Fréttablaðið - 27.07.2002, Síða 12

Fréttablaðið - 27.07.2002, Síða 12
12 FRETTABLAÐIÐ 27. júlí 2002 LAUGARDAGUR HASKOLABIO rXEHTOf.* StJf-' SJI 5T®RSliR 5^TSifc£M!TjlW2» lAlílíJ'ÍSíS HVflð SííQlíT ■ Sýnd kl. 2, 3.43, 6 og 8 m/isl. tali I ABOUT A BOY kl. 2. 4, 5.50, 8 og 10.10. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 |AMÓRES PERROS kllo| ISCOOBY DOO kL2,«og6j ImAVAHLATUR kTBogloj IBICFATLIAR ld.2,4,6,8 og lo| |HJALP ÉC ER FISKUR Id,2og41 SfJlfíRfí^ BÍÚ Sýnd kl. 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8, 9, 10 og 11 Sýnd kl. 2.30, 4.30, 6.30. 8.30 og 10.30 Sýnd kl. 3.20, 5.40, 8 og 10.15 UNFAITHFUL kl. 8 og 10.40 INEWGUY kl. 4 og 61 ISÖLD rn/ísl. tali MR.JONES MR.SMtTH Mifrn Sýndkl. 6,8 og 10.10 vrrioo jBAD COMPANY_______kl. 10.10 Sýnd kl. 6,8og 10.10 IMONSTERS m/isl. talikl. 2 og 3.501 IMOIHMAN PROPHEOES 8 og 1ÖI2ÓIISS lABOUT A BOY kl, 8 og löTöl [mÍJRDERBY- kl. 5.40,8 og 10.201 [ijgj jPÉTUR PAN m/isl. tali klTI öölS And-Britneyar sameinast: Einblínið á tónlistina, ekki kyn- þokkann tónlist Söngkonurnar Avril Lavigne, Pink, Michelle Branch og Vanessa Carlton tóku þátt í myndatöku í Central Park í New York fyrir skömmu. Þær hafa reynt að fá fólk til að dæma sig af tónlistinni einni en ekki af kynþokkanum. Lavigne segir að konur þurfi ekki að bera á sér magann eða ganga í þröngum föt- um til að virðast kynþokkafullar. Stefna þeirra hefur verið nefnd And-Britney. ■ Sc5&73530i Sc - úti og inni - Varanleg lausn Gegnheilar útiflísar á svalir, tröppur, sólstofur og jafnvel bílskúrinn. Verðdæmi: 30 x30 kr. 1.450,-m2 - fyrsta flokkun — Skútuvogi 6 • Sími 568 6755 SÁLIN HANS JÓNS MÍNS Sveitin vill vekja athygli á því að hún er komin með nýtt heimilisfang á Netinu, www.salinhansjonsmins.is. Gamla lénið, www.salin.is, var og er í eigu fyrrum aðdáanda sveitarinnar sem veitti þeim afnot af því. Hægt er að lesa orðsendingu frá Stefáni Hilmarssyni á heimasíðu sveitarinnar og frá „lénsherranum" á gamla léninu. Sálin breiðir úr sér Sálin hans Jóns míns verður 15 ára á næsta ári og er því rétt að komast á gelgjuskeiðið. Það ætti því ekki að koma neinum á óvart að sköpun- ar- og spilagleðin er í hámarki hjá sveitinni þessa daganna. FRÉTTIR af FÓLKII Margir bíða spenntir eftir Goldmember, nýjustu mynd- inni í röðinni um leyniþjónustu- manninn Austin Powers. Hún var frumsýnd í gær í Bandaríkjunum og Bretlandi og fær misgóða dóma í þarlendum blöð- um. Charles Gant, gagnrýnandi hjá Empire, segir nýju myndina mjög fyndna en þó sé eitthvað sem vanti upp á. Jonath- an Ross, Daily Mirror, segist ekki hafa hlegið svo mikið í lengri tíma. Peter Bradshaw, hjá Guardi- an, segir myndina fyndnari og skemmtilegri en þær fyrri. Þetta sé einfaldlega fyndnasta mynd ársins. Christopher Tookey, hjá Daily Mail, segir myndina fyndna fyrstu 15 mínúturnar en síðan taki við 75 mínútur af leiðindum. Nú verður hver að dæma fyrir sig. Samkvæmt breska slúðurblað- inu The Sun er ferill Britney Spears á hraðri niðurleið. Blaðið, sem er nú ekki alltaf þekkt fyrir traustar fréttir, segir að nýjasta plata hennar, Brit- ney, hafi aðeins selst í 3,7 milljón- um eintaka í Bandaríkjunum. Fyrri plata hennar, Oops I did It Again, seldist í helm- ingi fleiri eintökum. Annað merki um fallið er að aðdáendur hennar eyddu um 8 dollurum í minjagripi á tónleikum. Nú eyða þeir aðeins rúmum fjórum. Þriðja dæmið sem blaðið telur er að Britney var fastagestur í toppsæti bandaríska vinsældarlistans. Síðustu tvær smáskífur hennar hafa hins vegar ekki náð svo hátt á listanum. Nú er það ljóst að John Entwistle, bassaleikari The Who, dó úr hjartaáfalli sem kom í kjölfar of stórs skammts af kóka- íni. Entwistle, var 57 ára þegar hann fannst látinn á hótelherbergi sínu í Las Vegas. Þá var hljóm- sveitin á tónleikaferðalagi um Bandaríkin. Samkvæmt talsmanni lögreglunnar er ekki víst um hve stóran skammt af kókaíni var að ræða. „Þetta er ekki eins og brennivínið. Það er ekki hægt að segja til um magnið.