Fréttablaðið - 27.07.2002, Blaðsíða 9
LAUGARDAGUR 27. júlí 2002
F RÉTT ABLAÐIÐ
9
ORÐRÉTT
NEMA HVAÐ!
„Það er eina leiðin til að við
björgum okkur frá falli, að skora
fleiri mörk en andstæðingarnir."
Guðjón Þórðarson nýráðinn þjálfari
botnsliðs norsku deildarinnar í fótbolta í
Morgunblaðinu.
EKKI AF AÐ
SPYRJA
„Við reynum að
vera eins mann-
leg og við get-
um.“
Gunnar I. Birgisson
formaður
stjórnar LÍN í Frétta-
blaðinu.
ÚTRÖÐ í NANOQ
Margir lögðu leið sína í Nanoq í gær.
Nanoq opnaði í gær:
„Alltaf vinna
að stofna
fyrirtæki“
verslun Verslunin Nanoq opnaði
aftur í gær eftir um þriggja vikna
hlé eða síðan verslunin varð gjald-
þrota í byrjun mánaðarins. Örn
Gústafsson, stjórnarformaður
Rekstrarfélagins Nanoq ehf.,
dótturfyrirtækis Kaupþings, sem
keypti þrotabúið á 275 milljónir
króna, sagði að verslunin væri
með útsölu á ýmsum vörum sem
hún hygðist losa sig við. Hann
sagði að mikið starf hefði verið
unnið síðustu daga.
„Það er auðvitað alltaf vinna
að stofna nýtt fyrirtæki,“ sagði
Örn. „Þetta er náttúrlega bara
nýtt fyrirtæki, það þarf að gera
allt upp á nýtt. Þannig að það er
búið að taka svolítið í en það eru
allir heilir." ■
ERLENT
Alls hafa 40 manns farist af
völdum flóða, eldinga og aur-
skriða í Tyrklandi undanfarna
viku. Miklir stormar hafa gengið
yfir landið og hafa meira en 200
f jölskyldur þegar misst heimili
sín.
Stjórnvöld í Ástralíu vörðu í
gær ákvörðun sína um að
styðja ekki ákvörðun Sameinuðu
þjóðanna um að koma í gagnið
sáttmála gegn pyndingum í heim-
inum. „Það eru engar pyndingar
framkvæmdar í áströlskum fang-
elsum og við höfum okkar eigin
lög sem tryggja að það geti ekki
gerst,“ sagði utanríkisráðherra
landsins í gær.
Tveir f jallgöngumenn hafa lát-
ist á þessu ári er þeir reyndu
að klífa K-2, sem er næst hæsti
tindur heimsins. Báðir fjall-
göngumennirnir voru Pakistanar.
Lögreglan í Víetnam hefur lagt
hald á 25 farma af skóhlutum
sem notaðir eru til að framleiða
falsaða Nike og Adidas skó. Þetta
er fyrsta aðgerðin af þessu tagi
sem Nike tekur þátt í. Forráða-
menn Nike bentu lögreglunni á
farmana.
Þrír Rússar hafa verið dæmdir
í nokkurra mánaða fangelsi
fyrir að hafa ráðist á rússneskan
sjómann sem strandað hafði á
fiskibát sínum í danskri höfn.
Tveir Palestínumenn særðust í Gasaborg:
Vinnustofur
sprengdar í loft upp
jerúsalem. ap Að minnsta kosti
tveir Palestínumenn særðust þegar
ísraelsher réðst inn í Gasaborg í
gær. Skutu skriðdrekar hersins á
þrjár byggingar þar sem talið var
að Palestínumenn væru með vinnu-
stofur til að smíða eldflaugar. Dró
herinn sig til baka eftir að vinnu-
stofurnar höfðu verið sprengdar
upp. Talsmenn ísraelshers sögðu að
árásin hafi verið gerð eftir að
Palestínumenn höfðu skotið eld-
flaug í átt að ísraelum í fyrradag.
Enginn slasaðist í þeirri árás.
Síðar um daginn var Palestínu-
maður skotinn til bana af ísrael-
skum hermanni í bænum Qalqiliya
á Vesturbakkanum. Að auki skutu
Palestínumenn eldflaug á ísraelsk-
an strætisvang á Gasasvæðinu.
Engan sakaði.
I gær fóru um það bil 3000
Palestínumenn veifandi grænum
fánum Hamas-samtakanna fóru í
mótmælagöngu á Gasasvæðinu.
Mótmæltu þeir sprengjuárásum
ísraela á Palestínumenn og hótuðu
hefndaraðgerðum. ■
„Lífríki Þjórsárvera
mun verða í stórhættu"
Náttúruvernd ríkisins lýsir yfir andstöðu við virkjanaáform vegna Norðlingaölduveitu, sem og mót-
vægisaðgerða vegna virkjunarinnar. Skipulagsstofnun mun fella úrskurð í málinu 9. eða 12. ágúst.
