Fréttablaðið - 27.07.2002, Page 24
FPÉTTARI A JT
1 1\L 1 1 ADLAL/
SlMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
Via SECJUM rilTTIK '
S m Á A U CLYSI KCASÍM iNN E R 51 5 7 5 0 0
Hljóintæki og Geisladiskar
Rafgrein
Álfheimum 6 • http://www.simnet.is/ralgrein
Drepa tímann
Skrýtið með tímann. Stundum líð-
ur hann hratt og stundum hægt.
Samt er hann mældur í föstum ein-
ingum sem eiga sér litla stoð í
reynslunni. Ein mínúta getur þýtt
svo margt. Hún spannar eilífð og ör-
skot og er því merkingarlaus í sjál-
fu sér.
—♦—
Fáir hafa gert sér betur grein
fyrir teygjuvirkni mínútunnar en
persneski furstinn sem átti 24 konur
og þurfti að eyða klukkustund með
hverri þeirra daglega. Með sumum
kvennanna var hver mínúta eins og
langdregin kvöl á meðan sama tíma-
eining skaust eins og ljósgeisli í
myrkri með annarri. Furstinn átti
bágt með að skilja þetta enda vafð-
ist það líka fyrir Einstein mörgum
öldum síðar. Hann leysti vandann
með því að segja tímann afstæðan
og betur er vart hægt að orða það.
--4---•'
Þó mínútan sé mislöng þá er
hitt eins víst að í lífi hvers manns er
hún takmörkuð auðlind. Að lokum
er ekki fleiri að hafa. Þess vegna
skiptir miklu að nýta hverja fyrir
sig sem best. Hver og ein gæti verið
sú síðasta. Og þá er ekki meira að
hafa. Samt sólundar fólk mínútun-
um og slær þær frá sér líkt og mýfl-
ugur á sumardegi. En af mýbiti er
nóg.
—♦—
Fólk hefur meira að segja
komið sér upp orðtökum til að lýsa
sóuninni. Sumir drepa tímann á
meðan aðrir stytta sér stundir.
Hvoru tveggja þykir jákvætt og
bera vott um þrautseigju á líðandi
stundu. En í raun og veru er aðeins
stigsmunur á því að stytta sér
stundir eða drepa tímann og á því
að stytta sér aldur. Hver mínúta
sem fer kemur ekki aftur.
í Stað þess að stytta okkur stund-
irnar ættum við að lengja þær með
virkri gleði. Og nær væri að vekja
tímann til lífsins frekar en að drepa
hann með aðgerðarleysi. En eins og
persneski furstinn mátti reyna í
gleði og þraut þá ráðum við því ekki
sjálf hversu löng mínútan er. Það
fer eftir einhverju allt öðru en
klukkunni. Við getum í besta falli
notað hana til að ná í strætó. Eða
sjóða egg.
TEKK
V Ö R U H Ú S
COMPANY
Sumartilboð
3ja sæta: Kr. 146.000,-
Tilboð: Kr. 109.500,-
2ja sæta: Kr. 133.000,-
Tilboð: Kr. •o <5 in © ■
Stóll: Kr. 93.000,-
Tilboð: Kr. 69.750,-
TekkVörijhits - Comp.my * Bæjarltnd 14» i 6 * Simí: 564 44ÖÖ
OpÍÚ íaugard&g í 0 til I é
Hungursneyð ógnar milljónum manna í sunnanverðri Afríku. Rauði krossinn er að hjálpa.
Hríngdu í síma 907 2020 og þá styrkir þú átakió um 1.000 kr., sem bætast við
símreikninginn.tnttframlag getur bjargað mannslífum.
Einnig er hægt að leggja framlag inn á reikning 1151 25 12, kt. 530269-2649
eða með kredikorti á www.redcross.is
Rauði kross íslands