“ tónlist Þjóðarsálin hans Jóns míns hefur þá skynsamlegu vinnureglu að taka sér frí þegar leiðinn tekur völdin. Eftir langa törn á ballmiðum eftir að hafa fylgt eftir útgáfu plötunnar „Logandi ljós“ í nokkra mánuði tók Sálin sér frí í hálft ár. Hún er nú komin á kreik aftur en hvað ætli liðsmenn sveitarinnar geri, Sálarlausir? „Við fórum nú bara flestir að vinna heiðvirðulega vinnu,“ svarar Guðmundur Jóns- son gítarleikari. „Ég eyddi tím- anum í að semja fleiri popplög. TÓNLEIKAFERÐ SÁLARINNAR: 27. júlf: Vopnafjörður Versl.m.helgi: AKUREYRI 09. ágúst: Gaukur á Stöng 10. ágúst: Gaukur á Stöng 16. ágúst: Hótel Húsavík 17. ágúst: Valaskjálf Egilsstöðum 24. ágúst: Hreðavatnsskáli 30. ágúst: Players Kópavogi 31. ágúst: Stapinn Keflavík Ég var kominn með um 18 ný lög í farteskið í vor. Það þarf aga til þess að vera í fríi því menn verða náttúrulega skítblankir. Þess vegna tökum við tónleika- syrpurnar með stæl þegar við leggjum í þær.“ Það eru eflaust margir byrj- aðir að raula með nýjasta lagi Sálarinnar „Þú fullkomnar mig“. Það verður að finna í kvikmynd- inni „Maður eins og ég“. Gaman- mynd með Jóni Gnarr í aðalhlut- verki sem verður frumsýnd þann 16. ágúst næstkomandi. „Það var beðið sérstaklega um væmið ástarlag og við höfum verið staðnir að verki að gera þannig tónlist áður. Þetta er fyrir sérstaka senu í myndinni. Við fórum einfalda leið hvað útsetn- ingu varðar, við höfum verið svo- lítið útblásnir upp á síðkastið." Þó nýja lagið teygi fingur- góma sína ekki eins langt og mögulegt hefði verið, hvað út- setningu varðar, þýðir það ekki að Sálin sé hætt því. Fingurgóm- ar þeirra eiga líklegast eftir að skilja eftir far á himnum eftir tónleika þeirra og Sinfóníusveit- ar íslands þann 22. nóvember. „Þar sem við erum nýlega búnir að gefa út tónleikaplötu þar sem við litum aftur um öxl ákváðum við að vera mestmegnis með glænýja tónlist á þeim tónleik- um.“ Þorvaldur Bjarni Þorvalds- son, Evróvisjónhetja og fyrrum bílstjóri Todmo-trukksins, sér um útsetningar. „Lögin eru stærri og epískari en áður. Þau eru lengri en vanalega og fleiri ósungnir kaflar. Lengri upphafs- stef og millikaflar. Þetta er ekki tónlist sem verður að halda vatni í útvarpi eða á brjáluðum rokktónleikum. Þarna situr maður bara á rassgatinu og reynir að spila eins vel og mað- ur getur." Sálin hóf tónleikasyrpuna sína í gær á Siglufirði en í kvöld leika þeir á Vopnafirði og leggur hún á henni áherslu á gamalt sem nýtt. biggi@freitabl3did.is Jennifer Lopez: Sækir um skilnað skilnaður Jennifer Lopez, sem gengur einnig undir nafninu J-Lo, hefur farið fram á skilnað við eig- inamann sinn Chris Judd. Þau hafa verið gift í tíu mánuði en J-Lo leit- aði til hans þegar hún sleit sam- vistum við Puff Daddy eða P. Diddy. Samkvæmt dómskrá í Los Angeles skildu hjónakornin að borði og sæng þann 2. júní vegna óleysanlegra deilna. Að sögn lögfræðinga Lopez hafa hún og Judd, sem hefur starf- að sem dansari hjá henni, gert með sér skilnaðarsáttmála. Skilnaður- inn gengur í gegn þann 26. janúar á næsta ári. Samkvæmt slúðurblöðum ytra hefur J-Lo verið í tygjum við leik- arann Ben Affleck. Þau hafa hins- vegar farið leynt með sambandið þar sem stúlkan er að ganga frá skilnaðinum. ■ J-LO Jennifer Lopez er ein vinsælasta söngkona heims. Þetta er í annað sinn sem hún skil- ur en áður var hún gift kúbverskum kokki. Hún og Chris Judd giftu sig í fyrra.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.