Fréttablaðið - 27.07.2002, Qupperneq 6
SPURNING DAGSINS £
FRÉTTABLAÐIÐ
27. júlí 2002 LAUGARPAGUR
Vandræði í Fellahverfi í Breiðholti:
14 mínútna
gangur í strætó
Hver ræður heima hjá þér?
Ég og mamma mín.
Andri Freyr Halldórsson
ALMENNINGSSAIMGÖNGUR „FÓlk er
óhresst með þetta. Sjálf er ég 14
mínútur að ganga út á stoppistöð,"
segir Harpa Njáls íbúi í Fella-
hverfinu í Breiðholti. Eins og svo
margir aðrir í hverfinu verður
Ilarpa áþreifanlega vör við fram-
kvæmdir vegna undirganga sem
verið er að leggja undir Austur-
bergið og hamlar umferð strætis-
vagna í hverfinu. Hafa fram-
kvæmdirnar leitt til þess að tvær
stoppistöðvar í Austurberginu eru
ekki lengur hluti af leiðakerfi
strætisvagnanna. Hörður Torfa-
son vísnasöngvari, sem býr tíma-
bundið í Fellahverfinu, lýsti
reynslu sinni af strætisvögnunum
hér í Fréttablaðinu í gær, en Hörð-
ur verður að fara allra sinna ferða
í leigubíl og er ósáttur við. Harpa
kýs hins vegar að ganga en hefur
fundið lausn á vandamálinu sem
stjórnendum Strætó yfirsást:
„Það væri hægt að láta leið 14
keyra Norðurfellið og taka þar
með aðra af tveimur stoppistöðv-
unum sem nú eru ekki inn í kerf-
STOPPISTÖÐIN I AUSTURBERGI
Enginn bíður - enginn strætó.
inu. Af því yrði mikið hagræði
fyrir strætisvagnafarþega," segir
Harpa sem fer með strætó til og
frá vinnu dag hvern og oftar ef
þannig stendur á. Henni finnst of
langt að ganga í 14 mínútur út á
stoppistöð. Framkvæmdum við
undirgöngin í Austurberginu lýk-
ur ekki fyrr en 10. ágúst ef tímaá-
ætlanir standast. ■
Sala ríkisbankanna:
Gildingarhópur-
inn áhugasamur
viðskipti „Á meðal hugsanlegra
fjárfesta eru m.a. hluthafar í Bún-
aðarbanka íslands sem eignuðust
hlut í bankanum við sameiningu
Gildingar fjárfestingarfélags og
Búnaðarbankans,“ segir Þórður
Magnússon, rekstrarhagfræðing-
ur, sem fer fyrir hópi fjárfesta sem
óskað hafa eftir viðræðum um
kaup á hlut ríkisins í öðrum hvor-
um ríkisbankanum. Hann segir að
það sé þó ekki allur hópurinn.
Tengslin við Búnaðarbankann eru
talsverð í fjárfestahópnum. Þórður
segir þó að ekki megi álykta að
hugur þeirra beinist eingöngu að
Búnaðarbankanum. ■
VIÐSKIPTI [
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 85,27 -0,29%
Sterlingspund 134,70 0.25%
Dönsk króna 11,49 -0,05%
Evra 85,40 -0,04%
Gengisvistala krónu 127,66 -0,15%
KAUPHOLL ISLANDS
Fjöldi viðskipta 177 l
Velta 1101,9 milljón
1CEX-15 1.261,3 -0,44%
Mestu víðskíptí
Grandi 89.086.000
íslandsbanki 35.267.164
Landsbankinn 13.053.516
Mesta hækkun
Fiskmarkaður Islands 13,79%
Grandi 4,55%
Marel 1,46%
Mesta lækkun
Tryggingamiðstöðin 5,22%
Hraðfrystihús Þórshafnar 3,23%
Búnaðarbanki íslands 2,22o/o
ERLENDAR VÍSITÖLUR*
Dow Jones 8191,7 0,1%
Nasdaq 1251,4 0,9%
FTSE 4016,6 1,3%
DAX 3549,2 0,8%
Nikkei 9591.03 -3,41%
S&P 842,9 0,5o/o
*Erlendar vísitölur kl. 16.15
Ríkissjóður:
Afkoman
fjórum millj-
örðum lakari
efnahagsmál Afkoma ríkissjóðs
versnaði á fyrri hluta þessa árs
miðað við sama tíma í fyrra. Af-
koman er einnig verri en gert var
ráð fyrir í fjárlögum og munar um
4 milljörðum króna. Þetta stafar
að sögn fjármálaráðuneytisins al-
farið af viðbótarútgjöldum. Þau
eru einkum auknar vaxtagreiðsl-
ur vegna innlausnar spariskír-
teina, áhrif aðgerða stjórnvalda
til að halda aftur af verðbólgu,
auknar greiðslur til sjúkrahúsa og
greiðslur til lífeyrissjóða vegna
uppbóta á lífeyri. Þá vega aukin
framlög til Atvinnuleysistrygg-
ingasjóðs og Ábyrgðarsjóðs launa
einnig þungt.
