Fréttablaðið - 27.07.2002, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 27.07.2002, Blaðsíða 22
I MEÐ SÚRMJÓLKiNNI Líkur beggja á að verða að manneskju eru um það bil einn á móti þremur milljónum. 22 FRÉTTABLAÐIÐ 27. júlí 2002 LAUCARPACUR Golf og önnur upplyft- ing á afmælisdaginn Eg hef haldið Opna Langármót- ið fyrsta mánudag í júlí und- anfarin þrjú ár til styrktar Golf- klúbbi Borgarnes," segir Ingvi hálf-nefmæltur eftir að norðan- kaldinn stríddi honum við kart- öfluupptöku í garðinum í gær. „Svo þegar ég sá að afmælisdag- inn minn bar upp á laugardag ákvað ég að færa mótið. Ég á mik- ið af vinum í golfinu." Fullbókað er á mótið sem þýðir að um 120 manns munu munda kylfurnar við Langá í Mýrum í dag. En er engin hætta á því að menn haldi aftur á sér af ótta við að sigra afmælisbarnið á deginum stóra? „Ég er með þannig menn í hópi að þeir myndu ekki gefa sig þó að ég væri á grafarbakkanum. Þetta hefur alltaf verið mjög spennandi mót.“ Fyrstu menn stigu á völlinn kl. 7 í morgun og þeir síðustu eiga eftir að rölta beint af 18. teig yfir í veisluna sem haldin verður í samkomuhúsi hestamanna í Borg- arnesi. „Það er beint á móti vellin- um, hinum megin við þjóðveginn. Þar tek ég á móti fjölskyldu og vinum á milli 20 - 22 um kvöldið. Ég reikna með því að allir heilsist, kyssist og vilji faðma afmælis- barnið. Síðan kemur hljómsveitin Afmæli Ingvi Hrafn Jónsson, fréttamaður, kann að njóta lífsins og stendur i dag, á sextíu ára afmælisdegi sínum, fyrir golf- móti við Langá í Mýrum. Um kvöldið verð- ur svo blásið til veislu. Upplyfting og gestir geta dansað og sungið eins og listin leyfir." Það má því reikna með því að „Traustir vinir“ og „Rabbabara Rúnur“ muni slíta dansgólfið langt fram eftir nóttu. Ingvi er kvæntur Ragnheiði Söru Hafsteinsdóttur, 51 árs flug- freyju. Saman eiga þau synina Hafstein Orra, 23 ára atvinnuflug- mann, og Ingva Örn sem klárar Verslunarskólann í vor. biggi@frettabladid.is INCVI HRAFN Fær útrás á fréttamennskuna í þætti sínum „Hrafnaþing" sem er á dagskrá Útvarps Sögu alla virka í hádeginu. MENNINCARSKOKK HEFJIÐ daginn með því að ganga niður að Tjörn og gefa önd- unum. Takið ástina ykkar með. Gott fyrir hjónabandið segja þeir sem reynt hafa. FÁIÐ ykkur að borða í Alþjóða- húsinu við Hverfisgötu. Þar skipta menn um kokka eins og sokka og laða fram rétti úr öll- um heimshornum. Athyglisverðasta nýjungin í reyk- vískri veitingahúsaflóru. TÓNLIST á Jómfrúnni í Lækj- argötu klukkan 16 í dag. Hol- lenski trommuleikarinn Rene Winter lemur þar húðir með fé- lögum sínum. Nautshúðirnar í ro- ast - beefinu eru ekki síður í takt við bragðlaukana. Fáið ykkur kartöflusalatið með. Gætið ykkar hins vegar á Álaborgar - ákavít- inu. Það getur breytt lífsviðhorfi ykkar um stundarsakir. ÞEIR sem vilja dansa í kvöld. Geirmundur Valtýsson leikur fyrir dansi í Players í Kópavogi. Ef spurningin er um sveiflu þá er Geirmundur svarið. Fyrir hina sem eru á leið til Ak- ureyrar þá verða Stuðmenn í Sjallanum á Akureyri. Þeir gefa