NORÐLINGAÖLDUVEITA
Að mati Náttúruverndar ríkisins mun Norðlingaölduveita valda umtalsverðum umhverfisáhrifum. Með miklum „mótvægisaðgerðum" sem
sjálfar valda umtalsverðum umhverfisáhrifum verði hægt að lengja líftíma lónsins en umhverfisáhrifin verði að lokum enn meiri.
virkjanamál Ný gögn frá Lands-
virkjun um mótvægisaðgerðir
vegna aurburðar og setmyndun-
ar í tengslum við fyrirhugaða
Norðlingaölduveitu, sunnan
Hofsjökuls í Þjórsárverum,
breytir ekki afstöðu Náttúru-
verndar ríkisins. Upphaflega átti
Skipulagsstofnun að kveða upp
úrskurð í málinu 9. júlí en því var
frestað þar sem gögn um mót-
vægisaðgerðirnar vantaði frá
Landsvirkjun og þegar þær bár-
ust þurfti að kynna málið um-
sagnaraðilum á ný. Búist er við
úrskurði stofnunarinnar 9. eða
12. ágúst.
Náttúruvernd ríkisins, sem er
umsagnaraðili um mat á um-
hverfisáhrifum en jafnframt
leyfisveitandi á friðlýstum svæð-
um, og Þjórsárveranefnd hafa
frá upphafi lýst yfir mikilli and-
stöðu við virkjanaáformin. Ný
gögn frá Landsvirkjun hafa ekki
breytt afstöðu þessara aðila
þvert á móti hafa þau styrkt enn
frekar það álit Náttúruverndar
að umhverfisáhrif vegna Norð-
lingaölduveitu verði umtalsverð.
„Gögnin sýna svo ekki verður
um villst að aurburður og set-
myndun í Norðlingaöldulóni
verður mjög mikil og hröð hvort
sem gripið verður til mótvægis-
aðgerða eða ekki,“ segir í um-
sögn Náttúruverndar. „Gera þarf
nýtt lón, reisa varnargarða, legg-
ja vegi, dæla efni og búa til haug-
svæði. Lífríki Þjórsárvera mun
verða í stórhættu og landslagi á
stóru svæði mun endanlega
verða raskað umfram það sem nú
hefur verið gert með 1.-5. áfanga
Kvíslaveitu. Þetta sýnir að Norð-
lingaölduveita veldur umtals-
verðum umhverfisáhrifum og
getur ekki staðið ein og sér. Með
miklum „mótvægisaðgerðum"
sem sjálfar valda umtalsverðum
umhverfisáhrifum er hægt að
lengja líftíma lónsins en um-
hverfisáhrifin verða að lokum
enn meiri."
í umsögn Náttúruverndar seg-
ir að mótvægisaðgerðirnar, í
formi nýs setlóns í gróöurverinu
suður af Þjórsárjökli, séu nánast
sama framkvæmd og nefnd hafi
verið 6. áfangi Kvíslaveitu. í
fyrra hafi Þjórsárveranefnd ein-
róma hafnað þeim áfanga, þar á
meðal fulltrúi Landsvirkjunar.
Árni Bragason, formaður Nátt-
úruverndar ríkisins, sagðist ekki
vilja tjá sig neitt um málið fyrr
en úrskurður Skipulagsstofnunar
lægi fyrir.
trausti@frettabladid.is
Verkfræðingur Landsvirkjunar um Norðlmgaölduveitu:
Andstaða Náttúruverndar
byggir á misskilningi
virkjanamál Eysteinn Hafberg,
verkfræðingur hjá Landsvirkjun,
sagðist telja umsögn Náttúru-
verndar ríkisins, þar sem stofn-
unin lýsir andstöðu við fyrirhug-
aða mótvægisaðgerð vegna Norð-
lingaölduveitu, að mestu leyti
byggja á misskilningi.
Eysteinn sagði að Náttúru-
vernd ríkisins líkti mótvægisað-
gerðinni, í formi nýs setlóns, við
6. áfanga Kvíslaveitu og að þar
sem Þjórsárveranefnd hefði ver-
ið á móti þeim áfanga væri þetta
allt ómögulegt. Hann sagði að
grundvallarmunur væri á setlón-
inu vegna Norðlingaölduveitu og
6. áfanga Kvíslaveitu. Gert væri
ráð fyrir litlu lóni, miklu minna
en lóninu sem gert hafi verið ráð
fyrir við Kvíslaveitu. Aðal and-
staðan við 6. áfanga Kvíslaveitu
hefði beinst að því að verið væri
að veita vatni úr Þjórsá. Mótvæg-
isaðgerðin, sem Landsvirkjun
hefði nú kynnt, væri ekkert í þá
veru að hún breytti nokkru í sam-
bandi við vatnamál. Þar af leið-
andi væri þetta algjör misskiln-
ingur hjá Náttúruvernd ríkisins.
Að sögn Eysteins myndi það
án efa hafa einhver áhrif á rekst-
ur Landsvirkjunar ef yfirvöld
myndu hafna Norðlingaöldu-
veitu. Þetta væri sú framkvæmd
sem Landsvirkjun teldi hag-
kvæmasta og fljótlegast að ráð-
ast í. Ef hún myndi ekki rísa
hefði það áhrif á það hverjum
Landsvirkjun gæti boðið raf-
magn og hugsanlega tafið upp-
byggingu stóriðju. Stækkun
LANDSVIRKJUN f ELLIÐAÁRDAL
Eysteinn Hafberg, verkfræðingur hjá Lands-
virkjun, sagði að það myndi án efa hafa
einhver áhrif á rekstur Landsvirkjunar ef yf-
irvöld myndu hafna Norðlingaölduveitu.
Norðuráls hefur m.a. verið talin
háð rafmagni frá Norðlingaöldu-
veitu. ■