Heildartekjur ríkissjóðs námu
113 milljörðum króna, hækka um
tæplega 5% frá fyrra ári.
Skatttekjur ríkissjóðs hækka
heldur minna, eða um 4,5%. Til
samanburðar námu verðlags-
breytingar um 7% á þessu tíma-
bili og segir fjármálaráðuneytið
því ljóst að áfram gæti nokkurs
samdráttar í efnahagslífinu á
fyrri hluta ársins. Hins vegar
staðfesti tölurnar að samdráttur-
inn sé í rénun. ■
Sandgerðisbæ synjað um
eigin barnavemdarnefnd
Bærinn of fámennur til að hafa eigin nefnd segir Félagsmálaráðuneytið. Setur allt forvarnarstarf
í málaflokknum í uppnám segir formaður bæjarráðs
IsJÓÐUR SVEITARFÉLAGA
Samvinna er
af hinu góða
en við teljum
að þessum
málaflokki
verði betur
sinnt heima í
héraði, eink-
um forvarna-
starfinu
sandgerðisbær „Synjun ráðuneyt-
isins setur í uppnám starf félags-
málastjóra á sviði forvarnarmála
leikskóla, grunnskóla og á sviði
___4__ félagsmála al-
mennt. Við viljum
að ráðuneytið end-
urskoði fyrri
ákvörðun sína og
heimili okkur að
hafa eigin barna-
verndarnefnd,
þrátt fyrir að 100
manns vanti upp á
lágmarksíbúa-
fjölda," segir
^___ Reynir Sveinsson,
formaður bæjar-
ráðs Sandgerðisbæjar.
Sandgerðisbær sótti í lok júní
um undanþágu frá ákvæðum
barnaverndarlaga sem kveða á
um að íbúafjöldi að baki hverri
barnaverndarnefnd skuli ekki
vera færri en 1.500. Bæjaryfir-
völd bentu á að íbúar Sandgerðis-
bæjar hefðu um síðustu
áramót verið 1.400 og
þeim færi ört fjölgandi.
Þá hefði verið ráðinn vel
menntaður félagsmála-
stjóri til bæjarins sem
sinnti barnaverndar-
starfi í bænum og engar
kærur eða áminningar
hefðu borist bæjaryfir-
völdum vegna þessa við-
kvæma málaflokks.
Félagsmálaráðuneytið
hafnaði ósk Sandgerð-
inga og sagði að ekki
hefðu komið fram nægar ástæður
fyrir undanþágu frá lágmarkinu.
Ráðuneytið segir samgöngur góð-
ar og fjarlægðir litlar á Suðurnesj-
um. Landfræðilegar aðstæður eigi
því ekki við og ekki hafi verið bent
' AHADUNEYTI
• 'iAL AFfAtM
G*mí*r Squalltr
ftmitf AUtfrt
SAMQONGUBÁÐUHEYTl
MHiisTBvor commtncmGm
COBfflBnf/ÍlítfA*
VINNUMÁLASTOFNUM
OWtClMKtt ■OfJ.MVM
REYNIR SVEINSSON, FORMAÐUR BÆJARRÁÐS SANDGERÐIS
Viljum undanþágu þótt 100 hausa vanti í bæjarfélagið. Forvarnarstarf i leikskólum og
grunnskólum er í húfi.