Geirmundi ekkert eftir en það hefði verið styttra fyrir þá báða efGeir- fU p - ssf&v * * ið í Sjallan- um og Stuðmenn í Players. Leiðrétting Vegna yfirvofandi hættu á þvi að ÁTVR verði lögð niður skal áréttað að unnt verð- ur að nota áfram skammstöfun stofnunar- innar fyrir ný samtök Áhugafólks um Takmörkun á Verndartollum Ríkisins; skammstafað ÁTVR. FÓLK í FRÉTTUM Frjálshyggjumennirnir á And- ríki átelja fréttastofú Sjón- varps og fréttamann hennar, Magnús Hlyn Hreiðarsson, harð- lega fyrir fréttaflutning af brott- vikningu Þorfinns Ómarssonar, framkvæmdastjóra Kvikmynda- sjóðs. Andríku mennirnir segja merkilegt að þó tvær fréttir hafi birst um málið á Ríkissjónvarp- inu hafi í raun enn ekki verið spurt réttu spurninganna. Þess í stað hafi öll áherslan verið lögð á að teikna upp eitthvert samsæri tengt pólitík og Hrafni Gunn- laugssyni. „Er fréttastofunni sjálfrátt að senda þetta út?“ spyr Andríki í lokin og þykir augljós- lega ekki mikið til koma. Vangaveltur um hugsanlega endurkomu Ingibjargar Sól- rúnar Gísladóttur, borgarstjóra, í landsmálin hafa orðið Múrverj- anum Stefáni Pálssyni tilefni til skrifa á Múrnum. Stefán telur ólíklegt að hugmyndir um að hún fari í landsmálin séu frá henni komnar og umræðuna frekar til marks um leiðtogavanda Samfylkingar. „Stjórnmálamaður sem ætlar að láta að sér kveða getur ekki gengið svo klárlega á bak orða sinna og hún mundi gera ef hún sneri sér að lands- málum núna.“ Ungu jafnaðarmennirnir á Pólitík.is hafa lagt nokkrar spurningar um Evrópusamband- ið og afstöðu Vinstri-grænna i til þess fyrir Ög- mund Jónasson, þingflokksfor- manns VG. Jafn- aðarmennirnir ungu reyna m.a. að fá Ögmund til að gefa upp hvað þurfi að breytast svo VG verði hlynnt því að sækja um aðild að ESB. Ögmundur gefur hins veg- ar engin færi á sér og segir ein- faldlega: „Ekkert hefur komið fram sem bendir til þess að Vinstrihreyfingin grænt framboð söðli um í Evrópuumræðunni." GUÐFINNUR HALLDÓRSSON Frúin hiær í betri bíl og Guðfmnur á betri llnuskautum. A línuskautum um víða veröld Guðfinnur Halldórsson heillaðist af línuskautaíþróttinni fyrir íjórum árum og fer aldrei úr bænum án þeirra eða skíðanna sinna. Guðfinnur Halldórsson bíla- sali hefur undanfarin sumur sést renna sér á línuskautum um alla borg, og víðar, með hundinn sinn á harðahlaupum á eftir. „Já, þú ert að tala um Dolla, stjórn- arformann, hann spennist alltaf upp þegar ég fer í múnderíng- una honum finnst þetta svo gaman,“ segir Guðfinnur. Guð- finnur segist hafa byrjað að stunda línuskautana fyrir fjór- um árum, þá tæplega fimmtug- ur að aldri. „Sonur minn var alltaf á línuskautum fyrir um 10 árum og ég prófaði þá aðeins inni í bílskúr, en fannst þetta þvílík vitleysa." Nú er hins vegar svo komið að í hvert sinn sem Guðfinnur heldur burt úr bænum tekur hann línuskautana sína með, eða skíðin sem hann hefur stundað í mörg ár. „Ég fer í hin ýmsu þorp og skauta þar. Mér finnst til dæmis mjög gaman að skauta á Akureyri, þar er svo mikið um brekkur og þá fær