Fréttablaðið - 27.07.2002, Síða 10
10
FRÉTTABLAÐIÐ
27. júlí 2002 LAUGARPACUR
SAMVELDISLEIKAR
Knattspyrnustjarnan David Beckham mætti
með nýja hárgreiðslu þegar hann hitti
bresku drottninguna, Elísabetu 2., í mót-
töku fyrir setningarathöfn Bresku samveld-
isleikanna I Manchester.
ÍÞRÓTTIR í DAG
10.50 RÚV
Formúla 1
13.00 RÚV
Véihjólasport
13.45 Sýn
Símadeildin (ÍA - KR)
14.00 Akranesvöllur
Símadeíld karla (ÍA - KR)
14.00 Ásvellir
1. deild karia (Haukar - Þrótt. R.)
14.00 Varmánröllur
1. deild karla (Aftureld. - Sindri)
16.00 Sýn
Toppleikir
18.00 Sýn
iþróttir um allan heim
22.40 Sýn
Hnefaleikar (Forrest - Mosley)
ÍÞRÓTTIR SUNNUDAG
11.30 RÚV
Formúla 1
14.35 Stöð 2
Mótorsport (e)
19.15 Kaplakrikavöllur
Símadeild karla (FH - Þór A.)
19.30 Sýn
Golfstjarnan Carlos Franco
20.00 Sýn
Golfmót í Bandarikjunum
21.45 RÚV
Helgarsportið
22.30 Sýn
íslensku mörkin
1 fótboltTI
Hinn þrítugi
Brasilíumað-
ur Rivaldo gengur
líklega til liðs við
stórliðið AC Milan
á Ítalíu. Sagt er
að samningurinn
verði til tveggja
eða þriggja ára og
Rivaldo verði að
sætta sig við töluvert lægri laun
en hjá Barcelona.
iddlesboro hefur keypt
Brasilíumanninn Juninho frá
Atletico Madrid fyrir 6 milljónir
punda, svo framarlega sem hann
stenst læknisskoðun og fær at-
vinnuleyfi. Þetta verður í 3. sinn
sem hann leikur með félaginu.
Formúla um helgina í Hockenheim:
Brautin erfið yfirferðar
kappakstur Michael Schumacher
virðist enn vera hungraður þótt
hann sé þegar búinn að tryggja
sér heimsmeistaratitilinn í For-
múlu 1. Hann ók hraðasta æf-
ingahringinn á Hockenheim-
brautinni í Þýskalandi í gær.
Rubin Barrichello náði næst
besta tímanum og Kimi
Raikkonen þeim þriðja. Kepp-
endur áttu í þó nokkrum erfið-
leikum á nýuppgerðri brautinni
og misstu bæði Jarno Trulli og
Alex Yoong bíla sína útaf braut-
inni strax í upphafi.
Ferrari er þegar búið að tryg-
gja sér sigur í keppni bílasmiða.
Williams og McLaren berjast um
annað sætið. Fyrrnefnda liðið
hefur þó nítján stiga forskot.
Tímatökur fyrir Hockenheim
kappaksturinn verða í dag klukk-
an ellefu. Keppnin sjálf verður á
morgun og hefst bein útsending
klukkan hálf tólf.
Helstu fréttir úr Formúlunni í
gær voru þó þær að Mika
Hakkinen tilkynnti að hann
myndi ekki snúa aftur á braut-
ina. Hann varð tvisvar sinnum
heimsmeistari. ■
HÆTTUR
Finnski ökuþórinn Mika Hakkinen tilkynnti
í gær að hann myndi ekki snúa aftur á
kappakstursbrautina. Hann varð tvisvar
sinnum heimsmeistari.
EYLEIFUR HAFSTEINSSON
Hefur bæði leikið með IA og KR. Hann segist halda með báðum liðum. Hann missir af leiknum í dag þar sem hann verður við veiðar.
Heldur með báðum liðum
U-21 árs NM í knattspyrnu:
Island leikur
um 7. sætið
fótbolti íslenska kvennalandsliðið
U-21 árs tapaði gegn Svíum 3-0 á
opna Norðurlandamótinu í knatt-
spyrnu í TUrku í Finnlandi í gær.
Markalaust var í hálfleik eins og
gegn Þjóðverjum í síðasta leik.
Þetta var síðasti leikurinn í riðlin-
um og ísland leikur því um 7. sætið
á mótinu á morgun. Mótherjinn er
Grikkland sem tók þátt sem gesta-
þjóð á mótinu. Bandaríkin leika við
Þýskaland í úrslitaleik eins og búist
hafði verið við. Það gekk þó ekki
þrautalaust hjá Bandaríkjamönn-
um, því bæði Danmörk og Finnland
fengu jafnmörg stig í riðlinum en
Bandaríkin höfðu hagstæðari
markatölu. ■
Dregið í 3. umferð
Meistaradeildar Evrópu:
Zeljeznicar eða
Lilleström gegn
Newcastle
fótbqlti í gær var dregið í 3. um-
ferð undankeppni Meistaradeildar
Evrópu í knattspyrnu og komu
flest stórliðin inn nú. Newcastle
dróst á móti sigurvegara úr leik
NK Zeljeznicar, andstæðinga
Skagamanna og „íslendingaliðs-
ins“ norska Lilleström. Manchest-
er United þykir heppið að hafa
sloppið við tyrkneska liðið Fener-
bache, sem þeir drógust fyrst gegn
en því var breytt vegna þess að tvö
lið frá sama landi höfðu lent sam-
an. Þeir leika því annað hvort gegn
ungverska liðinu Zalaegerszegi eða
NK Zagreb frá Króatíu. Bæði
ensku liðin þykja hafa verið heppin
með andstæðinga.
