hætt við
gjaldfellingu
norðurljós Samkomulag hefur
tekist milli íslandsbanka og Norð-
ur'.jósa vegna stefnu sem þingfest
hafði verið á hendur Norðurljós-
um. Bankinn stefndi vegna eftir-
stöðva 60 milljóna króna víxils.
Norðurljós hafði greitt 20 milljón-
ir króna af þessum víxli til ís-
landsbanka, en 40 milljónir voru
eftir, auk vaxta og kostnaðar. Það
hefur nú verið gert upp. Gjaldfell-
ingar íslandsbanka og Lands-
banka sem mikið hafa verið til
umræðu að undanförnu hafa því
verið dregnar til baka. Gjaldfell-
ing þriðja bankans, Búnaðar-
banka íslands hf. stendur því ein
eftir. ■
Eigið fé Islandsbanka 20 milljarðar:
1.647 milljóna
hagnaður Islandsbanka
afkoma íslandsbanki hagnaðist
um 1.647 milljónir króna eftir
skatta á fyrri hluta ársins. Árs-
hlutauppgjör bankans var birt í
gær og sýndi að arðsemi eigin
fjár fyrstu sex mánuði ársins
nam 17,6%. Stjórnendur bankans
gera ráð fyrir að afkoman verði
jafnvel betri á síðari helmingi
ársins.
Staða íslandsbanka er afar
sterk. Eigið fé bankans nam 20
milljörðum króna í lok síðasta
mánaðar og er eiginfjárhlutfallið
á CAD grunni 12,2%. Heildareign-
ir bankans voru í lok júní metnar
á 320 milljarða króna. Þá höfðu
þær að vísu dregist saman um
8,1%, einkum vegna gengisáhrifa.
Hreinar vaxtatekjur námu
tæpum fimm milljörðum króna á
tímabilinu. Þær drógust saman
um 9,1% á milli ára. Þar ræður
lækkandi verðbólga miklu. Vaxta-
munur var 3,5% fyrri hluta síð-
asta árs en 2,9% fyrstu sex mán-
uði þessa árs.
Rekstrartekjur bankans námu
6.893 milljónum króna en rekstr-
arkostnaður 3.714 milljónum.
Kostnaður sem hlutfall af tekjum
var 53,9%. ■
ÍSLANDSBANKI
Afkoma bankans fyrstu sex mánuðina var
með besta móti. Forstjórar hans gera sér
vonir um betri seinni hluta árs.
FRÉTTASKÝRING
Allt annað en
frjáls innflutningur
Tillögur Bandaríkjanna um niðurskurð á stuðningi við landbúnað hafa valdið deilum. Þær gera
ráð fyrir stórfelldum niðurskurði til landbúnaðar. Búverndin hér á landi kostar fjögurra manna
Qölskylduna andvirði mánaðarvinnu árlega.
landbúnaður Tillögur banda-
rískra stjórnvalda um að draga
verulega úr ríkisstyrkjum til
landbúnaðar og lækka innflutn-
ingstolla hafa vakið blendin við-
brögð meðal annarra þjóða. Evr-
ópusambandið og Japan, þar sem
stuðningur við landbúnað er einna
mestur, hafa lýst efasemdum um
tillögurnar og heilindi Banda-
ríkjamanna, en Ný-sjálensk
stjórnvöld hafa tekið tillögunum
fagnandi.
Samkvæmt tillögum Banda-
ríkjanna, sem eru ætlaðar sem
innlegg í umræðuna um breyting-
ar á alþjóðareglum um viðskipti
með landbúnaðarafurðir, myndu
tollar falla úr 62% að meðaltali í
15% og þak yrði sett á ríkisstyrki
til landbúnaðar sem næmi fimm £
prósentum af andvirði framleiðsl- I
unnar innanlands. Ef tillögurnar §
næðu fram að ganga yrði það i
stærsta skrefið í átt að frjálsum |
viðskiptum við landbúnaðarafurð- £
ir hingað til. Á því eru hins vegar £
litlar líkur. Japanir og Evrópu-
sambandið óttast áhrif frjálsrar
verslunar á minni býli. Að auki
benda þau réttilega á að einungis
tveir mánuðir eru liðnir frá því
bandarísk stjórnvöld samþykktu
að fara langleiðina í að tvöfalda
styrki til landbúnaðar næsta ára-
tuginn.
í gegnum tíðina hefur gengið
erfiðlega að semja um frjálsari
viðskipti með landbúnaðarafurðir.