maður svona lítinn sætan kúlurass." Guðfinn- ur segist ekki eiga í vandræðum með að stöðva sig, hann eigi nokkra skakka ljósastaura um landið. „En ég skauta líka er- lendis, það er fínt að skauta í Prag en ekki að sama skapi á Kanarí því þar eru vatnsrákir í gangstéttunum. Best finnst mér þó að skauta umhverfis Garda- vatn, þar er svo fallegt." Guðfinnur er í 25-30 manna línuskautahópi sem hittist hvert kvöld utan helganna í Nauthóls- vík, svo framarlega sem veður er skaplegt. Hann segir konur vera í meirihluta í þessu, eins og reyndar allri útivist. Guðfinnur er aldursforseti hópsins. „Ég er búinn að ganga í gengum þann pakka að krakkar séu undrandi á fullorðnum manni á línuskaut- unum. Nú er ég bara orðinn klárari en þeir svo þeir bera óblandna virðingu fyrir mér.“ Guðfinnur segir lykilatriði að vera ekki á lélegum skautum því þá gefist maður frekar upp. Það sé bæði skemmtilegra og þægilegra að vera á vandaðri skautum með sílikon dekkjum. „Ég keypti mér ódýra skauta fyrst og ég varð bara pirraður á því. Þetta gengur mikið betur núna og ég er orðinn alveg háð- ur þessu,“ segir Guðfinnur full- ur af línuskautaeldmóði. bryndis@frettabladid.is SACA DAGSINS 27. JÚLÉ HRYSSINGSVEÐUR UNDIR AKRAFJALLI Þessi hestur lét ekki á sig fá þótt rigningarsuddi væri undir Akrafjalli í gær. Fyrsta kvikmyndasýningin í Reykjavík var haldin árið 1903. Meðal þess sem sýnt var, voru myndir úr dýragarði Lundúna- borgar, frá ófriðnum í Suður-Afr- íku og af krýningu Játvai’ðar kon- ungs. Pétur Eiríksson synti Grettis- sund, frá Drangey til lands, á þessum degi árið 1939. Pétur var þá aðeins 19 ára gamall. Arið 1940 var fyrsta teikni- myndin með Bugs Bunny, öðru nafni Kalla kanínu, sýnd á hvíta tjaldinu í Bandaríkjunum. Eins og flestar myndanna um hann síðar meir snerist þessi frumraun um vonlausar tilraunir Elmers Fudds til þess að snæða kanínuna. þessum degi árið 1999 fór milljónasti bíllinn í gegnum Hvalfjarðargöngin, aðeins rúmu ári eftir að þau voru opnuð. TÍMAMÓT JARÐARFARIR 13.00 Guðrún Kristjánsdóttir frá Starra- stöðum, verður jarðsungin frá Mæli- fellskirkju. 13.30 Kristín Jónsdóttir, áður til heimilis á Bárugötu 4, Dalvík, verður jarðsung- in frá Dalvíkurkirkju. 14.00 Anna Halldórsdóttir, Sólhlíð 7, Vest- mannaeyjum, verður jarðsungin frá Lqndakirkju í Vestmannaeyjum. 14.00 Rannveig Þorvaldsdóttir, Bárustíg 12, Sauðárkróki, verður jarðsungin frá Sauðárkrókskirkju. AFMÆLI Ingvi Hrafn Jónsson er sextugur í dag. Ólafur H. Torfason er 55 ára í dag. ANDLÁT Helga Sveinsdóttir, Borgarbraut 65A, Borgarnesi, lést 12. júlí. Jarðarförin hefur farið fram. Bragi Einarsson, hugvitsmaður, Óðinsgötu 20b, Reykjavík, andaðist 24 júlí. Garðar Sigurgeirsson, Víkurgötu 11, Súða- , vík, lést 24. júlí. Steinunn Hafdís Pétursdóttir, hjúkrunar- kona, Spóahólum 12, Reykjavík, lést 24. júlí. Björn Jónatan Björnsson, Brunnum 9, Patreksfirði, lést 23. júlí. Kristín Halldórsdóttir Eyfells, Orlandó Flórida, lést 20. júlí.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.