Fyrri leikirnir eru 13. og 14.
ágúst og seinni leikirnir 27. og 28.
ágúst.
Stórleikur í fótboltanum í dag þegar í A og KR mætast. Eyleifur
Hafsteinsson var fyrstur knattspyrnumanna til að skipta úr liði
Skagamanna yfir í KR. Hann segist hafa orðið fyrir nokkru
aðkasti í heimabæ sínum í kjölfarið.
fótbolti Sannkallaður stórleikur
verður á Akranesi í dag þegar ís-
landsmeistarar Skagamanna taka
á móti KR í tíundu umferð Síma-
deildar karla. Leikurinn hefst
klukkan 14.
„Ég kemst því miður ekki á
leikinn, því er nú ver og miður. Ég
er að fara í veiði vestur í Dölum.
Annars hefði ég örugglega rnætt,"
segir Eyleifur Hafsteinsson, fyrr-
verandi leikmaður KR og ÍA. Ey-
leifur lék með meistaraflokki
Skagamanna árin 1964-1965. Árið
1966 fór hann til Reykjavíkur að
læra rafvirkjun og ákvað að
ganga til liðs við KR-inga. Það
þótti saga til næsta bæjar enda Ey-
leifur fyrsti knattspyrnumaðurinn
sem gerðist svo djarfur að ganga
úr röðum Skagamanna yfir í lið
erkifjendanna í vesturbænum.
„Það gekk nú á ýmsu uppi á
Akranesi og ég varð fyrir nokkru
aðkasti. En það var nú allt í lagi,“
segir Eyleifur sallarólegur þegar
hann rifjar upp félagaskiptin.
Hann vildi þó ekki hafa eftir þau
nöfn sem fólk kallaði hann í kjöl-
far slciptanna. „Þetta var nú ekki
svo erfitt. Ég tók þetta allavega
ekki nærri mér. Ég átti líka svo
góðan tíma með KR. Þetta var
mjög skemmtilegur tími.“
Eyleifur segist hafa fylgst með
deildinni í sumar með öðru aug-
anu. Áhugi hans hefur þó minnkað
með árunum en hann fer á flesta
heimaleiki ÍA. „Það gengur vel
hjá KR. Þeir hafa staðið sig von-
um framar. Vonandi heldur það
áfram. Skagamenn byrjuðu væg-
ast sagt mjög illa. Þeir hafa verið
að ná sér á strik en fengu skell á
móti Fylki í bikarnum. Ég vona að
þeir nái sér á strik í leiknum gegn
KR,“ segir Eyleifur inntur svara
um gengi liðanna.
Vesturbæjarliðið er efst í
Símadeildinni og hefur sex stiga
forystu á Skagamenn. Vinni KR-
ingar leikinn í dag er hætt við að
ÍA sé búið að missa þá of langt
frá sér. „Skagamenn verða að
vinna næstu leiki ef þeir ætla a<
vera með í baráttunni Það er
samt spurning hvort álagið sé
ekki búið að vera mikið á liðið því
það var að keppa í Evrópukeppn-
inni.“
Aðspurður með hvoru liðinu
hann héldi í dag sagði Eyleifur.
„Ég held nú með báðum liðum og
hef gert það í gegnum tíðina en ég
þori ekki að spá um úrslitin.“
kristjan@frettabladid.is
SVONA LÍTUR DRÁTTURINN ÚT:
Shakhtar Donetsk - Club Brugge eóa
Dynamo Búkarest
Sportíng Líssabon - Inter Milan IHHÍ
Rosenborg - Bröndby eða Dinamo Tirana
NK Maribor eða APOEL Nicosia - AEK
Athens
Barcelona - FK Vardar eða Legia Varsjá
AC ftfóian 1 Siovan Uberec
FC Skonto eða Levski Sofia - Dynamo
Kiev eða Pyunik
Lilleström eða NK Zeljeznicar -
Newcastie
Hammarby eða FK Partizan - Bayern
Munchen
Genk - Sparta P: ;g eða FC Torpedo Kuta-
isi
Maccabi Haifa eða FC Belsbina Bodruisk
- Sturm Graz
Celtic - MSK Zilina eða Basel
FeyenoJHIÍFe öahce
Zalaegerszegi eða NK Zagreb -
Mancnester United
Boavista eóa FC Hibernians - Auxerre
Lokomotiv Moskva - Grazer AK eða FC
Sheriff Tiraspol
OPID ALLA DAGA K L 12 - 19
O M = I í GÖMLU JAPIS BÚÐINNI, Brautarholti 2
Ný sending af geisladiskum!
Ný sending af DVD 356 titlar <
POPP-ROCK og HEIMSTÓNLIST - fjölbreytt flóra
TÖLVULEIKIR í úrvali
□ M =T
ur ^ os ofl-
5SSSf*“*
Virðum rétt
verslunarmanna:
LOKAÐ UM
VER5LUNARMANNAHELGINA!
SQM