á hvaða aðrar aðstæður hamli sam-
einingu barnaverndarnefndar
Sandgerðis við nágrannasveitarfé-
lag, til dæmis Reykjanesbæ.
„Bæjarráð samþykkti í vik-
unni að óska eftir greinargerð frá
félagsmálastjóra um málið og sú
greinargerð fer með ítrekaðri
ósk okkar til ráðuneytisins. Sam-
vinna er af hinu góða en við telj-
um að þessum málaflokki verði
betur sinnt heima í héraði, eink-
um forvarnastarfinu," segir
Reynir Sveinsson.
í framhaldi af ósk Sandgerðis-
bæjar hefur Félagsmálaráðu-
neytið sent öllum sveitarfélögum
í landinu bréf þar sem vakin er
athygli á umræddu ákvæði um að
1.500 manns skuli að lágmarki
vera að baki hverri barnavernd-
arnefnd. ■
Gísli Marteinn Baldursson á nýjum slóðum:
Varaborgarfulltrúi
með spjallþátt
sjónvarp „Þetta verður opið og
létt,“ segir Gísli Marteinn Bald-
ursson varabogarfulltrúi sem ráð-
inn hefur verið til að stjórna
spjallþætti í Ríkissjónvarpinu á
laugardagskvöldum í vetur. Hitar
Gísli Baldur þar upp fyrir Spaug-
stofuna sem aftur fer á stjá um
svipað leyti. „Þetta verða 30 - 40
mínútna þættir þar sem ég fæ til
mín einn eða fleiri gesti og blanda
öllu saman. í raun er þetta útvíkk-
un á Kastljósi á laugardögum og
ef ég á að nefna einhverja fyrir-
mynd þá er það Michael Parkin-
son sem verið hefur með svona
þætti í BBC svo áratugum skipt-
ir,“ segir Gísli Marteinn sem er
klár í slaginn og hlakkar til. Sem
borgarfulltrúi situr hann í sam-
göngunefnd Reykjavíkurborgar,
Miðborgarráði og svo í samráðs-
nefnd lögreglunnar á höfuðborg-
arsvæöinu. Þá er Gísli Marteinn
varamaður í menningarnefnd og
hefur setið fundi hennar í sumar:
„Ég get lifað á þessu tvennu
enda geri ég ekki miklar kröfur,"
segir Gísli Marteinn sem er að fly-
tja úr Þingholtunum yfir á Mel-
haga. Á Urðarstígnum var orðið of
þröngt um fjölskylduna og því
kærkomið að komast á Hagana þar
sem víðara er á milli veggja. ■
GÍSLI MARTEINN
Niðurstöður borgarstjórnarkosnínganna í
vor leiddu hann í sjónvarpið aftur.
Sigmar frá Stöð 2 til
Sjónvarpsins
Fer í Kastljósið
fjölmiðlar Sigmar Guðmundsson,
fréttamaður á Stöð 2, verður þriðji
maðurinn í Kastljósi Sjónvarpsins
í vetur, eftir því
sem kemur fram á
vefnum strik.is.
Fyrir eru Eva
María Jónsdóttir
og Kristján Krist-
jánsson. Sigmar
Guómundsson
kemur í stað Gísla
Marteins Baldurs-
sonar, sem sinnir
öðrum verkefnum
hjá Sjónvarpinu
og sagt er frá hér
til hliðar. Sigmar
var til skamms tíma fréttamaður á
Sjónvarpinu, flutti sig árið 2000
upp á Krókháls en er nú á heimleið
á ný. ■
EVA MARÍA
Hún og Kristján
Kristjánsson fá
nýjan samstarfs-
mann í Kastljósið.