Það skýrist að sumu af því að um
gríðarlegar upphæðir er að ræða
og öfluga þrýstihópa. Samkvæmt
tillögum Bandaríkjastjórnar
myndu bændur í ríkari löndum
heims verða af 8.500 milljörðum
króna sem þeir hafa fengið í ríkis-
styrki. Það jafngildir 37 földum
fjárlögum íslenska ríkisins.
Sá hluti í tillögum bandarískra
stjórnvalda sem almenningur
finndi mest fyrir ef tillögurnar
næðu fram að ganga er talsverð
lækkun á tollum á innfluttum mat-
vælum. Bandaríkjamenn vilja að
tollarnir verði ekki hærri en 15%.
Hér á landi leggst 30% verðtollur
á innflutt matvæli. Við það bætist
magntollur á hvert innflutt kíló.
Sá tollur nemur frá 202 krónum á
kílóið upp í 1.462 krónur. Þessir
tollar gera það að verkum að inn-
fluttar landbúnaðarafurðir geta
ekki keppt við innlendar. Bú-
verndin kostar almenning 10,6
milljarða króna árlega. Það jafn-
gildir um 150.000 krónum á fjög-
KEYPT f HELGARMATINN
Ríkisstyrkir til bænda og hömlur á innflutn-
ingi landbúnaðarafurða hafa í för með sér
að almenningur er að greiða mun hærra
matvælaverð en ella væri.
urra manna fjölskyldu. Miðað við
tvær fyrirvinnur með 200.000
krónur í laun fyrir skatta lætur
nærri að hvor fyrirvinna um sig
verði að vinna hálfan mánuð á ári
til að standa straum af kostnaði
vegna búverndarinnar.
brynjolfur@frettabladid.is
Tollar á landbúnaðarafurðum:
Alögur sem gera
innflutning ómögulegan
TOLLAR OG ÚTSÖLUVERÐ NOKKURRA TEGUNDA
Afurð Tollur á hvert kíló Verð í Nóatúni 26. júlí
Nautalundir ;|; 1.462 kr. +30% 3.298 kr.
Hakkað nautakjöt 510 kr. +30% 949 kr.
Svínabógur 464 kr. +30% 599 kr.
Svínahryggssneíðar 775 kr. +30% 1.045 kr.
Lambalærisneiðar 382 kr. +30% i—BiBgl 1.398 kr. j
Heill kjúklingur 603 kr. +30% 695 kr.
matvæli Með samþykkt Alþjóða
viðskiptastofnunarinnar um
heimsviðskipti með landbúnaðar-
afurðir á fyrri hluta síðasta ára-
tugar var samþykkt að taka upp
verðtolla í stað innflutningsbanna
til að gera stuðning við landbúnað
sýnilegri.
Reglurnar hafa í för með sér að
leyfilegt er að flytja inn landbún-
aðarafurðir frá útlöndum en
framkvæmdin gerir það ómögu-
legt þar sem ekki er hægt að
keppa við innlendar í verði. Frá
því er þó sú undantekning að flyt-
ja má inn afurðir sem nema þrem-
ur til fimm prósentum af heildar-
sölu á lægri tollum.
Eins og sjá má á töflunni hér til
hliðar eru tollarnir misjafnir milli
tegunda en geta verið mjög háir
eins og sést á því að þeir sem flytja
inn nautalundir verða að greiða
1.462 krónur á hvert kíló í magn-
tolla auk 30% verðtolla sem eru
reiknaðir af innkaupsverði. Þó
magntollurinn sé hæstur þar í krón-
um talið finnst meira fyrir honum í
sumum öðrum afurðum. Þannig
verður að greiða 603 krónur í tolla
af hverju kíló af heilum kjúklingum
sem er flutt inn auk 30% verðtolls.
í gær mátti kaupa heilan kjúkling
út úr búð á 695 krónur. ■
Bætt afkoma Nýherja:
90 milljóna
viðsnún-
ingur
AFKOMA Nýherji skilaði 53,8 millj-
óna króna hagnaði eftir skatta
fyrstu sex mánuði þessa árs. Þetta
sr talsverð
breyting frá
því á sama
tíma á síðasta
ári. Þá var 36,3
milljóna króna
tap á rekstri fyrirtækisins eftir
skatta. Þetta kemur fram í árs-
hlutauppgjöri Nýherja sem var
birt í gær. Stór hluti viðsnúnings-
ins átti sér stað á öðrum fjórðungi
ársins. 30 milljóna króna hagnað-
ur var í ár en 40 milljóna tap á
sama tíma fyrir ári.
Eigið fé Nýherja er 1.274 millj-
ónir króna. ■
NÝHERJI